Fréttablaðið - 20.02.2009, Qupperneq 36
24 20. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
Það er alltaf gaman að sjá hvern-ig færir teiknarar beita ýmsum stereótýpískum smáatriðum til að
lýsa and- og líkamlegri líðan viðfangsefna
sinna. Til að mynda hafa teiknimynda-
söguhöfundar í gegnum tíðina fundið
upp á ýmsum sniðugum aðferðum til að
gera lesendum ljóst að söguhetjurnar
hafi skemmt sér óhóflega kvöldið áður.
Sígildar leiðir að þessu markmiði eru til
dæmis að teikna menn með lampaskerm
á höfðinu, föla eða græna í framan og/
eða meðfylgjandi hugsanablöðru sem
sýnir risavaxna loftpressu.
Björgvin Halldórsson notar hugtakið
„sprunginn vindill“ yfir timbraða menn,
sem dregið er af æskuminningu söngvar-
ans um persónur teiknimyndabrandara sem
lýstu illa fyrir kölluðum eiginmönnum í yfir-
heyrslu hjá reiðum eiginkonum með köku-
kefli. Slíkir ógæfumenn voru gjarnan teikn-
aðir með sprunginn vindil og blöðru
í bandi. Af sama meiði er fræg lýsing
Björgvins á manni í slíku ástandi: „Blaðran
kom heim á undan honum.“
Þessum ímyndum skýtur iðulega upp í
kollinn á mér þegar ég er staddur í brúð-
kaupsveislum. Óhjákvæmilegt er að nokkr-
ir af margmennri stétt verkfræðinga séu
meðal gesta, og jafn óhjákvæmilegt að
téðir einstaklingar grípi til þess að reyra
hálsbindi sín utan um höfuð sér þegar fjör
fer að færast í leikinn og áfengið flýtur
eins og vín. Líklega þykir þetta hin eina
rétta og samfélagslega viðsættanlega
aðferð til að sleppa fram af sér beislinu, að
„flippa“, meðal verkfræðinga.
Á sama hátt og Bó talar um timbraða sem
sprungna vindla sting ég upp á hugtakinu
„hálsbindahausar“ fyrir góðglaða verkfræð-
inga. Vonandi fá hvorki bindin né hausarnir
að kenna um of á kökukeflunum.
Verkfræðingar á ystu nöf
NOKKUR ORÐ
Kjartan
Guðmundsson
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
Taktu vel af
öxlunum og
bringunni –
smá af
löppunum og
snyrtu svo bakið
vel.
Vá! McGyver! Takk
kærlega! Þú komst
á síðustu
stundu!
Er þetta
það sem
ég held að
það sé?
Já, hann ætlar að útrýma
mannkyninu með leikfimi-
sokknum mínum! Fljótur,
náðu honum út úr
bakteríuklefanum!
Er þetta
hann?
OjOjOj
fylgist
með!
Hvernig er sum-
arið þitt Palli?
Er gaman?
Hvernig hafa
vinir þínir það?
Er einhver þeirra
að gera eitthvað
skemmtilegt?
Hvernig gengur ykkur
Stanislaw með
rúgbrauðið?
Veit
ekki.
Veit ekki.
Veit ekki.
Veit ekki.
Veit
ekki.
Mér líður eins
og spjallþátta-
stjórnanda
með ömur-
legan gest.
Er til
eitthvað
meira að
borða?
Farðu aftur
í buxurnar!
Ég nenni ekki að
þurfa að klippa
þetta allt saman.
Bókaklúbbur
Mjása
Bók eftir
James Cain...
„Pósturinn
hringir alltaf
tvisvar.“
GE kæliskáparnir eru öflugir,
endingargóðir og glæsilega innréttaðir
Kr. 329.900 stgr.
Amerískir GE
kæliskápar
Hart í bak
Skoppa og Skrítla í söng-leik
Heiður
Kardemommubærinn
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið