Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.02.2009, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 20.02.2009, Qupperneq 4
4 20. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR 8x8cm Fyrirtækja þjónusta PÖNTUNARSÍMI 550 4111 Ti lb oð ið g ild ir út fe br úa r 2 00 9 499kr. pakkinn 500 blöð í pakka Ljósritunarpappír DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað- fest tíu mánaða fangelsisdóm yfir manni fyrir ítrekaðar hótanir og brot gegn valdstjórninni. Maðurinn hótaði starfsmönn- um Fjölskylduþjónustunnar ítrek- að þegar hann stóð í forræðis- máli. Meðal annars hótaði hann að kveikja í húsum þeirra og berja þá til ólífis. Þá hótaði hann barnsmóður sinni einnig lífláti, auk þess sem hann kastaði log- andi bensínsprengju í gám sem innihélt eigur barnsmóður hans. Maðurinn var dæmdur til að greiða tveimur starfsmönnum Fjölskylduþjónustunnar 600 og 200 þúsund krónur í bætur. - sh Dæmdur í fangelsi: Hótaði íkveikju og öðru ofbeldi ALÞINGI „Ég tel eðlilegt að við gerum tilraun til að fá [lista- verkin] aftur í þjóðareigu,“ sagði Katrín Jakobsdóttir á Alþingi í gær, í svari við fyrirspurn Krist- ins H. Gunnarssonar. „Það er mikilvægt mál að ná þessu í gegn þegar gengið verður frá nýjum eiginfjárreikningum bankanna,“ sagði Katrín. Fram kom í máli Kristins að listaverk bankanna væru um 4.000 talsins og taldi hann þau vera komin í eigu nýju bankanna og því eign ríkisins. Bæði töldu þau eigendur gömlu bankanna hafa staðið sig vel í að geyma listaverkasöfn sín og því kæmi til greina að bönkunum yrði falið að varðveita listaverkin áfram. - ss Listaverk ríkisbanka: Mikilvægt að fá í þjóðareigu DANMÖRK Anders Fogh Rasmuss- en, forsætisráðherra Danmerk- ur, býðst að taka við embætti framkvæmdastjóra Atlantshafs- bandalagsins. Þetta er fullyrt í dönskum fjölmiðlum. Nýr fram- kvæmdastjóri verður útnefndur á leiðtogafundi NATO í Strassborg í Frakklandi eftir sex vikur. Að því er Politiken.dk greindi frá í gær er nú af hálfu NATO þrýst á Fogh að gera sem fyrst upp við sig hvort hann hyggist gefa kost á sér í stöðuna. Haft er eftir heimildarmanni í höfuðstöðv- um NATO að málið verði að vera útkljáð vel fyrir leiðtogafundinn. Á fundinum sjálfum vilji leið- togarnir geta einbeitt sér að því að pumpa Obama Bandaríkjaforseta um utanríkisstefnu hans. - aa Anders Fogh Rasmussen: Býðst að verða framkvæmda- stjóri NATO PÁFAGARÐUR, AP Fóstureyðingar bárust í tal á fundi Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Banda- ríkjaþings, og Benedikts sextánda páfa í gær. Páfi sá ástæðu til að upplýsa hana um að kaþólsk- um stjórnmála- mönnum bæri skylda til að vernda líf „á öllum stigum þróunar þess“. Demókratinn Pelosi, sem er kaþólsk, hefur lengi verið einn harðasti stuðningsmað- ur fóstureyðinga í Bandaríkjun- um. Að loknum fundinum minnt- ist hún ekkert á að þau hefðu rætt fóstureyðingar. Páfagarður hefur reynt að draga úr athygli fjölmiðla á heimsókn hennar til páfa, sem er óvenjulegt þegar einn af helstu stjórnmála- leiðtogum heims á í hlut. - gb Pelosi hjá páfa: Ósammála um fóstureyðingar NANCY PELOSI FERÐAMÁL Búist er við að Íslend- ingar muni í stórauknum mæli ferðast innanlands í sumar í ljósi efnahagsástandsins. „Það er mikilvægt að bregðast við auknum fjölda ferðamanna með bættri þjónustu og betri gæðum,“ segir María Guðmunds- dóttir, upplýsinga- og fræðslu- fulltrúi Samtaka atvinnulífsins, en talið er að um 38 prósent allra starfsmanna í ferðaþjónustu hafi enga formlega menntun í grein- inni. Á Degi menntunar í ferðaþjón- ustu sem haldinn var á Grand hóteli í gær var kynnt nýtt verk- efni í starfsmannaþjálfun sem og nýtt grunn- og stjórnendanám í ferðaþjónustu. Össur Skarp- héðinsson ferðamálaráðherra afhenti Ferðaþjónustu bænda starfsmenntaviðurkenningu Sam- taka ferðaþjónustunnar. - shv Menntun og ferðaþjónusta: Fleiri ferðast innanlands ALÞINGI Fyrsta umræða um útgreiðslu séreignarsparnaðar fór fram á Alþingi í gær. Samkvæmt frumvarpinu geta þeir sem eiga séreignarlífeyrissparnað óskað eftir að taka út allt að eina millj- ón á tímabilinu frá 1. mars til 1. október á næsta ári. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, sem mælti fyrir frumvarpinu, sagði að útgreiðsla sparnaðarins myndi ekki skerða barnabætur, vaxtabætur eða atvinnuleysisbætur. Útborgun- in verður hins vegar skattskyld. Þá væri ekki skilyrði að eiga í fjárhags- erfiðleikum til að óska eftir að taka út af sparnaði sínum. Til að koma til móts við lífeyris- sjóðina verður hámarkshlutfall í séreignarsjóð hækkað úr fjórum prósentum í sex prósent. Þá munu lífeyrissjóðirnir hafa aukið svig- rúm til að standa skil á staðgreiðslu skatta vegna útborgunar. Þingmenn Sjálfstæðisflokks spurðu hvers vegna hámarkið væri sett við eina milljón og af hverju sú breyting hafi verið gerð frá umræðu í fyrri ríkisstjórn um að útborgunin ætti að fara í að borga upp skuldir. Steingrímur svaraði því til að einhverjir ættu eftir að verða fyrir vonbrigðum með þessa niðurstöðu en eftir rækilega skoðun væri þessi aðgerð eins langt farin og hægt væri að teygja sig. - ss Fjármálaráðherra mælir fyrir frumvarpi um útgreiðslu séreignarlífeyrissparnaðar: Útgreiðsla skerðir ekki bætur STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Fjármála- ráðherra hvatti Alþingi til að hraða vinnu við frumvarpið til að hægt sé að greiða út séreignarsparnað frá 1. mars. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Ósló París Róm Stokkhólmur 14° 8° 4° 1° 4° 7° 6° 4° 1° 1° 19° 9° 1° 16° -3° 9° 11° -1°Á MORGUN 5-10 m/s en hvessir af norðvestri víða um land um kvöldið SUNNUDAGUR 8-15 m/s, hvassast austan til 0 0 0 1 0 4 7 8 5 1 1 5 5 2 5 2 2 2 8 2 6 3 4 4 8 6 6 -1 -1 -1 0 -3 RIGNING SNJÓKOMA Kortin eru úrkomu- söm næstu daga. Í dag verður rigning eða slydda sunnan til en snjókoma á norður- helmingi landsins. Á morgun verður víða rigning en á sunnu- daginn kólnar samfara norðanátt og þá má búast við stöku éljum nyrðra annars bjart. Á mánudag má aftur búast við snjókomu eða slyddu víða um land. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur UTANRÍKISMÁL Össur Skarphéðins- son utanríkisráðherra segir að afdrifarík umhverfisspjöll hefðu getað orðið við árekstur bresks og fransks kjarnorkukafbáts í febrúar. Hann segir þá hafa verið í vígaleik- fimi. „Þessir kafbátar voru í víga- leikfimi að æfa einhvers konar ein- vígi. Tiltæki af þessum toga geta skapað verulega hættu.“ Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, segir stór- mál á ferðinni sem þurfi að taka á. „Við skorum á íslensk stjórnvöld að beita sér fyrir því að öll umferð kjarnorkuknúinna farartækja um heimshöfin verði bönnuð. Áhættan fyrir lífríkið er allt of mikil. Við eigum að taka þetta upp á alþjóð- legum vettvangi.“ Frumvarp um friðlýsingu Íslands fyrir kjarnorku og umferð kjarn- orkuknúinna farartækja hefur níu sinnum verið lagt fram á Alþingi, fyrst árið 1987, en aldrei fengist afgreitt. Fyrir þingi liggur frum- varp, lagt fram af þingmönnum allra flokka nema Sjálfstæðis- flokksins. Þrír ráðherrar í ríkisstjórninni eru meðal flutningsmanna; Stein- grímur J. Sigfússon, Katrín Jakobs- dóttir og Ásta R. Jóhannesdóttir. Þá hafa þau Össur Skarphéðinsson og Kolbrún Halldórsdóttir verið flutn- ingsmenn sama frumvarps á fyrri þingum. Össur segir sjálfsagt að skoða hvort lýsa eigi yfir friðlýsingu ákveðinna svæða og ljóst sé að setja þurfi reglur með hagsmuni þeirra þjóða sem byggja strendur Atlants- hafsins í huga. „Ég tel af þessu til- efni sjálfsagt að rifja upp að ég var á sokkabandsárum mínum með- flutningsmaður svipaðs frumvarps, ásamt núverandi fjármálaráðherra. Nú eru að vísu meiri kærleikar með okkur en þá,“ segir Össur. Árni Þór Sigurðsson, formað- ur utanríkisnefndar, segir sér- lega brýnt að taka frumvarpið til afgreiðslu nú. „Ég tel að friðlýsa eigi Ísland og gefa alþjóðasamfé- laginu þau skilaboð að við kærum okkur ekki um þessa umferð.“ Utanríkisráðherra hefur kallað fulltrúa Breta og Frakka á sinn fund vegna málsins og Árni Þór segir þá mögulega verða kallaða fyrir utanríkisnefnd. kolbeinn@frettabladid.is Slys kjarnorkubáta gæti þýtt friðlýsingu Utanríkisráðherra segir árekstur kjarnorkukafbáta hafa orðið við æfingar á einvígi og vill skoða friðlýsingu landsins fyrir kjarnorku. Útvegsmenn vilja banna alla umferð kjarnorkuknúinna farartækja á heimshöfunum. ENGIN SMÁSMÍÐI Breski kjarnorkuafbáturinn HMS Vanguard, sem lenti í árekstri við franska kjarnorkukafbátinn Les Triomphant, er engin smásmíði. Hann er 149,9 metra langur og tæp 16 þúsund tonn. Til samanburðar má nefna að venjulegur strætisvagn er um 12,5 metrar á lengd og báturinn því á við 12 strætisvagna að lengd. Franski kafbáturinn er 138 metra langur og tæp 13 þúsund tonn. Á þriðja hundrað kjarnorkukafbáta eru til í heiminum. GENGIÐ 19.02.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 177,7311 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 113,06 113,60 162,23 163,01 143,17 143,97 19,214 19,326 16,453 16,549 13,133 13,209 1,2071 1,2141 166,95 167,95 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.