Tíminn - 10.01.1988, Page 16
Nýlega gengu þau Pam Pearce og
Mick unnusti hennar í hjónaband
sem er bara gott og blessað. Þau
höfðu búið saman í tvö ár, þó Pam
sé 43 ára en Mick aðeins 19. Nú er
Mick sem sagt orðinn stjúpfaðir
barna Pam sem eru fimm. Ekki er
þetta mjög flókið, en hann er líka
orðinn mágur stjúpsonar síns og
verður með tímanum afi barna syst-
ur sinnar.
Ástæða fyrir flækjunni er sem sagt
sú, að þegar tilkynnt var um brúð-
kaup Pam og Micks, ákváðu Tonie,
systir Micks, og Sean, sonur Pam, að
gifta sig um leið. Par mcð varð Mick
tengdafaðir systur sinnar og Pam
svilkona sonar síns.
- Ókunnugum gæti virst þetta
flókið, segir Pam, - en okkur líður
öllum svo vel, að við veltum því ekki
fyrir okkur.
Pam gleymir aldrei þegar hún
kynntist Mick. Þar með var bundinn
endi á 27 ára, dapurlegt hjóna-
band hennar. Kvöld eitt kom Sean
sonur hennar heim með kunningja
sinn. Um leið og Pam sá unglinginn,
heillaðist hún af honum. Hún segir
svo frá: - Ég hugsaði með mér að
þetta væri brjálæði, ég væri gamall
kjáni, meira að segja amma, en
hann aðeins unglingur. En Mick
brosti og spjallaði við mig og nokkr-
um dögum seinna hittumst við á
götu. Eitthvað small og ég vissi að
ég var ástfangin.
Mick gekk með grasið í skónum á
eftir Pam sem færðist lengi undan.
Loks kom þó að því að hún yfirgaf
mann sinn og flutti heim til Micks.
Börn hennar tóku þessu með jafnað-
argeði, enda höfðu þau lengi vitað
að hjónaband foreldranna var ein-
ungis við lýði af gömlum vana.
Tvöfalt brúðkaup. Pam og IVIick til
vinstri, Tonie og Sean til hægri.
á númerið þitt!
Nú þarft þú að fá þér miða
Happdrætti Háskólans hefur hæsta vinnings-
hlutfall í heimi! 70% af veltunni fara til vinninj
hlutfall í heimi! 70% af veltunni fara til vinnings-
hafa! AUir vinningar eru greiddir út í beinhörð'
um peningum sem vinningshafar ráðstafa að
eigin vild. Vinningamir eru undanþegnir skatti!
Vinningarnir 1988: 9 á 5.000.000 kr./
108 á 1.000.000 kr./108 á 500.000 kr/
324 á 100.000 kr./1.908 á 25.000 kr./
10.071 á 15.000 kr./122.238 á 7.500 kr/
234 aukavinningar á 25.000 kr./
Samtals 135.000 vinningar á 1.360.800.000 kr.
Hraðaðu þér til
umboðsmannsinslog
tryggðu þér númer -
< NÚNA! .