Tíminn - 10.01.1988, Side 7

Tíminn - 10.01.1988, Side 7
Sunnudagur 10. janúar 1988 Tíminn 7 Þyrla Landhelgisgæslunnar var stöövuð í nokkurra metra hæö yfir bátunum til að lögreglu þjónarnir fengju að finna fyrir kraftinuin frá þyrlunni. (Tímamynd Pétur) „Áttum að finna einn mann en fimdum tvo“ - sagði einn nemendanna við skólaslit lögregluskólans. stuðlað að þeirri aukningu sem varð á umsóknum nú í haust. Maður hefur líka orðið var við það í framhaldsskólunum að nem- endur leita hingað eftir upplýsingum fyrir verkefni sem verið er að vinna að og svo starfskynningarnar. Þetta hefur verið í mörg ár sem fólk hefur komið hingað, og ég held að þetta sé að skila sér aftur. Fólk veit fyrir fram, hvað hér er um að vera og vill reyna sig í þessu.“ FÆRRIKONUR SÆKJA UM „Hlutfall milli karla og kvenna er heldur óhagstætt fyrir konur, en það kemur nú líka til af því að það eru miklu færri konur sem sækja um. í dag eru um 15 konur af þeim 239 lögregluþjónum sem eru hér í starfi. Af þessum 239 eru um 180 sem ganga vaktir og sjást úti. Hinir 60 eru yfirstjórnin, varðstjórar, fólk sem vinnur við almennar rannsókn- ir, svo sem fíkniefna- og slysarann- sóknir. Þessir 180 skiptast niður á vaktir allan sólarhringinn, þannig að á hverri vakt eru ekki nema um 35 við almenna löggæslu, síðan er umferð- ardeildin sem ér sér, vegaeftirlit og svo þeir sem pru inni við, svo sem varðstjórar og fangaverðir og fleiri. Allir lögreglúþjónar koma hingað í skólann, t.d. ^f þessum 88 sem eru í skólanum í vetur eru 33 úr Reykja- vík hinir eru utan af landi.“ HÖFUM MISST MARGA GÓÐA MENN „Þeir sem eru búnir að fara í gegn um báðarannirlögregluskólans hafa fengið mikla almenna menntun, enda höfum við misst marga góða menn bæði á fjölmiðlana, trygging- arfélögin og til fleiri fyrirtækja, sem hafa yfirboðið. Þeir hafa lært mikið í íslensku, bæði hvað varðar fram- setningu, réttritun og notkun málsins. Þeir hafa því fengið góða menntun og öðlast lífsreynslu á ýms- um sviðum. Það er með þetta starf eins og önnur að ekki er hægt að kenna mönnum allt og verður annað að lærast í starfinu. Lögreglustarfið er þannig að það koma ýmsir óvæntir hlutir upp sem ekki er hægt að segja fyrir um, svo það er mikilvægt að kunna að bregðast við á réttan hátt, en það lærist með tímanum.“ Þeir koma gangandi í beinni röð inn í salinn og raða sér upp í rétt- stöðu við langborð, sem komið hefur verið fyrir í mötuneyti iögreglunnar og bíða þess að yfirlögregluþjónarn- ir og kennarar lögregluskólans gangi í salinn. Fyrir leikmanni sýnist þetta frekar broslegt en hefur auðvitað sína skýr- ingu, sem er sá agi sem lögregluþjón- ar verða að temja sér. Það sem fara á fram er útskrift nemenda af fyrri önn lögregluskól- ans. En eins og fram hefur komið hafa þeir verið í bóklegri og verk- legri þjálfun síðastliðnar átta vikur. Eftir að ávörp höföu verið flutt bæði af kennurum og nemendum ög einkunnir afhentar var boðið upp á kaffi og meðlæti. Við skulum grípa niður í ávarp „..sennilega vegna þess að fjaran í Reykjavík er sýnu merkilegri en fjaran á Suðurnesjum“ sagði Karl Steinar Valsson í ávarpi fyrir hönd lögreglunema. (Tímamynd Gunnar) eins nemandans, Karls Steinars Valssonar, þar sem hann var að minnast atburðar sem átti sér stað á einni vettvangsæfingunni. „Þegar við fórum í fjöruleit á dögunum átt- um viö að finna einn mann. En þegar upp var staðið fundum við tvo, þar sem einn úr hópnum gleymdi sér í fjörunni, sennilega vegna þess að fjaran í Reykjavík er sýnu merki- legri en fjaran á Suðurnesjum, þar sem þessi annars ágæti maður á heima.“ Að athöfninni lokinni fenguni við þrjá nemendur úr lögregluskólanum tii að svara nokkrum spurningum um skólaveruna og starfið. „Að hafa nóg af almennri skynsemi „Það var nú bara í fíflagangi sem ég fór í lögregluna. Ég veðjaði við einn vin minn um að ég kæmist ekki inn, en ég komst inn. Náttúrlega sat uppi með það og búin að vera hérna síðan, eða frá 1. júní 1986 sem afl- eysingarmanneskja en byrjaði í skólanum nú í haust," sagði Guðrún Hauksdóttir lögregluþjónn úr Reykjavík. „Mér líkar þetta starf ágætlega, annars væri ég ekki hérna. En það er óvíst hvort þetta verður ævistarfið, það fer nú eftir því hvað aðstæðurnar gera í þeim efnum. Tíminn í skólanum hefur verið ágætur, líkamlega þjálfunin hefur verið ágæt fyrir okkur og við höfum lært ýmislegt sem maður hefur gagn og gaman af." Hvernig finnst þér að góður lög- reglumaður eigi að vera? „Hann verður að hafa nóg af al- mennri skynsemi, það skiptir engu máli hvort hann telst eitthvað gáfað- ur eða heimskur eða hvað það er, það skiptir engu máli. Heldur það að hann eigi auðvelt með að umgangast fólk, sé kurteis og skynsamur." „Starfið er náttúrlega besti skólinn“ „Ég byrjaði hér 1984 sem sumar- maður, var þá í skóla á vcturna og kláraði stúdcntinn. Mér líkaði þetta starf vel og sótti um að vcrða fastráð- inn, sem leiddi til þess að ég er í skólanum núna," sagði Jón Stein- grímsson lögregluþjónn úr Reykja- vík. „Mér líkar þctta mjög vel og hef hugsað mcr að gcra þetta að ævi- starfi. Skólinn er betri en ég bjóst við, ég held að hann fari batnandi og starfið náttúrlega besti skólinn. Maður lærir mest af félögunum, af reynslunni þar sem bókin kennir manni ckki allt.“ Hvcrnig finnst þér að góður lög- reglumaður eigi aö vcra? „Þetta ererfiðspurning. Menn eru misjafnir og aðstæður eru misjafnar líka, þannig að ég held að góður lög- „Ég veðjaði við einn vin minn um I að ég kæmist ekki inn, en ég komst inn;“ sagði Guðrún Hauksdóttir. (Tímamynd Gunnar)

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.