Tíminn - 19.02.1988, Blaðsíða 7
Föstudagur 19. febrúar 1988
Tíminn 7
lilllllllllll ÚTLÖND illllii
Launamál í Bretlandi:
Fordsamn-
ingurvísar
veginn
Verkamenn sem vinna hjá Ford
bifreiðaverksmiðjunum í Bretlandi
samþykktu í gær með miklum meiri-
hluta að snúa aftur til vinnu eftir
nærri tveggja vikna verkfall og hefja
framleiðslu í 22 verksmiðjum fyrir-
tækisins í landinu.
„Þeir snúa aftur til vinnu á mánu-
daginn," sagði talsmaður Ford eftir
að talning var komin vel á veg í
atkvæðagreiðslu um nýjan tveggja
ára launasamning. Fyrstu tölur gáfu
til kynna að um 70% þeirra 32.500
verkamanna sem vinna hjá Ford
hefðu samþykkt nýja launasamning-
inn.
Verkfall þetta hefur kostað at-
vinnurekendurna hjá Ford miklar
fjárupphæðir. Auk þess truflaði það
framleiðslu í verksmiðjum fyrir-
tækisins í Belgíu og varð til þess að
birgðir verksmiðja í öðrum löndum
voru orðnar mjög litlar.
Samið var um 7% launahækkun á
einu ári og þykir víst að þessi
samningur muni vísa veginn fyrir
aðra launaþræla í Bretlandi. Þar
hafa vinnudeilur verið að magnast
að undanförnu. fhaldssöm blöð í
landinu töldu að launahækkanirnar
hjá Ford gætu, ef þær yrðu teknar
upp víðar, orðið til þess að verðbólg-
an myndi aukast og Financial Times
sagði að samningurinn sýndi að nýr
hernaðarandi svifi nú yfir vötnunum
hjá launaþrælum landsins. hb
ÚTLÖND
Skotar slá
öðrumBretum
við í drykkju
og reykingum
Skotar, sem eru þekktir fyrir
whiskyframleiðslu sína út um all-
an heim, virðast drekka og reykja
mest allra Breta. Þetta kom fram
í tölum sem stjórnvöld birtu í
vikunni.
r Skotar eyddu að meðaltaJj 326
Sterlingspundum f áfenga drykki
árið 1985 eða uþphæð sem svarar
til rúmlega tuttugu þúsundum
íslenskra króna. Hinsvegar
eyddu Br.etar að meðaltali mun
minna í áfengi það ár eða 279
Sterlingspundum.
Skotar reyktu líka meir en
aðrir íbúar Bretlands, eyddu 162
Sterlingspundum eða um tíu þús-
und krónum íslenskum í tóbak
árið 1985. Þarna snéru Skotar á
nágranna sína í Norður-Englandi
sem komu næstir í tóbakseyðsl-
unni og eyddu að meðaltali 139
Sterlingspundum í eitrið.
hb
SRÍ LANKA
Gnanaguru Aravinthan „hvarf“
að morgni 5. september 1985, tæpum
tveimur vikur eftir þréttánda afmæl-
isdag sinn. Hann hafði ásamt föður
sínum verið viðstaddur athöfn
klukkan átta um morguninn í sam-
bandi við lát ættingja. Eftir athöfn-
ina sendi faðirinn Aravinthan heim
til að skipta um föt og bað hann
koma aftur til miðdegisverðar í húsið
þar sem athöfnin hafði farið fram.
Aravinthan lagði af stað heimleiðis
á reiðhjóli, en leið hans lá hjá
Valvettiturai-herbúðunum. Hann
kom ekki aftur.
Þegar Aravinthan birtist ekki á
tilsettum tíma fór faðir hans heim til
að gá að honum. Hann fór síðan
aftur og snæddi miðdegisverð með ætt-
ingjum sínum, snéri heim um fjögur-
leytið og beið sonar síns til klukkan
sex. Loks lagði hann upp að nýju til
að leita sonar síns og hitti tvo
nágranna sem sögðust hafa sé Ara-
vinthan ásamt tveimur eldri piltum í
vörslu nokkurra hermanna í grennd
við herbúðirnar klukkan tíu um
morguninn.
Faðirinn spurðist fyrir f Velvettit-
urai- og Palali-herbúðunum, en allir
foringjar í hernum neituðu að hafa
handtekið son hans. Hann leitaði til
yfirvalda á staðnum og margskonar
stofnana og samtaka, en allt kom
fyrir ekki. í apríl 1987 tilkynnti
ráðuneytisstjóri í hermálaráðuneyt-
inu, að ráðuneytið hefði engar upp-
lýsingar eða skýrslur um handtöku
drengsins.
Amnesty International hefur um
nokkurra ára skeið haft þungar
áhyggjur af sívaxandi tilhneigingu
stjómarhermanna til að handtaka
karla, konur og stundum börn sem
grunur leikur á að eigi einhver
samskipti við vopnaðar sveitir Tam-
íla. Þessu fólki er í fyrstu haldið með
leynd, og ættingjar eiga þess engan
kost að fá staðfest hvar það sé niður
komið. f september 1986 gaf Amn-
esty International út skýrslu um
„Hvörf' í Srí Lanka, þar sem lýst
var tilvikum 272 manna sem sagðir
voru hafa „horfið" á tímabilinu júní
1983 til apríl 1986. Við þau bættist
31 tilfelli í nóvember 1986, og í maí
1987 lýsti Amnesty International
216 tilvikum „mannshvarfa", sem
voru nálega öll studd eiðsvörnum
vitnisburðum, aðallega sjónarvotta,
um handtökur öryggissveita ríkisins.
Einungis hefur tekist að fá upplýs-
ingar um verustaði fjögurra þessara
manna, en meðal þeirra var einn
sem öryggissveitirnar skutu til bana
eftir að hann var handtekinn. Amn-
esty International hefur ekki fengið
neinar skýrslur um „mannshvörf“ í
Srí Lanka eftir 29. júlí 1987, þegar
sáttmálinn milli Indlands og Srí
Lanka var undirritaður.
Stjómvöld í Srí Lanka hafa stað-
fastlega neitað að „mannshvörf,, hafi
átt sér stað og hafa haldið því fram
að þeir sem eiga að hafa „horfið“
hafí aldrei verið handteknir eða hafi
fariðj úr landi eða verið leystir úr
haldi: Hins vegar hefúr Amnesíy
Intémational fulla ástæðu til að ætla
að margir þeirra sem „hurfu“ hafi
verið pyntaðir og látið lífið af þeim
sökum, en aðrir hafi verið skotnir
eftir að þeir voru handteknir og lík
þeirra fjarlægð með leynd. Allmörg-
um fjölskyldum var sagt að koma
ekki til herbúða, þar eð „horfnir"
ættingjar þeirra „hefðu verið
skotnir". Öðmm vom afhent blóði-
drifin föt „horfinna“ ættingja þegar
þeir fóm til herbúðanna með hrein-
an fatnað handa þeim.
Árið 1985 handtók herinn 17 ára
pilt sem var á leið til kunningja síns
á reiðhjóli. Faðir hans gerði ítrekað-
ar fyrirspumir um hann í heila tvo
mánuði, en þá var sonurinn leystur
úr haldi eftir að hann hafði verið
pyntaður með raflostum og barsmíð-
um. Honum var tekinn vari fyrir að
segja frá afdrifum sínum. Reiðhjól-
inu var skilað þegar hann var leystur
úr haldi.
Gnanaguru Aravinthan var nem-
andi í sjöunda bekk Chithambara-
menntaskólans þegar hann var tek-
inn höndum. Amnesty International
kemur ekki auga á neina haldbæra
skýringu á því að herinn skuli hafa
hann í haldi, og hvetur stjórnvöld í
Srí Lanka til að setja þegar í stað á
laggirnar óvilhalla rannsóknarnefnd
til að fá úr því skorið hvar hann er
niður kominn.
Áskorunum skal beint til:
His Excellency
President J R Jayewardene
Prestidential Secretariat
Republic Square
Colombo 1
SRÍ LANKA:
PAKISTAN
Mohammad Azeem hefur verið
dæmdur til dauða fyrir rán og morð.
Hann var 12 ára gamall í október
1984, þegar ránið sem hann er
sakaður um var framið, en þá lét
einn maður lífið. Hann var ákærður
ásamt níu öðrum sökudólgum og
dæmdur af hérrétti í árslok 1985,
rétt áður en herlögum í landinu var
aflétt. Dómur herréttarins var birtur
í febrúar 1986 og allir sakborningar
sakfelldir og dæmdir til dauða. Þegar
sakborningarnir áfrýjuðu til forseta
Pakistans, var öllum dauðadómum
breytt í lífstíðarfangelsi nema dómi
Mohammads Azeems. Talið er að
hann sé í haldi í ríkisfangelsinu í
Khairpur f Sind-fylki.
f fyrstu skýrslu um ránið, sem
lögreglan byggði síðari rannsókn
sína á, er hvergi getið um að ungur
drengur hafi átt hlut að því. f mars
1987 heimilaði hæstiréttur í Sind
föngum, sem dæmdir höfðu verið af
herrétti, að krefjast endurskoðunar
dóma innan ákveðinna takmarka.
Hæstarétti í Sind var síðan send
beiðni um að endurskoða dauða-
dóminn yfir Mohammad Azeem,
m.a. á þeim forsendum að Barna-
löggjöfin frá 1955 veitir afbrota-
mönnum „á æskuskeiði" undanþágu
frá dauðarefsingu. Þessari beiðni
var hafnað í maí 1987. í sama
mánuði var hæstarétti Pakistans
send beiðni um endurskoðun, og
hefur dauðarefsingu verið frestað
þar til niðurstaða hæstaréttar liggur
fyrir.
Amnesty International er skilyrð-
islaust á móti dauðadómum og telur
þá vera grimmilega, ómennska og
niðurlægjandi refsingu og brot á
þeim greinum Mannréttindaskrár
Sameinuðu þjóðanna og annarra
mannréttindasamþykkta, sem kveða
á um réttinn til að lifa. Amnesty
International telur sérstaklega
ískyggilegt, að föngum sem dæmdir
voru meðan herlög voru í gildi (frá
júlí 1977 til desember 1985) skuli
meinað að leita réttar síns hjá æðri
dómstólum, gagnstætt öllum laga-
venjum, og að umræddur dauða-
dómur sé brot á grein 6.5 í Sáttmála
um borgaraleg og pólitísk réttindi,
sem bannar dauðadóma yfir börnum
yngri en 18 ára.
Samkvæmt opinberum skýrslum
voru 2105 dauðadæmdir fangar í
Pakistan í desember 1984, að með-
töldum þeim sem áfrýjað höfðu. Frá
júlí 1984 til júní 1985 voru 106
manns líflátnir. Amnesty er kunnugt
um að þrír þessara manna voru yngri
en 18 ára. Allir voru þeir dæmdir af
hérrétti. Amnesty International fer
þess á leit að dómnum yfir Moham-
mad Azeem verði breytt.
Áskorunum skal beint til:
His Excellency President
Mohammad Zia-ul-Haq
The Presidency
Murree Brewery Road
Ravalpindi
PAKISTAN.
Justice (rtd) Ghans AIi Shah
Chief Minister
Offtce of the Chief Minister
Karachi
PAKISTAN.
Umboðsmenn Tímans:
Kaupstaður: Nafn umboðsmanns Heimili Sími
Hafnarfjöröur Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 641195
Garðabær Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 641195
Garöur Brynja Pétursdóttir Einholti 3 92-27177
Keflavík GuöriöurWaage Austurbraut 1 92-12883
Sandgeröi Davíð Á. Guömundsson Hjallagötu 1 92-37675
Njarðvík Kristinn Ingimundarson Faxabraut4 92-13826
Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut55 93-11261
Borgarnes Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgata 26 93-71740
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Grundarfjöröur Anna Aöalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604
Hellissandur Ester Friðþjófsdóttir Háarifi 49 93-66629
ísafjörður Jens Markússon Hnífsdalsvegi 10 94-3541
Bolungarvik Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu 115 94-7366
Flateyri Guörún Kristjánsdóttir Brimnesvegi 2 94-7673
Patreksfjörður Ása Þorkelsdóttir Urðargötu20 94-1503
Bíldudalur HelgaGísladóttir Tjarnarbraut 10 94-2122
Þingeyri KaritasJónsdóttir Brekkugötu 54 94-8131
Hólmavík Elisabet Pálsdóttir Borgarbraut 5 95-3132
Hvammstangi BaldurJessen Kirkjuvegi 95-1368
Blönduós Snorri Bjarnason Urðarbraut20 95-4581
Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut 27 95-4772
Sauðárkrókur Guörún Kristófersdóttir Barmahlið 13 95-5311
Siglufjörður Guðfinna Ingimarsdóttir Hvanneyrarbraut 54 96-71555
Akureyri Jóhannes Þengilsson Kambageröi 4 96-22940
Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016
Dalvík BrynjarFriðleifsson Ásvegi 9 96-61214
Ólafsfjörður HelgaJónsdóttir Hrannarbyggð8 96-62308
Húsavik Ásgeir Guðmundsson Grundargarði7 96-41580
Reykjahlið lllugi Már Jónsson Helluhraun 15 96-44137
Raufarhöfn Ófeigurl. Gylfason Sólvöllum 96-51258
Þórshöfn Kristinn Jóhannsson Austurvegi 1 96-81157
Vopnafjörður Einar Ólafur Einarsson Hamrahlið32 97-31124
Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógar 13 97-1350
Seyðisfjörður SigríðurK. Júlíusdóttir Botnahlið28 97-21365
Reyðarfjörður MarinóSigurbjörnsson Heiðarvegi 12 97-41167
Eskifjörður Björgvin Bjarnason Eskifjörður
Fáskrúðsfjörður ÓlafurN. Eiríksson Hlíðargötu8 97-51239
Stöðvarfjörður SvavaG. Magnúsdóttir Undralandi 97-58839
Djúpivogur ÓskarGuðjón Karlsson Stapa, Djúpavogi 97-88857
Höfn Ingibjörg Ragnarsdóttir Smárabraut13 97-81255
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Skólavöllum 14 99-2317
Hveragerði Lilja Haraldsdóttir Heiðarbrún51 99-4389
Þorlákshöfn Þórdís Hannesdóttir Lyngberg 13 99-3813
Eyrarbakki Þórir Erlingsson Túngötu 28 99-3198
Stokkseyri Friðrik Einarsson Iragerðiö 99-3211
Hvolsvöllur Bára Sólmundardóttir Sólheimar 99-8172
Vik PéturHalldórsson Sunnubrautö 99-7124
0LL VINNSLA
PRENTVERKEFNA
Við í Prentsmiðjunni Eddu tökum að
okkur hönnun og vinnslu á stórum og
smáum prentverkefnum.
Höfum yfir 50 ára reynslu í prentverki.
Reynið viðskiptin.
i l’RENTSMIDJANi
Cl
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur.
Sími 45000.
Umboðsmenn
óskast
Tímann vantar umboðsmenn á eftirtalda staði:
Húsavík, Dalvík og Neskaupstað
Upplýsingar í síma 91-686300
+
Þökkum innilega öllum þeim sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug
við fráfall og útför móður okkar fósturmóður, tengdamóður, ömmu og
langömmu
Sigríðar Þórðardóttur
frá Hofsstööum
Þórdís Eggertsdóttir
Kjartan Eggertsson
Ingibjörg Eggertsdóttir
Áslaug Gyða Guðmundsdóttir
Sigmundur Guðmundsson
Sofffa H. Guðjónsdóttir
GísliÓ. Gíslason
Gunnlaugur B. Óskarsson
barnabörn og barnabarnabörn