Tíminn - 17.03.1988, Page 15
Fimmtudagur 17. mars 1988
Tíminn 15
BÓKMENNTIR
höfundur greinir á einum stað all-
rækilega frá tannskemmdum nokk-
urra nafngreindra Skálholtsbiskupa,
sem síst er til að lasta.
Hér hefur með öðrum orðum
verið þannig að verki staðið að
ritdómari getur í rauninni fátt eitt
fundið til þess að setja út á eða
gagnrýna. Verkið er vel unnið, að
sjálfsögðu innan marka þess efnis
sem það fjallar um, og ekki er að sjá
að neitt hafi verið til sparað af hendi
útgefanda til að gera það í alla staði
sem myndarlegast úr garði, jafnt að
því er varðar frágang allan og
myndaval.
Ef setja á út á eitthvað mætti þó
nefna að ekki hefði farið illa á að
tengja gömlu kirkjurústirnar í Skál-
holti eilítið betur við núttmann en
þarna er gert. Þetta hefði til dæmis
mátt gera með hlutum eins og upp-
dráttum eða teikningum inn á loft-
myndir, sem sýndu liklegar útlínur
gömlu kirknanna og afstöðu þeirra
til nýju kirkjunnar og annarra bygg-
inga sem nú eru þar á staðnum. Slíkt
hefði gert lesendum auðveldara en
ella að gera sér grein fyrir aðstæðum
öllum og hleypa ímyndunaraflinu af
stað til þess að átta sig á stærð gömlu
kirknanna samanborið við þá sem
núna er risin í Skálholti.
Líka má nefna hitt að skýrsla
norska fornleifafræðingsins um
kirkjugrunnana sker sig dálítið frá
öðru efni bókarinnar að því leyti að
hún er tæplega eins læsileg og skýr í
framsetningu og hinar. Sérstaða
þeirrar greinar er að þar er á ferðinni
hrein vísindaleg greinargerð, og á
Jón Steffensen prófessor.
köflum verður lesandi.að hafa sig
allan við til að hatda þar áttum.
En þetta síðast nefnda atriði verð-
ur svo raunar til þess eins að undir-
strika það enn frekar en ella hvílíkur
afburðarithöfundur Kristján Eldjárn
hefur í rauninni verið. Það fer síður
en svo alltaf saman að rhenn séu
glöggir vísindamenn og eigi jafn-
framt létt með að koma niðurstöðum
sínum þannig frá sér í riti að allur
almenningur geti lesið það efni sér
til gagns. Ritgerðir Kristjáns Eld-
járns hér sýna það enn eina ferðina
hve einstaklega vel honum hefur
látið að sameina þetta tvennt. Að
því er að gæta að hann er í þessari
bók að skrifa um hávísindalegt efni
og innan þröngra marka fornleifa-
fræðinnar. En eigi að síður er fram-
lag hans til bókarinnar allt með því
marki brennt að engum sæmilega
greindum lesanda á að þurfa að vera
það hin minnsta ofætlun að lesa það
efni hindrunarlaust og sér til fulls
gagns. Þar fer í rauninni saman
fræðileg nákvæmni og listræn fram-
setning af bestu gerð.
Nú má vissulega segja að þessir
hæfileikar Kristjáns Eldjárns hafi
ekki verið ókunnir þeim mikla fjölda
fólks sem lesið hefur önnur rit hans
um einstök svið íslenskrar fornleifa-
fræði frá fyrri árum. Hann skrifaði
margar bækur fyrir almenning um
þau efni, og allar einkenndust þær af
þessum sama skýrleika og alþýðleika
í framsetningu á strangvísindalegum
efnum. En það eru eigi að síður, að
því er ég best fæ séð, þessir rithöf-
undarhæfileikar Kristjáns Eldjárns
sem lengst draga í því að gera
bókina um rannsóknirnar í Skálholti
að því áhugaverða og læsilcga verki
sem hún er. Persónulegt framlag
hans til hennar veldur því að hún er
miklu meira heldur cn ein saman
þurr og fræðileg skýrsla um forn-
leifarannsóknir. Þvert á móti leiðir
bókin lesandann beint inn í löngu
gengna tíð, gefur honum kost á að
litast þar um og kemur honum í
beina snertingu við þær kynslóðir
sem einu sinni lifðu í landi okkar. Af
þeim ástæðum er þessi nýja Skál-
holtsbók ekki aðeins staðgott fræði-
rit, heldur bókmenntaverk líka, og
það ekki af lakara taginu. -esig
llllllllllllllllllll MINNING llllllllillllllllllllllllilllllllilll 'i:'::::'
Þórður Loftsson
frá Bakka
Fæddur 31. maí 1906
Dáinn 10. mars 1988
Ekki kom mér það beint á óvart,
er ég heyrði í útvarpinu að Þórður
vinur minn frá Bakka í Austur-
Landeyjum væri allur. Ég kom til
hans í fyrravetur í íbúð hans í
Hátúni 10. Var þá mjög af honum
dregið. Hniginn er í valinn aldraður
maður, þrotinn að heilsu og
kröftum. Er þá ekki hvíldin kær-
komin?
Þórður fæddist að Bakka í Austur-
Landeyjum hinn 31. maí árið 1906.
Ný öld var nýlega hafin, vorhugur
var í þjóðinni. Var sem þjóðin væri
að vakna af aldalöngum svefni.
Foreldrar Þórðar bjuggu lengi að
Bakka, en þau voru Loftur Þórðar-
son og Kristín Sigurðardóttir. Ijós-
móðir um langa hríð í sveit sinni.
Þórður ólst upp í stórum systkina-
hópi. Hann fór að vinna ungur
heima við búskapinn og var foreldr-
um sínum stoð og stytta allt til þess
tíma að hann fluttist að Hellu ásamt
þeim. Þar dvöldu gömlu hjónin hjá
Þórði og Birni, sonum sínum, til
dauðadags. Lofturlést22. nóvember
1954, en Kristín dó 7. maí 1957.
Hann varð 87 ára, en hún tæplega 83
ára. Skelfing er mannsævin í raun og
vcru stutt og starfsárin fá.
Þórður leitaði sér menntunar í
æsku. Gekk hann í Flensborgarskól-
ann og lauk þaðan gagnfræðaprófi
árið 1924, 18 ára. Minntist hann oft
á skólaveruna við mig, er við störf-
uðum saman um skeið. Hann minnt-
ist kennaranna ekki síst síra Þorvald-
ar Jakobssonar, Bjarna Bjarnason-
ar, síðar skólastjóra á Laugarvatni
og Sigurðar Guðjónssonar, er oft
var nefndur Siggi lærer, en hann
kenndi dönsku. Einn af bekkjar-
bræðrum Þórðar í Flensborg var
Sigurður Ágústsson í Birtingarholti,
með þeim yngstu ef ekki yngstur í
þeim hópi.
Ekki átti það fyrir Þórði að liggja
að ganga langskólaveginn, enda
vafalítið illfært þá fyrir bóndason.
Hann fór heim og vann á búinu.
Eins og kunnugt er hafa margir
stundað kennslu bama, þótt ekki
hafi þeir aflað sér sérmenntunar til
þess starfs, og margir reynst vel á
þeim vettvangi. Sá sem kenndi mér
lengst í barnaskóla var gagnfræðing-
ur frá Akureyri, Sigurjón Jóhanns-
son. Ekki var hann talinn neitt
slakur kennari, þótt prófskírteinið
frá Kennaraskólanum vantaði.
Þórður tók að stunda barna-
kennslu í heimasveit sinni, er hann
var um fertugt. Stundaði hann það
starf í tvo vetur. Síðar gerðist hann
kennari við Barnaskólann á Hellu,
sem þá var nýstofnaður. Var hann
þar skólastjóri þar til réttindamaður
í greininni birtist. Þá var Þórði
mínum vikið til hliðar. Svo var það
haustið 1964, að ég leitaði til Þórðar
að gerast almennur kennari við
Barnaskólann í Þykkvabæ, sem ég
hafði þá forsjá fyrir. Hann varð vel
við bón minni, held jafnvel að hon-
um hafi þótt vænt um traust það er
ég bar til hans; að gerast kennari við
skóla í nágrenni við heimili sitt.
Kennarastarfið er vandasamt og oft
vanþakkað, en býður upp á fjöl-
breytni. Engir tveir dagar í kennslu
eru alveg eins. Þórður var orðinn
roskinn, þegar þetta var, en hafði
talsvert vinnuþrek, og meira en
búast mátti við. Hann hafði nefni-
lega tekið lungnaberkla og verið
höggvinn, til að hægt væri að komast
að meinsemdinni og að fjarlægja
hana. Verkið vann hinn þjóðkunni
skurðlæknir Guðmundur Karl Pét-
ursson. Síðan mátti Þórður heita
vinnufær, þar til fáum árum fyrir
dauða sinn.
Hvað má segja um kennslu
Þórðar? Hann var samviskusamur.
Fór sínar eigin leiðir. Lagði áherslu
á það í reikningskennslunni að pota
hverjum og einum áfram eftir getu.
Töfluna notaði h;inn í hófi. Sögur
sagði hann krökkununi oft, enda var
hann vel lesinn. Mesta yndi hans
var bóklestur. Ég held nú að kennsl-
an hafi aldrei verið honum neitt
kjörfag, en þar var hann trúr, líkt og
við önnur störf sem hann lagði hönd
að. Þórður stundaði smíðar lengi hjá
Kaupfélaginu Þór á Hellu. Hann var
hagur í höndunt. Faðir hans var
smiður góður og átti margt verkfæra
til þeirrar iðju. Smíðar kenndi Þórð-
ur í skólanum í Þykkvabæ, en þar
kenndi hann með mér í tvö skólaár.
Hjá okkur hjónum var hann í fæði
og húsnæði. Þægilegur maður var
Þórður í viðræðu. Þekkti fjölda
fólks og var minnugur. Orðaforði
hans var nokkuð sérstæður. Lýsing-
arorðið drengilegur var í munni
hans sterkt. Hann var sjálfur dreng-
ur góður, heiðarlegur, alveg fram í
fingurgóma. Slíkra manna er gott að
minnast. Heyrst hcfur, að þeim fari
fækkandi. Er illt, af satt reynist.
Þórður var einhleypur maður fram
að fimmtugu. Þá kynntist hann konu
frá Patreksfirði, Matthildi Jóhannes-
dóttur að nafni. Reyndist hún hon-
um mjög hlý og dugleg eiginkona.
Eigi varð þeim barna auðið. Matt-
hildur var myndarleg í sjón og
alúðleg í framkomu. Frá Hellu flutt-
ust þau til Reykjavíkur og eignuðust
notalega íbúð í Hlíðunum. Þarkom-
um við hjónin til þeirra. Þar dundaði
Þórður við smíðar í litlu herbergi
undir risi og hafði yndi af. Síðast
bjuggu þau Þórður og Matthildur í
Hátúni 10. Er útsýni þaðan stórfeng-
legt. Er þau bjuggu þarna, andaðist
Matthildur. Eftir það bjó Þórður
einn í íbúðinni, sem í raun var þá
orðin of stór. Fá ár urðu á milli
þeirra. Þórður verður lagður til
hinstu hvíldar við hlið Matthildar í
Gufuneskirkjugarði. Hvíli hann í
friði, blessaður karlinn. Minningin
lifir. Þessum fátæklegu kveðjuorð-
um fylgir einlæg samúðarkveðja frá
okkur hjónum, til ættingja hans.
Auðunn Braei Sveinssnn.
Rabbfundir LFK í kjördæmum
Landssamband framsóknarkvenna gengst fyrir rabbfundum í kjör-
dæmunum í samvinnu við konur á hverjum stað. Fundir verða sem
hér segir.
VESTFIRÐIR:
(safjörður, föstudag-
inn 18.3. kl. 20.30.
Önundarfjörður, laug-
ardaginn 19.3. kl.
13.00.
Bolungarvik, laugar-
daginn 19.3. kl. 16.00.
Biskupstungum.mið-
vikudaginn 23.03. kl.
Unnur Magdalena
Allar velkomnar.
Borgnesingar - nærsveitir
Spilum félagsvist í Samkomuhúsinu Borgarnesi föstudaginn 18. mars
n.k. kl. 20.30. Síðasta kvöldið I 3ja kvölda keppni. Góð verðlaun.
Mætum vet og stundvíslega.
Framsóknarfélag Borgarness
Fundur með öldruðum og
heilbrigðisráðherra
19. mars n.k. á Hótel Lind. ^
Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra flytur ávarp. Baldvin
Halldórsson upplestur
Baldvin
Fólki gefst kostur á að bera fram
ALLIR VELKOMNIR.
spurningar.
Guðmundur
Fulltrúaráð framsóknarfélaganna í Reykjavík
Húnvetningar
Guðni Valgarður
Almennur fundur um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga verður
haldinn á Hótel Blönduósi fimmtudaginn 24. mars n.k. kl. 20.30.
Frummælendur verða Guðni Ágústsson alþingismaður og Valgarður
Hilmarsson oddviti.
Allt áhugafólk um framtið landsbyggðarinnar hvatt til að koma.
Framsóknarfélag Austur-Húnvetninga
Inga Þyrí
91-641714
Arndís
99-6396
Dagbjört
93-86665
Norrænt kvennaþing
Norrænt kvennaþing verður haldið í Osló 31. júlí - 7. ágúst n.k. að
tilstuðlan ráðherranefndar Norðurlandaráðs.
LFK mun í samvinnu við miðflokkakonur á Norðurlöndunum standa
fyrir verkefni er nefnist KONUR OG STÖRF í DREIFBÝLI:
Undirbúningshópur LFK hefur tekið til starfa og eru þær sem hafa
áhuga á að taka þátt í undirbúningi og/eða koma með okkur á þingið
í Osló þeðnar um að hafa samband sem fyrst við Margréti í síma
91-24480 kl. 9-12 eða einhverja úr undirbúningshópnum.
LFK