Tíminn - 31.01.1988, Page 13

Tíminn - 31.01.1988, Page 13
Sunnudagur 31.janúar1988 Tíminn 13 ígðum reit samkvæmt fyrirmælum, sem blrtust í ósjálfráðri skrift Höggstokkurinn og öxin, sem notuö voru við aftökur Agnesar og Friðriks. Amtið átti gripina og þegar skila átti þeim til yfirvaldanna fékkst enginn maður til þess að flytja þá. Þeir eru nú í Þjóðminjasafninu. „Þótti síst að Guðmundur Hofdal vildi ekki hirða upp öll beinin“ - segir Ólafur Magnússon, bóndi á S veinsstöðum, sem nítj án ára tók þátt í uppgreftrinum á Þrístapa „Ég var nítján ára er þetta var og man því vel eftir þessum atburðum," segir Ólafur Magnússon, bóndi á Sveinsstöðum, en hann tók þátt í því ásamt föður sínum og Guðmundi Hofdal að grafa upp jarðneskar leifar þeirra Friðriks og Agnesar. „Við vissum ekkert af þessari ráðagerð fyrr en Guðmundur Hofdal kom norður með rútunni og kom heim til okkar. Hann sagði okkur af hvað til stæði og spurði mikið um hvort ekki væri einhver annar Magn- ús á bænum, en faðir minn var 58 ára er þetta var og því fannst honum sem hann gæti varla verið sá „Magn- ús gamli“ sem minnst hafði verið á í i hinni ósjálfráðu skrift. En á bænurm var ekki um neinn annan Magnús að ræða og langt um liðið frá því er maður með því nafni hafði verið á Sveinsstöðum. Guðmundur var nætursakir hjá okkur og morguninn eftir lögðum við upp með járnstengur og skóflur til þess að vita hvort takast mætti að finna grafirnar. Guðmundur hafði spurt margs um þær kvöldið áður, en við faðir minn gátum lítið frætt hann um það. Bæði var að við höfðum ekkert leitt hugann að þessu og svo hitt að menn töldu víst að lítið mundi sjást fyrir þeim. En nokkuð kom það á óvart er Guðmundur sagði að samkvæmt vísbendingu miðilsins mundu höfuðin vera í gröfunum, því það hafði verið talið hér að þau hefðu verið jarðsett í vígðum reit. Að höggpallinum er skammur vegur frá Sveinsstöðum, svo sem einn og hálfur kílómetri. Pallurinn er á Þrístapa og mjög skammt frá þjóðveginum og þar stendur nú minnisvarði, sem Húnvetningafélag- ið í Reykjavík lét reisa fyrir nokkr- um árum. Enn sér vel fyrir upp- hleðslunni. Eftir tilvísuninni áttu höfuðin að vera grafin fyrir norðan grafirnar, þar sem væri „sendnara". En þarna var nú hálfdeig mýri allt umhverfis og sérstaklega norðanvert og ekki auðvelt að sjá við hvaða blett væri átt. En faðir minn fór nú að kanna með stöng næst liólnum, þar sem einna þurrlendast var, og vildi svo til að hann fann brátt að undir var eitthvert tóm. Reyndist hann hafa rekið stöngina gegn um lokið á Ólafur Magnússon: „Þetta var látið í poka og eitthvað í kassa, minnir mig.“ annarri kistunni, sem auðvitað var orðið mjög fúið. Þegar farið var að grafa fundust svo höfuðin brátt, og höfðu þau verið lögð ofan á horn hvorrar kistu. En hið merkilega var að ekki bar á öðru en að þau hefðu verið látin í holu, sem grafin hafði verið er búið var að moka yfir kisturnar - og sandi af hólnum þjappað utan með þeim. Það var greinilega möi í kring um höfuðin. Það kom líka í ljós spýtubrot í annarri hauskúpunni, eins og sagt hafði verið í hinni ósjálfráðu skrift. Nei, ekki man ég nú til að það hafi verið í mér sérstakur óhugur, meðan á þessu verki stóð. Ég kom líka lítið nærri því að tína beinin upp. Það gerðu þeir faðir minn og Guðmund- ur. En ég man að þetta var í ágætu veðri og fögru. Það voru helst hörðustu beinin sem voru heilleg. Helst fannst mér það að þarna hve Guðmundur var lítt áfram um að hirða allt, skildi margt beinasmælki eftir. Hann sagði að ekki skipti mestu að taka allt, heldur að hjálpa þeim að komast í vígða mold. Beinin voru sett í poka og eitthvað í kassa, minnir mig, og farið með þetta hingað heim. Degi seinna eða svo, um kvöld, kom bóndi að nafni Annas úr Vestur Hópi hingað og reiddi uppgröftinn heim að Tjörn, þar sem allt saman var jarðsett þann 17. júní. Víst vakti þetta athygli hér í sveit þótt stöku maður teldi að ekkert væri merkilegt þótt grafirnar hefðu fundist. Þær hefðu hlotið að vera þarna rétt hjá. Hins vegar þótti Guðmundi Arasyni á lllugastöðum, afkomanda Guðmundar Ketilssonar er var böðull við aftökuna og bróðir Natans, leiðinlegt að ekki skyldi vera einhver athöfn meiri en jarð- setningin við messuna á Tjörn. Því boðuðu þau sveitunga sína til og fengu séra Sigurð til þess að sjá um athöfn á brunarústunum að Illuga- stöðum. Þar hélt Guðmundur Ara- son tölu auk prestsins. Um þessa atburði er ritað í bókinni „Eigi má undan líta“ eftir Guðlaug Guð- mundsson. Þar kemur það fram að nokkru eftir þetta komu fram þakkir til Illugastaðahjóna frá Friðrik og Agnesi í gegn um þessa ósjálfráðu skrif, en þau hjón gengust fyrir því að legsteinn var settur á leiðið að Tjörn. Grafirnar voru skildar eftir opnar og sumarið eftir komu þarna margir og rótuðu í þessu, þar á meðal ferðamenn. Það var þá sem mylla fannst af treyju Agnesar, hnappur og eitthvað slíkt smálegt. Einhver maður frá Blönduósi mun hafa fund- ið þarna hluta af kjálkabeini. Aftaka Friðriks og Agnesar mun hafa verið hin síðasta sem fram fór á íslandi og eins og kunnugt er var öllum frá Vatnsskarði og vestur í Miðfjörð gert að vera viðstaddir og horfa á hálshöggninguna. Ekki mun öllum hafa verið það Ijúft og heyrt hef ég um bónda í Svínavatnshreppi sem ekki komst sjálfur, en sendi son sinn sautján ára sem fulltrúa sinn. En á leiðinni, er komið var upp að Reykjum, hrasaði hesturinn með piltinn, svo hann lærbrotnaði. Sagði hann síðar: „Ég var heppinn að lærbrotna, þvf fyrir vikið þurfti ég ekki að horfa á þetta.“ Ekki veit ég með vissu hver Guð- mundur Hofdal var. Nú í sumar sagði mér glöggur maður að hann hefði verið bróðir þess kunna Fjalla Bensa, sem Gunnar Gunnarsson segir frá í Aðventu sinni. Það vil ég þó taka fram að enga vissu hef ég fyrir þessu, en gaman væri að vita hvort rétt er.“ ritast hefur hjá honum, þessu máli viðvíkjandi, og sannfærzt um veruleik ósjálfræðisins í skriftinni, sem og um nákvæmni stjórnanda hans, sem knýtt hef- ur margþætta sannana-keðju utan um þetta málefni þeirra Agnesar og Friöriks. Sannana- keðju er ég, þrátt fyrir efunar- girni, verð að beygja mig fyrir. En frásögnin í gærkvöldi, um Þingeyrar-vinnumanninn og höfuðin, hefir skotið mér skelk í bringu. Sagnirnar um flutning höfðanna í Þingeyrarkirkju eru svo einróma, að ég óttast að hið örugga miðilssamband, er ég hugði vera, fari hér með vit- leysu, og hinsvegar er tilvísunin til „Magnúsar gamla“ á Sveins- stöðum svo óljós, að ég efa að hann sé til, hvað þá svo fundvís sem Agnes vill vera láta. Það er að vísu margt sem - Nú eru förunautar rnínir komnir. Það er komið að miðnætti; ég er kominn að Sveinsstöðum í Austur-Húnavatnssýslu og bú- inn að neyta þar góðs beina: „Magnús gamli“ er til og er hreppstjóri sveitar sinnar, greindur maður og gætinn að því er mér virðist. Hann er að vísu ekki, eftir útliti að dæma, nema liðlega fertugur að aldri, þótt Agnes titli hann gamlan. Ég hefi sagt honum frá erindi mínu og frá ósk Agnesar um aðstoð hans við leitina. Aðstoð- ina mun hann með ánægju í té láta, en ég efa að hann leggi trúnað á afskipti Agnesar af þessu máli. Ég hefi einnig sagt honum frá fullyrðingum hennar um höfuðin og malarborna jarð- veginn sem þau eiga að liggja í, svo og frá spýtubrotinu í höfði Agnesar. Magnús kveðst aldrei hafa heyrt annars getið, en að höfuð- in væri í Þingeyrarkirkjugarði og að þau hefðu verið flutt þangað að tilhlutun fólksins þar. Sagði ég honum frá frásögn Agnesar um sviksemi vinnu- mannsins í þvi efni. Vart mun Magnús leggja trún- að á sannleiksgildi þessara frá- sagna Agnesar. Að vísu hefir hann ekki haft nein orð þar um, en kímnisbros hans undir frá- sögn minni hefir blásið mér því í brjóst. Það, að „Magnús gamli“ reyndist að vera til, hefur að nýju vakið traust mitt á leiðsögn hinna látnu, og leggst ég því ókvíðinn til hvílú. „15. júní 1934. Klukkan er hálf tíu fyrir há- degi. Ég stend á Þrístapa, en það er hóll sá í Vatnsdalshólum, er þau Agnes og Friðrik voru leitt á til aftökunnar. Við hlið mérstanda þeir Magnús Jónsson hreppstjóri frá Sveinsstöðum og fulltíða sonur hans, Ólafur að nafni. Á miðjum hólnum er 45 cm. hár pallur, að flatarmáli 22 og 1/2 fermetri. Hann hefir verið hlaðinn úr grjóti og torfi og stendur enn óhaggaður, að öðru leyti en því að hann hefir sigið lítilíjháttar á stöku stað. í kring- um pallinn hafði verið komið fyrir trégirðingu, að því er sagan segir, en hennar sjást nú engin merki. Við hefjum dysleitina með þvf að athuga nákvæmlega um- hverfið, ef ske kynni, að við yrðum einhvers þess varir ofan jarðar, er gæti orðið okkur til leiðbeiningar, en er sú leitarað- ferð ber engan árangur, könnum við jarðveginn, norðan við af- tökupallinn, með 8 mm. sverum járnstöngum. Eftir þannig lag- aða fjórðungsstundarleit, rekur Magnús sína stöng niður á aðra kistuna. Er hann þá staddur 12 m. norðvestan við aftökupall- inn. Þar hefjum við gröft á allstóru svæði, til þess að forðast skemmdir. Á 65 cm. dýpi nyrðst í gryfjunni komum við niður á höfuðkúpurnar, er liggja hvor hjá annarri. Þar finnum við einnig 10 cm. langt spýtubrot, er við ætlum að sé af annarri hvorri þeirri stöng, er höfuðin voru sett á. Höfuðkúpurnar virðast lítt fúnar og eru óskemmdar að öðru en því, að þrjár tennur vantar í aðra þeirra. Jarövegur- inn er þarna dálítið malarbor- inn, en í miðri gryfjunni og í syðri hluta hennarer hrein mold. 25 cm. neðar komum við svo niður á kisturnar, í miðri gryfj- unni. Þær eru hlið við hlið og liggja frá suðaustri til norðvest- urs. Lokin eru brotin og fallin niður og verður því eigi með fullri vissu sagt um, hver lögun þeirra hefir verið, en að líkind- um hafa þau verið flöt. Kisturn- ar eru að öðru leyti heilar, en mjög fúnar. Innanmál þeirra er:

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.