Tíminn - 21.02.1988, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Sunnudagur 21. febrúar 1988
Sunnudags-
LEIÐARI
SMÁFRÍÐINDI
Hið skörulegasta fórst þeim, feðgunum tveimur,
lögreglumönnum í Reykjavík, sem heimtu rétt
sinn um fyrri helgi af ungum manni við skál, er
rambað hafði utan í bíl annars þeirra. Gyrtu þeir
sig megingjörðum, tóku hús á delinquentinum og
fluttu í dyflissuna. Þar var að honum þumað uns
hann lá með limu brotna og sér fram á að verða
ófær í langan tíma. Ber ekki á öðru en forngarpa-
andinn sé enn við lýði með þjóðinni, kominn
rakleitt eða krókalítið frá þeim Agli, Grími frá
Hrafnistu og Þorgeiri Skorargeir.
En ungi maðurinn er ekki sáttur við orðinn hlut
og vill nú fara að kvaka utan í dómstólunum, ef
vera mætti að honum heimtust bætur fyrir meðferð-
ina. Víst má hugsast að sú stund renni að hann fái
bætur, en jafnframt er trúlegt að hann muni segja
sig fullsælan, áður en lýsir af deginum þeim. Sú
varð amk. reynsla annars manns í vel kunnu máli
fyrir fáum árum. Niðjar Egils og Skorargeirs munu
sennilega nú sem þá verða hægir en því þéttari fyrir
í vörninni og silfrið reynast torsótt í lúkur þeim.
Margt mun koma upp á yfirborðið um atferli unga
mannsins og ólíkt því sem í fyrstunni virtist vera
og sægur smámuna sem hvorki verða sannaðir né
afsannaðir. í fyrra málinu var líka nokkur áhersla
lögð á að gera hið krímótta og glóðaraugum
skreytta fórnarlamb sem allra skoplegast. Oft
heppnaðist að gera réttarhaldið að vettvangi
óborganlegra brandaramála á þess kostnað, þar
sem sjálfir dómararnir fengu tæpast haldið aftur af
gleðitárunum. Lögmenn, sem fengið höfðu sér í
aðra löppina, töldu einboðið að slá þráðinn að
næturþeli undir svefninn, svosem um þrjúleytið,
og skófu ekki utan af því. Nei, sannarlega má ætla
að unga manninum veiti ekki af þeim fyrirbænum
sem hann getur hlotið, áður en hann „leggur á
djúpið“.
Víst er lögreglumönnum vorkunn þótt þeir
krefjist vissra forréttinda í oft óyndislegum starfa
sínum. Hver sem vinnur í bakaríi er vel að því
kominn að stungið sé að honum ókeypis brauðhleif
eða kleinupoka af og til. Starfsmaður í járnvöru-
verslun á að geta skotið undan fáeinum skrúfum
eða hespu á bílskúrinn, án þess að það teljist
stórsynd. Má þá ekki lögreglumaður gefa stöku
kjaftshögg sér að kostnaðarlitlu? Ja, það er nú það.
Þó væri heppilegra að lögreglumenn tækju sér
smáfríðindin með einhverju öðru móti. Þeir gætu
til dæmis slegið köttinn úr tunnunni í vinnutíman-
um, eins og börnin fyrir norðan. í tunnunni ættu
þeir að hafa uppstoppaða eftirmynd Jóns dóms-
málaráðherra. Er hann ekki að narra af þeim
kauphækkunina? Við þetta mundi enginn hafa
neitt að athuga og víst væri það frekar til hagræðis
fyrir borgarana.
Umsjón Helgarblaðs:
Atii Magnússon
, _,' Agnar Birgir Óskarsson
líminn
llllllllllllllllillll ERLENDMAL ItlllllllllllllllllllllllIllllllllllllllllllllllIlllllW^
Olympíuleikarnir í Calgary
geta flýtt kosningum í Kanada
Heppnist þeir vel styrkir það stjórnina
EF vetrarólympíuleikarnir í Cal-
gary heppnast vel og verða beint
og óbeint rós í hnappagatið á
Mulroney forsætisráðherra er talið
sennilegt að hann boði til þing-
kosninga fyrr en ella, en þær eiga
að fara fram í seinasta Iagi í
september 1989. Venju samkvæmt
hefur því verið spáð að Mulroney
efni til kosninga áður.
Annað gæti einnig flýtt fyrir
kosningum. Fríverslunarsamning-
ur Bandaríkjanna og Kanada, sem
þeir Mulroney og Reagan forseti
undirrituðu 2. janúar virðist eiga
talsvert meira fylgi en stjórnar-
flokkurinn, eins og síðar verður
vikið að. Hann verður samþykktur
í kanadíska þinginu í vetur. Mul-
roney gæti talið heppilegt að boða
til kosninga fljótlega eftir það.
Fríverslunarsamningurinn er
mjög víðtækur, en hann á smátt og
smátt að koma til framkvæmda á
næstu árum. Árið 1999 á hann að
vera kominn til fullra fram-
kvæmda. Þá á að vera búið að fella
niður alla tolla og allar hömlur á
viðskiptum milli landanna. Fjár-
magnsflutningur og fólksflutningur
milli landanna eigi að vera án allra
hamla. Verðlag á hráefnum á að
vera gagnkvæmt í báðum löndun-
um. Þetta er ekki síst mörgum
Kanadamönnum þyrnir í augum.
Samkvæmt því verða Kanadamenn
að selja Bandaríkjamönnum olíu
og gas á sama verði og gildir í
Kanada. Hingað til hafa Kanada-
menn hagnast á sölu þessara hrá-
efna til Bandaríkjanna.
Kanada er að flatarmáli annað
stærsta land í heimi. Hin víðáttu-
miklu og lítt byggðu norðurhéruð
þess eru talin auðug af málmum,
olíu og gasi. Þetta getur orðið
Bandaríkjunum mikil auðsupp-
spretta, en mun einnig flýta fyrir
nýtingu þessara auðlinda.
BRIAN MULRONEY varð
forsætisráðherra í Kanada í sept-
ember 1984. í júní það ár hafði
Pierre Trudeau látið af forsætisráð-
herraembættinu eftir að hafa gegnt
því í 16 ár að fáum mánuðum
undanskildum á árunum 1979-
1980, þegar Clark, sem þá var
formaður íhaldsflokksins, var for-
sætisráðherra minnihlutastjórnar.
f stað Trudeau var John N. Turner
kosinn formaður Frjálslynda
flokksins og varð jafnframt for-
sætisráðherra.
Eftir þessi mannaskipti bentu
skoðanakannanir til þess að fylgi
Frjálslynda flokksins færi stórvax-
andi og mun aðalorsök þess hafa
verið sú, að Trudeau var orðinn
óvinsæll. Við þetta bættist svo að
klofningur var í íhaldsflokknum,
því að Mulroney, sem áður hafði
lítið skipt sér af stjórnmálum, hafði
brotist til valda í flokknum og fellt
Clark frá endurkjöri sem formann
og látið kjósa sjálfan sig sem
formann. Mulroney, sem áður
hafði fengist við fjármálaviðskipti
og efnast vel, var lítið þekktur og
umdeildur, þótt hann kæmi vel
fyrir.
Turner taldi því, að rétt væri að
freista gæfunnar og efna strax til
þingkosninga, sem fóru fram 4.
september 1984. í kosningabarátt-
unni stóð Mulroney sig vel, en
Tumer mjög illa. Úrslitin urðu því
óvænt. íhaldsflokkurinn vann
stærsta kosningasigur í sögu Kan-
ada. Hann fékk 211 þingmenn
kosna af 282 alls. Frjálslyndi flokk-
urinn fékk aðeins 40 þingmenn
kosna, en hafði fyrir kosningarnar
147. Flokkur nýdemókrata, sem
svipar til sósíaldemókrata í Noregi,
Danmörku og Svíþjóð, fékk 30
þingmenn. f kosningabaráttunni
lýsti Mulroney sér sem miðjumanni
(I am a Centrist) og taldi John F.
Kennedy og Hubert Humphrey
fyrirmyndir sínar.
Mulroney myndaði að sjálfsögðu
stjórn og gerði Clark að utanríkis-
ráðherra. í mörg önnur ráðherra-
embætti valdi hann félaga sína úr
viðskiptaheiminum, en þeir reynd-
ust flestir illa og hugsuðu mest um
eigin hag. Hvert hneykslismálið
rak annað og Mulroney varð að
skipta um menn. Vinsældir hans
fóru stöðugt minnkandi og á síðast-
liðnu ári var svo komið, að íhalds-
flokkurinn fékk aðeins 23 % í
skoðanakönnun. Frjálslyndi flokk-
urinn hafði bætt við sig, en ný-
demókratar mest.
í SKOÐANAKÖNNUN, sem
birt var eftir áramótin, hafði
íhaldsflokkurinn heldur rétt við.
Hann fékk þá 28 %, en Frjálslyndi
flokkurinn 38 % og nýdemókratar
34 %. Þegar leitað var álits á
flokksforingjunum fékk Ed Broad-
bent,foringi nýdemókrata, flest at-
kvæði, Mulroney varð annar í
röðinni, en Turner rak lestina.
Dæmt eftir þessu áliti á flokksfor-
ingjunum gæti vel svo farið, að
nýdemókratar verði stærsti flokk-
urinn eftir næstu þingkosningar.
Það er talið valda Turner erfið-
leikum og álitshnekki, að hann á
við áfengisvanda að stríða og þykir
hafa borið á því í sjónvarpsumræð-
um.
Hlutur íhaldsflokksins þykir
hafa styrkst vegna batnandi efna-
hagsástands, þótt atvinnuleysi sé
enn mikið. Þá treystir Mulroney
því, að fríverslunarsamningurinn
styrki stöðu hans. Þótt samningur-
inn sé umdeildur nýtur hann sam-
kvæmt skoðanakönnun fylgis 48 %
kjósenda en 46 % eru mótfallnir
honum. Þetta er talið geta ýtt undir
það, að Mulroney hraði kosning-
unum, eða fljótlega eftir að þingið
hefur samþykkt samninginn.
Báðir stjómarandstöðuflokk-
amir beita sér hart gegn samningn-
um, en nokkurs klofnings gætir þó
innan Frjálslynda flokksins. Mul-
roney hefur gefið til kynna, að
næstu kosningar muni snúast fyrst
og fremst um fríverslunarsamning-
inn. Sama segja stjórnarandstæð-
ingar, því að þeir halda því fram,
að komist hann til framkvæmda
verði Kanada orðið fylki í Banda-
ríkjunum innan skamms tíma.
Margir spá því, að enginn flokk-
ur fái meirihluta í næstu kosning-
um. Líklegast þykir þá, að Frjáls-
lyndi flokkurinn og flokkur ný-
demókrata myndi þá samsteypu-
stjórn eða annar þeirra myndi
minnihlutastjórn með stuðningi
hins. Svo gæti farið, að það yrði
flokkur nýdemókrata, ef hann
reynist sigursæll í kosningunum.
Það hefur verið talið valda slíkri
stjórn vanda, að nýdemókratar
hafa á stefnuskrá sinni, að Kanada
segi sig úr Nató. Flokkurinn hefur
þó lagt minnkandi áherslu á það að
undanförnu. Samt þykir ólíklegt,
að hann felli það úr stefnuskránni.
Sænskur blaðamaður sem var ný-
lega á ferð um Kanada, telur
sennilegast að það verði látið hald-
ast áfram í stefnuskránni líkt og
það er enn í stefnuskrá sænskra
sósíaldemókrata, að Svíþjóð verði
lýðveldi.
Bæði Frjálslyndi flokkurinn og
nýdemókratar hafa lýst yfir því, að
fríverslunarsamningnum við
Bandaríkin verði sagt upp, ef þeir
fái meirihluta á þingi, en í stað
leitað nýs samnings við Bandarík-
in.
Brian Mulroney og kona hans eftir kosningasigurinn 1984
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON SKRIFAR