Fréttablaðið - 20.02.2009, Page 27
20. febrúar föstudagur 7
„Minn helsti áhrifavaldur hefur verið Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti
Íslands. Hún hefur alltaf staðið fyrir gildum sem ég ber virðingu fyrir og hef
reynt að tileinka mér. Hún hefur alltaf verið óhrædd við
að takast á við verulegar áskoranir og litið á hindranir
sem verkefni til að leysa. Jafnvel þegar hún hefur
verið talsmaður bjartsýni og réttlætis ásamt því
að vera baráttumaður fyrir framgangi og sam-
stöðu Íslendinga. Ég man enn þegar ég var ung
að árum og hún heimsótti Stykkishólm þar sem
ég var búsett. Ég fékk að gróðursetja með henni
nokkur tré og þetta er ein af þessum minningum
úr æskunni sem lifir hvað sterkast.
VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR
Erla Ósk Ásgeirsdóttir stjórnmálafræðingur
ÁHRIFA-
valdurinn
Vortískustraumarnir leyndu sér ekki á
Grammy-verðlaunahátíðinni sem fram fór í
Los Angeles fyrir skömmu. Stjörnurnar voru
hver annarri glæsilegri á rauða dreglinum og
kjólarnir vöktu mikla eftirtekt eins og vana-
lega. Fjölbreytt snið með mismunandi áhersl-
um á bera handleggi og axlir verða meira áber-
andi eftir því sem nær dregur sumri. Berar axlir
voru sérstaklega áberandi á Grammy-verðlauna-
hátíðinni og þær voru ófáar tónlistarkonurnar sem
skörtuðu síðkjólum í takt við vortískuna. Eins og
sjá má voru sniðin og litirnir jafn mismunandi
og þær voru margar og verður hver að dæma
fyrir sig hver átti vinninginn.
Ófeimin
Söngkonan
Estelle kom
fram ásamt
Kanye West í
þessum sér-
staka kjól.
Blá Cheryl Crow
skartaði fagurbláum
látlausum kjól á
Grammy-verðlauna-
hátíðinni.
Flottir kjólar vestanhafs:
Áherslan
á axlirnar
Díva Grófar keðjur á kjól
Natalie Cole vöktu at-
hygli á hátíðinni. Brot úr bókinni
Hermikrákuheimur
En konur eru gáfaðar og þroskaðar,
þess vegna taka þær kynlíf alvarlega
og þær tengjast mönnunum sem
þær eru með kynferðislega. Þær vita
og fi nna að kynlíf er mál, það er það
nánasta sem til er. Þú kemst ekki
nær annarri manneskju.
Þú ert að afhjúpa þig og gefa líkama
þinn og sál. En karlmenn eru eins og
skepnur og geta bara riðið eins og
ekkert sé, vitið er bara ekki meira.
Mér fi nnst það nú líka skortur á
sjálsvirðingu að geta makað sig upp
við einhverja og svo er það bara
búið og ekkert mál.Hvað þá að geta
makað sig upp við hverja sem er.
Skyndikynni eru eitthvað svo sjúkt,
svo sóðaleg og sýna mikla heimsku
og skort á sjálfsvirðingu.
Kleopatra Kristbjörg
Bjóddu ástinni á Geysir
á Valentínusardaginn, laugar-
daginn 14. febrúar og
Konudaginn sunnudaginn
22. febrúar.