Tíminn - 19.02.1988, Blaðsíða 20
SparisjóÖsvextir
og yfirdráttur
á téKKareiKningum
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF
Auglýsingadeild hannar
auglýsinguna fyrir þig
Ökeypis þjónusta
686300 Tímínn
Teningamálinu lokið:
ATTUNDI NFMANHI MMH
ijH 11 uni/i FÆRADH nciviAiiui ALDA ÁFR nii AM
möguleika, komi upp svipuð staða
aftur, voru fjórar. I fyrsta lagi að
sama regla gildi áfram, þ.e. að
teningakast ráði úrslitum. í öðru
lagi að kastað verði upp teningi, og
sá, eða þeir, sem úrskurðaðir verði
hefur hæstu einkunn þar, komist
áfram.
Fjórða og síðasta tillagan var sú,
að fái tveir eða fleiri sömu einkunn,
fari þeir allir inn.
Skúli Haukur Skúlason, einn
fulltrúa nemenda í Háskólaráði
sagði í samtali við Tímann, að
fundurinn hefði farið vel fram, þó
vissulega hefðu menn verið með
skiptar skoðanir, „en endirinn varð
sá, að menn hafi kannski ekki
orðið sáttir, lieldur sætt sig við
niðurstöðuna."
„Við stóðum frammi fyrir því,
að reglan var fyrir hendi, þannig að
Tannlæknadeildin var ekki að gera
neitt annað en að frantfylgja regl-
unni. Meginröksemdin fyrir niður-
stöðunni, var þó að það hefði átt
að standa öðruvísi að þessu, þ.e.
að fara hægar í framkvæmdina og
skoða betur fyrirfram hvernig
standa átti að málinu," sagði Skúli.
Fundurinn stóð í tæpa tvo tíma
og kom fram á honum, að stólamál
leysist sjálfkrafa í ár, vegna þess að
nemandi á efra ári í tannlækning-
um er að hætta námi, og því nægir
stólar fyrir hendi.
„Ég held því að málinu sé lokið
og það hafi hlotið ágætan endi,“
sagði Skúli. -SÓL
„Niðurstaða málsins er sú
að drengurinn verður tekinn
inn í deildina. Væntanlega
verða reglur um teningakast,
sem vissulega eru í reglugerð,
teknar til endurskoðunar og
reynt að finna einhvern annan
valkost. Rektor lagði fram
hugmyndir um fleiri mögu-
leika, en það var ekki rætt
beint, heldur ákveðið að taka j
það fyrir sem reglugerðar-
hreytingu við annað tækifæri,“
sagði Stefán Sörensson, há-
skólaritari í samtali við Tímann
í gær.
Mál „áttunda nemandans", eða
þess sem úrskurðaður var fallinn í
tannlæknadeild eftir teningakast,
var tekið fyrir á Háskólaráðsfundi
í gær, og var gengið til skriflegrar
atkvæðagreiðslu um málið. Úrslit-
in urðu þau, að 12 greiddu atkvæði
með því að nemandinn skyldi fá að
halda áfram náminu, en 2 voru á
móti. Tveir fulltrúar voru farnir af
fundinum þegar atkvæðagreiðsla
fór fram.
í samtali við Tímann í gær, sagði
nemandinn, að hann vildi ekkert
tjá sig um niðurstöðuna, „en ég er
fallnir, fái forgang ári seinna. f
þriðja lagi að meðaleinkunn ráði,
og séu tveir eða fleiri með sömu
meðaleinkunn, verði litið á eink-
unn í ákveðnu fagi, sem ákveðið
hefur verið fyrirfram, og sá sem
ánægður með að málinu er lokið.“
Hann sagðist ekkert vita um
fundinn, annað en að 12 hefðu
verið með og tveir á móti, og hann
vildi ekki vita meira.
Hugmyndir rektors um fleiri
Steingrímur Hermannsson, utanríkisráðherra, segist tilbúinn til Moskvufarar,
ef hún mætti leysa úr ullarsamningsþrengingum:
Mun ekki telja
sporin eftir mér
Eftir því sem næst verður komist er lítil hreyfing á samningavið-
ræðum við Sovétmenn um kaup þeirra á ullarvörum frá Sovétríkjun-
um. Rússinn virðist enn fastur fyrir. Mál sýnast í svipaðri sjálfheldu
og þegar samningsmenn Álafoss hf., Aðalsteinn Jónsson og Guðjón
Hjartarson sneru heim eftir árangurslausa samningalotu við Sovét-
menn í Moskvu. Þó hafa verið í gangi að undanförnu viðræður milli
Álafoss hf. og viðskiptafulltrúa Sovétmanna hér á landi svo og
sendiherra þeirra, Igor N. Krassavin. Einnig hafa tíðar telexsending-
ar verið á milli Moskvu og Reykjavíkur um þessi mál.
Handleggsbrotnaði á lögreglustöðinni:
Lögreglumenn beittir
innanhússviðurlögum?
En þrátt fyrir að ákveðin viðleitni
hafí verið uppi að undanförnu til
samninga, virðist sem þetta mál sé f
torleystum rembihnút sem erfitt er
að sjá að fái farsælan endi nema þvf
aðeins að gengið verði beint í það af
stjórnvöldum. Og óhætt er að segja
að þessir ullarvörusamningar hafi
fléttast inn í deilur undanfarinna.
daga um boð Sovétmanna um opin-j
bera heimsókn forseta íslands til
Sovétríkjanna.
Steingrímur Hermannsson, utan-
ríkisráðherra segir að hann hafi
reynt að ýta verulega á eftir þessu
máli að undanfömu. Hann segir að
greinilega sé fullur vilji til þess hjá
báðum sovésku innflutningsfyrir-
tækjunum að kaupa alla þá ull sem
um ræðir héðan, en hinsvegar
strandi málið á uppsettu verði.
„Samningamenn Sovétmanna hafa
fengið fyrirmæli frá æðri yfirvöldum
að hækka engin verð vegna gjaldeyr-
isskorts. En við höfum hinsvegar
sagt að við yrðum að útvega okkur
gjaldeyri vegna kaupa á olíu. En ég
vil taka fram að okkar innflytjendur
á olíu eru mjög ánægðir með þessi
viðskipti, þannig að við hótum engu
þar,“ sagði Steingrímur. Varðandi
ummæli iðnaðarráðherra í einu dag-
blaðanna í gær um að rétt væri að
utanríkisráðherra færi sem fyrst til
Moskvu til að koma ullarvörusamn-
ingunum í höfn, sagði Steingrímur
að hann væri vissulega tilbúinn til að
gera allt til að leysa úr þessum
málum. Hinsvegar sæi hann ekki
ástæðu til að fara til Moskvu, nema
því aðeins að líkur væru á úrlausn
málsins. „Ég er raunar sannfærður
um það að heimsókn forsetans hefði
verið mun áhrifameiri."
Steingrímur sagði að ekki væri
ljóst hvert yrði framhaldið á þessu
máli. „Samningar eru vitaskuld í
höndum Álafossmanna og þeir hafa
enn sem komið er ekki farið þess á
leit við mig að fara austur. En ég tel
að hér sé um svo mikið hagsmuna-
mál að ræða að ég myndi ekki telja
sporin eftir mér,“ sagði Steingrímur
Hermannsson.
óþh
„Við erum að reyna að komast til
botns í þessu máli, en við rannsökum
að sjálfsögðu ekki í eigin rnálurn,"
sagði Böðvar Bragason, lögreglu-
stjóri, um rannsókn á handtöku og
meðferð á ungum manni, sem hand-
leggsbrotnaði, við það að lögreglu-
maður færði hann úr yfirhöfn í
fangamóttöku. „Við verðum að
komast að því hvort beita eigi þessa
lögreglumenn einhverjum innan-
hússviðurlögum, skv. lögum um op-
inbera starfsmenn, sem verður á í
starfi. Sem betur fer gerast slíkir
atburðir ákaflega sjaldan.“
f stuttu máli var atburðarásin á
þennan hátt: Ungur maður undir
áhrifum víns ráfaði um helgina á bíl
í Aðalstræti fyrir utan krána Fóget-
ann og skemmdi lítillega. Hann gaf
eiganda bílsins, sem er lögreglu-
þjónn, upp nafn sitt og heimilisfang,
svo hann gæti gert upp skuldir sínar
síðar. Bifreiðareigandinn var ekki á
lögregluvakt og fór því að finna
föður sinn, sem einnig er lögreglu-
þjónn, og var starfandi þá um
kvöldið. Faðirinn hélt þegar ásamt
öðrum til að hafa af unga manninum
tal og reyndist hann vera kominn
heim. Ekki var ætlunin að handtaka
manninn, en mál „æxluðust þannig",
s.s. lögreglustjóri orðar það. Þegar
faðirinn hafði látið flytja manninn í
fangamóttöku í lögreglustöðinni
færði hann sjálfur manninn úr jakka.
Við það handleggsbrotnaði ungi
maðurinn og hrökk bein í sundur á
tveimur stöðum. Hann hefur kært
atburðinn til Rannsóknarlögreglu
ríkisins.
Niðurstaða um innanhússaðgerðir
lögreglunnar verður bráðlega ljós.
Varðandi aðgerðir gegn viðkomandi
lögreglumönnum, verður álit ríkis-
saksóknara haft til hliðsjónar, þegar
þar að kemur. Þangað verða niður-
stöður RLR sendar. þj
Púðurkerling
sett ofan í
barnavagn
Sá ótrúlega atburður átti sér stað
á Nesveginum rétt eftir hálf fjögur
í gær, að púðurkerlingu var hent
ofan í barnavagn, þar sem lítið
barn svaf.
Barnið meiddist ekki, en farið
var með það á slysavarðstofuna til
vonar og vara.
Ekki er vitað hver eða hverjir
voru þarna að verki, en lýsing var
gefin á nokkrum smástrákum, og
leitaði lögreglan þeirra í gær.
-SÓL