Fréttablaðið - 20.02.2009, Blaðsíða 37
FÖSTUDAGUR 20. febrúar 2009 25
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 20. febrúar
➜ Dans
20.00 Dansverkið Salka Valka eftir
Auði Bjarnadóttur við tónlist Ólafs
Haraldssonar verður sýnt í Hafnarfjarð-
arleikhúsinu, Strandgötu 50, Hafnarfirði.
Nánari upplýsingar á www.hhh.is.
➜ Síðustu forvöð
Sýningu Davíðs
Arnar Halldórs-
sonar í 101 Projects
við Hverfisgötu 18a,
lýkur á sunnudag.
Opið mið.-sun. kl.
14-17.
➜ Sýningar
Sýning Hrafnkels Sigurðssonar í i8
Galleryi, hefur verið framlengd til 14.
mars. Opið mið.-föst. kl. 11-17 og lau.
kl. 13-17.
Sara Riel hefur opnað sýningu í Kling
& Bang galleríi, Hverfisgötu 42. Opið
fim.-sun. kl.14-18.
Þverskurður, sýning Textílfélagsins
í Gerðarsafni við Hamraborg í Kópa-
vogi. Sýningin spannar ríflega 60 ár
í textílsögunni. Opið alla daga nema
mánudaga kl. 11-17.
Í tilefni af opnun textílsýningar í Gerðar-
safni eru til sýnis í Kópavogskirkju
fjórir höklar eftir listakonuna Sigrúnu
Jónsdóttur. Höklana er hægt að skoða
virka daga milli kl. 10.30-13.
➜ Tónlist
Tónlistarskólinn á Akureyri verður með
trommuhring og hreyfileiki fyrir leik-
skólabörn. Öllum velkomið að taka þátt.
15.00 Eymundsson við Hafnarstræti,
Akureyri. Trommuhringur kl. 15-16,
hreyfileikir kl. 16-17.
16.00 Glerártorg, Akureyri. Trommu-
hringur kl. 16-17, hreyfileikir kl. 18-19.
➜ Tónleikar
22.00 Singapore Sling, Evil Madness
og DJ Musician verða á Grand rokki,
Smiðjustíg 6. Húsið opnar kl. 22.00.
24.00 EGÓ spilar á Players, Bæjarlind
4, Kópavogi.
24.00 Nevolution spilar á Dillon
Sportbar, Trönuhrauni 10, Hafnarfirði
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
Í ritröð Bókmenntafræðistofnunar Háskóla Íslands er komið rann-
sóknarverkið Rithöfundur Íslands eftir
Öldu Björk Valdimarsdóttur. Í verkinu
er fjallað um
skáldskaparferil
Hallgríms Helga-
sonar og einkum
þá skáldsögur
hans 101 Reykja-
vík, Þetta er allt
að koma, Höfund
Íslands, Rokland
og Herra alheim.
Alda Björk skoðar
verkin í ljósi hugmynda um höfundar-
ímyndina, bókmenntahefðina og
karnívalið, auk þess sem fjölbreytileg
staða Hallgríms í menningarlífinu er
könnuð. Þetta er sextugasta ritið í
röðinni og er ritið 228 síður. Háskóla-
útgáfan gefur út.
Nykur hefur gefið út Þórðarbók sem er safn fimm ljóðabóka
Þórðar Helga-
sonar ljóðskálds.
Sigurlín Bjarney
Gísladóttir bjó
verkin til prentun-
ar en Andri Snær
Magnason og
Davíð A. Stefáns-
son rita formála
að safninu sem
er 230 síður.
Fólk og ræningjar í Kardemommu-bæ eftir Torbjörn Egner er komin
út hjá JPV útgáfu. Þýðinguna gerði
Hulda Valtýsdóttir en ljóðin þýddi
Kristján frá Djúpa-
læk. Bókin kom
fyrst út á íslensku
1961. Þessi útgáfa
er endurskoð-
uð með nýjum
listmyndum
höfundarins. en
sagan er ríkulega
myndskreytt. Í
bókinni eru nótur
að ellefu lagboð-
um við kveðskap skáldsins. Sagan er
140 síður.
NÝJAR BÆKUR
Verund er yfirskrift sýningar á nýjum verk-
um eftir Helga Gíslason myndhöggvara sem
opnuð verður í Hafnarborg, menningar- og
listamiðstöð Hafnarfjarðar, á laugardag kl.
15. Á þessari umfangsmiklu sýningu eru
nýjar lágmyndir, teikningar og skúlptúrar
þar sem mannslíkaminn er meginviðfangs-
efnið eins og í fyrri verkum listamannsins.
Helgi er á meðal þekktustu myndhöggv-
ara þjóðarinnar og þekkja margir skúlptúra
hans og stærri verk sem sett hafa verið upp
opinberlega víða um land til dæmis á Höfn í
Hornafirði, í Hallargarðinum í Reykjavík og
á Húsavík auk lágmyndar í Fossvogskapellu.
Þema sýningarinnar er rannsókn á mann-
inum og mælikvörðum hans þar sem lista-
maðurinn teflir saman mannslíkamanum og
verkfærum sem notuð eru til að mæla heim-
inn og kortleggja. Helgi greinir viðfangsefnið
niður í meginlínur þar sem sterk form svipta
manninn persónueiginleikum en leitast við að
afhjúpa sameiginlegan kjarna.
Á sýningunni er mikil áhersla á blý sem
efnivið en auk lágmynda þar sem listamað-
urinn notar blýið getur að líta fjölda teikn-
inga sem endurspegla hugmyndavinnu
listamannsins og þátt teikningarinnar í
sköpunarferlinu.
Helgi lauk námi frá Myndlista- og hand-
íðaskóla Íslands árið 1970 og hélt til frekara
náms í Svíþjóð við Valand-listaháskólann
og útskrifaðist þaðan árið 1976. Hann hefur
haldið fjölda sýninga, hlotið viðurkenningar
og unnið samkeppnir um opinber listaverk.
Árið 1991 hlaut hann Bjartsýnisverðlaun
Bröstes.
Á sunnudag kl. 15 tekur listamaðurinn þátt
í leiðsögn um sýninguna. Hluti sýningarrým-
isins hefur verið lagður undir verkstæði eða
vinnustofu þar sem gestir geta kynnst eigin-
leikum blýs og teiknað. Sýningunni lýkur
29. mars og er opin alla daga frá kl. 11-17 og
fimmtudaga kl. 11-21. pbb@frettabladid.is
Mannslíkaminn meginviðfangsefnið
MYNDLIST Helgi við eitt af verkum sínum.
MYND FRETTABLAÐIÐ/GVA
Ú t s a l a
www.andersenlauth.com
Herraverzlun, Laugavegi 7, Kvenverzlun, Laugavegi 86-94
e s t a b l i s h e d 1 9 3 4
Síðasta vika útsölunnar !
60 % afsláttur
af öllum vörum...
Enn meiri afsláttur !