Tíminn - 10.01.1988, Blaðsíða 8
8 Tíminn
Sunnudagur 10. janúar1988
reglumaður verði að vera mannleg-
ur, sveigjanlegur og ekki of fastur á
bókstafnum. Þetta er líka spurning
um dómgreind, hann verður að hafa
tilfinningu fyrir hlutunum sem
kannski ekki allir hafa. Það er fyrst
og fremst að vera mannlegur og já-
kvæður og vita hvað hann er að gera.
Það er um að gera að halda
sjálfsstjórn.
Ég mundi segja að það sem prýðir
góðan lögreglumann er bara það sem
prýðir góðan mann,“ sagði Jón
Steingrímsson að lokum.
„Verður að vera
hæfilega sveigjanlegur
„Ég byrjaði sem sumarmaður
1986, mig langaði til að prufa þetta
vegna þess að ég þekki nokkra stráka
sem höfðu farið í þetta og líkaði
vel,“ sagði Stefán Alfreðsson lög-
regluþjónn úr Reykjavík.
„Eftir sumarið kunni ég orðið
þokkalega við starfið og langaði til
að prófa að vera heilan vetur í
viðbót. Að honum loknum ákvað ég
það að vera áfram í þessu starfi og
fór því í lögregluskólann.
Það merkilegasta við þetta starf er
aö vita í raun aldrei hvað gerist á
vaktinni, menn hafa að vísu ákveðin
fyrirmæli um að vera í ákveðnum
verkefnum cn síðan getur allt komið
upp á. Þetta er ekki alltaf gaman.
stundum líka þreytandi að vera í
þessu."
Hvernig finnst þér að góður lög-
reglumaður eigi að vera?
„Góður lögreglumaður verður að
vera vel inni í helstu málum og því
sem er að gerast í þjóðfélaginu. Að
sjálfsögðu verður hann að vera vel
inni í því sem hann á að halda uppi,
þ.e.a.s. lögum og reglum," sagði
Stefán.
„Hann verður að vera hæfilega
sveigjanlegur, ekki vera alveg fastur
við lagabókstafinn ef það er hægt.
Síðan verður hann náttúrlega að
reyna að koma fram við alla jafnt,
gera ekki upp á milli manna í starfi
sínu. Koma eins kurteislega fram
eins og hægt er, en þó verður hann að
vera harður af sér þannig að hann
geti leyst þau verkefni sem honum
eru falin. Ég mundi segja að almenn
skynsemi sé aðalatriðið í þessu starfi
og víðsýni."
Vinningslíkumar hjá Happdrætti SÍBS árið 1988 em algert einsdæmi hjá stóm
happdrætti — hvorki meira né minna en 3. hver miði vinnur! Ótrúlegt en satt.
Og nú em aukavinningamir orðnir 27. Þar af em 3 rerínilegar bifreiðar,
Citroén AX14, sem aðeins em dregnar úr seldum miðum.
Það em ótrúlega miklir möguleikar á vinningi hjá SÍBS.
Ævintýralegar vinningslíkur
Dregid 12. janúar.
gerast ævintýr...
* wnnr