Fréttablaðið - 20.02.2009, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 20.02.2009, Blaðsíða 38
26 20. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR folk@frettabladid.is Söngkonan Duffy frá Wales vann þrenn Brit- verðlaun við hátíðlega athöfn í London, þar á meðal fyrir bestu plötuna. Hin 24 ára söngkona átti erfitt með að halda aftur af tárunum er hún tók á móti verðlaununum og sagði þau afrakstur fimm ára vinnu. Duffy var einnig kjörin besta söngkonan og besti nýliðinn. Elbow var kjörin besta hljómsveitin, stúlkna- sveitin Girls Aloud átti smáskífu ársins og Paul Weller var valinn besti söngvarinn. Þá voru Kate Perry og rapparinn Kanye West kjörin bestu erlendu tónlistarmennirnir. Bandarísku rokkararnir í Kings of Leon fengu tvenn verðlaun; sem besta erlenda hljóm- sveitin og fyrir bestu erlendu plötuna. The Pet Shop Boys fékk jafnframt heiðursverðlaun og lauk svo athöfninni með lögunum Go West, West End Girls og Always On My Mind. Með þeim á sviðinu var bandaríska söngkonan Lady GaGa og Brandon Flowers úr The Killers. Duffy með þrenn Brit-verðlaun DUFFY Söngkonan Duffy kom, sá og sigraði á Brit-verðlaunahátíðinni. KINGS OF LEON Bandarísku rokkararnir hlutu tvenn Brit-verðlaun. N O R D IC PH O TO S/G ETTY > ÆFIR PILATES STÍFT Mischa Barton hefur grennst mikið að undanförnu og þakkar það al- farið stífum pilates-æfingum. Leikkonan, sem er 23 ára, seg- ist gera meira af því að skokka og hlaupa áður en hún leik- ur í kvikmyndum, en þess á milli slaki hún á og æfi minna. Hún segist aldrei fara í stranga megrun því hún vinni stíft og þurfi á mikilli orku að halda við kvikmyndatökur. Ingvar Jóel, sem kallaður er Ringó meðal félaga sinna í kraftlyftingafélaginu Metall og Tortímandinn þegar hann er í vinnunni, hefur að undanförnu fengist við að rífa niður í brota- járn eina stærstu vinnu- vél landsins – sem lengi vel gekk undir nafninu Skrímslið. „Þessi vél er merkileg. Hún var framleidd sérstaklega fyrir Richard Nixon í kalda stríðinu. Þá voru að aukast þungaflutningar til landsins og þessi vél – sem kölluð var skrímslið – er sérhönnuð til að taka á móti 30 tonna gámum,“ segir Ingvar Jóel. Hann hefur feng- ist við það að undanförnu að rífa niður einhverja stærstu hjólavél landsins. Og veitir ekki af að hafa öflugan mann í því en Ingvar Jóel varð nýlega heimsmeistari öldunga í bekkpressu. Ingvar hefur starf- að við niðurrif í um þrjátíu ár og kallar ekki allt ömmu sína. Kall- aður Tortímandinn meðal vinnu- félaga sinna. Bara gúmmíið eitt í dekkjum Skrímslisins er tvö tonn. Allt Skrímslið vegur rúm 80 tonn. „Þetta var lengi stolt Alfreðs Þor- steinssonar hjá Sölunefnd varn- arliðseigna hér í eina tíð. Þegar Skrímslið fór um var eins og heilt þorp væri á ferðinni. Hávaðasamt, stórt og sterkt. Fjögurra metra breitt – breiðara en Borgarnesboll- an!“ segir Tortímandinn og vísar til eins félaga sinna í Metal. Að sögn Ingvars hefur Skrímslið staðið ógangfært í ein 15 til 20 ár og löngu tímabært að rífa það niður í brotajárn. „Þetta er mjög sérhæfður gámalyftari. Svona vélar voru framleiddar sem skóflu- vélar. Framan á Skrímslið var sett gámalyftarajúnit. Aukaballest hefur verið sett aftan í vélina svo hún réði við svona þunga gáma.“ Þegar Tortímandinn skrúfaði síðustu skrúfuna úr ballestinni, sjö tonn, var hann búinn að mæla það svo út að tærnar myndu sleppa og það stóðst upp á sentimetra. Sem var eins gott. Þegar þunginn skall niður myndaðist gríðarmikill loft- þrýstingur, sem fór upp vinnugalla Tortímandans með þeim afleið- ingum að hjálmurinn fauk af höfði hans. Ekki er að heyra annað en Ingvari þyki þetta verkefni skemmtilegt. Og ólíkt hreinlegra en ógeðslegasta verk sem hann hefur tekið sér fyrir hendur sem var að rífa niður beinamjölsverk- smiðjuna á Patreksfirði. „Ýldu- lyktin úr verksmiðjunni var þvílík og lyktin af mér svo ógeðsleg að ég þurfti að borða úti í hádeginu. Fimmtán ára mjöl í tönkunum sem lifnaði við, ormar sem skriðu niður og breyttust fljótlega í flugur.“ jakob@frettabladid.is Tortímandinn og Skrímslið NUDD Verð frá 1690.- Selásbraut 98 110 Árbæ S:577 3737 Á ráðstefnunni munu vísindamenn Hafrannsóknastofnunarinnar, háskóla og annarra stofnana sem hafa stundað rannsóknir á sjón- um við Ísland og þeim lífverum sem þar halda sig fl ytja 26 erindi um nýlegar rannsóknir sínar. Að auki verða margvísleg rannsókna- verkefni tengd efni ráðstefnunnar kynnt á um 40 veggspjöldum. Föstudagur, 20. febrúar 2009 9:00 – 9:25 Setning og ávarp: Steingrímur J. Sigfússon sjávar útvegs- og landbúnaðarráðherra. 9:30 –10:15 Gestafyrirlestur: Stephen J. Hawkins, prófessor í sjávarvistfræði við Háskólann í Bangor, UK. Understanding climate driven changes in marine biodiversity and ecosystems: the value of long-term studies. 10:40 – 12:00 Atferli og líffræði þorsks 13:00 – 14:50 Sérstæðir ferlar 15:30 – 16:50 Hvalir í vistkerfi íslands Laugardagur 21. febrúar 2009 9:00 – 10:20 Hafsbotn og djúp 11:00 – 12:40 Firðir og strandsjór 13:40 – 15:00 Vistfræði og tími 15:00– 15:20 Umræður og samantekt: Jóhann Sigurjónsson Ráðstefnan er öllum opin meðan húsrúm leyfi r Sjá nánar á www.hafro.is/hafradstefna Léttöl PILSNER Drukkinn í 92 ár G ot t fó lk Það er ekki að ástæðulausu að sumt stenst tímans tönn. Íslendingar hafa haldið tryggð við Egils Pilsner í blíðu jafnt sem stríðu í tæpa öld, þökk sé hressandi bragði og hagstæðu verði. Endurnýjaðu kynnin við ölið sem Íslendingar hafa drukkið allar götur síðan 1917. TORTÍMANDINN Ingvar Jóel hefur að undanförnu starfað við að rífa niður í brotajárn vinnuvél sem var svo svakaleg að hún gekk undir nafninu Skrímslið. Segir Ingvar að Skrímslið hafi verið stolt Alfreðs Þorsteins- sonar hjá Sölunefnd varnarliðseigna.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.