Tíminn - 17.03.1988, Side 11
Fimmtudagur 17. mars 1988
Tíminn 11
llllllllllllllllllllll íþróttir IIIIIIIIIIIIIIM^^.......................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................
Bikarkeppnin í handknattleik:
Evrópukeppnin i knattspyrnu:
FH UR LEIK!
FH-ingar, efsta lið 1. deiidar, eru úr leik í bikarkeppni HSl eftir
að þeir töpuðu fyrir Breiðablik í gærkvöldi. Blikarnir eru komnir í
undanúrslit ásamt Valsmönnum og KR-ingum en Fram og Víkingur
leika um síðasta undanúrslitasætið annaðkvöld.
UBK-FH 28-21 (10-8)
„Við áttum mjög góðan leik og
markvarslan var á heimsmælikvarða
en það var liðsheildin sem vann
leikinn," sagði Geir Hallsteinsson
þjálfari Breiðabliks eftir að Kópa-
vogsliðið lagði Hafnfirðingana að
velli í átta liðaúrslitum íbikarkeppni
HSÍ í gærkvöldi. „í>eir sýndu það
strákarnir að þetta geta þeir ef þeir
leggja sig allir fram.“
Það voru fyrstu mínúturnar sem
réðu úrslitum í þessum leik. Svo
virtist sem FH-ingar væru ekki við-
búnir mikilli baráttugleði Blikanna
og þegar staðan var orðin 4-0 má
segja að úrslitin hafi þegar verið
ráðin. FH-ingarnir náðu sér aldrei
fyllilega á strik eftir það, byrjunin
var greinilega eins og köld vatnsgusa
í andlit þeirra og þótt þeir næðu að
komast yfir einu sinni í leiknum var
sú viðleitni kæfð strax í fæðingu og
Blikarnir tóku lífinu létt síðasta
stundarfjórðunginn eftir að Hafn-
firðingarnir brotnuðu endanlega
niður. Magnús varnarmaður Magn-
ússon gerði m.a. smá sprell í hrað-
aupphlaupi, snéri sér í heilhring í
loftinu áður en hann skaut og mis-
tókst alveg, en kveðjan til Þorgils
Óttars skildist, Þorgils Óttar skoraði
svona mark gegn Blikum á sunnu-
daginn var. Líklegt er einmitt að sá
leikur hafi haft töluverð áhrif á
þennan, FH-ingar þurftu lítið að
hafa fyrir sigrinum þá.
Um leikinn er svosem fátt meira
að segja, þetta var einn af þessum
ekta bikarleikjum, gífurleg barátta
og mikið um mistök. Guðmundur
Hrafnkelsson átti stórleik í markinu
og Jón Þórir Jónsson lék mjög vel í
horninu.
Blikarnir eru eftir sigurinn komnir
í undanúrslit. „Þetta er í fyrsta sinn
sem Breiðabliksliðið hefur náð
svona langt, að komast í 4 liða úrslit
og við ætlum að halda þessari baráttu
áfram,“ sagði Geir eftir leikinn. „En
þetta hefur sjálfsagt góð áhrif á FH,
fyrir vikið þá vinna þeir titilinn."
Helstu tölur: 4-0, 5-1, 6-4, 7-7, 8-8, 10-8 —
10-9, 14-12, 14-15, 19-15, 19-16, 22-16, 25-18,
27-20, 27-21.
Mörkin, UBK: Jón Þórir Jónsson 9, Hans
Guðmundsson 4, Bjöm Jónsson 4, Aðalsteinn
Jónsson 2, Kristján Halldórsson 2, Svafar
Magnússon 2, Andrés Davíðsson 2, Ólafur
Bjömsson 1, Þórður Davíðsson 1, Guðmundur
Hrafnkelsson 1. FH: Guðjón Amason 9(1),
Óskar Armannsson 4, Pétur Petersen 4,
Þorgils óttar Mathiesen 3, Héðinn Gilsson 1.
Dómarar: Stefán Amaldsson og Ólafur
Haraldsson. Þeir höfðu góð tök á leiknum.
Fylkir-Valur 12-33 (7-18)
Þetta var leikur kattarins að mús-
inni og nær allan síðari hálfleik sáu
varamenn Valsliðsins um leikinn.
Jakob Sigurðsson var markahæstur
Valsmanna með 8 mörk, Júlíus Jón-
asson gerði 6 og Þórður Sigurðsson
einnig. Hjá Fylki var Einar Einars-
son markahæstur með 4 mörk.
ÍBV-KR 23-19
Leikurinn var jafn framanaf en
KR-ingar sigu framúr er á leið.
Eyjamenn komust reyndar í 7-3 í
upphafi en lengst af var munurinn
tvö mörk á annan hvorn veginn og
mikil barátta. Stefán Kristjánsson
skoraði 8 mörk fyrir KR en Elías
Bjarnhéðinsson var markahæstur
Eyjamanna með 6 mörk. - HÁ
Atta liða úrslit
Evrópukeppni meistaraliða
Real Madrid-Bayern Munchen..............2-0 (4-3)
PSV Eindhoven-Bordeaux .................0-0 (1-1)
Glasgow Rangers-Steaua Bukarest........ 2-1 (2-3
Anderlecht-Benfica 1-0 (1-2)
Evrópukeppni bikarhafa
Dynamo Minsk-Mechelen ..................1-1 (1-2)
Sporting Lissabon-Atalanta .............1-1 (1-3)
Ajax-Young Boys Bern....................1-0 (2-0)
Marseille-Rovaniemi ....................3-0 (4-0)
Evrópukeppni félagsliða
FC Barcelona-Bayer Leverkusen...........0-1 (0-1)
Werder Bremen-Verona ...................1-1 (2-1)
Club Brugge-Panathinaikos ..............1-0 (3-2)
Vitkovice-Espanol .................... 0-0 (0-2)
Þetta eru síðari leikir liðanna í 8 liða úrslitum. Úrslit í sviga tákna
samanlögð úrslit. Feitletruðu liðin halda áfram keppni.
Evrópukeppnin:
Arnór
skoraði
Þórður Davíðsson er grimmur á svip þar sem hann svífur inn í teiginn framhjá Þorgils Óttari Mathiesen.
Tímamynd Pjetur.
Arnór Guðjohnsen skoraði eina
mark Anderlecht í leik liðsins gegn
Benfica frá Portúgal í Evrópukeppni
meistaraliða í knattspyrnu í gær-
kvöldi. Arnór skoraði með föstu
hægrifótarskoti rétt utan vítateigs á
64. mínútu en fyrr í leiknum skautt
hann rétt framhjá af stuttu færi.
Þrátt fyrir 1-0 sigur er Anderlecht úr
leik, 1-2 samanlagt. - HÁ/Reuter.
Úrvalsdeildin:
Blikatap
Einn leikur var í gærkvöldi í
úrvalsdeildinni í körfuknattleik.
Breiðablik fékk Keflvíkinga í heim-
sókn í Digranesið og lauk þeirri
viðureign með sigri gestanna, með
68 stigum gegn 57. Heimamenn voru
yfir, 30-25 í leikhléi og það var ekki
fyrr en á síðustu mínútunum sem
sundur dró með liðunum. - HÁ
1X2
LEIKVIKA 29 C C > *3 c OJ C\J C cc c
E n > ■o •o O) . «0 > •Q 'cn >. »o s 05,
Leikir19.mars1988 h- o la Q cr co <55 55
1. Arsenal-Newcastle 1 1 1 1 1 1 1 1 1
2. Covenlry-Derby 1 1 1 1 1 1 1 X 1
3. Nott'm Forest-Man. United 1 X 2 1 1 1 1 2 X
4. Oxford-Chelsea X 2 2 X X 2 1 1 X
5. Q.P.R.-Nonvich X X 1 1 1 1 1 1 1
6. Sheff.Wed.-Portsmouth 1 2 1 1 1 1 1 1 2
7. Southampton-Charlton 1 2 1 1 1 1 1 1 2
8. WestHam-Watford X X 1 2 1 X 1 X 1
9. Wimbledon-Tottenham 2 1 X 1 2 2 X 2 1
10. Crystal Palace - Bradford 1 2 1 2 X 1 1 1 X
11. Man.City-Swindon 1 1 1 1 ' 1 1 1 1 2
12. Shrewsbury-Middlesbro 2 1 2 1 2 1 2 2 X
Staðan: 136 140 161 141 142 143 155 143 144
Valdimar hafður
fyrir rangri sök
„... Valdimar gerði sig þó sekan
um Ijótan grikk. hann virðist hafa
tileinkað sér .júgóslavneska
bragðið“ svokallaða, að grípa um
ökla sóknarmannsins um leið og
hann stekkur inn úr hominu.
Blaðamaður Tímans sá hann gera
þetta a.m.k. tvisvar... “
Þetta cr hluti af grein um leik
VaLs og Víkings í 1. deildinni í
handknattleik sem birtist í Tíman-
um á þriðjudaginn var. Eftir að
hafa grandskoðað umrædd atvik á
myndbandsupptöku verður ekki
annað séð en að blaðamanni Tím-
ans hafi missýnst. Það er því bæði
Ijúft og skylt að biðja Valdimar
Grímsson afsökunar á þessum um-
mælum. - HÁ
Blak - Bikarkeppnin/lslandsmótið
Auðveldur
sigur hjá
Þrótturum
Þróttarar áttu ekki í miklum vand-
ræðum með KA-menn þegar liðin
mættust í Hagaskólanum ■ gær-
kvöldi. Þróttarar eru eftir þennan
sigur komnir í úrslit bikarkeppninn-
ar í blaki og keppa þar við Stúdenta.
KA-menn byrjuðu leikinn ekki
gæfulega, einn leikmanna þcirra
fékk knöttinn í ennið ■ fingurslagi
strax ■ fyrstu sókn. Segja má að þetta
hafi veríð nokkuð einkennandi fyrir
leik KA í gærkvöldi, þeir voru ekki
sjálfum sér líkir þótt heldur færðist
lif í liðið er á leið. Þréttur vann
fyrstu hrínuna mjög létt, 15-4 eftir
að vera yfir 3-0 og 10-1. í þeirri
næstu byrjuðu KA-menn betur en
Þróttarar höfðu sigur að lokum,
15-9. Þriðju hrínu unnu KA-menn
12-15 eftir mikla baráttu en Þróttar-
ar gerðu snarlega út um leikinn í
íjórðu hrínu. Þeir byrjuðu 9-0, KA
minnkaði muninn í 9-8 en fleirí stig
fengu þeir ekki.
Víkingur sigraði Breiðablik 3-1
(15-9, 6-15, 15-12 og 15-12) og er
eftir þann sigur í efsta sæti kvenna-
deildarinnar. - HÁ
Ekki tókst Blikastúlkum að ná til knattaríns hér þrátt fyrir góða tilburði og
Víkingar unnu leikinn 3-1. Timamvnii pjeiur.