Tíminn - 19.02.1988, Qupperneq 19
Tíminn 19
Föstudagur 19. febrúar 1
SPE
Allur heimurinn fylgdist af eftir-
væntingu með atburðum í október
í haust, þegar Jessica McClure, 18
mánaða telpukorn, féll niður í
gamlan brunn og hékk þar bókstaf-
lega á heljarþröm í 58 klukku-
stundir.
Hún var að leika sér úti í garðin-
um í Midland í Texas, með móður
sinni, scm skrapp inn til að svara í
símann. Þegar hún kom út eftir
nokkrar mínútur, stóðu tveir eldri
leikfélagar telpunnar og horfðu
niður í op á gömlum brunni.
Steinn, sem verið hafði yfir 20
cm víðu brunnopinu, hafði verið
tekinn og Jessica dottið niður,
þangað til hún skorðaðist á ójöfn-
um í brunnveggnum, nærsjö mctr-
um neðar.
Hjálparsvcitir komu fljótt á vctt-
vang og beittu stórvirkum tækjum
til að bora metersvíð göng til hliðar
við brunninn. Áætlunin fólst í að
bora niður íyrir Jessicu og síðan á
ská upp til hennar, svo hún yrði
ekki fyrir grjóthruni.
Unnið var dag og nótt, en þegar
reynt var að kornast inn til Jessicu,
var erfitt að gera opið nógu stórt.
Einum hjálparmanni tókst að
snerta telpuna og það var foreldr-
um hennar huggun að heyra að
hún virtist ekki alvarlega slösuð.
Þrátt fyrir það hafði löng dvölin
í brunninum rcynst telpunni erfið.
f byrjun söng hún öll þau barnalög
sem hún kunni, en þegar þau
þraut, var ekkert eðlilegra en að
gráturinn tæki við.
Læknar höfðu áhyggjur af eftir-
köstum vegna matar- og ekki síður
vatnsskorts. Hjálparmenn höfðu
um hríð dælt hlýju lofti niður, til
að koma í veg fvrir að henni yrði
kalt.
Loks var þó hægt að víkka
göngin nógu mikið til að tveir
menn komust inn til Jessicu. Vand-
inn var nú sá, að annar fótur
hennar var fast skorðaður upp að
veggnum, cn með smurolíu var
hægt að losa hana með lagni. Síðan
var hún vafin inn í ullarteppi og
dregin upp á yfirborðið.
Farið var raklcitt með Jessicu á
sjúkrahús og um hríð var óttast að
taka þyrfti af henni fótinn, en það
reyndist ekki nauðsynlegt.
Einu sýnilegu merkin, sem Jess-
ica ber eftir hina óhugnanlegu
lífsreynslu, eru ör á enninu, en
vandalaust mun að fjarlægja þau
með einfaldri lýtaaðgerð.
Læknir fjölskyldunnar segir:
Þegar tekið er tillit til, hversu lengi
Jessica lá þarna hjálparvana og
fastklemmd, get ég bara sagt eitt:
Hún er alveg cinstaklega hugrakkt
og þrautseigt smábarn.
Nú er Jessica litla orðin fullfrísk og spræk á ný og svipurinn vitnar síst um reynslu hennar. Örin verða
fjarlægð.
Hér er Jessica nýkomin af sjúkrahúsinu, ásamt foreldrum sínum,
sem eru aðeins 17 og 18 ára.
Enneinhertogaynja
Kvikmyndagerðarmenn virðast
afskaplega heillaðir af sögunni um
Játvarð konung VIII og Wallis
Simpson, því margir þeirra vinna
að henni fyrir skjáinn eða hvíta
tjaldið um þessar mundir.
Nýjasta hertogaynjan er
leikkonan Jane Seymour og verð-
ur ekki annað séð á myndinni hér,
en að hún líkist frú Simpson bara
bærilega. Jane tók líka hlutverkið
mjög alvarlega. Hún léttist um
fimm kíló til að komast í fötin, sem
eru nákvæmar eftirlíkingar af föt-
um hertogaynjunnar. Einnig fór
hún til talkennara og tileinkaði sér
rétt framburðareinkenni. Hins
vegar þverneitaði hún, þegar hún
var beðin að nota bláar augnlinsur.
Hamskipti í Hasarleik?
Kvennagullið í Hasarleik, Bruce
Willis, gerði sér lítið fyrir um
daginn og kvæntist, án þess að
nokkur vissi, en nú vita líklega allir
það. Eiginkonan er Demi nokkur
Moore, dökkhærð og raddrám feg-
urðardís og leikkona. Nú er haft
fyrir satt að Bruce vilji fá hana fyrir
mótleikara sinn í Hasarleik, í stað
Sybill Shepherd og að framleiðend-
ur þáttanna telji hugmyndina ekki
svo afleita.
Um hríð íhugaði Bruce að vera
bara einn aðalleikari, en yfirmenn
hans töldu að þá vantaði spennandi
ástarátök í glæpasúpuna. Hann
stakk upp á Demi í hlutverkið og
það var tekið til mjög svo vinsam-
legrar athugunar, því allir voru
orðnir leiðir á sífeildum deilum og
þrasi þeirra Sybill og Bruce.
Sybill hefur sagt vinum sínum,
að hún sé ekki ánægð með starfið
og hyggist hætta. Hún telur hlut-
verk Maddie Hayes hafa hjálpað
sér upp á tindinn í sjónvarpi, en
kærir sig ekki um að festast þar.
Hún vill gera alvörukvikmyndir og
hefur tvö slík hlutverk í sigti. Þá
hefur hún nóg að gera við umönn-
un litlu tvíburanna sinna og viku-
legar upptökur á sjónvarpsþætti
leyfa fáar frístundir.
Framleiðendur segja, að varla
hafi verið nema tímaspursmál,
hvenær Sybill hætti og það ætti
ekki að vera vandamál, þegar
Demi bíður við dyrnar.
Ekkert leyndarmál hefur verið,
að Sybill og Bruce kemur ekki sem
best saman í vinnunni og hann
hefur oftar en einu sinni heyrst
segja, að hann hætti, ef ekki verði
gerðar meiriháttar breytingar. Að
losna við Sybill telst vissulega
breyting.
Upphaflega ætlaði hann að fá
Demi í þáttinn í annað hlutverk,
en sá sér leik á borði og allt bendir
til að hann fái vilja sínum
framgengt. Heimildir, sem vel
þekkja til segja að Demi verði
fyrirtak í hlutverk Maddie. Þá
muni ekkert skorta á gott samspil
þeirra Bruce, þau séu afar ástfang-
in og það ætti að hafa góð áhrif.
Framleiðendur vita að Demi er
góð leikkona og áhugi hennar er
slíkur, að hún kveðst reiðubúin að
lita hár sitt ljóst, ef þess verði farið
á leit.
Bruce brosir út í annað að venju
og segir kankvís: - það yrði stór-
kostlegt að leika í ástaratriði með
manneskju, sem raunverulega
langar til að kyssa mig.
Ekkl aðeins tókst Demi Moore að vinna einn eftirsóttasta glaumgosa
Hollywood, heldur heiUar hún líka framleiðendur þátta hans.