Fréttablaðið - 20.02.2009, Blaðsíða 22
2 föstudagur 20. febrúar
núna
✽ kætumst yfir konudegi
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Anton Brink
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
„Ég er sett á 4. mars en síðast átti ég viku fyrir settan dag og ég er
komin 38 vikur á leið þannig að barnið gæti komið á hverri stundu,“
segir Sigríður Ásthildur Andersen, varaþingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins. Sigríður tekur þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem
fram fer 13. og 14. mars.
Hún segir ekki hafa komið til greina að sleppa
því að taka þátt þrátt fyrir að vera kasólétt í
baráttunni og jafnvel nýbökuð móðir þegar
það fer fram. „Ég á eina stúlku fyrir, þriggja
ára. Sú fæðing og meðganga gekk mjög vel
og meðgangan núna hefur sömuleiðis geng-
ið vel. Ég á líka mjög góða fjölskyldu og góða
stuðningsmenn að, það fer náttúrulega eng-
inn einn í gegnum prófkjörsbaráttu.“
Sigríður hefur aðeins einu sinni tekið
sæti á þingi en vonast til að tryggja sér
öruggt þingsæti núna. Hún stefnir á eitt
af efstu sætunum í kjördæminu. „Ég lít
svo á að ég sé að svara kalli um endur-
nýjun,“ segir Sigríður sem starfar sem
lögmaður á lögmannsstofunni Lex.
Barn á hverri stundu hjá Sigríði Andersen
Kasólétt í prófkjöri
Kasólétt Sigríður er gengin 38 vikur
og er eiturhress.
KOMDU OG KYSSTU MIG
Giorgio Armani fagnaði komu leik-
konunnar og fyrirsætunnar Millu
Jovovich í opnun nýrrar verslunar
hans í New York. Búðin er við Fifth
Avenue fyrir þá sem eiga leið hjá.
Þ að var stór ákvörðun að flytja út og fara að læra ljósmyndun,“ segir Anna
Ósk Erlingsdóttir sem sneri við blaðinu og
fór að læra ljósmyndun á fertugsaldri. Hún
sagði skilið við starf sitt sem aðstoðarkona
aðstoðar forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar
og flutti til Svíþjóðar þangað sem leiðin lá
svo til Ástralíu í ljósmyndanám.
„Ég fór að vinna á elliheimili í Svíþjóð til
að læra tungumálið þegar ég flutti út, en var
þá farin að hallast að ljósmyndun. Þegar ég
var 35 ára flutti ég svo til Ástralíu þar sem
ég fór að læra ljósmyndun og stuttu síðar
var ég farin að vinna í fullu starfi fyrir ýmsa
þarlenda hönnuði,“ útskýrir Anna Ósk sem
vakti fljótt athygli fyrir ljósmyndir sínar. Ein
mynd hennar birtist til að mynda á forsíðu
ljósmyndatímaritsins Better Digital, ásamt
ítarlegri grein um Önnu, en áður en hún lauk
námi var ein af myndum hennar valin á sýn-
ingu í hinu virta ljósmyndasafni National
Portrait Gallery í Canberra. „Myndin, sem
nefnist Solitude, var keypt af listamanni og
send til hans í pósti. Hann hringdi svo í mig
nokkru síðar þegar myndin hafði ekki enn
skilað sér og þá kom í ljós að hún hafði
verið í póstvél sem fórst undan ströndum
Sydney og flugmaðurinn látið lífið. Eigand-
inn segist ætla að hengja upp verkið hvenær
sem það finnst, en það er eflaust enn ein-
hvers staðar á sjávarbotni,“ segir Anna
Ósk sem flutti heim til Íslands í apríl
í fyrra.
„Það er mjög erfitt að fá vísa í Ástr-
alíu ef þú ert komin yfir þrítugt og ert
ekki hjúkka, múrari eða annað sem sóst
er eftir. Þá er eiginlega eina leiðin að gifta
sig, en þó svo að ég væri í sambandi í
Ástralíu fannst mér það ekki rétta leið-
in til að komast inn í landið og ákvað að
flytja heim. Ætlunin er að flytja aftur út
og vinna erlendis, en núna er maður bara
að velta fyrir sér næstu skrefum og taka
ljósmyndaverkefni hérna heima,“ segir
Anna að lokum, en áhugasömum er bent á
heimasíðu hennar www.annaosk.com. -ag
Anna Ósk Erlingsdóttir ljósmyndari:
EFTIRSÓTT Í ÁSTRALÍU
HELGI SELJAN SJÓNVARPSMAÐUR
„Ég ætla að varast það fyrst og fremst að gera einhver plön fyrir helgina. En ég
ætla að reyna að komast út með dóttur mína, sem hefur verið í stofufangelsi
vegna veikinda í á aðra viku. Svo langar mig í leikhús.“
Frjósamir tónlistarmenn
Þeim fjölgar óðum tónlistarmönn-
unum sem eiga von á barni á kom-
andi mánuðum. Eins
og komið hefur fram á
Birgitta Haukdal von á
sínu fyrsta barni með
eiginmanni sínum,
Benedikt Einarssyni, í
vor, en þau giftu sig í
október síðastliðnum.
Söngkonan
Védís Her-
vör á jafn-
framt von
á sínu fyrsta barni
um mitt sumar með Þórhalli Berg-
mann. GusGus- og Esjusöngvar-
inn Daníel Ágúst Haraldsson á von
á barni með plötusnúðnum Kitty
von sometime og mun það
vera fyrsta barn parsins. Þá
á tónlistarmaðurinn Barði Jó-
hannsson von á sínu fyrsta
barni innan skamms með Elmu
Stefaníu Ágústsdóttur, en það vill
þannig til að fyrrum sam-
býliskona hans,
stílistinn Agn-
ieska Baranow-
ska, á einnig von
á sínu fyrsta barni
um svipað leyti
með plötusnúðn-
um Árna Einari
Birgissyni.
helgin
MÍN
Eftirsótt Anna Ósk
sérhæfir sig í list-
rænni tísku- og
portrettljósmyndun.
Ein af ljósmyndum
Önnu birtist á forsíðu
tímaritsins
Better Digital.
þetta
HELST