Tíminn - 18.02.1988, Blaðsíða 20

Tíminn - 18.02.1988, Blaðsíða 20
Sparisjóðsvextir qg yfirdráttur á téKKareiKningum SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF Auglýsingadeild hannar auglýsinguna fyrir þig Fiskvinnslan rekin með 15% halla að meðaltali: Húsin farin að afla sér lokunarheimilda Fulltrúar fiskvinnslufyrirtækja á suðvesturhorni landsins héldu með sér fund á Gaflinum í Iiafnarfirði í gær, og var mikill hiti í mönnum. Lögð var fram tillaga þess efnis að fiskvinnslan drægi sig út úr samningum, en atkvæði fóru þannig að tillagan féll á jöfnu. Árni Benediktsson, hjá Sambandsfrystihúsunum, samninga- maður fyrir fiskvinnsluna, sagði um fundinn í Hafnarfirði: „Að vísu hefðu þeir ekki ráðið því að menn drægju sig út úr samningum, þar sem þeir eru aðeins lítill hluti úr hópnum. En þetta sýnir kannski best hve alvarlegt málið er.“ Framkvæmdastjórar hraðfrysti- húsa á Norðurlandi héldu með sér fjölmennan fund á Akureyri á þriðjudag, þar sem varað var við' alvarlegu hruni, sem blasi við fisk- vinnslunni um þessar mundir. „Vaxandi framleiðslu- og fjár- • magnskostnaður, og kröfur um meiri útgjöld, sein þegar eru til umræðu milli aðila vinnumarkað- arins, auka enn á vandann, án þess að vitað sé um nokkra hækkun á framleiðslutækjum," segir í álykt- un framkvæmdastjóranna. Enn- fremur kemur fram að hallinn á vinnslunni sé 10-15%, og slíkur halli þýði ekkert annað en stöðvun innan örskamms tíma. „Ég held að ástandið sé nokkuð svipað alls staðar. Á Austurlandi eru menn komnir lengst. Þar eru þó nokkur frystihús búin að afla sér stjórnarheimildar til að loka. Menn hafa verið að afla sér þessara iheimilda síðustu dagana, en ég 'held að menn komi til með að bíða og sjá til hvað kemur út úr þessum kjarasamningum, því það er engin spurning að það er verið að reyna að semja. Forsætisráðherra hefur lagt til að reynt verði að semja í einum punkti, þannig að kjaramál- in verði leyst um leið og rekstrar- vandamál fiskvinnslunnar, og menn eru að reyna að semja á þann hátt,“ sagði Árni. Hann sagði ennfremur að hann héldi að meðalhalli vinnslunnar væri í kringum 14%, þó algengt væri orðið að menn töluðu um meiri halla, og þá sérstaklega þeir sem keyptu fisk á fiskmörkuðun- um. En hvaða lausn er þá til á vanda fiskvinnslunnar? „Pað er enginn vafi á því, að það versta sem fyrir atvinnulíf getur komið er gengisfelling. Hins vegar er ekki rétti tíminn til að stöðva gengisfellingu þegar gengið er fallið. Það er fallið og menn komast ekki hjá því að skrá það rétt. Þegar það hefur verið gert, þá er rétti tíminn til að koma í veg fyrir gengisfellingu, þ.e. þá næstu. Það dugar þó ekki eingöngu gengisfell- ing núna, svo það verður jafnframt að stöðva þensluna, draga úr fjár- festingu og lækka vexti, væntan- lega með lagaboði," sagði Árni. 1 ályktun framkvæmdastjóranna á Norðurlandi kemur fram, að þeir telji að meginforsenda áframhald- andi reksturs frystihúsanna sé, að frjáls verðmyndun ráði verðlagi gjaldeyris, sem fyrir framleiðslu- vörurnar fáist. „Bent skal á, að aðrar atvinnu- greinar þjóðfélagsins velta sínum kostnaðarhækkunum beint út í verðlagið. Þar sem stefna stjórn- valda er að framboð og eftirspurn ráði verðmyndun, verða allir að sitja við sama borð, sem hafa á hendi atvinnustarfsemi,“ segir í bréfinu. „Þetta þýðir einfaldlega, að ef að það á að vera frjáls verðlagning á öllum sviðum, þá dugar ekki að halda verðiagningu sjávarútvegsins bundinni. Þá verðum við að fá að selja okkar gjaldeyri á markaðs- verði,“ sagði Árni. -SÓL Mikið fjör á öskudag Öskudagurinn var í gær, og samkvæmt áralangri hefð klæddu krakkarnir sig í furðuiöt og bún- inga og skeinmtu sér og öðrum. Vopnuð öskupokum læddust þau um bæinn og hengdu þá aftan í gesti og gangandi, og reyndu að fara svo hljóðlega að viðkomandi yrði þess ekki var. Öskudagshát- íðir voru haldnar víða um bæ, kötturinn sleginn úr tunnunni og frí gefin í skólum. Þessir krakkar, sem einn Ijósmyndari Tímans rakst á niðri í miöbæ, voru búnir að hengja tugi poka á fólk og virtust reiöubúnir til að gera slíkt hið sama við Ijósmyndarann. Tímamynd: Gunnar Vatnselgur í Landeyjahreppi: Vatnslaust í Vest- manneyjum Glaöningur til skákunnenda: Jóhann hlýtur styrki Jóhann Hjartarson var styrktur höfðinglega af tveimur fyrirtækjum í gær. Kaupþing afhenti Jóhanni við hátíðlega athöfn eina milljón króna, og þegar Jóhann þakkaði fyrir sig, notaði hann tækifærið og þakkaði íslenskum aðalverktökum fyrir að hafa styrkt sig með svipaðri viður- kenningu. Jóhann lýsti ánægju sinni með það að íslensk fyrirtæki hefðu nú tekið við sér og sýnt áhuga á að styrkja skáklistina og væri það vel. -SÓL Dansstúdíó Sóieyjar: Sérbyggða húsið á sölu „Það er ekkert hæft í þessum sögum. Það hefur aldrei gengið eins vel og núna, nemendafjöidinn hefur aldrei verið meiri. En ég held að sögurnar hafi farið af stað vegna þess að ég er að selja húsið," sagði Sóley Jóhannsdóttir, cigandi Dans- stúdíós Sóleyjar, í samtali við Tímann, en þær sögur ganga nú fjöllunt hærra, að Dansstúdíóið sé orðið gjaldþrota. Húsið, sem sérstaklcga var byggt fyrir danskennslu og veggjatennis, er sem sagt til sölu og Dansstúdíóið á leið annað. En hvers vegna er Sóley að selja húsið? „Mér finnst það of stórt og ekki nógu huggulegt fyrir mig. Ég gcrði kannski feil með því að blanda dansinum og veggjatennisnum saman, en það er alls ekkert hæft í því að ég sé gjaldþrota," sagði Sóley. Sóley hefur nú fest kaup á öðru húsnæði, sem er að hennar sögn mun hentugra en það „gamla", en hún var ófáanleg til að gefa upp hvar það hús væri. Sóley ætlar að einskorða sig við djassbaliettinn og láta veggjatennisinn öðrum cftir -SÓL Vatnsleiðslan til Vestmannaeyja fór í sundur í Landeyjahreppi í gær, og olli að sjálfsögðu vatnsskorti víða í Eyjum. M.a. varð að loka loðnu- verksmiðju vegna vatnsskorts. Viðgerð er erfið vegna mikils vatnselgs, en þegar Tíminn fór í prentun, var áætlað að viðgerð myndi ljúka á miðnætti s.l. nótt. -SÓL

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.