Tíminn - 18.02.1988, Blaðsíða 2

Tíminn - 18.02.1988, Blaðsíða 2
Fimmtudagur 18. febrúar 1988 2 Tíminn Alfreð Þorsteinsson. Efasemdir í borgarráði um færslu Hringbrautar í skipulagi borgarinnar er gert ráð fyrir breytingum á Hringbraut sunnan Miklatorgs. Alfreð Þorsteinsson fulltrúi Framsóknarflokksins í skipulagsnefnd hefur gagnrýnt þessa skipulagsbreytingu og talið hana alltof kostnaðarsama. Á fundi borgarráðs, s.l. þriðju- dag, áttu sér stað ítarlegar umræð- ur um fyrirhugaða færslu Hring- brautar og gerð umferðarmann- virkja sunnan Miklatorgs. Þar lýsti Alfreð Þorsteinsson tillögum fram- sóknarmanna, sem miða að óbreyttri legu Hringbrautar, en jafnframt að frámlengdur Bústað- avegur geti tengst Vatnsmýrarvegi til vesturs og umferð af Hringbraut til austurs. Þannig komast þeirsem ætla inn á Bústaðaveg framhjá Miklatorgi. Með þessu fyrirkomu- lagi mundi álag á Miklatorgi minnka og umferðargeta á Hring- braut og Miklubraut aukast veru- lega. Tíminn spurði Alfreð hverjar viðtökur þessar tillögur hans hefðu fengið í borgarráði. Hann sagði að þar ríktu töluverðar efasemdir um réttmæti flutnings Hringbrautar. Það hefði m.a. komið greinilega fram í máli borgarstjóra, að hann óttaðist að ríkið myndi ekki standa við gerða samninga. Mun væntan- lega verða látið á það reyna á næstu dögum hvað ríkið hyggst gera, en færsla Hringbrautar með breytingum sem fylgja mun vart kosta undir hálfum milljarði króna. í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborg- ar er gert ráð fyrir 157 milljónum kr. á þessu ári til framkvæmda sem tengjast málinu. Ml==í== i ==!==— LISTUNARÁÆTLUN Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: Aarhus: Alla þriðjudaga Svendborg: Annan hvern þriðjudag Kaupmannahöfn: Alla fimmtudaga Gautaborg: Alla föstudaga Varberg: Annan hvern laugardag Ferskfisksölur erlendis: Meðalverð á öllum stöðum Síðasta vika skaraði engan veginn fram úr öðrum vikum í ferskfisksölu á erlendri grund. Meðalverð fékkst fyrir allan afla, og ef það var eitthvað sem var frábrugðið, þá var það hve fá skip seldu aflann í Bretlandi og Þýskalandi. Aðeins tvö skip seldu afla sinn í Þýskalandi í vikunni sem leið. Vigri RE seldi 246,5 tonn í Bremerhaven, fékk fyrir rúmar 16 milljónir og meðalverð aflans var rétt rúmar 65 krónur. Engey RE seldi einnig í Bremerhaven, en örlítið minna en Vigri, eða tæp 184 tonn. Söluverð- mætið var rétt tæpar 12 milljónir og meðalverð 64,88 krónur á hvert kíló. Vigri og Engey seldu samtals rúm 430 tonn, þar af 356 tonn af karfa og var meðalverð hans 70,43 krónur. Þá voru 18 tonn af ufsa á meðalverð- inu 42,47 krónur, tæpt tonn af þorski á 67 krónur og tæp 54 tonn var blandaður afli. Heildarmeðalverð var 65 krónur sléttar. Otto Wathne NS var eina skipið sem seldi í Bretlandi í síðustu viku. Otto seldi í Grimsby tæp 102 tonn fyrir 8,8 milljónir og var meðalverð 86,63 krónur. Af þessum tæpu 102 tonnum, voru rúm 98 tonn af þorski, sem fór á 86,79 krónur kílóið, tæp 2 tonn af grálúðu sem fór á 95,60 krónur kílóið og rúmt tonn var blandaður afli. Gámasalan til Bretlands var held- ur líflegri en skipasalan. Rúm 692 tonn voru seld í gámum, 325 tonn af þorski, 205 tonn af ýsu, 73 tonn af kola, tæp 8 tonn af ufsa og tæp 7 tonn af karfa. Meðalverð þorsks var 88,98 krónur, ýsu 86,41 króna, ufsa 48,15 krónur, karfa 51,41 króna og kola 89,38 krónur. -SÓL Borgaraflokksmenn litu inn á Tímann Tveir heiðursmenn, þeir Albert Guðmundsson, formaður Borgaraflokksins, og Júlíus Sólnes, fyrri þingmaður flokksins í Reykjaneskjördæmi, litu inn á Tímann í gærmorgun, og áttu fyrst og fremst erindi við Kristin Finnbogason, framkvæmdastjóra Tímans vegna auglýsinga. Indriði G. Þorsteinsson, ritstjóri, var einnig viðstaddur, en hann var kosningastjóri Alberts í síðustu forsetakosningum. Heimsókn þeirra borgaraflokksmanna var hin ánægjuleg- asta og sýnir myndin að vel getur farið á með mönnum, þótt þeir þurfi að takast á í pólitík. Tíminn þakkar þeim Albert og Júlíusi fyrir komuna. Tímamynd GE Moss: Annan hvern laugardaga Astráður hjá Loðnunefnd: Larvik: Alla laugardaga Hull: Alla mánudaga LOÐNAN SNUIN VID Antwerpen: Alla þriðjudaga Rotterdam: Alla þriðjudaga Hamborg: Alla miðvikudaga Helsinki: Arnarfell ............. 18/2 TimS ................... 5/3 Gloucester: Jökulfell............... 9/3 Jökulfell...............31/3 New York: Jökulfell.............. 11/3 Jökulfell............... 1/4 Portsmouth: Jökulfell.............. 11/3 Jökulfell............... 1/4 SK/fíADEILD SAMBANDSINS LINDARGÖTU 9A • 101 REYKJAVÍK , SÍMI 698100 L A A A A 1 A A A 1ÁKN TRAUSTRA FLUTNINGA „Loðnan er snúin við og farin að halda af stað austur aftur. Hún var komin vestur úr sláturhúsinu og er nú komin austur fyrir það aftur. Ef þú ætlar að fá að vita af hverju, þá verðurðu aðhringjaog spyrja hana,“ sagði Ástráður Ingvarsson, hjá Loðnunefnd í samtali við Tímann í gær. Ástráður sagði mikið rjátl á loðn- unni núna, en þó væri að lifna yfir veiðinni. Léleg veiði var þó framan af gærdeginum, loðnan var dreifð og á hörðum botni. Frá áramótum hafa veiðst 315.000 tonn, en frá upphafi hafa veiðst 626.000 tonn. Um miðjan dag í gær höfðu nokkrir bátar samtals tilkynnt um tæp sjö þúsund tonn. Loðnan virðist í góðu ástandi, því nú eru menn farnir að huga að frystingu, en að sögn Ástráðs, finnst sjómönnunum að eitthvað vanti samt inn í hana, því að hún er ekki nógu stór miðað við hvernig hún er venjulega fyrst í göngunum. „Loðnan er núna út af Hornafirði aftur, og ég sagði við einn áðan að hún endar kannski aftur norðan við Langanes," sagði Ástráður. -SÓL Klippið hér Tíxninn □ ER ÁSKRIFANDI □ NÝR ÁSKRIFANDI Dags.: BEIÐNI UM MILLIFÆRSLU ÁSKRIFTARGJALDS Kortnr.: □□□□□□□□□□□□□□□□ Gildir út: Nafnnr.: C ÁSKRIFANDi............................... HEIMILi.................................. PÓSTNR. - STAÐUR:.................. SÍMI: Undirritaður óskar þess að áskriftargjald Tímans verði mánaðarlega skuldfært á VISA-greiðslukort mitt UNDIRSKRIFT. SENDIST AFGREIÐSLU BLAÐSINS SÍÐUMÚLA 15, 108 REYKJAVÍK

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.