Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.02.2009, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 20.02.2009, Qupperneq 24
4 föstudagur 20. febrúar Jóhanna Guðrún hefur sungið frá því að hún var tveggja ára gömul. Í dag er hún orðin átján ára og er á leiðinni til Moskvu sem fulltrúi Íslands í Eurovision. Viðtal: Indíana Ása Hreinsdóttir Ljósmynd: Anton Brink É g vona af öllu hjarta að sigurinn eigi eftir að hjálpa mér við að losna við barna- stjörnustimpilinn en maður veit aldrei. Sumir eiga erfitt með að sjá mig sem fullorðna konu í stað lítillar stelpu með tíkarspena og það er erfitt að vinna vinnuna sína þegar fólk tekur mann ekki al- varlega,“ segir söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, fulltrúi Íslands í Eurovision-keppninni sem fram fer í Rússlandi í maí. Eins og al- þjóð veit sigraði Jóhanna Guðrún í keppninni hér heima síðasta laug- ardag með laginu Is It True eftir Óskar Pál Sveinsson. Þrátt fyrir að vera aðeins 18 ára gömul er Jóhanna Guðrún langt frá því að vera nýgræðingur í tónlist- arbransanum en hún hefur starf- að sem söngkona frá níu ára aldri. Sjálf segist hún reyndar hafa sung- ið frá því hún var tveggja ára. „Það hefur aldrei komið neitt annað til greina hjá mér en að verða söng- kona og mamma segist meira að segja hafa fundið að ég væri eitthvað öðruvísi strax á með- göngunni. Ég var óvenjulegt barn, ekkert betri eða verri en bræð- ur mínir, bara öðruvísi,“ segir Jó- hanna Guðrún brosandi. Jóhanna ólst upp í Hafnarfirðin- um og eftir Setbergsskóla lá leið- in á félagsfræðibraut í Flensborg. „Mér gekk ágætlega í skóla, var hvorki lélegur námsmaður né ein- hver dúx, en námið hentaði mér ekki. Ég vissi alveg hvað ég vildi gera.“ Ef hún hefði ekki sönginn segir hún eitthvað annað tengt listinni hafa orðið fyrir valinu. „Ég hef engan áhuga á að læra nátt- úrufræði eða eitthvað slíkt svo ef ég yrði að velja eitthvað annað en söng yrði það leiklist eða dans.“ Það er í nógu að snúast hjá Jóhönnu Guðrúnu því það er að mörgu að huga fyrir stóru keppn- ina í Moskvu. Auk þess er hún sjálf að kenna söng í Söngskóla Maríu Bjarkar og í söngnámi í Söngskóla Reykjavíkur. „Svo er ég að vinna á fullu við að syngja, mæta á fundi og í viðtöl. Sérstaklega í kringum Eurovision. Þetta er mikil pressa en rosalega spennandi tækifæri.“ MARKIÐ EKKI SETT Á HEIMSFRÆGÐ Jóhanna segist laus við sviðsskrekk og kvíðir ekki fyrir að syngja frammi fyrir milljónum manna um alla Evrópu. „Ég hef góða reynslu og hef sungið frammi fyrir fullt af fólki þótt það sé ekkert í líkingu við þennan fjölda,“ segir hún og bætir við að henni takist einhvern veginn að róa sig áður en hún stíg- ur á svið. „Maður er alltaf með smá stresshnút í maganum sem er bara eðlilegt en ég er alltaf róleg þegar ég fer upp á svið. Ég veit eiginlega ekki hvernig ég róa mig, það er eins og líkaminn fari í ákveðið ástand og ég byrja bara að geispa. Ég er heppin því stressið getur skemmt fyrir og öryggi skiptir gríðarlegu máli í þessum bransa.“ Jóhanna Guðrún hefur verið með annan fótinn í Bandaríkjun- um frá tólf ára aldri en hún segir markmiðið aldrei hafa verið sett á heimsfrægð. „Ég var heppin að fá þetta tækifæri og starfaði með afar færu fólki sem þroskaði mig sem tónlistarmann. Það var bara eng- inn markaður fyrir tólf ára stelpu og í dag hefur markaðurinn tekið dýfu vegna efnahagsástandsins. Mig langaði aldrei að verða næsta Britney eða Christina Aguilera, mitt markmið var einfaldlega að geta lifað af tónlistinni og haft það gott,“ segir hún. Hún segist ekki hafa fundið fyrir þeirri kröfu að hún þyrfti að ýta undir kynþokkann á meðan hún reyndi fyrir sér í Ameríku. „Ég var svo ung og ekki komin á þann stað að koma fram einhvers staðar.“ Öllum að óvörum tók Jó- hanna Guðrún að sér aðalhlutverk- ið í Madonnu-sjóvinu á Broadway í fyrra og túlkaði hina ögrandi söng- konu, þá 18 ára. „Mér fannst það ekkert mál og þetta gekk mjög vel. Ég var bara að leika þennan kar- akter, þetta var ekki ég.“ LAGIÐ GETUR EKKI KLIKK- AÐ Jóhanna segist ekki hafa trúað því að hún myndi sigra keppnina hér heima. Öll lögin hafi haft sína kosti og komu til greina sem sigurvegar- ar. „Að mínu mati var alveg fullt af góðum lögum þarna og mér fannst til dæmis lagið hans Jógvans æðis- legt. Hann er líka svo flottur með fallega útgeislun. Edgar Smári var líka flottur og lagið Easy to Fool kom vel til greina sem og Elektra. Hins vegar er ég mikil keppnism- anneskja og reyndi að halda vænt- ingunum niðri á jörðu því annars yrði ég brjáluð ef ég myndi ekki sigra,“ segir hún og hlær. Lagið Is It True er falleg ballaða og Jóhanna hefur tröllatrú á því. „Eins og ástandið er í þjóðfélag- inu held ég að fólk sé ekki í stuði fyrir eitthvert djókatriði. Núna ætlum við að gera þetta að alvöru og senda fallegt lag og klassískt at- riði. Ég vona bara að þetta virki og við munum gera okkar besta til að gera þetta eins sviðsvænt og hægt er,“ segir hún og bætir við að hún sé ekki búin að velja kjólinn. „Ég er bara búin að ákveða að hann verður geggjað flottur,“ segir hún hlæjandi. UNG OG ÁSTFANGIN Jóhanna Guðrún býr í foreldra- húsum en foreldrar hennar hafa staðið við bakið á henni í gegn- um allan hennar feril. Hún seg- ist mikil mömmustelpa og hefur þegar fengið leyfi fyrir að mamma hennar komi með út til Rússlands. „Ég verð að hafa mömmu með og helst pabba líka. Þau hafa alltaf stutt við mig og ýttu mér í þessa átt þegar ég var lítil og fyrir það er ég mjög þakklát,“ segir hún og bætir við að þau séu rosalega spennt fyrir hennar hönd. Þrátt fyrir að hafa verið í sviðs- ljósinu frá barnsaldri hefur Jó- hönnu Guðrúnu tekist að halda sér vel á jörðinni og vill helst vera heima í faðmi fjölskyldu og vina. „Ég er dálítið gömul kerling í mér, hef aldrei drukkið áfengi og stunda ekki djammið. Mér finnst miklu skemmtilegra að vera með vin- unum, fara í ræktina og svo er ég mikil hestakona og á þrjá hunda.“ Hún viðurkennir að ferillinn hafi tekið sinn toll, hún sé til að mynda ekki í jafn miklu sambandi við vin- konurnar og áður enda séu leiðir þeirra ólíkar. Jóhanna er á föstu en sá heppni heitir Ólafur Friðrik. Þau hafa verið saman í tvö ár en höfðu lengi vitað hvort af öðru. „Hann bjó í næsta húsi og við vorum saman í skóla. Við byrjuðum bara að hittast einn góðan laugardag og höfum ekkert hætt síðan,“ segir hún og viður- kennir að hún sé ástfangin. „Við deilum áhuganum á tónlistinni, ÆTLA AÐ GE MITT ALLRA BES ✽ ba k v ið tjö ldi n Stjörnumerki: Vog. Besti tími dagsins: Rétt fyrir hádegi. Geisladiskurinn í spilaranum: Mariah Carey. Uppáhaldsverslunin: Karen Millen. Uppáhaldsmaturinn: Pekingönd eða spagettí. Líkamsræktin: Æfi 5-6 sinnum í viku, lyfti og hleyp til skiptis, svo er ég líka í hestum. Mesta dekrið: Heitt bað eftir erfiðan dag. Mesta freistingin: Ís með heitri kara- mellusósu! Ég lít mest upp til... Foreldra minna fyrir að vera góðar fyrirmyndir. Áhrifavaldurinn? Mamma mín fyrir að vera sú fyrsta til að hafa trú á mér sem söngkonu. Draumafríið? Fara til New York með múttu að versla og í leikhús og óperuna. Hverju myndirðu sleppa ef þú yrðir að spara? Minnka eða hætta fatakaupum. Kringlan // Smáralind // Keflavík www.blend.is BOLIR 2.990 SKYRTA 5.990 PILS 6.990 GALLABUXUR 8.990

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.