Fréttablaðið - 20.02.2009, Page 2
2 20. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR
SVEITARSTJÓRNARMÁL Samgönguráð-
herra hefur sent bæjaryfirvöldum í
Ísafjarðarbæ, Bolungarvík og Súða-
víkurhreppi bréf þar sem þau eru
hvött til að kanna ávinning af því að
sveitarfélögin verði sameinuð.
Þar er vísað til fundar sem bæjar-
stjórar Bolungarvíkur og Ísafjarða-
bæjar áttu 13. febrúar og síðan
segir: „Í ljósi jákvæðra umræðna
sem fram fóru á fundinum og sam-
eiginlegs vilja
um að efla sveit-
arstjórnarstigið
á svæðinu legg-
ur samgöngu-
ráðherra til að
Ísafjarðarbær
og Bolungarvík-
urkaupstaður
sameinist um að
hefja athugun á
samfélagslegum
og hagrænum ávinningi á því að
sveitarfélögin verði sameinuð. Jafn-
framt leggur ráðherra til að Súðar-
víkurhreppi verði boðin þátttaka.“
„Ég hef lagt til oftar en einu sinni
að Vestfirðir verði gerðir að einni
einingu svo það þarf ekkert að efast
um minn hug í þessum efnum,“
segir Halldór Halldórsson, bæjar-
stjóri Ísafjarðarbæjar.
Ísafjarðarbær hefur samþykkt
200 milljóna króna niðurskurð á
fjárlögum og sá niðurskurður gæti
haft áhrif á þessar samningavið-
ræður að mati Halldórs. Til dæmis
er nú verið að kynna tillögur Ísa-
fjarðarbæjar um að flytja kennslu
8., 9. og 10. bekkinga frá Flateyri
og Suðureyri til Ísafjarðar. Það
myndi þó einungis nægja fyrir tíu
prósentum af þessum niðurskurði.
„Það er hugsanlegt að þeir sem eru
mótfallnir sameiningarhugmynd-
um tefli þessu fram sem dæmi um
það að sameiningin feli það í sér að
soga eigi allt til Ísafjarðar,“ segir
Halldór. Þegar þessar hugmyndir
voru kynntar á fundi á Flateyri í
fyrradag mættu þær miklum mót-
bárum bæjarbúa þar. Vestfirski
frétta vefurinn Bæjarins bestu segir
hugmyndirnar hafa valdið titringi í
samfélaginu þar.
En það er ekki allt að dragast
saman fyrir vestan því á síðasta
ári fjölgaði íbúum Vestfjarða um
65 og er það í fyrsta sinn, að sögn
Halldórs, frá því 1981 að slík þróun
á sér stað í þessum landshluta. „Við
erum svo sem ekkert að græða á
kreppunni en ég gæti trúað því að
margir fyndu til öryggis á lands-
byggðinni í þessu árferði,“ segir
hann. jse@frettabladid.is
Erling, er nauðsynlegt að
skjóta á hann?
„Hvað heldur þú?“
Blóðbræður, nýstofnaður dúett þeirra
Erlings Bang og Hrafns Jónssonar, hefur
gefið út lagið „Upp með hendur“, sem er
ádeila á Bubba Morthens. Margir muna
eftir and-hvalveiðilagi Bubba frá 1986, en
viðlag þess er á þessa leið: „Hvað heldur
þú? Er nauðsynlegt að skjóta þá?“
DÓMSMÁL Hæstiréttur stytti í gær
refsidóm yfir rúmlega níræð-
um manni sem misnotað hafði
dótturdóttur sína kynferðis-
lega. Héraðsdómur hafði dæmt
manninn í fjögurra ára fang-
elsi. Hæstiréttur dæmdi hann í
tveggja ára fangelsi. Afinn á að
greiða barnabarni sínu 1,5 millj-
ónir króna í bætur.
Misnotkun afans hófst þegar
stúlkan var aðeins fjögurra ára.
Henni lauk ekki fyrr en hún var
orðin fimmtán ára haustið 2005.
Þá var afi hennar 87 ára.
Maðurinn er meðal annars
dæmdur fyrir að þvinga stúlkuna
til munnmaka og fyrir að troða
fingrum sínum í leggöng henn-
ar. Brotin fóru fram á heimilum
þeirra beggja, í sumarbústað og á
ferðalögum, meðal annars í hjól-
hýsi. Annað barnabarn kærði
afann einnig fyrir áralanga mis-
notkun en það mál var fyrnt.
Hæstiréttur taldi staðreynd að
maðurinn væri sekur um athæf-
ið. Hann hefði brotið trúnað gegn
barnabarni sínu.
Á hinn bóginn leit Hæstiréttur
til þess að maðurinn væri kom-
inn á tíræðisaldur, hafi búið við
nokkra skerðingu á vitrænni getu
og haldinn líkamlegum sjúkdóm-
um.
Dómarar Hæstaréttar í þessu
máli voru Árni Kolbeinsson,
Garðar Gíslason, Gunnlaugur
Claessen, Ingibjörg Benedikts-
dóttir og Markús Sigurbjörnsson.
- jss
HÆSTIRÉTTUR Fimm dómarar Hæsta-
réttar styttu refsitíma afans.
Dómur Hæstaréttar í máli afa sem níddist á dótturdóttur sinni um árabil:
Refsitími styttur vegna elli
STJÓRNMÁL Gylfi Magnússon við-
skiptaráðherra ætlar að grennsl-
ast fyrir um launakjör nefndar-
manna í skilanefndum gömlu
bankanna.
Í skilanefnd-
unum sitja
alls fimmtán
nefndarmenn,
fimm í hverri
nefnd. Allt frá
skipun þeirra
í október hafa
launin verið
til umræðu og
rætt um að þeir fái allt að þrjár
til fimm milljónir króna í laun á
mánuði, og stundi sumir þeirra
aðra vinnu meðfram.
Fjármálaeftirlitið hefur hins
vegar sagt að þeir fái greitt sam-
kvæmt kjarasamningum viðkom-
andi stéttarfélaga, þó séu sumir
þeirra á verktakasamningum. - kóþ
Viðskiptaráðherra:
Spyr um kjör
skilanefnda
GYLFI
MAGNÚSSON
ALÞINGI Lúðvík Bergvinsson, þing-
flokksformaður Samfylkingarinn-
ar, ætlar ekki að leita eftir endur-
kjöri í þingkosningum í vor. Þetta
kemur fram
í tilkynningu
frá Lúðvík sem
send var fjöl-
miðlum í gær.
Þar segir
að þau miklu
straumhvörf
sem orðið hafi í
íslensku samfé-
lagi undanfarna
mánuði krefjist
þess að breytingar verði á skipan
Alþingis, enda ábyrgð stjórnvalda
á hruni fjármálakerfisins mikil.
Lúðvík tók fyrst sæti á Alþingi
árið 1994, og hefur því gegnt
þingmennsku í fjórtán ár. - bj
Þingmaður Samfylkingarinnar:
Hættir þing-
mennsku í vor
LÚÐVÍK
BERGVINSSON
DÓMSMÁL Fyrirtækið Síld og fisk-
ur hefur verið dæmt til að greiða
konu rúmlega 1,5 milljónir króna
í skaðabætur vegna slyss sem
hún varð fyrir þegar hún var að
þrífa kjötskurðarvél.
Konan þurfti að taka vélina í
sundur að hluta til að þrífa hana.
Í átaki við það skrapp hönd henn-
ar til og lenti handarbakið á
skurðblaðinu. Hún þurfti að fara
í aðgerð eftir slysið, þar sem sin
var saumuð saman.
Dóminum þótti ekki hafa verið
sýnt fram á að fyllstu öryggis-
kröfum hafi verið fullnægt varð-
andi kjötskurðarvélina. - jss
Með hönd í kjötskurðarvél:
Fær 1,5 milljón-
ir í skaðabætur
ALÞINGI Byggðastofnun mun ekki
geta lánað smærri fyrirtækjum,
komi ekki til aðgerða ríkis-
stjórnarinnar, sagði Kristján Þór
Júlíusson á þingi í gær. Minnti
hann á stór orð Vinstri grænna
um mikilvægi stofnunarinnar og
vildi fá að vita hvað ríkisstjórnin
hygðist gera.
Össur Skarphéðinsson iðnaðar-
ráðherra var til andsvara og
sagði Byggðastofnun í eiginfjár-
vanda nú, en hann hafi ekki feng-
ið nákvæma útlistun á vandanum
frá stjórn stofnunarinnar, sem
Kristján Þór situr í. Fyrr væri
ekki hægt að taka ákvörðun í
málinu. - ss
Byggðastofnun:
Eigið fé of lítið
fyrir útlán
Þrjú vestfirsk sveitar-
félög verði sameinuð
Samgönguráðherra hvetur til þess að Ísafjarðarbær, Bolungarvíkurkaupstaður
og Súðavíkurhreppur sameinist. Hugmyndir um að flytja unglingakennslustig
frá Flateyri vekja ugg. Vestfirðingum fjölgar í fyrsta sinn frá 1981.
VIÐ ÓSHLÍÐ Þótt Óshlíðin vilji oft skilja að Ísfirðinga og Bolvíkinga er þess kannski
ekki langt að bíða uns sveitarstjórnarmenn komi þeim undir eina sæng.
HALLDÓR
HALLDÓRSSON
1999
2000
2001
2002
2003
2004
2005
2006
2007
2008
8.308
8.150
8.012
7.930
7.835
7.698
7.546
7.470
7.374
7.309
0 2.000 4.000 6.000 8.000
MANNFJÖLDAÞRÓUN Á
VESTFJÖRÐUM
VIÐSKIPTI Stjórnendur svissneska bankans UBS hafa
samþykkt að greiða bandarískum yfirvöldum 780
milljónir dala, jafnvirði 90 milljarða króna, gegn
því að dómsmálaráðuneytið falli frá málsókn á
hendur bankanum.
UBS hefur þegar svipt hulunni af á bilinu 250 til
300 bandarískum fjármagnseigendum sem sannað
er að hafi svikið undan skatti en falið fé sitt frá
augum skattayfirvalda hjá svissneska bankanum í
skjóli bankaleyndar.
Bandarísk yfirvöld hafa heimildir fyrir því að
starfsmenn UBS hafi mörg þúsund sinnum ferðast
til Bandaríkjanna í þeim tilgangi einum að kynna
kosti bankaleyndar.
Talið er að allt að sautján þúsund Bandaríkja-
menn feli eigur sínar á leynireikningum UBS.
Heildarfjárhæðin er talin nálægt tuttugu milljörð-
um dala, um 2.300 milljörðum króna.
Að sögn Peters Kurer, stjórnarformanns UBS, var
bankaleyndin aldrei hugsuð sem felustaður skatt-
svikara og því muni bankinn vinna með bandarísk-
um yfirvöldum.
Hans-Rudolf Merz, forseti Sviss, sagði í samtali
við Associated Press-fréttastofuna í gær, að aðgerð-
in þýði ekki að takinu verði sleppt af bankaleynd
landsins þrátt fyrir þetta. - jab
Svisslendingar afnámu bankaleynd á reikningum bandarískra skattsvikara:
Bankaleyndin ekki svikaskjól
FÓLK Björn Jörundur Friðbjörns-
son verður áfram dómari í þátt-
unum Idol-stjörnuleit, sem sýnd-
ir eru á Stöð 2. Staða hans var
í óvissu eftir að opinbert varð
að hann átti í samskiptum við
dæmdan fíkniefnasala.
„Hann hefur misstigið sig,
eins og hann hefur lýst, og beð-
ist velvirðingar á því. Varðandi
okkar samstarf skipta afdrátta-
lausar yfirlýsingar hans um að
fíkniefni séu ekki lengur hluti
af hans lífi mestu. Við þau skil-
yrði er eðlilegra að við styðjum
hann á réttri braut frekar en að
kippa undan honum fótunum.
Við höfum átt gott samstarf um
árabil þar sem hann hefur alltaf
staðið sig óaðfinnanlega,“ segir
Ari Edwald, forstjóri 365. - kóp
Fær stuðning frá 365:
Björn Jörundur
áfram í Idolinu
Sigmundur fram í Reykjavík
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, for-
maður Framsóknarflokksins, ætlar að
bjóða sig fram í Reykjavíkurkjördæmi
norður í komandi alþingiskosningum.
ALÞINGKOSNINGAR
VIÐ EITT ÚTIBÚA UBS Stjórnarformaður svissneska risabankans
UBS segir bankaleynd ekki felustað skattsvikara. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
SPURNING DAGSINS