Tíminn - 21.02.1988, Side 3
Sunnudagur 21. febrúar 1988
Tíminn 3
„Fyrst í stað eru þeir teknir í
bóklegt nám, enda gengur þetta flug
nánast út á það sama og annað flug,
eftir það eru þeir látnir hlaupa um
með drekann á jafnsléttu og finna
hvernig hann tekur í. Pá er farið í
mjög aflíðandi brekku þar sem hæð-
armunurinn er einn til tveir metrar
og þeir hlaupa af stað og láta drek-
ann lyfta sér aðeins frá jörðinni, það
má eiginlega segja að valhoppað sé
niður brekkuna,“ sagði Kristján.
Þetta þarf að æfa mjög vel vegna
þess að lítið mál mun vera að stjórna
drekanum þegar á loft er komið,
heldur felst aðal vandamálið og
hættan í flugtaki oglendingu. „Sfðan
færa þeir sig lengra og lengra upp í
brekkuna, þangað til að komið er
upp á topp. Þá fyrst eru þeir tilbúnir
til að fara renniflug, sem er beint
flug frá toppi og niður á fyrirhugaðan
lendingarstað.
Síðan þróast þetta stig af stigi þang-
að til að þeir geta farið að fljúga
eitthvað að ráði, sem tekur yfirleitt
einn til tvo mánuði hjá flestum,"
sögðu þeir Þorsteinn og Kristján.
HAFAFARIÐÍ
FRÖNSKU ALPANA
Þegar hér var komið sögu voru
þeir heldur farnir að ókyrrast enda
var ætlunin að fljúga en ekki að sitja
inn í bíl og tala. En eitt var það sem
brann á vörum leikmannsins, hvern-
ig tilfinning það er að vera þarna
uppi. „Þetta er svo stórkostlegt að
það er ekki hægt að lýsa því,“ sagði
Þorsteinn. Að þessum orðum sögð-
um fóru þeir að undirbúa flugið.
Helsta markmiðið með þessari
íþrótt er að komast sem lengst frá
flugtaksstað, en einnig er það keppi-
kefli að komast einhvern stóran
þríhyrning og lenda aftur á sama
stað, þetta hafa menn verið mikið að
glíma við í útlöndum. Þorsteinn og
Kristján hafa síðastliðin fjögur ár
farið í frönsku Alpana til að læra af
svifdrekaflugmönnum þar í landi
enda munu aðstæður þar vera allt
aðrar en hér á landi. Munar þar
mestu, að hægt er að vera á flugi svo
til allan daginn fjóra til fimm daga
vikunnar að meðaltali, en hér á landi
gefst þeim kannski tækifæri á að
fljúga einn dag í viku.
Þessa dagana fer fram í Ástralíu
heimsmeistaramótið í svifdrekaflugi
en það mun vera haldið annað hvert
ár. Núverandi heimsmet í langflugi
er um 360 km sem Bandaríkjamað-
urinn Joe Bostik setti í júní 1987. Til
samanburðar má geta þess að lengsta
flug á svifdreka hér á landi er 61 km
en þá var flogið frá Úlfarsfelli og út
á Reykjanestá. Það ber þó að hafa f
huga að hér á landi er mjög ólíklegt
að hægt sé að ná jafn löngu flugi og
Bostik náði, vegna þess að hitaupp-
streymi frá landinu er ekki nógu
mikið.
ÓLÝSANLEG TILFINNING
Næstur á vegi mínum varð Ingólf-
ur Bruun sem stundað hefur svif-
drekaflug á fjórða ár og fékk ég
hann til að segja mér hvernig tilfinn-
ing það væri að fara í fyrsta flugið.
„Þegar ég var búinn að ganga í gegn
um alla þjálfunina og æfa vel flugtak
og lendingu, þá fór ég í fyrsta
renniflugið," sagði Ingólfur. „Það
fer þannig fram að maður fer upp á
fjall og tekur beint flug upp í vindinn
og hugsar ekki um neitt annað en að
fara í loftið og komast niður. Þetta
verður maður að endurtaka nokkr-
um sinnum áður en hægt er að fara
að fljúga eitthvað að ráði. Ég man
það að í fyrsta skiptið sem ég ætlaði
að fljúga stóð ég á brúninni í þrjú
korter, skeifingu lostinn og ætlaði
ekki að þora af stað, þvf hæðin villir
manni sýn. En það er í raun betra að
hafa góða hæð því þá vinnst meiri
tími til að leiðrétta ef eitthvað fer
úrskeiðis. Nú, þegar ég var búinn að
hanga þarna á brúninni í þrjú korter
og kominn að þvf að hætta við allt
saman og fara að pakka drekanum
saman þá hugsaði ég með mér, ef ég
fer ekki núna þá fer ég sennilega
aldrei. Ég setti því á mig hjálminn,
hengdi mig í drekann og liljóp af
stað. Enda þegar ég var lentur þá
átti ég líka heiminn, þetta er ólýsan-
leg tilfinning, manni leið svo vel,“
sagði Ingólfur að lokum.
ABÓ
“Við fleygjum okkur ekkert fram af fjallinu. Vindurinn kemur upp með fjallinu þannig að við í raun löbbum bara út í vindstrenginn og förum
upp, svo einfalt er það,“ sagði Kristján. (Tímamynd ABO)
Það voru orð að sönnu og upp fór hann. (Tímamynd ABÓ)
Galdurinn við svifdrekaflugið er að nýta sem best náttúruöflin, vinda og uppstreyml. (Tímamynd ABÓ)