Fréttablaðið - 20.02.2009, Page 20
„Það er ævintýri að sjá stórbrotna
náttúrufegurð Íslands með augum
fuglsins fljúgandi og kemur flest-
um á óvart hversu ægifagurt
vetrar ríkið er,“ segir Ásgeir Örn
Þorsteinsson, sölu- og markaðs-
stjóri Flugfélagsins Ernis, sem
allan ársins hring býður upp á
freistandi útsýnisflug, dagsferðir
og helgarferðir fyrir ævintýra-
þyrstar sálir í leit að tilbreytingu
og öðruvísi helgargamni.
„Vinsælasta útsýnisflugið er
hálftímaferð yfir Nesjavelli,
Þingvelli og Bláfjallasvæðið, en
einnig tveggja tíma útsýnisflug
yfir suðvesturhornið þar sem
flogið er yfir Heklu, Tindfjalla-
og Eyjafjallajökul, sem og Gull-
foss, Geysi og fleiri fallega staði,“
segir Ásgeir um hreint einstaka
upplifun sem sníða má að óskum
hvers og eins og flétta inn í mat
og drykk, gönguferðir, hestaferð-
ir, jeppaferðir eða hverju því sem
hugurinn girnist.
Ásgeir segir dagsferð til Græn-
lands sívinsæla, enda náttúrufeg-
urð Grænlands einstök og ógurleg.
„Þá er lent í þorpinu Kulusuk á
austurströnd Grænlands og geng-
ið undir leiðsögn um þorpið þar
sem borgarísjakar lóna á sjónum
og stálgrá fjöll og snjór umlykja
allt,“ segir hann.
Um þessar mundir býður Ernir
upp á rómantíska helgi í Horna-
firði og skíðaferð í Skagafjörð.
„Þá fljúgum við á Höfn þar sem
gist er á hóteli og er afbragðs
humarstaður. Við Hoffellsjökul
eru útipottar í náttúrunni, sem er
rómantískt undir norðurljósunum.
Einnig hægt að fara í vélsleðaferð
á Vatnajökul eða fjórhjólafjöru-
ferð um rústir frá stríðsárunum.
Á Króknum er innifalin gisting,
vélsleðaferð, skíðaferð í Tinda-
stól og fleira,“ segir Ásgeir og
hvetur ferðaglaða að leita tilboða.
„Við púslum saman öllu því sem
fólk dreymir um að gera.“ Nánar
á www.ernir.is. thordis@frettabladid.is
Eins og fuglinn fljúgandi
Ísland er landið og fósturjörðin eina. Eyjan sem á í okkur hvert bein og kemur við hjörtun í mikilfengleik
sínum og náttúrufegurð. Því er útsýnisflug yfir snævi prýdd fjöll og dali, borg og bæi ósvikin skemmtun.
Ísgolf á Vatnajökli. MYND/FLUGFÉLAGIÐ ERNIR
Fjórhjólaferð um strendur Hornafjarðar.
Séð yfir fjöll á Suðurlandi í heiðskíru vetrarveðri, en sýn á landið er einkar fögur og
skörp úr lofti þegar kalt er í veðri. MYND/RAGNAR TH.
Ásgeir Örn Þorsteinsson, sölu- og markaðsstjóri hjá Flugfélaginu Erni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
TÓNLEIKAR íslenska kórsins Stöku sem starfar í
Kaupmannahöfn fara fram á Háskólatorgi í dag klukkan
13, á Kjarvalsstöðum í kvöld klukkan 20 og í Reykholti
í Borgarfirði á sunnudaginn klukkan 16.
VÍNLANDSLEIÐ 6 - S: 533 3109
TOPPSKÓR Á RUGLVERÐI
40% afsláttur af öllum Ecco skóm
OPIÐ MÁN.-FÖS. 11 - 18 · LAU. 11 - 16 · SUN. 12 - 16
Ancona
E-8005400101
Litir: Svart og brúnt
Neofusion Exprésso
E-4890411192
Litir: Brúnt
Afsláttur
40%
Afsláttur
40%
Afsláttur
40%
Afsláttur
40%
Afsláttur
40%
Afsláttur
40%
Livorino
E-8051452569
Litir: Svart og brúnt
Traverso
E-1771400101
Litir: Svart
Traverso
E-1779451707
Litir: Svart og brúnt
DownTown
E-4430451375
Litir: Svart
Vandaðir herraskór úr leðri í úrvali.
Stærðir: 40 - 47
Verð: 11.500.- 12.450.-