Fréttablaðið - 20.02.2009, Page 28

Fréttablaðið - 20.02.2009, Page 28
föstudagur FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 1 3 4 5 20. FEBRÚAR 2009 FRÁBÆR FÖSTUDAGUR Björn Sveinbjörnsson „Sölvi er fæddur 10.12.1978 og er því 29, 11, 2. Tvisturinn hefur oft hæfileika kamelljónsins. Hann getur aðlagað sig að öllu sem kemur upp í lífi hans, breytt um útlit, sett inn kraft sem þarf, svo ekkert mun í raun og veru hindra þann mann sem fæddur er þennan dag. Hann er það ákveðinn að komast langt að það er ná- kvæmlega sama hvað lagt er í götu hans, hann vipp- ar sér bara yfir það. Hann fær fólk til að vinna með sér eins og forystusauður fær hjörðina til að elta sig heim. Hann fyllir fólk eldmóði og það mun treysta á hann allt til dauða. Sölvi hefur mikla þjónustu- og sölumannshæfileika, og það er í raun allt sem þarf til þess að lífið leiki við þig. Ég get ekki betur séð en að þessi blessaði maður eigi eftir að láta í sér heyra í pólitík vegna þess að hann hefur sterkar skoðanir á öllu og er réttlætissinni per ex- cellans. Hann er hrifinn af öllum græjum og verður að hafa allt tipp topp í kringum sig. Ellefu er masterstala sem færir fólki aukna töfra. Sölvi þarf að hafa allt fullkomið í lífi sínu, þar af leiðandi er förunautur hans hinn fullkomni einstaklingur. Sölvi á eftir að eignast hina fullkomnu biblíusögufjöl- skyldu og börn hans eiga eftir að hafa krafta í kögglum og gott ef ég sé ekki einn eða tvo merkilega íþróttamenn. Við þurfum ekk- ert að tala neitt sérstaklega um þennan þátt sem Sölvi er að byrja með á Skjá einum því allt sem hann ætlar sér gengur vel. Til ham- ingju með lífið Sölvi minn.“ www.klingenberg.is KLINGENBERG SPÁIR Sölvi Tryggvason fjölmiðlamaður Svo enda ég daginn á því að kúra undir sæng með konunni og við horfum á góða mynd. Út að borða með konunni á kósý stað. Svo er það ræktin í hádeg- inu og aftur í vinnu þangað til búðunum lokar. Ég byrja á því að vakna og fá mér góðan kaffibolla. 2 Núna fer ég í vinnuna og á fundi, en á sumr- in þá væri það golfvöll- urinn.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.