Fréttablaðið - 20.02.2009, Page 25

Fréttablaðið - 20.02.2009, Page 25
20. febrúar föstudagur 5 RA STA hann er svona dundari og spilar á gítar og er mjög mikill áhuga- maður um tónlist,“ segir Jóhanna og bætir við að það væri frábært að hafa hann með út til Rússlands líka. Á TOPPI FERILSINS Jóhanna hefur eins og flest aðrir Íslendingar fylgst með Eurovision- keppninni í gegnum árin en hún segist enginn gúrú um keppn- ina. Uppáhalds Eurovision-lögin hennar eru All Out Of Luck með Selmu og Waterloo með Abba. Aðrir áhrifavaldar þegar kemur að tónlist eru Whitney Houston, Celine Dion og Mariah Carey. „Ég hef alltaf verið veik fyrir þessum stóru söngkonum og svo tók ég Madonnu-tímabil eins og flestar stelpur,“ segir hún og viðurkenn- ir að auðvitað vonist hún eftir að tilheyra hópi þessara díva í fram- tíðinni. Talandi um framtíðina. Aðspurð segist Jóhanna Guðrún vonast til að hún eigi eftir að geta lifað sem söngkona. „Það er ekkert sjálfgefið að það sé hægt. Landið er lítið og verkefnin takmörkuð svo ég von- ast til að geta farið út fyrir land- steinana með tónlistina mína,“ segir hún en plata hennar, But- terflies and Elvis, kemur aftur í búðir á næstu dögum. Varðandi ráð handa stelpum sem vilja feta í hennar fótspor segir Jóhanna að metnaðurinn skipti öllu máli. „Maður verður líka að vera með bein í nefinu. Þótt það sé mikið af góðu fólki í brans- anum hér heima eru hætturnar margar og maður verður að hafa báða fætur á jörðinni og hugsa vel um sig. Eins er gott að hlusta á þá sem eru eldri og vitrari en hafa það alveg á hreinu að það ert þú sem tekur ákvörðunina,“ segir hún ákveðin og viðurkennir að vera í dag á toppi síns ferils. „Já, það má segja það,“ segir hún og bætir við að næsta markmið sé að fara til Rússlands og gera sitt allra besta. „Vonandi tekst það og opnar dyr að einhverju skemmtilegu.“ Örugg „Maður er alltaf með smá stresshnút í maganum sem er bara eðlilegt en ég er alltaf róleg þegar ég fer upp á svið,“ segir Jóhanna. Nýr ilmur frá Hugo fyrir karlmenn er væntanlegur í búðir eftir helgi, Hugo Element. Ilmurinn er karlmannlegur, ferskur og nútímalegur segja framleiðend- ur en það lætur vel í eyrum flestra karla sem kvenna. Útlitið á flöskunni sem ilmur- inn kemur í er líka einkar flott, fyrirmyndin er súrefnishylki og hönnunin ber vott um frumlega hugsun Hugo. Karlmenn sem vilja ilma vel og konur sem vilja vel lyktandi karla geta fest sér eintak í öllum helstu snyrtivöruverslunum og apótekum frá og með mánudeginum. Karlmannlegur og ferskur ilmur Lúxusnámskeið NordicaSpa er hannað til að koma þér af stað á mjög árangurs ríkan og einfaldan hátt. Tilgangur námskeiðsins er að koma þér á æðra stig hvað varðar líkamlega og andlega heilsu. Fimm tímar í viku – Brennsla og styrkur 3 öflugir brennslutímar 2 styrktartímar í sal undir handleiðslu þjálfara Vikulegar mælingar Ítarleg næringarráðgjöf Fyrirlestur – Borðaðu til að léttast og auka orkuna Slökun og herðanudd eftir hverja æfingu Hollustudrykkur eftir hverja æfingu Takmarkaður fjöldi 6:30, 7:30, 10:00, 16:30 og 18:30 fimm sinnum í viku Þjálfari er Gunnar Már Sigfússon 1. vika – Orkuhleðsla Í fyrstu vikunni byggir þú upp orku og kemur líkamanum í jafnvægi. 2. vika – Öflug melting – Aukin brennsla Í viku tvö er verið að efla og bæta meltinguna til að þú fáir sem mest út úr holla matnum sem þú ert að borða. 3. vika – Hormóna jafnvægi – Hreinsun Þriðja vikan mun koma jafnvægi á hormónaflæði líkamanns sem mun hafa áhrif á skap þitt, lífsorku og kraft. 4. vika – Ónæmiskerfi eflt – Jafnvægi Í viku fjögur byggjum við upp ónæmiskerfið og hjálpum því að verja líkamann á náttúrulegan hátt. Ný námskeið hefjast 2. mars Skráning er hafin í síma 444 5090 eða nordicaspa@nordicaspa.is www.nordicaspa.is Hilton Reykjavík Nordica Hotel Suðurlandsbraut 2 Sími 444 5090 nordicaspa@nordicaspa.is www.nordicaspa.is fyrir konur og karla María Másdóttir Við systurnar ætluðum einungis á eitt námskeið en þau urðu þrjú og árangurinn lét svo sannarlega ekki á sér standa. Misstum 23 kíló til samans á þremur mánuðum. Það eigum við Gunnari Má þjálfara og starfsfólkinu á Nordica Spa að þakka. Frábært aðhald, skemmtun, útrás og vellíðan. Við gátum þetta og því getur þú þetta líka. Frábær leiðsögn, frábær stöð og mesta aðhald sem hægt er að fá. Betra en einkaþjálfun! Svo er líka fínt að kílóin fuku og orkan hefur aukist og almenn vellíðan. Ég missti 6,2 kg á 4 vikum. Ég gerði þetta af skynsemi og þú getur það líka! MISSTUM 23 KÍLÓ ÉG GERÐI ÞETTA AF SKYNSEMI ÞÚ GETUR ÞAÐ LÍKATIL SAMANS Á 3 MÁNUÐUM Kristbjörg og Guðbjörg Sveinbjörnsdætur

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.