Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.02.2009, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 20.02.2009, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 20. febrúar 2009 11 HEILBRIGÐISMÁL Ögmundur Jónasson heil- brigðisráðherra hefur ákveðið að samhæfa rekstur St. Jósefsspítala í Hafnarfirði og Landspítala. Hann gagnrýndi starfskjör lækna á spítalanum hart og ætlar að afnema verktakagreiðslur. Sameining heilbrigðis- stofnana á Norðurlandi með yfirstjórn á Akureyri gengur til baka og önnur samein- ingaráform á landsbyggðinni endurskoðuð á næstu vikum. Þetta kom fram í máli heilbrigðisráð- herra þegar hann flutti þinginu skýrslu sína um heilbrigðismál í gær. Ögmundur vék snemma í ræðu sinni að fyrirætlunum for- vera síns, Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, um niðurskurð og hvernig honum skyldi náð. Gagnrýndi hann Guðlaug afar hart. Boðaðar skipulagsbreytingar á St. Jósefsspítala koma ekki til og mun rekstur spítalans verða samhæfður starfsemi Landspítala. Starfshópur mun útfæra hvernig að því verður staðið og skila niðurstöðum í mars. En það sem greinilega stakk Ögmund mest þegar hann fór yfir málefni St. Jósefs spítala voru starfskjör lækna við stofnunina. Tíundaði hann dæmi um milljóna greiðslur til lækna fyrir aðeins tíu prósent starfshlut- fall á ári. Hann sagði slíkri verktöku lokið og læknum yrði boðið að starfa á sömu kjör- um og kollegar þeirra á Landspítala hafa samið um. Ögmundur gerði grein fyrir að ekki verði hreyft við fyrirkomulagi á Norðurlandi vestra. Sameiningaráform á Eyjafjarð- arsvæðinu haldast óbreytt. Breytingar á Vestur- og Suðurlandi koma til greina en verða ekki ákveðnar fyrr en eftir samráð við stjórnendur stofnana á svæðinu. Guðlaugur vék að gagnrýni Ögmundar um sín verk og spurði hvernig hann hygðist ná boðuðum niðurskurði. Skipulagsbreyt- ingarnar sem hann lagði af stað með hefðu verið til að vernda grunnþjónustuna en þær ákvarðanir hefðu verið mjög erfiðar. „Ef hann ætlar ekki að fara þessa leið, hvaða leið á þá að fara?“ Helsta gagnrýnin á skýrslu Ögmundar frá öðrum þingmönnum var á sömu nótum. Ögmundur hafi sneitt framhjá þeirri grund- vallarspurningu sem fyrir lá: Hvernig á að skera niður í heilbrigðiskerfinu um 6,7 milljarða króna á þessu ári? Ögmundur svaraði því til að hann sæi ekki um að útfæra niðurskurðinn í einstök- um atriðum, heldur væri það verkefni sem heilbrigðiskerfið í heild sinni tækist nú á við. Hann sté hins vegar úr pontu með þau skilaboð úr þingsal að hann hefði engu svar- að um leiðir til niðurskurðar. svavar@frettabladid.is St. Jósefsspítali taki upp samstarf við Landspítalann Heilbrigðisráðherra hyggst snúa við ákvörðunum um skipulagsbreytingar á St. Jósepsspítala í Hafnarfirði og á Norðurlandi. Ráðherra var gagnrýndur í gær fyrir að kynna ekki mótaðar hugmyndir um niðurskurð. ST. JÓSEFSSPÍTALI Bitbein til margra vikna. Boðaðar skipulagsbreytingar koma ekki til framkvæmda en nefnd mun móta tillögur um framtíð spítalans. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR 52 ára. Grunnur hefur verið lagður að nýjum banka – í dag tökum við upp nafnið Íslandsbanki Íslenskt samfélag stendur á krossgötum. Þær aðstæður sem heimili og fyrirtæki standa frammi fyrir kalla á breyttar áherslur í bankastarfsemi. Sjaldan hefur verið mikilvægara að styrkja stöðu fjölskyldna í landinu, efla atvinnulíf og stuðla að nýsköpun. Íslandsbanki ætlar sér veigamikið hlutverk í þessum efnum. Nýr banki verður ekki til á einni nóttu Það er krafa viðskiptavina og starfsmanna að bankinn sýni ráðdeild og hagsýni við nafnabreytinguna sem verður lágstemmd og mun eiga sér stað í nokkrum áföngum. Nafnabreytingin er ekki endapunktur heldur mikilvægur áfangi í því stefnumótunar- starfi sem unnið hefur verið á undanförnum mánuðum. Allir starfsmenn komu að mótun nýrrar stefnu Íslandsbanka og með henni vonast starfsfólk eftir því að endurheimta það traust sem glatast hefur. Við hlustum Við höfum kallað eftir ábendingum viðskiptavina í útibúum og á heimasíðu bankans og hafa þær nýst okkur vel í mótun skýrrar stefnu. Við leggjum kapp á að hlusta eftir skoðunum og ábendingum viðskiptavina svo Íslandsbanki geti orðið betri banki; banki sem skilur þarfir viðskiptavina og kemur til móts við þær. Saman byggjum við öflugan banka Íslandsbanki er banki sem býður alhliða bankaþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki með hagsmuni viðskiptavina og samfélagsins að leiðarljósi. Með öflugri liðsheild og ábyrgum og hagkvæmum rekstri styrkjum við grunnstoðir bankans. Íslandsbanki leggur umfram allt áherslu á að vera banki í fararbroddi með framúrskarandi þjónustu. Komdu í næsta útibú eða farðu á islandsbanki.is og kynntu þér breytingarnar. Starfsfólk Íslandsbanka DÓMSMÁL Pálmi Haraldsson, eig- andi Fons, segir að Stefán Hilmars- son, framkvæmdastjóri hjá Baugi, hafi haft samband við sig árið 2005 og haft hluti í Sparisjóði Hafnar- fjarðar, SPH, til sölu. Sér hafi þótt það spenn- andi fjárfest- ingarkostur og keypt tvö stofn- fjárbréf fyrir alls 90 milljónir króna. Hann hafi ekki haft hugmynd um að stofnfjáreig- endur fengju 50 milljónir fyrir tvö bréf. Hann hafi gengið frá sínum viðskiptum við Stefán. Vitnaleiðslur héldu áfram í gær í opinberu máli sem höfðað hefur verið á hendur Karli Georg Sig- urbjörnssyni hrl. fyrir fjársvik við sölu á tíu stofnfjárbréfum í SPH 2005-2006 þegar fimm eig- endur seldu bréf sín á 25 milljón- ir hvert. Þau uppgötvuðu síðar að lögmannsstofa Karls hefði selt þau áfram á 45 milljónir hvert. Pálmi sagði fyrir dómi að Stefán hefði ekki nefnt Karl Georg í þessu samhengi. Sigurður Valtýsson, fyrrverandi forstjóri MP fjárfestingarbanka, sagði að MP hefði keypt bréfin á uppsettu verði, 45 milljónir hvert, og viðskiptin farið fram í gegn- um Lögmenn Laugardal. Sigurður hafi vitað af töluverðri eftirspurn eftir þessum bréfum og talið að þetta væri markaðsvirði. Athygli vekur að seljendur stofnfjárbréf- anna vissu ekki hver var kaupandi en litu á Karl Georg sem millilið. Páll Pálsson, einn af forsprökk- unum, segir að umræðan hafi allt- af gengið út á 50 milljónir fyrir tvö bréf. Hann hafi ekki vitað að lög- mannsstofa Karls Georgs hafi selt þau á 90 milljónir. - ghs Viðskiptin með stofnfjárbréfin í SPH 2005-2006: Keypti bréfin af Baugi PÁLMI HARALDSSON Bætur fyrir brotið nef Karlmaður hefur verið dæmdur til að greiða öðrum manni rúmar 274 þúsund krónur í miskabætur eftir að hann braut nef hans. Sá nefbrotni átti upptök að verknaðinum. DÓMSTÓLAR RÚSSLAND Rússneskur dómstóll hefur komist að þeirri niðurstöðu að þremenningarnir, sem ákærð- ir voru fyrir morðið á rannsókn- arblaðamann- inum Önnu Politkovskaju í Moskvu fyrir nokkrum árum, séu saklausir. Bræðurnir Dazhbrail og Ibrahim Makhmudov voru ákærðir fyrir að hafa ekið morðingjanum á staðinn og lögreglumaðurinn Sergei Khadzhikurbanov var ákærð- ur fyrir að hafa hjálpað til við að skipuleggja morðið. Ættingjar Önnu Politkovskaju lýstu yfir vonbrigðum sínum með niðurstöðuna. - ghs Rússneskur dómstóll: Morð Politkovs- kaju enn óleyst ANNA POLITKOVSKAJU EFNAHAGSMÁL „Þetta snýst nú meira um að meta hvort það eru nokkrar fyrirliggjandi forsend- ur lengur til að hafa svona háa vexti,“ segir Steingrímur J. Sig- fússon fjármálaráðherra, spurð- ur hvort og hvernig hann hyggist knýja fram vaxtalækkun gagn- vart Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Ríkisstjórnin stefnir á að ræða við sjóðinn um miðja næstu viku og Steingrímur segist ekki finna nein „undirliggjandi verðbólgu- tilefni“. Samdráttur sé í neyslu og aukning atvinnuleysis. Að auki fari olíuverð lækkandi og gengi krónu hafi styrkst nokk- uð. „Og það eru allir sammála um að það er forgangsverkefni að ná niður vöxtum,“ segir hann. Einnig ætli Steingrímur að ræða fjárlög næsta árs við sjóð- inn og áætlun til lengri tíma. Ræða þurfi „hvernig við náum viðsnúningi úr hallarekstri rík- issjóðs og yfir í afgang, innan ásættanlegra tímamarka, þannig að við getum farið að borga niður skuldir og landið farið að rísa“. Spurður hvort hann geti greint frá helstu markmiðum í þessa veru og hvernig eigi að ná þeim fram segir Steingrímur: „Nei, það byrjum við að sjálfsögðu á að sýna þeim og ræða við þá.“ - kóþ Fjármálaráðherra mun kynna fjárlög fyrir AGS: Allt bendir til vaxtalækkunar BLAÐAMANNAFUNDUR UNDIRBÚINN Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði ríkisstjórnarsamstarfið ganga vel og verkáætlun samkvæmt áætlun. Hún var þó sjálf nokkuð slöpp af kvefi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.