Tíminn - 19.02.1988, Síða 3
Föstudagur 19. febrúar 1988
Tíminn 3
Skyggnst í hugskotgrunnskólakennaravarðandi hagi þeirra og viðhorf:
Stór hluti kennara telur
námsárangri hafa hrakað
Niðurstöður úr könnun á högum og viðhorfi kennara á grunn-
skólastigi, sem Þórólfi Þórlindssyni var falið að vinna 1984 af
þáverandi menntamálaráðherra, voru kynntar í gær og leiddu í Ijós,
að 56% spurðra kennara teldu kunnáttu nemenda á svipuðu stigi og
áður. Af þeim sem eftir standa telur yfirgnæfandi meirihluti að henni
hafi hreint og beint hrakað. Þá kemur og fram, að 62,06% þeirra,
sem kennt hafa í 5 ár eða lengur, telja að agavandamál og óvirðing
við reglur í skólum hafi aukist á undanförnum árum og stórum hluta
kennara virðist áhugi og samviskusemi nemenda minni en áður.
Ekki sjálfgefið að
hlýða sérfróðum
Könnun Þórólfs er mjög víðtæk,
þótt fátt eitt verði hér nefnt, og
niðurstöður hans munu reynast
menntamálaráðuneyti góður stuðn-
ingur við mótun menntastefnu.
„Þetta er mjög stór könnun. Ástæða
hennar er að við viljum leggja
áherslu á að nýta þekkingu og
reynslu grunnskólakennara, en hún
hlýtur að vera hornsteinn íslenskrar
menntastefnu og ómetanlegt vegar-
nesti í þeirri viðleitni að skapa betri
skóla hér á landi,“ sagði Þórólfur
Þórlindsson í gær. Hann telur að
rödd kennara hafí ekki heyrst sem
skyldi og bil hafi myndast milli
þeirra og opinberrar stefnumótunar
í skólamálum. Vonast er til að
könnunin bæti þar verulega úr.
Þórólfur hefur ritað að í kjölfar
vaxandi sérhæfingar hafi komið fram
nýir hópar fræðimanna og sérfræð-
inga sem láta uppeldis- og kennslu-
mál mjög til sín taka. Hann telur að
þetta séu almennt menn, sem litla
reynslu hafa af starfi grunnskóla og
framhaldsskóla og því ekki sjálfgefið
að þeir eigi að vísa veginn í skóla-
málum þjóðarinnar enda þótt þeir
séu vel að sér í sálarfræði, heimspeki
eða jafnvel uppeldisfræði. Fróðlegt
er að sjá í könnuninni hverjir hafa
mest áhrif á mótun menntastefnunn-
ar að dómi kennara. Það eru
Menntamálaráðuneytið og ríkis-
stjórn, en aðeins að litlu leyti þeir
sjálfir.
Kr. 75.000 í byrjunarlaun
Spumingalisti var sendur út til
allra kennara á grunnskólastigi, alls
3000 listar, og var 83,9% þeirra
svarað. Af þeim voru 825 listar
dregnir út og látnir mynda grunn að
könnuninni. Það má því segja að
heimtur hafi verið 100%, - altént er
um að ræða stærstu viðhorfskönnun
sem gerð hefur verið hér á landi hjá
einni starfsstétt.
Varðandi laun telur meirihluti
kennara að sanngjörn byrjunarlaun
á mánuði séu um 75. þúsund krónur,
en ekki er hljómgrunnur fyrir því að
laun verði greidd eftir hæfni og
afköstum. Lág laun og mikið vinnu-
95% telja að fámennir bekkir stuðli
að því að færri þurfi á sérstakri
stuðningskennslu að halda.
Það hlýtur að vekja nokkra athygli
að rúmlega helmingur grunnskóla-
kennara telja að grunnskólalögin frá
1974 hafi reynst „fremur illa“ eða
“mjög illa“ í framkvæmd. Það sýnir
svo ekki verður um villst, að nauðsyn
hafi verið á endurskoðun mennta-
stefnunnar, sem nú fer fram í
menntamálaráðuneytinu. Enda er
könnunin liður í þeirri endurskoðun,
að sögn Birgis ísleifs Gunnarssonar,
ráðherra.
Of mikið af kristinfræði
íslenskir kennarar eru á þeirri
skoðun, þvert á fyrri hugmyndir
manna um viðhorf þeirra, að leggja
eigi meiri áherslu á lestur, skrift og
reikning. M.ö.o. að lögð sé frekari
áhersla á fræðslugildi menntunarinn-
ar en uppeldislegt. „Það kom mér á
óvart að kennarar telja að erlend
tungumál og kristinfræði fái of stór-
an skerf í hlutfalli við aðrar greinar,"
sagði Þórólfur. Þó kom sú skoðun
sterklega í ljós, að ekki mætti
minnka við neinn þáttanna, sem nú
væru kenndir, heldur bæri að efla
t.d. tölvukennslu, íslensku og
tónmennt. „Jafnvel heimilisfræði!"
„Það kemur fyllilega til greina að
láta könnun fara fram á viðhorfum
og högum framhaldsskólakennara
einnig,“ sagði Birgir ísleifur Gunn-
arsson, menntamálaráðherra. Hann
taldi þó að fenginni reynslu af þessari
könnun, að hún mætti vera afmark-
aðri og tók Þórólfur Þórlindsson í
sama streng. Guðmundur Magnús-
son, aðstoðarmaður ráðherra, sagði
niðurstöður könnunarinnar ómetan-
legar til hliðsjónar við mótun
menntastefnu, sem unnið væri að í
ráðuneytinu um þessar mundir.
Niðurstöðurnar voru formlega færð-
ar háskólarektor í gær og þær
geymdar í tölvu Háskóla íslands.
w
Safnað fyrir gólfdúki:
MARAÞONKEPPNIA
KLEPPJÁRNSREYKJUM
Frá Magnúsi Magnússyni, fréttarítara Tímans
í Borgarfirði:
Öskudagur var með óvenjulegu
sniði í Grunnskólanum á Klepp-
jámsreykjum að þessu sinni. Nem-
endur í efri bekkjum skólans tóku
sig til og dönsuðu og syntu í alls 12
klukkustundir, frá klukkan 9-21.
Áheitum var safnað þannig að ekið
var á alla bæi í héraðinu og fólk
beðið að heita ákveðinni fjárhæð á
hvern dansaðan og syntan klukku-
tíma sem krakkamir héldu út.
Tilgangurinn með fjársöfnun þess-
ari, var að safna fyrir dúk á gólf
íþróttahúss, sem risið er á Klepp-
járnsreykjum, en nú eru íþróttir þar
iðkaðar á hörðu steingólfi.
Miklar vanefndir hafa verið
undanfarin ár af hálfu ríkisvaldsins,
að greiða fyrir að byggingarfram-
kvæmdir við Kleppjárnsreykjar-
skóla hafi eðlilegan hraða. Vilja
nemendur og starfsfólk skólans,
minna þingmenn Vesturlands, ásamt
ráðherra menntamála, á að á Klepp-
járnsreykjum standa byggingar, sem
einungis vantar herslumuninn á að
séu fullkláraðar.
Viðbrögð fólks í héraðinu voru
með eindæmum góð og lögðu nær
allir, sem leitað var til, málefninu lið
og söfnuðust þennan dag um 300.000
krónur, en dúkur á íþróttahúsið
kostar um 700.000 krónur.
Eftir 12 klukkustunda dans og
sund, var ekki að sjá mikil þreytu-
merki á nemendunum og var greini-
legt að mikil samstaða ríkti á skóla-
staðnum Kleppjárnsreykjum þenn-
an dag.
Þórólfur Þórlindsson og Birgir ísleifur Gunnarsson.(Túninn: Pjetur)
álag eru sagðar ástæður flótta úr
kennarastétt. Rúmlega 50% starf-
andi grunnskólakennara hafa kennt
í 9 ár eða skemur. Sé endurnýjun í
stéttinni metin útfrá því og jafnframt
tekið tillit til fjölda þeirra sem út-
skrifast úr Kennaraháskóla íslands á
næstu árum sé fyrirsjáanlegt að veru-
legur skortur verði á kennurum með
réttindi á komandi árum. Þórólfur
sagði að svo sem í Bretlandi væri
starfsreynsla kennara sem stéttar
hér á landi mjög lítil.
Afburða nemendum er
haldið niðri
Þá hnekkir könnunin þeirri al-
gengu skoðun að kennarar séu orðn-
ir mótfallnir prófum. Tæplega 2/3
hlutar þeirra eru prófum hlynntir og
um 97% vilja að tekið sé lokapróf úr
grunnskóla. Þá vekur athygli að
63% kennara telja að afburða nem-
endum sé haldið niðri eins og skóla-
starfi sé háttað í dag og ekki sé gert
nægilega vel við duglegt námsfólk.
Því sé m.a. um að kenna stórum
bekkjum. Æskilegt sé að nemendur
séu ekki fleiri en 20 saman í bekk og
myndist agavandamál þá síður. Geti
kennari þá betur stutt hvern einstak-
an nemanda, hvort sem hann skarar
fram úr eða dregst aftur úr. Nú sé
áherslan meiri á einstaklinginn en
heildina og hafi það breyst um 1974.
Framsóknarfélag Reykjavíkur:
Þorsteinn Pálsson
harðlega átalinn
Framsóknarfélag Reykjavíkur hefur sent frá sér samþykkt þar
sem vinnubrögð Þorsteins Pálssonar forsætisráðherra eru harð-
lega átalin. Samþykktin hljóðar svo:
„Stjórn Framsóknarfélags
Reykjavíkur átelur harðlega
vinnubrögð Þorsteins Pálssonar
forsætisráðherra varðandi heim-
boð forseta íslands til Sovétríkj-
anna.
Tekur stjórn Framsóknarfélags
Reykjavíkur undir þau sjónarmið
Steingríms Hermannssonar utan-
ríkisráðherra, að rétt hefði verið
að taka tilboði Sovétmanna, þrátt
fyrir stuttan fyrirvara, enda má líta
á boð þeirra sem enn eina staðfest-
ingu á því aukna trausti, sem
fsland nýtur á alþjóðavettvangi.
Það er alkunna, að opinberar
heimsóknir þjóðhöfðingja stuðla
að auknum viðskiptatengslum
þjóða. fsland er engin undantekn-
ing hvað það varðar. Hefur forseti
íslands unnið mjög gott starf á því
sviði á undanförnum misserum.
Spyrja má, hvernig Þorsteinn
Pálsson í stöðu utanríkisráðherra
hefði brugðist við, ef samskonar
boð hefði borist frá forseta Banda-
ríkjanna undir þeim kringumstæð-
um, að erfiðleikar væru í fisksölu-
málum íslendinga vestra eða loft-
ferðasamningur við Bandaríkja-
menn væri í hættu.
Á tímum bættra samskipta risa-
veldanna gengur kaldastríðshugs-
anaháttur ýmissa forystumanna
Sjálfstæðisflokksins í berhögg við
hagsmuni íslands á alþjóðavett-
vangi. Ber að harma þennan úrelta
hugsunarhátt, sem enn ræður ríkj-
um í herbúðum Sjálfstæðisflokks-
ins, og endurspeglast m.a. í lítt
grundaðri afstöðu Þorsteins Páls-
sonar varðandi heimboð forseta
íslands til Sovétríkjanna."