Fréttablaðið - 20.02.2009, Síða 10
10 20. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR
Með ábendingum viðskiptavina mótum við nýjan banka.
Starfsfólk Íslandsbanka þakkar ábendingarnar.
Hlusta á viðskiptavini. Karlmaður, 35 ára.
Láta viðskiptavininn vera í fyrirrúmi. Kona, 45 ára.
Vera varkárari í framtíðinni. Kona, 45 ára.
Veita persónulega ráðgjöf.Kona, 39 ára.
Styðja við bakið á fyrirtækjum í erfiðleikum. Karlmaður, 48 ára.
Vera banki fólksins. Kona, 45 ára.
Hlutverk bankans á að vera stuðningur við samfélagið.Karlmaður, 40 ára.
Halda maraþoninu áfram! Kona, 35 ára.
Opin fyrir nýjungum. Karlmaður, 27 ára.
Styrkja samfélagsleg málefni á sviði menningar og íþrótta. Karlmaður, 60 ára.
Mannleg, traust samskipti. Kona, 5
Fyrir fólk eins og mig og þig. Kona, 47 ára.
Kenna unga fólkinu að fara vel með peningana. Kona, 63 ára.
Ekki hvetja til bruðls og offjárfestinga. Kona, 44 ára.
Leiðbeinandi um fjárhag fólksins í þjóðfélaginu. Kona, 52 ára.
Gagnsæi í rekstri.Karlmaður, 40 ára.
Spara í nafnabreytingunni. Kona, 25 ára. Hætta þessu útrásarbulli. Kona, 37 ára.
Frá því í nóvember höfum við kallað eftir skoðunum viðskiptavina í útibúum og á heimasíðu okkar
um það hvernig þeir vilji að nýr banki starfi. Við notum þessar ábendingar til að móta nýjan banka.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
8
-2
2
5
4
ÍSRAEL Avigdor Lieberman, leið-
togi hægriflokksins Israel Beit-
einu, vill að Benjamin Netany-
ahu, leiðtogi Likdud-flokksins
verði forsætisráðherra í þriggja
flokka stjórn með Kadima-flokkn-
um innanborðs.
„Við þurfum breiða stjórn með
stóru flokkunum þremur, Likud,
Kadima og Israel Beiteinu,“ segir
Lieberman. „Netanyahu yrði
í forystu stjórnarinnar en það
verður sameiginleg ríkisstjórn
þeirra Netanyahu og Livni.“
Tzipi Livni, leiðtogi Kadima og
utanríkisráðherra í fráfarandi
stjórn Ehuds Olmert, hefur sagt
að hún geti ekki tekið þátt í rík-
isstjórn sem gæti í reynd ekkert
gert vegna innri átaka. Hún vill
heldur ekki hverfa frá þeirri
braut, sem hún segir fyrri stjórn
hafa fylgt, að reyna að ná samn-
ingum við Palestínumenn.
„Ég hef alls ekki í hyggju að
breyta þó ekki væri nema agnar-
ögn af stefnu Kadima,“ segir hún,
samkvæmt yfirlýsingu frá Kad-
ima. „Ég ætla mér ekki að verða
fíkjublað fyrir lamaða ríkis-
stjórn.“
Hún hefur þó ekki viljað hafna
því alfarið að taka þátt í stjórn
með Netanyahu, en vill að þau
skiptist þá á um að vera forsætis-
ráðherra. Netanyahu hefur hins
vegar gefið lítið út á þá hug-
mynd.
Bæði Netanyahu og Lieberman
hafa verið með harðorðar yfir-
lýsingar í garð Palestínumanna.
Netanyahu hefur til dæmis lengi
verið eindreginn stuðningsmað-
ur landtöku Ísraela á hernumdu
svæðunum, sem er ein helsta
hindrunin í vegi fyrir friðar-
samningum. Og Lieberman sagð-
ist í kosningabaráttunni vilja að
ísraelskir arabar lýstu hollustu
við Ísraelríki, en verði sviptir
ríkisborgararétti ella.
Fráfarandi ríkisstjórn, með
Livni í sæti utanríkisráðherra,
hefur heldur ekki náð neinu skriði
í samningaviðræðum, þrátt fyrir
viljayfirlýsingar, og eitt af síð-
ustu verkum hennar var að gera
heiftarlega innrás á Gasasvæðið
sem varð hundruðum barna að
bana og vakti hörð viðbrögð úti
um allan heim.
Þriggja flokka hægristjórn
þætti líkleg til að sigla endan-
lega í strand öllum samninga-
viðræðum við Palestínumenn og
væntanlega komast þar með upp
á kant við Barack Obama Banda-
ríkjaforseta, sem hefur sagt að
friðarviðræður í Mið-Austur-
löndum verði forgangsverkefni
stjórnar sinnar.
gudsteinn@frettabladid.is
Vill bæði Likud og Kadima
Avigdor Lieberman vill í stjórn með Benjamin Netanyahu, en vonast til að Tzipi Livni taki einnig þátt.
Þriggja flokka hægri stjórn þeirra gæti kollsiglt endanlega öllum friðarviðræðum við Palestínumenn.
Á FUNDI MEÐ SHIMON PERES Avigdor Lieberman gekk í gær á fund forseta Ísraels,
sem hefur undanfarna daga velt því fyrir sér hverjum hann eigi að fela stjórnarmynd-
unarumboð. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Samþykkt að loka flugvelli
Þingið í Kirgisistan hefur staðfest
stjórnarfrumvarp um að herstöð og
herflugvelli Bandaríkjamanna í land-
inu verði lokað. Flugvöllurinn hefur,
vegna staðsetningar sinnar, verið afar
mikilvægur fyrir hernað Bandaríkja-
manna í Afganistan.
KIRGISISTAN
STJÓRNMÁL Hugmyndir ríkisstjórnar-
flokkanna um persónukjör fela í
sér að hver flokkur geti valið um
það fyrirkomulag
sem honum henti.
Forsvarsmenn
stjórnarinnar
hafa setið fundi
með formönnum
allra flokka vegna
þessa, en engin
niðurstaða hefur
fengist.
Þ e s s i v a l -
kvæðni gæti gert
það að verkum að kosningaseðlar
yrðu flóknari, segir Steingrímur
J. Sigfússon fjármálaráðherra. Í
Danmörku séu þeir til dæmis til-
tölulega flóknir. En með persónu-
kjöri yrði horfið frá neikvæðu vali,
það er útstrikunum, og tekið upp
jákvæðara fyrirkomulag. - kóþ
Breytingar á kosningalögum:
Valkvæð fyrir
alla flokkana
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON