Fréttablaðið - 20.02.2009, Page 33
FÖSTUDAGUR 20. febrúar 2009 21
timamot@frettabladid.is
Á konudaginn sunnudaginn 22. febrú-
ar verður hafin kynning í Ráðhúsi
Reykjavíkur á alþjóðlegu verkefni
sem gengur undir nafninu GoRed.
Verkefnið á að vekja athygli á því að
konur fá ekki síður hjartasjúkdóma
en karlar og að hjartasjúkdómar séu
raunverulega langalgengasta dánar-
mein kvenna.
„Einhverra hluta vegna hafa ekki
verið gerðar jafn miklar og merkar
rannsóknir á hjarta- og æðasjúkdóm-
um hjá konum og körlum og því vantar
mikið upp á að konur og karlar sitji við
sama borð þegar á þetta svið er litið,“
segir Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrver-
andi heilbrigðisráðherra og verndari
GoRed-verkefnisins á Íslandi. Hún
segir verkefnið hafa borist hingað til
lands í gegnum Vilborgu Sigurðar-
dóttur lækni sem kynntist því á ráð-
stefnu í Chicago. „Hún er aðalspraut-
an í þessu ásamt Hjartavernd,“ út-
skýrir Ingibjörg sem leist strax vel á
að gerast verndari verkefnisins þegar
hún var beðin um það enda um aðkall-
andi málefni að ræða.
„Konur hafa litið á þetta sem karla-
sjúkdóm og verið uppteknar við að
reka bændur sína í læknisskoðanir,
en litið fram hjá þeirri staðreynd að
þeim er jafn hætt og körlum við að fá
hjarta- og æðasjúkdóma,“ segir Ingi-
björg og bendir á að mælt sé með að
konur fari á fimm ára fresti í tékk
eftir 35 ára aldur.
„Konur hafa verið meira vakandi
fyrir forvörnum á öðrum sjúkdóm-
um eins og til dæmis krabbameini
með þeirri sterku vakningu sem orðið
hefur á undanförnum áratugum hjá
Krabbameinsfélaginu,“ segir Ingi-
björg og telur að sú vitundarvakning
hafi lyft grettistaki og lengt og bætt
líf ótaldra Íslendinga. „Hjartavernd
hefur einnig náð gríðarlega góðum
árangri í sínu starfi en vill nú taka
höndum saman með GoRed og hefja
nýja vitundarvakningu meðal kvenna
á Íslandi,“ útskýrir Ingibjörg en ætl-
unin er að fá heilsugæslustöðvar um
land allt í lið með hópnum sem vinnur
að GoRed-verkefninu. „Svo er undir
hverri heilsugæslu komið hve mikið
þær nýta sér það fræðsluefni sem búið
er að búa til,“ segir Ingibjörg og von-
ast eftir mikilli þátttöku.
Kynningin á GoRed-verkefninu
verður eins og áður segir í ráðhúsinu á
sunnudag. „Dagskráin hefst rétt fyrir
klukkan eitt með blossandi músík til
að koma hjartslættinum almennilega
í gang. Síðan verður fræðsla á staðn-
um og básar með ýmsum fróðleik,“
segir Ingibjörg en allir eru velkomn-
ir á kynninguna sem stendur yfir til
klukkan 16. „Svo væri góð hugmynd
fyrir karlana að gefa konum sínum
kort í Hjartavernd í tilefni konudags-
ins,“ segir Ingibjörg glaðlega og hvet-
ur sem flesta til að mæta.
solveig@frettabladid.is
INGIBJÖRG PÁLMADÓTTIR: VERNDARI GORED Á ÍSLANDI
Konur vaktar til umhugsunar
um hjartasjúkdóma
SIDNEY POITIER ER 85 ÁRA.
„Ég er sáttur við sjálfan
mig, við söguna, við vinn-
una, við það hver ég er og
hver ég var.“
Sidney Poitier er bandarískur
leikari, leikstjóri og diplómat
sem unnið hefur til Óskars-
, Golden Globe-, BAFTA- og
Grammyverðlauna. Hann var
fyrsti blökkumaður sögunn-
ar sem hlýtur Óskarsverðlaun
fyrir aðalhlutverk, í Lilies of
the Field árið 1963.
Þennan dag árið 1985 voru samþykkt umdeild
lög á írska þinginu sem leyfðu sölu getnaðar-
varna.
Allt til ársins 1979 bönnuðu írsk lög inn-
flutning og sölu á getnaðarvörnum. Þó
hafði hæstiréttur landsins komist
að þeirri niðurstöðu árið 1973
að gift fólk ætti rétt á að nota
getnaðarvarnir ef það vildi.
Þar sem hin kaþólska kirkja
hafði mikil ítök í landinu
dróst málið í írska þinginu
og það var árið 1979 sem
írski heilbrigðisráðherr-
ann Charles Haughey kom
fram með frumvarp um að
leyfa getnaðarvarnir fyrir gift
pör. Árið 1980 var fært í lög að
fólk gæti keypt getnaðarvarn-
ir í apóteki að því gefnu að framvísað væri vott-
orði frá lækni.
Enn þóttu lögin of ströng og mikil deila var um
þau í þinginu. Þá varaði kirkjan við því að getn-
aðarvarnir myndu minnka siðgæði í
landinu auk þess sem þær myndu
leiða til fleiri óskilgetinna barna,
fóstureyðinga og kynsjúkdóma.
Hinn 20. febrúar árið
1985 var kosið um málið.
Voru ný lög um getn-
aðarvarnir samþykkt
með 83 atkvæðum gegn
80. Lögin leyfðu sölu
á smokkum og sæðis-
drepandi kremi til fólks
yfir 18 ára. Þó var enn
bannað að auglýsa getn-
aðarvarnir.
ÞETTA GERÐIST: 20. FEBRÚAR 1985
Getnaðarvarnir leyfðar á Írlandi
MERKISATBURÐIR
1919 Habibullah Khan, leiðtogi
Afganistans, er myrtur.
1943 Skömmtun hefst á bens-
íni á Íslandi. Eigendur
smábifreiða fengu 1,5 lítra
á dag.
1962 John Glenn, sem var fyrsti
Bandaríkjamaðurinn sem
komst á sporbraut um
jörðina, lendir áfallalaust
aftur á jörðinni.
1986 Sovétríkin skjóta upp
geimstöðinni MÍR.
1993 Tveir tíu ára drengir eru
kærðir fyrir að ræna og
myrða hinn tveggja ára
James Bulger í Liverpool.
1998 Tara Lipinski verður
yngsti gullverðlaunahafi í
skautaíþróttum á Ólymp-
íuleikum.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Jóns Stefánssonar
Skessugili 12, Akureyri.
Ásta Hallvarðsdóttir
Sigríður Halla Jónsdóttir Klæmint Klein
Ragnheiður Jónsdóttir Gunnar Magnússon
Sonja Rut Jónsdóttir Kjartan Smári Stefánsson
Stefán Einar Jónsson Steinunn Jóna Sævaldsdóttir
Jóna Brynja Jónsdóttir Tómas Veigar Sigurðarson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar elskuleg,
Þóra Margrét Guðleifsdóttir
lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi
10. febrúar síðastliðinn. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk Þóru Margrétar. Við þökkum auð-
sýndan stuðning og hlýju.
Björn Helgason
Kristín Anna Björnsdóttir Sigþór Bragason
Daníel Freyr Birkisson
Margrét Hansen Arnar Guðmundsson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar áskærrar
eiginkonu minnar, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Guðrúnar Sigríðar
Björnsdóttur
Þorragötu 5, Reykjavík.
Jón Reynir Magnússon
Magnús Reynir Jónsson Bjarnveig Sigríður
Guðjónsdóttir
Birna Gerður Jónsdóttir Guðlaugur Gíslason
Sigrún Dóra Jónsdóttir Jóhann Gunnar Stefánsson
ömmubörn og langömmubarn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir, systir og amma,
Hanna Guðmundsdóttir
Monrad
frá Sæbóli, Aðalvík,
lést 4. febrúar 2009 á sjúkrahúsinu Helsingör í
Danmörku. Jarðarförin fór fram 11. febrúar síðastlið-
inn. Jarðsett var í Hörsholm-kirkjugarði.
Chris Monrad
Marianne Monrad Jan Kieler
Gudmund Monrad
Christian Monrad Lonnie Monrad
Sigríður Guðmundsdóttir
Ingveldur Guðmundsdóttir
Finnbjörn Guðmundsson
Sveinn Þráinn Jóhannesson
og barnabörn.
Elskulegur sambýlismaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Guðmundur Ólason
húsasmíðameistari, Hlíf II, Ísafirði,
sem lést á fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði 17. febrúar,
verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn
21. febrúar kl. 14.00.
Sigríður Halldórsdóttir
Kristján Bjarni Guðmundsson Helga Kristjana Einarsdóttir
Guðrún Ólöf Guðmundsdóttir Örn Sveinbjarnarson
Salvar Finnbogi Guðmundsson Jóna Þórdís Magnúsdóttir
Vignir Guðmundsson Rebekka Rut Rúnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Þorvaldur Óskar Karlsson
Jökulgrunni 2, Reykjavík,
lést mánudaginn 9. febrúar. Útförin hefur farið fram.
Þeir sem vildu minnast hans er bent á Ljósið, reikn.
0130-26-410520 kt. 590406-0740.
Karl Þorvaldsson
Ólöf Þorvaldsdóttir
Lárus Óli Þorvaldsson Jóna Sveinsdóttir
Þorvaldur Óskar Karlsson Branddís Jóna Garðarsdóttir
Valgerður Rós Karlsdóttir
Rakel María Karlsdóttir
Heiðrún Rut Unnarsdóttir
Erla Dögg Unnarsdóttir
Hulda Lárusdóttir
Guðrún Lárusdóttir
Benedikt Kári Valgerðarson
Rúnar Karl Þorvaldsson Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
VERNDARI GORED Ingibjörg við gamla Landspítalann við Hringbraut sem baðaður er rauðum
ljóma í tilefni af GoRed verkefnisins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM