Tíminn - 13.12.1987, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Sunnudagur 13. desember 1987
JJ
GLEYPIR
FÓLK
M EE )l H) Ch Ð
C )G H IÁ R l“
„Ég hef verið með þetta námskeið
síðastliðin fimmtán ár og stór hópur
af yngri kynslóð leikara í dag, hafa
byrjað hér“, segir Helgi Skúlason.
„Það er tvíþætt hugsun á bak við
þetta. Hér áður fyrr voru tveir
skólar, annar sem Þjóðleikhúsið rak
og hinn var á vegum Leikfélags
Reykjavíkur. Þessir skólar voru
hálfgerðir frítímaskólar og alltaf var
uppi hugmyndin og krafan í þá átt
að ríkið setti upp alvöru leiklistar-
skóla sem síðan gæti tekið við efni-
legustu nemendunum úr þessum
tveim skólum, sem þá væru einskon-
ar undirbúningsskólar ef svo má
segja.
Það var mikið reynt til að fá þessa
hugmynd í gegn, farið á fund mennta-
málaráðherra, margra þeirra. Þeir
töldu að þetta yrði of þungt í vöfum
og þorðu ekki að fara út í þetta.
Svarið var alltaf það sama, það eru
tveir skólar hérna, við þurfum ekki
ríkisskóla. Til að koma í veg fyrir
þetta deilumál, voru þessir tveir
skólar leikhúsanna lagðir niður. Eft-
ir það var enginn skóli í nokkur ár,
þangað til allt í einu að ríkisskólinn
var stofnaður.
Rtkisskólinn tekur inn átta manns
á ári, að loknum prófum sem fram
fara á vorin, en ásóknin er um sjötíu
til áttatíu manns á hverju einasta ári.
Mér þætti skynsamlegra að leikhúsin
héldu uppi sínum skólum, en síðan
færi toppurinn úr þessum tveim
skólum í ríkisskólann, af því að mér
hefur alltaf fundist ógurlega glæfra-
legt að taka sjötíu-til áttatíu manns
bara beint af götunni í próf. Fólk,
sem hefur ekki hugmynd um hvað
það er að fara út í og hefur ekki
fengið að þreífa neitt á þessu áður.
Enda hefur það verið reyndin, að
alltaf við og við kemur upp í ríkis-
skólanum dæmi um það að fólk er
búið að eyða þarna tveim til þrem
árum úr æfi sinni, og áttar sig á því
að þetta er ekkert sem það langar til
að gera. Tvö til þrjú ár er ekkert lítill
hluti, ég meina það er kennsla frá
níu á morgnana til sjö á kvöldin,
svoleiðis að fólk gerir ekkert annað.
Fyrir utan að leiklistarnám sem
þetta, hefur það í för með sér að fólk
slitnar bókstaflega úr samhengi við
fyrra umhverfi sitt, af því að þessi
listgrein hún hreinlega gleypir fólk,
alveg með húð og hári.
Það sem verra er, að þetta fólk sem
hættir, hefur tekið upp sætið fyrir
einhverjum öðrum sem getur ekki
hugsað sér neitt annað í lífinu."
TVÆR ÁSTÆÐUR
FYRIR MÍNUM SKÓLA
„Ein ástæða fyrir mínum skóla er
þessi þrjóska mín að vilja að einhver
„Þið eruft dýr á eyftieyju, þaft fellur óþekktur hlutur á jörðlna til ykkar. Þið eruð hrœdd, en farið svo að athuga hann hægt og rólega.“
sagði Valdimar.
sem kennir helminginn af tímunum.
Þá einhvern sem er tiltölulega ný-
útskrifaður og ferskur, annaðhvort
héðan eða sem hefur komið að utan.
í vetur og reyndar síðasta vetur líka
er það Valdimar Örn Flygenring, en
í gegnum árin hafa það verið ýmsir.
Þetta geri ég meðal annars til að
koma í veg fyrir að ég hafi of mikil
áhrif, til að fólk komi ekki út úr
þessum skóla og það sé hægt að sjá
á því, - „jæja, svo þessi hefur verið
hjá Helga Skúlasyni“. Það vildi
brenna dálítið við hérna áður fyrr.
Kennslan fer alltaf fram um helgar
því við miðum við að fólk stundi
fulla vinnu eða sé í skóla. Þetta
hefur yfirleitt verið ungt fólk, frá
svona 15 til 30 ára, en það kemur
fyrir að það sé eldra, allt upp í
sextugt.
Það sem við förum í á þessu
námskeiði, miðar að því að taka við
fólki eins og maður segir, alveg af
götunni. Það fer gríðarlega mikill
tími í byrjun í það að gera það fært
um að vinna. 1 fyrstu tímum sitja
allir skelfingu lostnir, - verður mér
stillt upp og sagt að fara að leika.
Það tekur dágóðan tíma að skapa
andrúmsloft til þess að hægt sé að
senda þau út í að gera eitthvað, eins
og t.d. að spinna einhverja hugmynd
áfram. Við erum með raddbeitingu,
upplestur og á mjúkan hátt reynum
Rætt við Helga Skúlason leikara,
um leiklistarnámskeið sem hann hefur
staðið fyrir í rúman áratug
svona starfsemi sé gangandi. Þannig
að fólk af götunni geti komið inn,
þreifað á þessu og fengið auðvitað
undirbúningsmenntun svo að það
standi betur að vígi þegar það fer í
inntökuprófin í ríkisskólanum eða í
útlöndunt. En ekki síður til að það
geti áttað sig í tíma á því að þetta er
ekkert fyrir það og hætt, hvenær sem
það vill, án þess að vera búið að eyða
heilu árunum úr æfi sinni. Þetta er
ein hliðin á þessum skóla hjá mér.
Hin hliðin er sú, að alltaf er
drjúgur hópur sem kemur og ber því
við að það vilji losna við einhverja
áragamla feimni, sem margir eru
haldnir og til að geta staðið í fæturna
í lífinu. Það er auðvitað eitt það
ánægjulegasta og sem maður gleðst
mest yfir er að sjá þá breytingu á
fólkinu. Það er gaman að sjá hvað
hefur orðið úr fólki sem kannski
kom í hnút að haustinu og gengur út
með fullkomnu öryggi að vori.
Það myndast alltaf ákveðinn
kjarni, sem heldur áfram og getur
ekki hugsað sér neitt annað en að
komast inn í ríkisskólann eða að
fara út í nám til Englands, Banda-
ríkjanna eða Svíþjóðar, svo dæmi
séu tekin.“
Valdimar örn Flygenring leikari,
sér einkum um spunaæfingarnar
á námskeiðinu.
ERU Á ALDRINUM
15TIL60 ÁRA
„Við byrjum alltaf í október og
erum fram í endann á apríl eða að
prófum í rtkisskólann hér. Það er
gífurleg ásókn á námskeiðið, og
biðlistinn til að komast inn eftir
áramót er langur. Ég var einmitt að
athuga hverjir af þeim sem eru núna
ætla að halda áfram, og það var
mikill meirihluti, þannig að það
verða fáir sem ég get bætt við.
Það hefur alltaf verið stefnan hjá
mér að hafa annan kennara, mér
svona gömlum jálki til aðstoðar,