Tíminn - 17.03.1988, Qupperneq 20
ir
qg yfirdráttur
á téKKareiKningum
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Auglýsingadeild hannar
auglýsinguna fyrir þig
Ökeypis þjónusta
STRUMPARNIR
086300 Tíminn
Tíminn
Enginn gámafiskur til Þýskalands:
Verðfall gæti leitttil
samningsbrots við EB
Utanríkisráðuneytið ákvað í
gær að banna allan gámaútflutn-
ing á kældum eða frystum fiski til
V-Þýskalands, til að koma í veg
fyrir hugsanlegt verðfall, líkt og
var uppi á teningnum í fyrra.
Ákvörðunin var tekin, þar sem
allar líkur benda til að offramboð
verði á ferskum fiski í Þýskalandi
á næstu vikum og verðið falli
niður fyrir gildandi viðmiðunar-
verð bandalagsins. Með því
myndu íslendingar rjúfa samning
við bandalagið og missa tolla-
ívilnanir, en fiskurinn er nú toll-
lagður um 2% í stað leyfilegra
15%.
Bundnir bókun
við bandalagið
„Það var haldinn fundur með
ýmsum hagsmunaaðilum og aðil-
um úr sjávarútvegsráðuneytinu,
út af ótta við að alltof mikið
framboð, sérstaklega á Þýska-
landsmarkaði. Við erum bundnir
samkvæmt okkar bókun við
Efnahagsbandalagið að selja ekki
fisk undir ákveðnu lágmarksverði
og þeir sem best þekkja töldu
alveg ljóst að verð myndi falla
undir þetta lágmarksverð. Það
hefur gert það fyrr, og sumir
segja að það sé farið í kringum
það á ýmsan máta, auk þess
sýnist okkur að engum sé í raun
greiði gerður með því að fara
með fiskinn út og selja hann á svo
lágu verði,“ sagði Steingrímur
Hermannsson, utanríkisráðherra
í samtali við Tímann í gær.
Hann sagði að þessi ákvörðun
hefði verið tekin til að standa við
samkomulagið við Efnahags-
bandalagið og jafnframt að koma
í veg fyrir verðfall.
Tengsl við saitfisktoll
„Það er nú kannski ekki beint
hægt að segja að þessi ákvörðun
tengist ákvörðun þeirra að setja
20% toll á saltfiskinn. Ýmsir
halda því samt fram að það sé
stefna hjá bandalaginu að knýja
inn sem mest af óunninni vöru og
þess vegna tolli þeir unna vöru,
en það má þá benda á að þeir
hafa sjálfir sett lágmarksverð á
það sem kemur inn. Þeir virðast
i því ekki vilja fá inn ferskan fisk
langt undir eðlilegu markaðs-
verði,“ sagði Steingrímur.
Kristján Ragnarsson, formað-
ur LÍÚ, sagði í samtali við Tím-
ann í gær, að ákvörðunin hefði
verið nauðsynleg, enda ættu ís-
lendingar mikið undir samningn-
um og því styddi LÍÚ þessa
ákvörðun. Hann benti á að vikan
eftir páska í fyrra hefði verið
afleit og verðhrun átt sér stað.
Blikurá
Bretlandsmarkaði
„ Við stöndum frammi fyrir því
að fimm skip fara til Þýskalands
í næstu viku, fjögur í þeirri þar
næstu og það fara gámar frá
iandinu núna, sem koma sem
hrein viðbót á þetta. Síðan verður
stopp. Þessi ákvörðun hefurverið
rædd við hagsmunaaðila og um
það var enginn ágreiningur. Þetta
er ekki langur tími, rétt um þrjár
vikur og síðan munu menn sjá
til,“ sagði Kristján.
Hann sagði að ástandið væri
óvenjugott á Bretlandi um þessar
mundir, t.d. hefði verðið verið
ótrúlega gott í janúar og febrúar
þrátt fyrir mikið framboð. Hann
sagði hins vegar blikur á lofti þar,
vegna góðra aflabragða í Norður-
sjó, sjálfskapaðra atburða hér
heima sem komi fram í auknum
gámaútflutningi.
„Það er mjög vafasamt, svo
ekki sé meira sagt, að selja þorsk
fyrir 53 - 54 krónur. Það er alltof
lágt verð miðað við það sem við
gætum fengið," sagði Kristján.
Óskar Vigfússon, formaður
Sjómannasambands íslands,
sagði að þessi ákvörðun gæti
farið í báðar áttir fyrir hans
menn.
Réttfyrirkauptryggingu .|
„En miðað við þetta afbrigði-
lega ástand sem nú er fyrir hendi
hér á landi, varðandi vinnslu og
þennan eðlilega útflutning á
gámum, þá er ég þeirrar skoðun-
ar að eitthvað hefði þurft að gera.
Hvort að það sé rétt að skrúfa
algerlega fy rir þetta, er hins vegar
mál sem ég er ekki alveg búinn
að gera upp við mig,“ sagði
Óskar.
Hann sagði að út af fyrir sig
væri mikil áhætta fyrir hans fólk
að standa að flutningi á verðmæti
sínu til erlendra markaða og sjá
ekki nema lágmarksverð koma út
úr því, sem gæfi því lítið í aðra
hönd, nema kauptryggingu. Ósk-
ar sagði einnig að þeir hefðu lengi
óskað eftir einhvers konar stýr-
i ingu á gámaútflutningi, og út-
vegsmenn hefðu verið sammála
. því. -SÓL
Sameinuð kaupfélög Sunnlendinga:
A viðræðustigi
Viðræður um sameiningu kaup-
félaganna í Árnessýslu, Rangár-
vallasýslu, V-Skaftafellssýslu og í
Vestmannaeyjum eru skammt á
veg komnar. Svo gæti þó farið að
tekið verði upp nánara samstarf
um ákveðna þætti í rekstri féiag-
anna strax á þessu ári, eða jafnvel
að ákveðnir þættir yrðu sameinað-
ir. Þegar er búið að halda tvo
formlega fundi um málið og búið
er að skipa nefnd þar sem í eiga
sæti tveir fulltrúar frá hverju kaup-
féiagi, kaupfélagsstjóriogstjórnar-
maður. Talið er að endanleg sam-
eining félaganna verði ekki að
raunveruleika fyrr en í fyrsta lagi á
næsta ári eða síðar. Ekki er talið
líklegt að tvö kaupfélög sameinist
sérstaklega án tillits til hinna.
Rekstrarþættirnir sem talað er um
eru flutningar, verkstæðisvinna og
ýmsir aðrir þjónustuþættir. Þó er
ljóst að þessir þættir eru nokkuð
bundnir við samstarf félaganna á
landi.
„Eins og staðan er núna, er
engan veginn séð að þetta verði
samþykkt, en þetta er lítið komið
af stað,“ sagði Sigurður Kristjáns-
son kaupfélagsstjóri á Selfossi
vegna frétta Tímans af sameining-
arviðræðum sunnlenskra kaup-
félaga. Sagði hann að það væri
nokkuð ljóst að af þessum áform-
um verði ekki á þessu ári þó að
verið gæti að kaupfélög þessi tækju
upp frekara samstarf en verið
hefur. Benti hann á að Kaupfélög
Árnesinga, Rangæinga og Skaft-
fellinga stæðu saman að rekstri
húsgagnasmiðju og sölu þeirra hús-
gagna í fyrirtækinu 3K. Það væri
dæmi um hvernig gott samstarf
hefði náð að þróast á nokkrum
árum. Sagðist Sigurður halda að
verið gæti að öll kaupfélögin fjögur
á Suðurlandi, að Vestmannaeyjum
meðtöldum, þróuðu frekar með
sér samstarf og samruna á ýmsum
þáttum rekstrar og viðskipta.
Sigurður Kristjánsson sagði að
gangur mála í þessum viðræðum
hafi verið á þá leið að stjórnir
þessara fjögurra kaupfélaga hefðu
tilnefnt tvo menn hver í sérstaka
nefnd til að ræða möguleika á
frekara samstarfi eða jafnvel sam-
einingu. Taldi Sigurður að ekkert
kæmi stórt út úr þessu máli fyrr en
eftir næstu stjórnarfundi félaganna
í kringum páska. Þá er gert ráð
fyrir því að nefndin hafi komist að
einhverri niðurstöðu sem verði
lögð fram í hverri stjórn fyrir sig.
Full alvara í nefndinni
„Miðað er við að haldinn verði
fundur aftur fljótlega í þessari
sérstöku nefnd fyrir páska og verið
getur að þá muni línurnar eitthvað
skýrast," sagði Guðmundur Búa-
son, kaupfélagsstjóri í Vestmanna-
eyjum. Sagði Guðmundur að
stjórn kaupfélagsins í Eyjum hefði
orðið sammála um að eiga þátt í
þessum sameiningarviðræðum og
sæktu þessa fundi af fullri alvöru.
Sameining af þessu tagi væri í fullu
samræmi við þá þróun sem væri að
eiga sér stað í þjóðfélaginu og
viðskiptaháttum okkar um þessar
mundir.
Ágúst Ingi Ólafsson, aðstoðar-
kaupfélagsstjóri Rangæinga, sagði
eins og aðrir að málið væri lítið
komið af stað og ekki hafi verið
haldnir nema tveir fundir. Fyrsti
formlegi fundurinn var fyrst núna
s.l. mánudag. „Það liggur ekkert
fyrir hjá okkur ennþá um að það
komi til greina að sameina þessi i
félög í eitt,“ sagði Ágúst Ingi.
Sagði hann að allar þessar viðræður
væru innan stjórnanna og á milli
þeirra. KB
Sri Chinmoy, hinn heirasfrægi indversld hugleiðslumeistari, heimsótti frú
Vigdisi Finnbogadóttur, forseta íslands, í gær og söng hann fyrir forsetann
lag, sem hann samdi um ísland. Chinmoy hélt tónleika í Háskólabíói í
gærkveldi, en hann er einnig Ijóðskáld, rithöfundur, tónskáld og málari, svo
fátt eitt sé nefnt. Chinmoy hitti einnig biskup íslands, hr. Pétur Sigurgeirsson
á meðan á dvöl hans hér stóð. Chinmoy heldur aftur áleiðis til New York í dag.