Tíminn - 19.02.1988, Qupperneq 10

Tíminn - 19.02.1988, Qupperneq 10
10 Tíminn Föstudagur 19. febrúar 1988 ÍBK vann risaslag Frá Margréti Sandcrs fréttaritara Tímans á Suöurnesjum: Keflvíkingar sigruðu Njarðvík- inga 87-86 í úrvalsdeildarkeppninni í körfuknattleik í sannkölluðum risa- slag hér í Keflavík í gærkvöldi. Staðan í hálfleik var 52-40 fyrir ÍBK. Lokamínúturnar voru æsispenn- andi, Keflavík hafði yfir 85-80 en besti maður Njarðvíkinga Valur Ingimundarason skoraði þá þriggja stiga körfu og skömmu síðar voru fslandsmeistararnir komnir með boltann í hendurnar. Það dugði þó ekki, heimamenn höfðu betur á lokamínútunum eins og reyndar all- an leikinn því þeir leiddu alla viður- eignina út í gegn. Keflvíkingar sýndu sinn besta leik í velur í fyrri hálfleik og Guðjón Skúlason fór þá á kostum og skoraði 16 stig. Hann var reyndar besti leikmaður ÍBK ásamt Ólafi Gott- skálkssyni. Valur Ingimundarson var lang at- kvæðamestur Njarðvíkinga, skoraði heil 38 stig og einnig sýndi Helgi Rafnsson ágætan leik. Stigin: Keflavfk: Guðjón 22, Ólaf- ur 17, Magnús 12, Jón Kr. 11, Axel 8, Sigurður 7, Hreinn 6, Falur 2, Matti 2. Njarðvík: Valur 38, Helgi 17, Sturla 9, fsak 9, Hreiðar 7, Teitur 2, Árni 2, Friðrik 2. Dómarar í þessum stórleik voru þeir Ómar Scheving og Kristinn Albertsson og var þetta ekki þeirra dagur. hb/ms Valur Ingimundarson og félagar urðu að lúta í lægra haldi fyrir Keflvíkingum í gær Tímamynd Pjctur fslenskir Víkingar etja kappi við Moskvurisann ZSKA Víkingar leika sinn 41. Evrópu- keppnum í mörg ár. leik á sunnudagskvöldið þegar þeir Lið sovésku meistaranna er há- mæta sovéska meistaraiiðinu vaxið mjög, flestir leikmenn hátt í ZSKA frá Moskvu. Leikurinn tveir metrar á hæð en allra lengstur hefst kl. 20.30 og hér er á íerðinni er unglingalandsliðsmaðurinn Val- stórviðburður á íþróttasviðinu. eri Savko sem er 220 sentimctrar á ZSKA er núverandi Evrópubik- hæð. armeistari og ætlar sjálfsagt að Víkingsliðið er mun lágvaxnara bæta Evrópumeistaratitlinum i og gaman verður að sjá hvernig safn sitt þctta árið. Til þess hefur okkar menn haga sóknarleiknum á liðið burði enda valinn maður í móti vörn ZSKA. Mikiðmun sjálf- hverju rúmi og nægir að nefna sagt mæða á reyndu mönnunum. línumanninn firnasterka Alexand- þeim Sigurði Gunnarssyni, Guð- er Rymanov og Mikhaíl Vasiljev. mundi Guðmundssyni, Kristjáni Þrátt fyrir sterka mótherja þurfa Sigmundssyni markverði og Hilrn- Víkingar engan kinnroða að bera ari Sigurgíslasyni. fyrir þeim. Hæðargarðsliðið hefur Kristján hefur leikið flesta Evr- verið fremsta handknattieikslið ópuieiki Vtkings, 37 að tölu. Guð- okkar íslcndinga í mörg ár og mundurkemurskammtundanmeð oftaststaðiðsigvel íEvrópukeppn- 34 jeiki og Hilmar er með 26. Þcss uni. ntá geta að Víkingar hafa leikið Víkingar komust í undanúrslit samfellt í tíu ár í Evrópukeppni Evrópukeppninnar árið 1984-’85 þannig að yngri leikmennirnir á og á síðasta ári voru þeir komnir í borð við Karl Þráinsson, Siggeir átta liða úrslit en töpuðu þá fyrir Magnússon og Bjarka Sigurðsson Gdansk frá Póllandi. Nú eru okkar hafa cinnig verulega reynsiu í stór- menn aftur komnir í átta liða úrslit lejkjum sem Evrópulcikir nær oft- eftir að hafa lagt Liverpool frá ast eru. Englandi og Kolding frá Dan- Hlutur áhorfenda í Evrópuleikj- mörku að velli. um hefur ávallt verið mikill og því „Þetta er eitt sterkasta félagslið er vonandi að íslenskir handbolta- t heimi, það er cngin spurning," aðdáendur fjölmenni í Höllina á sagði Guðmundur Guömundsson sunnudagskvöldið og hvetji ís- fyririiði Víkinga um sovéska liðið. |enska Víkinga til sigurs. Forsala Undir það tók Sigurður Gunnars- aðgöngumiða verður í Laugardals- son helsta stórskytta Víkinga enda höll á laugardag kl.12-16 og á hefur ZSKA verið t fremstu röð í sunnudag frá kl.18. hb heimalandi sínu og í Evrópu- Úrvalsdeildin í körfuknattleik: Að tjaldabaki í Calgary Frá Magnúsi Baldurssyni fréttarítara Tímans í Kanada: Eftir margra ára undirbúning er sú stund loks upprunnin að sterkustu íþróttamenn heims eru komnir saman til að uppskera laun erfiðisins. Hér ráðast úrslit oftast á örfáum sekúndum eða jafnvel sekúndubrotum. Eftir þrotlausa þjálfun standa íþróttamennirnir frammi fyrir því að á nokkrum augnablikum verður árangurinn að skila sér. En það er ekki einungis mikið í húfi fyrir keppendur heldur einnig fyrir mótshaldara, þ.e. borgina Calgary. Það þykir einkennilegt að vetrar- ólympíuleikar skuli aldrei fyrr hafa verið haldnir í Kanada, landinu sem í hugum margra tengist frosti og fimbulkulda. En ekki hefur skort áhugann hjá Kanadamönnum fyrir að halda þessa leika. Borgin Calgary hefur sóst eftir að halda leikana síðan 1968 án árangurs þar til nú en það var fyrir fádæma þrautseigju og festu að draumurinn varð að veru- leika. Stundum kölluð beljubær Calgary var upphaflega stofnuð sem útstöð kanadísku riddaralög- reglunnar 1875. Seinna var borgin þekkt fyrir nautarækt og kúreka. Calgary var oft kölluð „beljubær" manna á milli og er svo jafnvel enn. Snemma á öldinni fannst olía nálægt borginni en það var ekki fyrr en í, olíukreppu sjöunda áratugarins að j hagnaður olíuvinnslunnar fór að skila sér. Um það leyti dafnaði og óx þessi borg með ógnarhraða. f kjölfar lækkandi olíuverðs undanfarinn ára- tug var stoðunum kippt undan olíu- vinnslunni og jafnframt undan frek- ari vexti borgarinnar og virtist um tíma stefna í gjaldþrot. Nú virðist sem Calgary sé enn á ný á uppleið, ekki síst vegna aukins fjárstreymis til borgarinnar, aukinna fram- kvæmda vegna leikanna og loks þeirrar athygli sem hún hefur orðið aðnjótandi. Sjö ára undirbúningur Undirbúningur fyrir leikana hófst 1981. Þar sem aðstaða til að halda þá var nánast engin þurfti að byggja nær öll nauðsynleg mannvirki frá grunni. Áætlaður kostnaður vegna leikanna er um 550 milljónir Kanadadala. Tekjur eru áætlaðar 582 milljónir. Teknanna var aflað með ýmsu móti en stærsti tekjuliður- inn er án efa sú upphæð sem sjón- varpsstöðin ABC greiddi fyrir rétt- inn til að sjónvarpa leikunum til Bandaríkjanna. Nam upphæðin 386 milljónum Kanadadollara. Til samanburðar má geta þess að kana- díska sjónvarpsstöðin CTV sem flutti fslendingum m.a. setningarat- höfnina greiddi aðeins fjórar og hálfa milljón dala fyrir sýningarrétt- inn í Kanada og víðar. Onnur fyrir- tæki greiða einnig fyrir réttinn til að nota merki ólympíuleikanna en aðrir tekjuliðir eru sala aðgöngumiða og framlög kanadíska ríkisins. Helstu kostnaðarliðir vegna leik- anna vom bygging tveggja skauta- halla sem kostaði tæpar 140 milljónir dala, bygging Ólympíugarðsins þar sem m.a. cr haldin keppni sleða- bruni og skíðastökki en hann kostaði 72 milljónir dala og loks frágangur við skíðabrunbrautir sem kostaði 27 milljónir dala. Áætlaður heildar- kostnaður við svæðið er 395 milljónir dala. Að þessum framkvæmdum störfuðu 9884 einstaklingar. Þar af eru 9400 sjálfboðaliðar. Það eru þó fleiri en Calgarybúar sem eygja hagnaðarvon því allnokk- ur sala virðist vera í einkennisbún- ingum þeim sem eldberar notuðu er þeir hlupu með Ólympíueldinn frá St. John til Calgary. Alls óskuðu 6 milljónir og 600 þúsund Kanada- manna eftir að fá að bera eldinn einhvern hluta af þessari 18.000 km leið en aðeins 7000 voru valdir til þess. Verð á búningum er samkvæmt smáauglýsingum dagblaða frá 600 til 3000 Kanadadollarar. Illa staðið að sölu aðgöngumiða Það er óhætt að segja að undirbún- ingur Ólympíuleikanna hafi tekist með ágætum. Einstaka atvik hafa þó orkað tvímælis. Er það helst hvernig staðið var að sölu aðgöngumiða að einstökum keppnisgreinum. Áttu fyrirtæki sem stutt höfðu leikana að fá forkaupsrétt að 8% miða eða 150.000 miðum. Sú tala fór þó fljótlega í 50% og var ljóst að þar með yrði mikill skortur á aðgöngu- miðum til almennings. Vargripið til þess ráðs að auka við áhorfenda- bekki. Tók þó út yfir allan þjófabálk þegar sá maður sem sjá átti um sölu og dreifingu aðgöngumiða, James McGregor, seldi gegnum fyrirtæki sitt miða til Bandaríkjanna á um 35% hærra verði en leyfilegt var. James McGregor hefur nú verið ákærður fyrir þjófnað og svindl og sat fyrir skömmu í fangelsi fyrir athæfið. 72.000 km af sjón- varpsköplum Fjöldi þcirra sem sækja leikana er allnokkur. Þannig eru 1700 kepp- endur, 5000 fréttamenn, þar af 800 frá ABC og 1100 frá CTV. Og loks er áætlað að um 100 þúsund manns heimsæki Calgary til að fylgjast með leikunum. Fyrir þá tvo milljarða sem heima sitja og talið er að fylgist með leikunum í sjónvarpi má geta þess að vegalengd sjónvarpskapla vegna þessa alls nemur 72.000 km. Ljóst er að þessi stóri hópur fólks sem sækir heim Calgary um þessar mundir þarf eitthvað að borða. Sem dæmi um magn matar má nefna að 13 1/2 tonn af nautakjöti var flutt til Calgary og 4 1/2 tonn af kjúklingum og pasta og loks 18.000 egg. Þá koma margir keppendanna með eig- in mat. En Calgarybúar ætla líka að bjóða upp á sígilda rétti frá sínum heimaslóðum. Verður m.a. boðið upp á vísundaborgara (Buffalo burgers) og hérabökur svo eitthvað sé nefnt. Snjór úr mykjudreifara Ýmsar nýjungar við tækniútfærslu leikanna voru notaðar í Calgary og má nefna að snjó á skíðagöngubraut- ir var dreift með mykjudreifurum. Það hefur reyndar verið sagt um Calgarybúa að þeir séu lítt „menn- ingarlega" sinnaðir og ákaflega óformlegir en þegar mikið liggur við setja þeir upp hvíta kúrekahatta í stað þeirra brúnu. Enda þótt Cal- garybúar og Kanadamenn hefðu þurft að bíða sex umferðir eftir að fá Ólympíuleika til sín er undirbúning- ur þegar hafinn hjá borginni Toronto undir að bjóða í sumarólympíuleik- ana sem verða árið 1996. Hafa þegar safnast um 5 milljónir dala til að bjóða í þessa leika en það mun hafa kostað spænsku borgína Barcelona 13 milljónir dala að fá leikana 1992. Hvort Torontobúum tekst að sann- færa Ólympíunefndina þar sem með- alaldur nefndarmanna er 67 ár um ágæti staðarins er óvíst en sú borg sem nú er talin líklegust til að halda 100. sumarólympíuleikana er Aþena. Kvöldið sem Ólympíuleikarnir voru settir var mikið um dýrðir í Calgary.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.