Tíminn - 10.01.1988, Page 13
Sunnudagur 10. janúar1988
Tíminn 13
MAL SAKAMÁL SAKAMAL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁ
Afmælisgj öfin
Elsa Klein ætlaði að koma
manni sínum gleðilega á
óvart með því að gefa
honum draumabílinn hans
í afmælisgjöf.
Vegna misskilnings
endaði þetta allt í
blóðugum harmleik.
Elsa vann fyrir bilnum a laun og
og galt fyrir það með lífi sínu.
Otto von Kaufmann verslaði
með bíla og ekkert annað.
Heinrich Klein virtist hafa verið
mjög svo óheppinn með nýja bílinn.
Að minnsta kosti varð það fastur
liður að Elsa kona hans æki bílnum
hvað eftir annað til viðgerðar á
verkstæði hjá umboðinu.
Heinrich Klein var gramur og
vonsvikinn yfir þessu. Hann hafði
keypt bílinn handa konu sinni í
VW-umboði í Munchen. Elsa hafði
sjálf valið hann og bíllinn hafði
síðan verið afhentur á brúðkaupsaf-
mæli hjónanna þann 20. ágúst 1986.
Hins vegar reyndist bíllinn augl-
jóslega hreinasti vandræðagripur.
Heinrich Klein íhugaði að telja um-
boðsmanninn á að taka hann aftur
og láta þau fá nýjan í staðinn. Varla
var þó líklegt að það gengi, þar sem
búið var að aka bílnum eina 2500
kílómetra.
Þá var bara að vona, að bíllinn
kæmist yfir barnasjúkdómana og
færi að haga sér eins og almennilegt
ökutæki. Ekki virtist fá hið minnsta
á Elsu að aka með hann á verkstæð-
ið, þó hún þyrfti að vera án hans
einn til tvo daga í hvert skipti.
Bíllinn var stöðugt til umræðu,
bókstaflega hvern einasta dag. Elsa
tók hlutunum með einstöku jafnað-
argeði, en smám saman var bíllinn
og viðgerðirnar komið á heilann á
Heinrich. Hann þóttist viss um að
farið væri á bak við Elsu á verkstæð-
inu og hugsaði sér að athuga málið
nánar sjálfur.
Þegar hann sagði Elsu frá fyrirætl-
an sinni, talaði hún hann ofan af að
fara á verkstæðið. Hún vissi mætavel
að Heinrich var skapráður og ekkert
hlytist af heimsókn hans á verkstæð-
ið annað en vandræði. Henni tókst
að róa hann, en brátt bilaði bíllinn
enn. Rétt fyrir jólin vildi hann ekki
fara í gang.
Mælirinn fullur
Þá fannst Heinrich Klein nóg
komið af svo góðu. Mælirinn var
svo fullur, að út úr flóði. Án þess
að segja konu sinni frá því, fór
hann á verkstæðið og hitti einnig
sölumanninn, sem selt hafði þeim
bílinn. Hann hét Otto von Hauf-
mann. Yfirmaður verkstæðisins,
sem Heinrich hugðist lesa dálítinn
pistil, hér Franz Schmidt.
Það var mánudaginn 22. des-
ember, sem Heinrich kom askvað-
andi inn og heimtaði að fá að tala
við Haufmann. Hann var ekki
viðlátinn og Klein þekkti ekki þá
sölumenn, sem til staðar voru. Þá
hélt hann áfram og fór inn á
verkstæðið, þar sem hann sá mann
í vinnugalla standa álútan yfir bíl
með opið vélarhús.
Heinrich Klein fann reiðina vella
upp í sér og nú þóttist hann viss um
að einmitt þessi maður bæri ábyrgð
á öllum ógöngunum með bílinn og
skyldi svei mér svara fyrir það...
Honum tókst þó að stilla sig í
bráðina og spyrja manninn ofur
rólega, hvort hann kannaðist nokk-
uð við bláa bílinn, sem kona sín
hefði keypt og væri víst „öðru
hvoru" hér á verkstæðinu.
Auðvitað kannast ég við hann,
svaraði Franz Schmidt vingjarn-
lega. Það er fyrirtaks bíll. Konan
þín má vera ánægð með hann.
Líkar henni ekki vel við hann?
Henni myndi eflaust líka enn
betur við hann, ef hægt væri að
nota hann, svaraði Heinrich Klein
og æstist nú allur. Hún væri hæst-
ánægð, ef druslan væri ekki nær
stöðugt í viðgerð.
Nú skil ég ekki... sagði Franz
Schmidt. Hvað er að bílnum?
Heinrich svaraði með langri upp-
talningu á göllum bílsins og þeim
skiptum, sem Elsa hafði farið með
hann til viðgerðar. Franz hlustaði
þolinmóður, en þegar Heinrich
hafði lokið sér af, sagði hann
rólega: Herra Klein. Konan þín
hefur aðeins einu sinni komið með
bílinn til viðgerðar síðan hann var
afhentur, en hitt er satt, að hann er
hérna oft. Hann stendur iðulega
hérna á bak við verkstæðið, ég veit
ekki hvers vegna, en þú ættir
kannski að ræða við Otto von
Haufman um það.
Grundsemdirnar
Heinrich Klein starði vantrúaður
á Franz Schmidt. Hvað var maður-
inn að segja? Var hann ekki að gefa
eitthvað í skyn? Hafði hann ekki
sagt nær berum orðum, að eitthvað
væri milli konu hans og Hauf-
manns...
Það var þá þess vegna sem Elsa
hafði aldrei kvartað yfir erfiðleikun-
um með bílinn. Hún hafði þvert á
móti notað hann sem tylliástæðu til
að geta hitt þennan Haufmann á
laun.
Heinrich Klein fór leiðar sinnar
án frekari orðaskipta á staðnum.
Otto von Haufmann var enn ekki
kominn í verslunina og mátti þakka
sínum sæla. Heinrich var rauðgló-
andi af reiði og síst í nokkru jóla-
skapi. Hann var svo æfur, að hann
minntist ekki einu orði á þetta allt
við Elsu, þegar hann kom heim.
Á hinn bóginn beið hann nú
átekta. Enginn efi væri á að bráðlega
kæmi að því að Elsa þyrfti að fara
með bílinn í „viðgerð", aðeins til að
geta hitt Haufmann. Að því kom
rétt eftir áramótin. Elsa kvartaði um
að erfitt væri að ræsa bílinn.
Farðu með hann á verkstæðið,
sagði Heinrich, ekkert nema elsku-
legheitin. Elsa sagðist gera þáð dag-
inn eftir, sem var 5. janúar. Þá fór
Heinrich ekki til vinnu sinnar eins og
venjulega, heldur ók hann inn í
hliðargötu og beið þar eftir Elsu, til
að fylgjast með gerðum hennar.
Óvænta „gjöfin“
Klukkan rúmlega átta ók Elsa
framhjá. Heinrich elti hana í hæfi-
legri fjarlægð og leiðin lá að glæsi-
legu einbýlishúsi í einu úthverfa
Munchen. Þar lagði Elsa bílnum í
heimreiðina við hliðina á hvítum
Porsche, en fór síðan inn í húsið.
Heinrich Klein var ofsareiður og
kom þremur tímum of seint í vinn-
una, en fór þaðan aftur laust eftir
hádegið - kvartaði um lasleika. Það
var svo sem ekki helber uppspuni,
því vissulega leið honum afleitlega.
Ástæðan var þó, að hann hugðist
heimsækja Otto von Haufmann og
fá grunsemdir sínar staðfestar eða
afsanna þær.
Þegar hann kom að umboðinu,
fór hann samt ekki inn, en lét sér
nægja að sjá Haufmann stíga út úr
hvftum Porsche. Klein fór án þess að
láta Haufmann sjá sig og ók um í
reiðileysi, uns hann tók stefnuna
heim um sjöleytið, svo hann kæmi á
sama tíma og venjulega.
Elsa fagnaði honum að venju og
hann tók því á sama hátt og áður, en
innra með honum ólgaði og sauð
afbrýðisemin og sært stolt.
Næstu dagana lét hann sem ekkert
væri, en laugardaginn 10. janúar
stakk hann upp á að þau Elsa færu í
góða ökuferð. Henni fannst hug-
myndin ágæt. Þau lögðu af stað að
Heinrich Klein vissi að kona hans leyndi einhverju og lagði það út á
versta veg.
heiman um tíuleytið, Elsa ók, en
Heinrich sat þögull við hlið hennar.
Leiðin lá til norðurs í átt að
Nurnberg. Þau nániu staðar við
veitingahús og borðuðu hádeg-
isverð. Um hálf þrjú var stefnan
tekin heim á leið aftur og Elsa
renndi upp í heintreiðina um sexleyt-
ið og drap á bílnum.
Þegar hún ætlaði að stíga út, sagði
Heinrich skyndilega: Bíddu andar-
tak.
Elsa settist aftur og beið. Hún sá
Heinrich seilast undir sætið. Skyldi
hann geyma þar gjöf handa henni?
Það hlaut að vera, því nú bað hann
hana að loka augununum. Ég ætla
að koma þér á óvart, sagði Heinr-
ich Klein.
Hvað er það? spurði Elsa eftir-
væntingarfull.
Það er gjöf við hæfi konu, sem
lýgur að manni sínum og svíkur
hann, svaraði Heinrich kuldalega.
Þá vissi Elsa að eitthvað hlaut að
vera að. Hún opnaði augun og náði
rétt í svip að sjá niann sinn reiða
Otto
stutta gegnheila járnstöng til
höggs. Stöngin skall á hnakka Elsu
af feikjiaafli. Hún féll fram á
stýrið. Gjörsamlega blindur af
reiði sló Heinirch Klein aftur og
aftur, svo blóðið ýrðist um alla
framrúðuna.
Þegar hann hafði lokið sér af,
gekk hann ofur rólega inn í húsið
og hringdi á lögregluna. Hann
skildi útidyrnar eftir opnar, svo
lögreglumennirnir gætu gengið
rakleitt inn fyrir.
Þá útskýrði hann ósköp blátt
áfram, að sér hefði ekki fundist
nema réttlátt að kona hans léti lífið
einmitt í þessum bíl, sem verið
hafði undirrót alls harmleiksins.
Misskilningurinn
Lögreglan yfirhcyrði Otto voi
Haufmann stuttlega og lagði fyrir
hann ásakanir Klcins. Haufmann
vísaði þeint gjörsamlega á bug -
milli þeirra Elsu hafði alls ekkert
verið. Skýringin sem hann gaf hins
vegar fúslega, var svo skelfileg fyrir
Heinrich Klein, að hann reyndi að
fyrirfara sér í fangelsinu.
Nú kom fram í dagsljósið að Elsa
hafði orðið svo snortin, þegar Heinr-
ich gaf henni heilan bíl, að hún vildi
gjalda líku líkt. Hún ákvað að gefa
honum einnig bíl, þó svo hann hefði
bíl frá fyrirtækinu til umráða. Hins
vegar átti hún ekki nóga peninga og
gerði því samning við Otto von
Haufmann.
Heinrich Klein dreymdi um að
eignast VW Golf GTI og hann
ætlaði Elsa nú að gefa honum, þó
hún ætti ekki nema helming andvirð-
isins. Gæti Haufmann ekki útvegað
henni vinnu, svo hún gæti hreinlega
unnið af sér hinn helming bílverðs-
ins?
f fyrstu var sölumaðurinn tregur
til að semja á þennan hátt, en þegar
hann komst að raun um að Elsa
Klein var sérmenntuð á tölvur, sló
hann til og veitti henni vinnu tvo
daga í viku. Ekki yrði um að ræða
nema eitt ár eða svo.
Samningur um bílkaupin var
undirritaður og Heinrich skyldi fá
rauða draumabílinn sinn í afmælis-
gjöf. Þangað til ætlaði Elsa að stunda
vinnu sína á laun. Eftir það ynni hún
með vitneskju manns síns - þegar
hann væri búinn að jafna sig af að
vera komið svo gleðilega á óvart.
Því miður fór svo, að Heinrich
Klein var komið allt öðruvísi á
óvart, en ætlunin hafði verið.