Fréttablaðið - 20.02.2009, Page 42
30 20. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Taktu þátt í að móta framtíðina!
Nánari upplýsingar um fundina og félagsstarf Sjálfstæðisflokksins má finna á heimasíðu flokksins, www.xd.is, eða í síma 515 1700.
Endurreisnarnefnd Sjálfstæðisflokksins hefur það verkefni að móta tillögur og hugmyndir að uppbyggingu íslensks
efnahagslífs næstu misserin. Á næstu vikum verða fjölmargir fundir þar sem leitað verður eftir skoðunum og áliti
flokksmanna og annarra sem vilja taka þátt í starfinu á þessu mikilvæga viðfangsefni.
Nefndin mun standa fyrir opnum kynningarfundi þar sem Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Vilhjálmur
Egilsson , formaður Endurreisnarnefndar, munu kynna starfið og opna heimasíðu nefndarinnar á föstudaginn 20. febrúar
kl. 17 í Valhöll. Boðið verður upp á léttar veitingar að kynningunum loknum.
Laugardaginn 21. febrúar hefst svo opinn vinnufundur klukkan 10.30 í Valhöll þar sem fundað verður í fjórum hópum eftir
viðfangsefnum.
Kynning á starfi Endurreisnarnefndarinnar, opnun heimasíðu og vinnufundur
UEFA-bikarinn
Shakhtar Donetsk-Tottenham 2-0
København-Manchester City 2-2
Almeida, Vingaard - Onuoha, Ireland.
N1 deild karla
HK-FH 25-23 (13-9)
Mörk HK: Valdimar Þórsson 5/1 (7/1), Ragnar
Hjaltested 4/2(4/2), Einar Hrafnsson 3 (4), Ólaf-
ur Ragnarsson 3 (8), Gunnar Jónsson 3 (9/1),
Ásbjörn Stefánsson 2 (2), Ragnar Njálsson 2 (3),
Már Þórarinsson 2 (5), Sigurgeir Ægisson 1 (1).
Varin skot: Björn Ingi Friðþjófsson 14 (34/2
41,2%), Sveinbjörn Pétursson 1 (4 25%)
Mörk FH: Bjarni Fritzson 8/2 (14/2), Örn Ingi
Bjarkason 4 (9), Guðmundur Pedersen 3 (6),
Ásbjörn Friðriksson 3 (7), Sigurður Ágústsson 1
(1), Jónatan Jónsson 1 (1), Sigursteinn Arndal 1
(1), Benedikt Kristinsson 1 (3), Hjörtur Hinriksson
1 (3), Hermann Björnsson (2).
Varin skot: Hilmar Guðmundsson 3 (13/1 23,1%),
Magnús Sigmundsson 11/1 (26/3 42,3%)
Stjarnan-Fram 25-33
Mörk Stjörnunnar: Ragnar Helgason 5, Gunnar
Jóhannsson 5, Þórólfur Nielsen 5, Eyþór Magnús-
son 4, Guðmundur Guðmundsson 2, Fannar Þor-
björnsson 2, Hrafn Ingvarsson 1, Guðni Krist. 1.
Mörk Fram: Rúnar Kárason 11, Andri Berg
Haraldsson 6, Stefán Stefánsson 4, Haraldur
Þorvarðarson 3, Björn Guðmundsson 3, Jóhann
Reynisson 3, Jóhann Einars. 2, Magnús Einars. 1.
Víkingur-Akureyri 20-25
Iceland Express karla
Þór Ak.-Njarðvík 79-84 (50-37)
Stig Þórs: Konrad Tota 21, Jón Kristjánsson 18,
Daniel Bandy 12, Guðmundur Jónsson 11, Baldur
Jónasson 9, Óðinn Ásgeirsson 3, Bjarki Oddsson
3, Hrafn Jóhannesson 2.
Stig Njarðvíkur: Heath Sitton 25, Magnús Gunn-
arsson 20, Logi Gunnarsson 13, Fuad Memcic 11,
Hjörtur Einarsson 7, Friðrik Stefánsson 5.
Skallagrímur-Tindastóll 85-81 (39-41)
Stig Skallagríms: Sveinn Davíðsson 26, Igor Belj-
anski 19, Landon Quick 19, Sigurður Þórarinsson
19, Þráinn Ásbjörnsson 2.
Stig Tindastóls: Friðrik Hreinsson 20, Svavar Birg-
isson 19, Ísak Einarsson 14, Helgi Margeirsson 12,
Darrell Flake 8, Óli Reynisson 6, Helgi Viggós. 2.
> Jónas Grani frá FH til Fjölnis
Húsvíkingurinn Jónas Grani Garðarsson hefur ákveðið að
spila með Fjölni næsta sumar. Jónas Grani var marka-
kóngur deildarinnar sumarið 2007 með Fram, fór í kjölfar-
ið aftur til FH, þar sem hann lék áður, en náði sér ekki á
strik. Hjá Fjölni hittir Jónas Grani fyrir sveitunga sinn, vin
og samstarfsfélaga, Ásmund Arnarsson,
sem þjálfar Fjölnisliðið. Eru þetta góð
tíðindi fyrir Fjölnismenn sem hafa
mátt sjá á bak sterkum leikmönn-
um síðustu misseri.
FH-ingar misstu af gullnu tækifæri til skilja HK eftir í baráttunni um
sæti í úrslitakeppninni
„Þetta var spurning um að vera á lífi og vera í baráttunni og nú
er ljóst að við förum inn í endasprettinn aðeins stigi á eftir,“ sagði
Gunnar Magnússon þjálfari HK eftir sigur liðs síns á FH, 25-23 í N1
deild karla í handbolta í gær.
„Það er blóðug barátta fram undan. Þetta
gerir mótið spennandi og við vissum alveg hver
staðan yrði ef við næðum ekki að vinna.“
„Varnarleikurinn og markvarslan var frábær og
sóknarleikurinn í fyrri hálfleik en þegar Valdimar Þórsson
meiddist þá hikstaði sóknarleikurinn aðeins of mikið. Valdimar
kom inn á í lokin en gat ekki skotið og sem betur fer vissu FH-
ingar ekki af því og hann tók feikið og kláraði þetta.“
HK var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 13-9, en FH-ingar náðu að
jafna metin, 19-19, þegar tíu mínútur voru eftir og var loka-
spretturinn æsispennandi þar sem HK tryggði sér sigur með
því að skora tvö síðustu mörk leiksins þar sem Valdimar
Þórsson gerði gæfumuninn.
„Við erum að skríða saman og ég vona að við verðum
með alla okkar lykilmenn heila eftir tvær vikur, í fyrsta
skipti í vetur, og gerum harða atlögu að þessu fjórða
sæti,“ sagði Gunnar en HK er aðeins einu stigi á eftir
FH sem er í fjórða sæti og munu liðin berjast um sæti í
úrslitakeppninni við Fram fram í lokaumferð mótsins.
FH-ingar gátu nánast tryggt sér sæti í úrslitakeppninni
með sigri og var Elvar Erlingsson, þjálfari liðsins, eðlilega
svekktur yfir glötuðu tækifæri.
„Ég er hundsvekktur, það er ekkert annað um það að
segja!“
„Við höldum fjórða sætinu og það er engin skömm
að því að vera í fjórða sæti nú þegar fimm umferðir
eru eftir af deildinni. Það er svekkjandi að tapa þessu
svona í lokin en við erum ekki í vonlausri stöðu,“ sagði
þjálfari FH.
- gmi
N1-DEILD KARLA: HÖRKULEIKUR Í DIGRANESI ÞAR SEM HK MÁTTI EKKI TAPA GEGN FH
HK bjargaði mótinu hjá sér með sigri á FH
KR-STJARNAN 116-87 (59-37)
Stig KR: Helgi Már Magnússon 16,
Jason Dourisseau 16 (10 frák., 5
stolnir), Jón Arnór Stefánsson 14 (7
stoðs.), Pálmi Freyr Sigurgeirsson
13, Baldur Ólafsson 12 (6 frák., 10
mín), Jakob Sigurðarson 11, Darri
Hilmarsson 11, Brynjar Björnsson 9
(5 stoðs.), Ellert Arnarson 5, Fannar
Ólafsson 4, Ólafur Már Ægisson 3,
Skarphéðinn Ingason 2.
Stig Stjörnunnar: Jovan Zdravevski
30 (9 frák.), Justin Shouse 20 (12
stoðs.), Ólafur Jónas Sigurðsson 13,
Fannar Freyr Helgason 10, Eyjólfur
Örn Jónsson 5, Hjörleifur Sumarliða-
son 4, Kjartan Kjartansson 3, Guðjón
Lárusson 2.
KÖRFUBOLTI KR-ingar fóru illa með
nýkrýnda bikarmeistara Stjörn-
unnar og unnu þá með 29 stiga
mun, 116-87, þegar bikarúrslita-
liðin mættust aftur í Iceland
Express-deild karla í gær aðeins
fjórum dögum eftir bikarúrslita-
leikinn.
Eftir jafnan fyrsta leikhluta tóku
KR-ingar öll völd í öðrum leik-
hluta, unnu hann 38-18 og voru 22
stigum yfir í hálfleik. Seinni hálf-
leikurinn varð í kjölfarið hálfgert
formsatriði og KR-liðið náði mest
40 stiga forskoti áður en Stjörnu-
menn náðu að minnka muninn.
„Við vorum allt annað lið, vorum
yfirvegaðir og ætluðum að sanna
það hvort væri betra liðið. Við
teljum okkur vera með betra liðið
og við þurfum bara að sanna það
fyrir okkur og öðrum,“ sagði KR-
ingurinn Jón Arnór Stefánsson
sem átti fínan leik. „Ég held að
þetta hafi verið mjög sálfræðilegt
þarna á sunnudaginn. Við erum
búnir að tala heilmikið saman eftir
þann leik og menn eru búnir að
vera þungt hugsi. Það voru búnar
að vera þungar hugsanir í gangi og
maður loftaði þeim varla. Við stillt-
um saman strengi og fínpússuðum
einhverja hluti sem við vissum að
við hefðum gert illa á sunnudag-
inn,“ sagði Jón Arnór sem er bjart-
sýnn á framhaldið.
Það var sameinað átak hjá KR-
ingum sem færði þeim þennan
sannfærandi sigur. Sjö leikmenn
skoruðu yfir tíu stig og sá áttundi
var með níu stig. Darri Hilmars-
son kom inn í byrjunarliðið í fyrsta
skiptið og gaf tóninn í byrjun;
Jason Dourisseau var allt annar
maður og Baldur Ólafsson átti
einnig flotta innkomu.
„Það fyrsta sem ég sagði inni í
klefa var að ég vona að það taki
bara þennan leik til þess að koma
ykkur niður á jörðina og að við
þurfum ekki tapa svona illa aftur,“
sagði Teitur Örlygsson, þjálfari
Stjörnunnar eftir leik. „Annar leik-
hluti var ömurlegur af okkar hálfu
og við áttum aldrei möguleika í þá
eftir það. Ég var þokkalega ánægð-
ur með seinni hálfleikinn því við
vildum ekki fara að tapa með 50
eða 60 stigum eins og lið hafa lent
í hérna,“ sagði Teitur.
Justin Shouse og Jovan
Zdravenski skiluðu sínu hjá Stjörn-
unni en Justin hitti ekki vel. Megn-
ið af liðinu virtist þó enn vera með
hugann við Höllina.
ooj@frettabladid.is
Svakalegt Stjörnuhrap í boði KR
„Ég vona að það taki bara þennan leik til þess að koma ykkur niður á jörðina,“ sagði Teitur Örlygsson,
þjálfari nýkrýndra bikarmeistara Stjörnunnar, eftir að liðið slapp með 29 stiga tap gegn KR í gær.
EKKI HINGAÐ, VINUR Justin Shouse og félagar náðu ekki að fylgja eftir glansleik
sínum í Höllinni á sunnudag í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL