Tíminn - 17.03.1988, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Fimmtudagur 17. mars 1988
Norræni fjárfestingarbankinn:
1,7 milljarða króna
hagnaður I fyrra
Útlán Norræna fjárfestingarbank-
ans (NIB) á s.l. ári voru umfangs-
mikil eins og árið þar á undan.
Útborguð lán árið 1987 námu sam-
tals 572 milljónum SDR, eða tæp-
lega 29 milljörðum íslenskra króna
(ÍSK). Upphæð útistandandi lána
hækkaði um 33% og er nú 1,9
milljarðar SDR eða rúmlega 96
milljarðar ÍSK. - (Miðað er við
gengi (sl. kr. ( árslok 1987).
Stærstu lán innan Norðurland-
anna fóru til orkumála. NIB veitti
m.a. 7 milljarða fSK lán til lagningar
dreifikcrfa fyrir jarðgas í Dan-
mörku. Af alþjóðlegum lánum má
nefna fyrsta lán NIB til Sovétríkj-
anna, en það fer til að fjármagna
kaup á skipum frá Danmörku.
Niðurstöðutala efnahagsreiknings
hækkaði um 30% í 3,1 milljarð SDR
sem samsavarar tæplega 160 mill-
jörðum ÍSK. Vaxtamismunur jókst
um 13% í 41 milljón SDR eða
rúmlega 2 milljarða ÍSK.
Hagnaður bankans er næstum því
hinn sami og árið á undan, eða 34
milliónir SDR (rúmlega 1,7 milljarð-
ar ISK), eftir að afskrifaðar hafa
verið 6 milljónir SDR (rúmlega 304
milljónir ÍSK) vegna fyrsta lánstaps
í sögu bankans.
Einn af lánþegum NIB, Kongs-
berg Vápenfabrikk A/S í Noregi,
stöðvaði greiðslur til lánardrottna (
júní 1987. Bankinn átti inni hjá
fyrirtækinu sem svarar 76 milljónum
NOK vegna tveggja lána sem veitt
voru árið 1977 og 1984. í uppgjöri
sínu fyrir árið 1987 hefur bankinn
afskrifað 6 milljónir SDR, sem sam-
svara um 70% af útistandandi lánum
NIB hjá Kongsberg Vápenfabrikk
A/S.
Grunnféð tvöfaldað
Grunnfé NIB var tvöfaldað í ágúst
1987 og er nú 1.600 milljónir SDR.
Um leið tvöfaldaðist hinn almenni
útlánarammi bankans og er nú 4.000
milljónir SDR eða rúmlega 202 mill-
jarðar ÍSK. Að auki hefur bankinn
700 milljóna SDR lánaramma til
alþjóðalegra lána. Bankinn greiddi
eigendum sínum, Norðurlöndunum
fimm, arð fyrir árin 1985 og 1986, en
enginn arður verður greiddur fyrir
árið 1987. Samkvæmt samþykktum
bankans verður varasjóður hans að
nema að minnsta kosti 10% af
grunnfé til að hægt sé að greiða arð.
Varasjóður nemur nú 109 milljónum
SDR.
Nýr sjóður fyrir „mjúk“ lán
í ráði er að stofna á komandi
sumri nýjan samnorrænan sjóð
- Norræna þróunarsamvinnusjóðinn
- sem starfa á í tengslum við NIB.
Sjóðsupphæðin á að nema 100 mill-
jónum SDR eða rúmlega 5 milljörð-
um ÍSK. Sjóðurinn er liður í
norrænni þróunarsamvinnu og á að
stuðla að efnahagslegum og félags-
legum framförum í þróunarlöndun-
um.
Sjóðurinn á að veita lán til verk-
efna í norræna þágu (hinum fátækari
þróunarlöndum. Lánin verða veitt
samkvæmt IDA-kjörum Alþjóða-
bankans, þ.e.a.s. vaxtalausoggreið-
ast upp á löngum tíma.
Sjóðurinn á að taka þátt í fjár-
mögnun verkefna með NIB og helstu
alþjóðlegu þróunarbönkunum. Þeg-
ar Norðurlandaráð hefur fjallað um
sjóðinn mun Norræna ráðherra-
nefndin taka endanlega ákvörðun
um stofnun hans.
20 milljóna króna
trygging greidd:
Kongsaa
siglir
Danska flutningaskipið
Kongsaa er á leið til heimahafnar,
en það hafði verið kyrrsett á
Seyðisfirði í nær hálfan mánuð
vegna deilna um björgunarlaun.
Útgerð togarans Stálvíkur frá
Siglufirði fór fram á björgunar-
laun, eftir að hafa siglt út til
Kongsaa, sem var vélarvana og
rak til lands, og tekið það f tog.
Á leiðinni rákust skipin saman og
laskaðist Stálvfk. Skipstjórnar-
menn og útgerð Kongsaa hafa
ekki fallist á, að um björgun
Kongsaa hafi verið að ræða, og
voru því lengi að taka ákvörðun
um, hvort þeim bæri að greiða
uppsett tryggingagjald, kr. 20
milljónir.
Tilskilin trygging var ekki
greidd fyrr en að morgni mánu-
dags. þj
Þessi mynd var tekin við afhendingu verðlauna í samkeppni um gerð handrits að kennslumynd fyrir grunnskóla. Verðlaunahafarnir Einar Guðmundsson (fjórði
frá hægri) og Viktor Arnar Ingólfsson eru í hópi forráðamanna tryggingafélaganna og dómnefndarmanna. (Ljósm.: Kristján Pétur Guðnason)
„Danni“ fékk
fyrstu verðlaun
Nýlega voru afhent verðlaun í
samkeppni sem Fararheill ’87 efndi
til um gerð handrits að kennslumynd
um umferðarmál fyrir 9. bekk grunn-
skóla. Fyrstu verðlaun hlaut Einar
Guðmundsson fyrir handrit um
Danna, strák utan af landi sem flytur
til Reykjavíkur og kynnist umferð-
inni þar. Einar er yfirkennari í
Ártúnsskóla í Reykjavík og hefur
um árabil verið mikill áhugamaður
um umferðarmál. Verðlaunin, sem
hann hlaut, voru krónur 150.000-.
Önnur verðlaun, kr. 50.000, hlaut
Viktor Ingólfsson, tæknifræðingur
og rithöfundur.
í dómnefnd í samkeppninni sátu
Anna Magnúsdóttir deildarstjóri hjá
Námsgagnastofnun. Arnaldur Árna-
son ökukennari. Guðni Bragason
fréttamaður, Þorgeir Lúðvíksson
deildarstjóri hjá Almennum trygg-
ingum og Þorgrímur Guðmundsson
varðstjóri hjá lögreglunni í Reykja-
vík.
Á næstunni verður hafinn undir-
búningur að gerð myndar eftir hand-
riti Einars og verður hún vonandi
tilbúin til notkunar í skólum landsins
áður en langt um líður.
Nýir þingaðilar bætast í hópinn:
Ný stjórn kjörin
í Verðbréfaþing
Kosið var til stjórnar Verðbréfa-
þings íslands 29. febrúar 1988, en
skv. reglum um þingið skulu þing-
aðilar aðrir en Seðlabankinn, kjósa
þrjá fulltrúa í stjórn og fer at-
kvæðamagn eftir viðskiptum þeirra
undangengin ár. Seðlabankinn til-
nefnir tvo fulltrúa. Stjórnin er nú
skipuð þannig: Eiríkur Guðnason,
formaður og Sveinbjörn Hafliða-
son, frá Seðlabanka íslands, Gunn-
ar H. Hálfdanarson frá Fjárfesting-
arfélagi fslands hf., Helgi Bach-
man frá Landsbanka íslands og
Pétur Blöndal, varaformaður frá
Kaupþingi hf.
Stjórn Verðbréfaþings íslands
samþykkti hinn 3. mars sl. verð-
bréfadeild Útvegsbanka íslands hf.
sem þingaðila. Auk hennar eiga
aðild að þinginu Fjárfestingarfélag
íslands hf., Kaupþing hf., Lands-
banki íslands, Samvinnubanki ís-
lands hf., Seðlabanki íslands,
Sparisjóður Hafnarfjarðar og
Verðbréfamarkaður Iðnaðar-
banka íslands hf.
Stjórn þingsins hefur einnig sam-
þykkt til skráningar eftirtalda
skuldabréfaflokka: Skuidabréf
Landsbanka íslands í 3. fl. 1987, 5.
fl. 1987 og 6. fl. 1987, skuldabréf
SÍS í 1. fl. 1987 og spariskírteini
Ríkissjóðs í 1. fl. A 1987 til 2ja ára,
í 2. fl. D 1987 til 2ja ára og í 2 fl.
A 1987 til 6 ára.
Námsgagnastofnun:
Leitað eftir góðu
stafsetningarefni
Námsgagnastjórn ákvað á fundi
sínum þann 1. mars síðast liðinn að
auglýsa eftir vel útfærðum hugmynd-
um að námsefni í íslenskri stafsetn-
ingu handa 4.-6. bekk og 7.-9. bekk
grunnskóla. Þessi ákvörðun var
tekin, þar sem lengi hefur verið talin
brýn þörf á að endurnýja námsefni f
stafsetningu og hefur málið verið um
hríð til umfjöllunar hjá stofnuninni.
Pá hafa farið fram rannsóknir á
vegum menntamálaráðuneytisins
um stafsetningu í 6. og 8. bekk.
Lýsingar á aðferðum, útfærðar
hugmyndir eða sýnishorn af náms-
efni ber að senda til Námsgagna-
stofnunar fyrir 15. apríl næst kom-
andi, en höfundar efnis sem dóm-
nefnd þykir vænlegt verða síðan
ráðnir til að semja efnið.
Stjórnin leitaði til Bandalags
kennarafélaga til að fá tvo fulltrúa af
fimm í dómnefnd, en hinir þrír eru
úr Kennaraháskólanum, skólaþró-
unardeild menntamálaráðuneytsins
og einn frá Námsgagnastofnun.
-SÓL
Ekið á og
Lögreglunni í Reykjavík var
tilkynnt um 13 árekstra í umferð-
inni í fyrradag og í tveimur tilfell-
um var ekið á vegfarendur.
í öðru tilfellinu var ekið á
dreng við Engjasel og var hann
stungið af
fluttur á slysadeild.
í>á var ekið á reiðhjólamann
við Laugaveg 77 og stakk öku-
maðurinn af vettvangi. Hann gaf
sig þó fram síðar. -SÖL