Tíminn - 17.03.1988, Page 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 17. mars 1988
Frá Menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður
við grunnskóla. Umsóknarfrestur til 12. apríl.
Vesturlandsumdæmi:
Staða skólastjóra við Grunnskólann á Hellissandi.
Stöður grunnskólakennara við grunnskólann
Borgarnesi, meðal kennslugreina enska og
handmennt.
Reykjanesumdæmi:
Stöður grunnskólakennara við grunnskólana
Kópavogi meðal kennslugreina tónmennt og
myndmennt, Seltjarnarnesi, meðal kennslugreina
heimilisfræði og myndmennt, Garðabæ, meðal
kennslugreina tónmennt og íþróttir, Hafnarfirði,
meðal kennslugreina heimilisfræði, raungreinar,
erlend mál, íslenska og smíðar, Bessastaða-
hreppi, meðal kennslugreina íþróttir og tónmennt,
Mosfellsbæ, meðal kennslugreina íþróttir,
myndmennt, handmennt, íslenska, erlend mál og
verslunargreinar, Keflavík, meðal kennslugreina
tónmennt, íþróttir, myndmennt, heimilisfræði og
sérkennsla, Grindavík, meðal kennslugreina
kennsla yngri barna, raungreinar og saumar,
Njarðvík, meðal kennslugreina tónmennt, Sand-
gerði, Garði, meðal kennslugreina tónmennt,
myndmennt, heimilisfræði og erlend mál, Stóru-
Vogaskóla, meðal kennslugreina saumar og
íþróttir og Klébergsskóla.
Vestfjarðaumdæmi:
Staða skólastjóra yið Grunnskólann í Broddanesi.
Stöður grunnskólakennara við grunnskólana ísa-
firði, meðal kennslugreina sérkennsla, íþróttir,
hand- og myndmennt og heimilisfræði, Bolungar-
vík, meðal kennslugreina, náttúrufræði, mynd- og
handmennt, Barðastrandarhreppi, Patreksfirði,
meðal kennslugreina íþróttir og smíðar, Tálkna-
firði, meðal kennslugreina íþróttir og tónmennt,
Þingeyri, Mýrahreppi, Mosvallahreppi, Flateyri,
meðal kennslugreina danska, íþróttir og
myndmennt, Suðureyri, meðal kennslugreina
danska, Súðavík, meðal kennslugreina íslenska,
erlend mál, íþróttir og tónmennt, Drangsnesi,
Hólmavík, Broddanesi, Borðeyri, Reykhólaskóla,
meðal kennslugreina raungreinar, handmennt,
tónmennt, enska, heimilisfræði og íþróttir, Klúku-
skóla, Héraðsskólann að Núpi og Héraðsskólann
í Reykjanesi.
Suðurlandsumdæmi:
Staða skólastjóra við Grunnskólann í V-Landeyja-
hreppi. Staða sérkennara við grunnskólana í
Suðurlandsumdæmi. Stöður grunnskólakennara
við grunnskólana Vestmannaeyjum, Selfossi, V-
Landeyjahreppi, Hvolsvelli, Hellu, Djúpárhreppi,
Stokkseyri, Eyrarbakka, Villingaholtshreppi, Þor-
lákshöfn, Kirkjubæjarskóla, Laugalandsskóla,
Reykholtsskóla, Biskupstungum og Ljósafoss-
skóla.
Menntamálaráðuneytið.
'Rm
TÖLVUNOTENDUR
Við í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum, setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða fyrir tölvuvinnslu.
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Símí 45000
Nú eiga íslendingar aftur að fara
að kaupa lopapeysur:
Nýja línan í
ullarfatnaði
Fimm íslenskir fatahönnuðir
munu dagana 18.-30. mars kynna
ullarfatnað í Rammagerðinni í
Kringlunni. Fatahönnuðirnir eru
Hulda Kristín Magnúsdóttir og
Gunnhildur Ásgeirsdóttir, en þær
eru báðar frá Álafossi, Ásta Björns-
dóttir og Birna Þórunn Pálsdóttir,
báðar frá Árblik og Pórdís Kristleifs-
dóttir frá Drífu.
Hönnuðirnir eiga það sameigin-
legt að fara nýjar leiðir í meðferð
ullarinnar og leggja alla áherslu á að
íslendingar fari aftur að ganga í
eigin peysum.
„Ef landsmenn eru hættir að
kaupa innlenda framleiðsluvöru,
eins og ullarpeysuna, er það ótvíræð
vísbending um að endurnýjar sé
þörf,“ segir í tilkynningu frá hönn-
uðunum.
Lopapeysan er löngu orðin heims-
þekkt - var með gott orðspor, en
ljóst varð fýrir allnokkru, að ef
halda átti stöðunni erlendis, þyrfti
að endurhanna peysuna, bæði fyrir
erlendan markað og innlendan.
Friðrik Sophusson, iðnaðarráð-
herra, mun opna sýninguna föstu-
daginn 18. mars klukkan 16 og
tískusýningar verða í tengslum við
hana föstudaga 16-17 og laugardaga
14-15. -SÓL
Sýnishorn af hinni nýju línu í lopapeysum, sem íslenskir hönnuðir ieggja
mikla áherslu á. Gamla lopapeysan á ekki lengur upp á pallborðið hjá tísku
meðvituðum fatakaupendum.
Hlín Hlöðversdóttir dregur út fimm númer.
Sumarleyfi
á 10krónur
í tilefni af tíunda starfsári Sam-
vinnuferða-Landsýnar efnir ferða-
skrifstofan til afmælisleiks fyrir far-
þega sína svo að á þessu sumri munu
10 fjölskyldur fá sumarleyfisferðir
sínar fyrir 10 krónur á mann.
Síðastliðinn fimmtudag dró Hlín
Hlöðversdóttir út fimm númer úr
staðfestum bókunum í fyrri umferð
í SL afmælisleiknum. Eftirtalin núm-
er reyndust happasæl: 147753,
134953,126969,137553 og 139009.í
lukkupottinn duttu fimm manna
fjölskylda frá Selfossi á leið í Sælu-
húsin í Hollandi, tvær stúlkur úr
Reykjavík og hjón úr Kópavogi sem
fara til Rimini, tveirstrákar frá Höfn
í Hornafirði á leið til Rhodos og
þriggja manna fjölskylda frá Húsa-
vík sem ætlar til Mallorca.
Þann 10. maí verður seinni umferð
afmælisleiksins, þá verða aftur dreg-
in út fimm númer úr staðfestum
bókunum svo fleiri farþegar Sam-
vinnuferða-Landsýnar munu detta í
10 krónu lukkupottinn.
Evrovision:
LEIÐRETTUR TEXTI
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson,
einn af textahöfundum í undan-
keppni Evrovision söngvakeppninn-
ar hafði samband við Tímann vegna
textabirtinga okkar. Aðalsteinn
sagði textann mjög afbakaðan í
meðförum blaðsins. Um er að ræða
textann við lagið Mánaskin. Tírninn
vill hinsvegar benda á að textarnir
voru prentaðir orðrétt upp eftir bréfi
frá Ríkissjónvarpinu. Við viljum
eftir sem áður biðja Aðalstein vel-
virðingar á þessum mistökum sjón-
varps og Tímans. Við birtum hér
textann óbrenglaðan, eins og höf-
undur sendi hann frá sér.
Mánaskin
Eitthvad undarlegt,
sem enginngeturskilið, hefurgerst.
Við kynntumst eina kalda vetrar-
nótt,
þegar kynleg birta var.
Mánaprins að mínu húsi bar.
Bros þitt var svo blítt.
Þú baðst mig um að dvelja litla stund
og geislaðir af gleði yfir því
að ég gæti orðið þinn.
Vonir þínar fæddu vetrardrauminn
Við trúum öll á ást við fyrstu sýn,
þetta óskrifaða náttúrunnar blað.
Þó líði ár og öld
fara örlögin með völd
og ráða sínum ráðum
á réttri stund og stað.
Það ótrúlega gerist enn í dag.
Sérhvert andartak er tilviljunum
háð.
Ævintýri eitt
getur öllum hlutum breytt.
Yfir eyðisand
ferógnvekjandi stormurinn um nótt.
Hann veldurusla, villirmörgumsýn
og veður yfir allt.
Mánaskinið hylur myrkrið svart og
kalt.