Fréttablaðið - 20.02.2009, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 20.02.2009, Blaðsíða 12
12 20. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] Fjöldi viðskipta: 73 Velta: 158 milljónir OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6 294 -0,60% 882 -1,16% MESTA HÆKKUN ATLANTIC AIRW. +1,90% MAREL +0,90% FØROYA BANKI +0,48% MESTA LÆKKUN STRAUMUR B. -4,93% CENTURY ALUM. -2,28% BAKKAVÖR -0,51% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,25 +0,00% ... Atlantic Airways 161,00 +1,90% ... Atlantic Petroleum 450,00 +0,00% ... Bakkavör 1,96 -0,51% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið 1,00 +0,00% ... Føroya Banki 104,50 +0,48% ... Icelandair Group 13,40 +0,00% ... Marel Food Systems 50,30 +0,90% ... SPRON 1,90 +0,00% ... Straumur-Burðarás 2,12 -4,93% ... Össur 95,20 +0,32% Verg landsframleiðsla dróst saman um eitt og hálft prósent innan aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) á fjórða og síðasta ársfjórðungi í fyrra, samkvæmt gögnum sem birt voru um miðja vikuna. Þetta er mesti samdráttur sem sést hefur innan aðildarríkja OECD síðan mælingar hófust árið 1960. Á sama tíma í hittifyrra nam samdrátturinn 1,1 prósenti. Þrjátíu ríki eiga aðild að OECD, þar á meðal Ísland. Mestur var samdrátturinn í Japan, eða 3,3 prósent. Tölur liggja ekki fyrir um Ísland en fjármálaráðuneytið spáir 0,1 pró- sents samdráttar á árinu. - jab Japanar reka hagvaxtarlestinaMeð veð í öllu Glöggskyggnir hafa tekið eftir því að Páll Bene- diktsson hefur tekið til starfa sem fjölmiðlafull- trúi skilanefndar Landsbankans. Páll var áður forstöðumaður samskiptasviðs hjá Landic Prop- erty, einu af dótturfélögum Stoða (áður FL Group). Félagið, sem var kjölfestufjárfestir Glitnis, hefur verið í greiðslustöðvun síðan bankinn var þjóðnýttur í fyrra og unnið sleitulaust að því að styrkja fjárhagsstöðuna. Landsbankinn er meðal stærstu kröfuhafa Stoða. Spéfuglarnir segja ráðningu Páls skýrt dæmi um að bankinn hafi ákveðið að ganga hljóðlega að veðum og tekið fréttahauk- inn upp í skuldir. Skapandi gerð ársreikninga Berlingske Tidende greindi í gær frá því að með „skapandi ársreikningagerð“ (nokkuð sem á ensku kallast creative accounting) hafi stórir danskir bankar (Danske Bank, Nykredit og Jyske Bank) falið milljarðatap af hlutafjáreign og öðrum skuldbindingum í ársuppgjörum sínum. Samtals sýndu þeir hagnað upp á 2,6 milljarða danskra króna (59 íslenska milljarða), en tap af verðbréfum sem numið hafi 5,3 milljörðum danskra (120 milljarðar íslenskra) hafi verið tekið út úr uppgjörunum. Í raun hafi þeir því tapað upphæðinni sem þeir þóttust hagnast um. Peningaskápurinn ... Komið hafa upp tilvik þar sem eign- um, sem til stóð að gengju til nýju bankanna, hefur verið skilað aftur í þrotabú þeirra gömlu. Samkvæmt heimildum blaðsins hefur þessi staða komið upp bæði hvað varð- ar Landsbankann og Glitni, en ekki Kaupþing, þótt þar hafi einnig verið eftir því leitað. Skipting eigna milli nýju bank- anna og gömlu fer eftir forskrift Fjármálaeftirlitsins (FME) og á í grófum dráttum að vera þannig að innlendar eignir fari í nýju bankana og erlendar í þá gömlu. Hlutverk skilanefnda gömlu bankanna og tilsjónarmanns í greiðslustöðvun er að verja hags- muni kröfuhafanna, en sögusagnir af því að „vafasömum eignum“ hafi verið skilað aftur í þá gömlu hafa valdið óróleika meðal kröfuhafanna, því þannig væri verið að hygla nýja bankanum á kostnað þeirra. Blaðið hefur heimildir fyrir því að kröfuhafar Kaupþings hafi krafið skilanefndina svara um þessi mál, en fengið að vita að skilanefnd- in hafi ekki tekið við eignum inn í búið, jafnvel þótt eftir því hafi verið leitað. Þar á bæ hafi skilanefnd- in verið mjög hörð á því að sam- þykkja bara tilskipun og lista FME yfir skiptingu eignanna á milli nýja og gamla bankans. Enn er unnið að því að útbúa end- anlegan efnahagsreikning nýju bankanna, en hluti af þeirri vinnu felst í mati á því hversu mikið þeir greiða þrotabúum gömlu bankanna fyrir eignir sem færðar eru yfir. Óvíst er því hversu mikil áhrif til- færslur eigna hafa á endan- um, því nýju bankarnir þurfa væntanlega ekki að greiða mikið fyrir lán sem ekki eru talin mikils virði. Fjármálaeftir- litið annast virð- ismat á eignunum, en nýju bönkun- um verður á endanum gert að gefa út skuldabréf þar sem þeir greiða fyrir eignirnar sem teknar eru út úr gömlu bönkunum. „Eignir hafa verið færðar á milli í undantekningartilvikum,“ segir Árni Tómasson, formaður skila- nefndar Glitnis, og kveður sumar eignir hafa legið á mörkum þess að vera innlendar og erlendar, jafnvel svo að erfitt væri að skilgreina þær. Ekki hafi hins vegar verið færðar eignir úr gamla Glitni yfir í nýja. Hann veit þó af því að kröfuhaf- ar hafi sett sig upp á móti yfirtöku skilanefnda bankanna á eignum úr þeim nýju. Þá segir hann kröfuhafa hafa áhyggjur af mati á skulda- bréfi Nýja Glitnis til gamla bank- ans. Helst óttist þeir að eignir verði verðmetnar á óhentugum tíma. Árni býst við að FME ljúki mati á skuldabréfinu í mars, nokkru síðar en áður hafi verið að stefnt. „Þetta er allt óhemjuverk og hefur dregist aðeins,“ segir hann. Lárus Finnbogason, formaður skilanefndar Landsbankans hefur ekki gefið færi á viðtali vegna máls- ins. - óká / jab ÁRNI TÓMASSON Kröfuhafarnir óttast tilfærslur Dæmi eru um að eignir sem búið var að skrá á nýju bankana hafa verið færðar aftur í þrotabú þeirra gömlu. Kröfuhafar óttast að vera hlunnfarnir. BANKARNIR ÞRÍR Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur skilanefnd Kaupþings lagt sérstaka áherslu á að viðhalda trúnaði við kröfuhafa bankans vegna fyrirætlana um að þeir taki yfir Nýja Kaupþing. Nánar er frá þessu greint á forsíðu blaðsins í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/SAMSETT MYND Bankastjórn bandaríska seðla- bankans telur líklegan samdrátt hagkerfisins verða allt að 1,3 pró- sent og hefur rætt um innleiðingu verðbólgumarkmiða á ný. Þetta kemur fram í minnispunktum af fundi bankastjórnarinnar í janúar- lok og birtir voru á miðvikudag. Í fyrri hagvaxtarhorfum bank- ans frá því í október í fyrra var reiknað með því að hagvöxtur yrði allt frá lítils háttar samdrætti upp í að verða jákvæður upp á 1,1 pró- sent. - jab Sjá engan hagvöxt BEN BERNANKE Bankastjórn undir forystu Bens Bernanke telur litlar líkur á að hagvöxtur líti dagsins ljós í Bandaríkj- unum á þessu ári. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | notadir.brimborg.is -15% -18% Semdu við okkur um verð selja gamla kaupa nýjan notaðan Nýtt tákn um gæði Nýtum það sem við eigum Komdu í Brimborg í dag Fjöldi annarra Ford bíla í boði. Hringdu núna í síma 515 7000. Áfram Ísland Smelltu á notadir.brimborg.is og veldu notaðan bíl fyrir þig – farðu síðan á bgs.is og sannreyndu tilboð dagsins. Komdu í Brimborg í dag. C ohn & W olfe P ublic R elations Íslandi Við erum á tánum í dag – fyrir þig -27% eða * Tilboðsverð er nettóverð með afslætti. Á sumum myndum af nýjum Transit í þessari auglýsingu er sýndur aukabúnaður sem ekki er innifalinn í verðinu. Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Brimborgar. -30% -20% -10% Semdu við okkur um gott verð www.ford.is Nýr NýrN ýr C h & W lf P bli Notað ur Notað ur Notað ur Ford Transit 220S Sendibíll 1,8TDCi 75 hö dísil beinskiptur Hleðslurými 3,4 m3, 6 dyra, þaklúga Ásett verð með vsk 3.005.000 kr. Afsláttur með vsk 545.000 kr. Tilboðsverð með vsk 2.460.000 kr. Tilboðsverð án vsk 1.975.903 kr.* Ford Transit 220L Sendibíll 1,8TDCi 75 hö dísil beinskiptur Hleðslurými 4,4 m3, 6 dyra Fast númer KZ075 Skrd. 06/2005. Ek. 81.300 km. Ásett verð með vsk 1.690.000 kr. Afsláttur með vsk 340.000 kr. Tilboðsverð með vsk 1.350.000 kr. Tilboðsverð án vsk 1.084.337 kr.* Ford Transit 300M DC Pallbíll 2,0TDCi 85 hö dísil beinskiptur Lengd álpalls 2,54 m, 4 dyra, 6 manna Fast númer RL692 Skrd. 10/2004. Ek. 56.900 km. Ásett verð með vsk 2.020.000 kr. Afsláttur með vsk 202.000 kr. Tilboðsverð með vsk 1.818.000 kr. Tilboðsverð án vsk 1.460.241 kr.* Ford Transit 300M Sendibíll 2,0TDCi 85 hö dísil beinskiptur Hleðslurými 9,07 m3, 6 dyra Fast númer PN789 Skrd. 09/2005. Ek. 91.300 km. Ásett verð með vsk 2.150.000 kr. Afsláttur með vsk 645.000 kr. Tilboðsverð með vsk 1.505.000 kr. Tilboðsverð án vsk 1.208.835 kr.* Ford Transit 280S Sendibíll 2,2TDCi 85 hö dísil beinskiptur Hleðslurými 6,55 m3, 6 dyra Ásett verð með vsk 4.215.000 kr. Afsláttur með vsk 635.000 kr. Tilboðsverð með vsk 3.580.000 kr. Tilboðsverð án vsk 2.875.502 kr.* Ford Transit 220L Sendibíll 1,8TDCi 75 hö dísil beinskiptur Hleðslurými 4,4 m3, 6 dyra Ásett verð með vsk 3.397.000 kr. Afsláttur með vsk 917.000 kr. Tilboðsverð með vsk 2.480.000 kr. Tilboðsverð án vsk 1.991.968 kr.*

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.