Tíminn - 20.04.1988, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 20. apríl 1988
Tíminn 3
Niðurstaða fundar um gámaútflutning:
Fiskur skammtaður
á erlenda markaði
„Niðurstaða fundarins varð sú
að menn munu halda áfram á sömu
braut og reynd var á Þýskalands-
markaðinum, það er að segja að
grípa til tímabundinna stöðvana,"
sagði Halldór Ásgrímsson, sjávar-
útvegsráðherra í samtali við Tím-
ann í gær, um fund þann er haldinn
var í gærmorgun um ástandið í
gámaútflutningi fisks til Bretlands
og Þýskalands.
Fundarmenn, sem voru ráð-
herra, Árni Kolbeinsson ráðuneyt-
isstjóri, Kristján Skarphéðinsson
deiídarstjóri, fulltrúar úr utanríkis-
ráðuneytinu og Fiskifélagi íslands,
ásamt hagsmunaaðilum í sjávarút-
vegi, voru sammála um að reyna
þessa leið og mun sjávarútvegsráð-
herra skipa á næstunni starfshóp,
sem taka mun til starfa á næstunni.
Sá hópur verður til ráðuneytis um
stöðvanirnar.
„Þegar sá hópur hefur tekið til
starfa og fjallað um stöðuna, þá
munu verða teknar ákvarðanir um
þessar stöðvanir, en ætlunin er að
hann starfi reglulega," sagði
Halldór.
„Jú, þetta var rætt og ákveðið að
kanna málið betur og sjá hvað
hægt er að gera til að koma í veg
fyrir að svona hlutir gerist aftur.
Þetta hefur hins vegar allt leitað
jafnvægis á ný og meðalverð á
þorskkílói í síðustu viku var komið
upp í 96 sent, sem er hátt í 70
krónur. Það er svipað og við höfum
verið að fá fyrstu þrjá mánuðina,
sem er hærra en við fengum í fyrra.
Fiskvinnslumenn geta því ekki sagt
að þetta fari í fiskvinnslu og skapi
möguleika til undirboðs þegar að
það er tvisvar sinnum meira en við
fáum fyrir þetta hér heima,“ sagði
Kristján Ragnarsson, formaður
LÍÚ, í samtali við Tímann.
Ekki er enn búið að ákveða
hverjir verða í starfshópnum.
Landið liggur því þannig að
gripið verður til skömmtunar á
útflutningi á ferskum fiski, þannig
að framboðið verði ekki meira en
eftirspurnin. -SÓL
Nýibær á Eiðistorgi. Timamynd Þorgcir
Erfiðleikar í rekstri Sláturfélagsverslunar á Eiðistorgi:
Hagkaup í viðræðum
um kaup á Nýjabæ
Steinþór Skúlason hefur verið
ráðinn forstjóri Sláturfélags Suður-
lands í stað Jóns H. Bergs, sem
setið hefur á forstjórastóli félagsins
frá 1. janúar 1959, eða um tæpra
30 ára skeið. Steinþór starfaði áður
sem framleiðslustjóri fyrirtækisins.
Ákvörðun um forstjóraskiptin
var tekin á stjómarfundi Sláturfé-
lagsins í fyrradag og er rökstudd
svo að skoðanaágreiningur hafi
verið uppi með fráfarandi forstjóra
og stjórn SS. Páll Lýðsson, stjórn-
arformaður Sláturfélags Suður-
lands, greindi Tímanum frá því í
gær að ráðningu nýs forstjóra Slát-
urfélagsins mætti tengja áherslu-
breytingu í starfi félagsins. Þá
breytingu myndi hann og aðrir
stjórnarmenn SS útskýra á aðal-
fundi félagsins sem verður á Hvols-
velli eftir tæpa viku, fimmtudaginn
28. apríl. Að öðru leyti vildi Páll
ekki ræða ástæður þess að Jón H.
Bergs lætur nú af störfum. „Ég vil
einungis segja það að Jón H. Bergs
er að mínu mati mjög mætur
maður,“ sagði Páll.
Tíminn hefur fyrir því traustar
heimildir að forstjóraskipti Slátur-
félagsins séu beint tengd erfiðleik-
um í rekstri Sláturfélagsins að
undanförnu. Einkum séu þessir
erfiðleikar miklir í matvöruverslun
félagsins á höfuðborgarsvæðinu. í
raun kemur þetta ekki á óvart, því
vitað er um miklar þrengingar um
þessar mundir hjá mörgum mat-
vöruverslunum á höfuðborgar-
svæðinu. Ljóst er að vegna aukinn-
ar samkeppni á þessum markaði
lenda einhver fyrirtæki illa úti í
kuldanum.
Öraggar heimildir Tímans
herma að verslun Sláturfélagsins í
Nýjabæ á Eiðistorgi sé rekin með
miklum halla. Af þeim sökum leita
þeir Sláturfélagsmenn fyrir sér með
sölu á henni. Að undanförnu hafa
verið og eru í gangi viðræður við
Hagkaupsmenn um kaup á versl-
uninni. Það er næsta víst að Hag-
kaupsmenn muni taka ákvörðun á
Steinþór Skúlason.
næstu dögum um hvort af þessum
kaupum verður, en á þessari
stundu er, samkvæmt heimildum
Tímans, ekki talið líklegt að Hag-
kaup teygi einnig anga sína út á
Eiðistorg. Ástæðan sé einfaldlega
sú að Hagkaup hafi „nóg með sitt“,
eins og einn viðmælandi Tímans
orðaði það í gær. Þarna er átt við
að vegna gífurlegra fjárfestinga á
síðustu misserum, allra Kringlu-
milljónanna, sé ekki talið ráðlegt
að Hagkaup leggi að sinni út í
meiri fjárfestingar.
Páll Lýðsson, stjórnarformaður
Sláturfélagsins, vildi ekki staðfesta
að hugmyndir væru uppi um sölu á
eignum félagsins á Eiðistorgi. „Ég
ætla að ræða öll þessi mál á aðal-
fundi Sláturfélagsins í næstu viku.
Ég get ekki að svo stöddu svarað
neinum spurningum um áherslu-
breytingar hjá Sláturfélaginu. Full-
trúum á aðalfundi verða fyrst
kynntar þessar breytingar, en um
hana hafa stjórn og varastjórn
félagsins fundað að undanförnu,"
sagði Páll Lýðsson. óþh
Tillaga frá minnihluta í borgarráði:
42.000 króna
lágmarkslaun
Fulltrúar minnihlutans í borgar-
ráði Reykjavíkur lögðu fram tillögu
um kr. 42.000 lágmarkslaun á vegum
borgarinnar, á borgarráðsfundi í
gær. Magnús L. Sveinsson, forseti
borgarstjórnar, stýrði fundinum sem
formaður borgarráðs í fjarveru Da-
víðs Oddssonar. Afgreiðslu tillögu-
nnar var frestað.
Það voru þau Alfreð Þorsteinsson,
Sigurjón Pétursson, Ingibjörg Sólr-
ún Gísladóttir og Bjarni S. Magnús-
son sem fluttu tillöguna.
í henni segir m.a.: „í tilefni af
réttmætum yfirlýsingum forseta
borgarstjórnar um að ósæmilegt sé
að greiða fyrir fullan vinnudag laun
undir skattleysismörkum, samþykki
borgarráð eftirfarandi: Frá og með
1. maí nk. verði lágmarkslaun á
vegum Reykjavíkurborgar kr.
42.424,- miðað við mánaðarlega
dagvinnu. Núgildandi launaflokkar
með lægri krónutölu falli úr gildi frá
sama tíma.“
Á fundinum óskaði Alfreð Þor-
steinsson eftir því að eftirfarandi
yrði bókað. „f tilefni af ársskýrslu
Granda hf., sem nýlega var lögð
fram í borgarráði, og svörum við
fyrirspurn minni um stöðu fyrir-
tækisins, sýnist augljóst, að staða
þess sé ekki jafntraust og borgar-
stjóri og ýmsir aðrir hafa látið í veðri
vaka.“
Alfreð bendir á að Grandi hf. eigi
við vanda að etja eins og önnur
fiskvinnslufyrirtæki landsins. Til við-
bótar sé ljóst að fyrirtækið hafi ýtt úr
vör með allt of miklar skuldir á
herðunum. Heildarskuldir hækkuðu
um 67 milljónir króna á síðasta ári
og voru þá orðnar tæpar 1350
milljónir króna um síðustu áramót.
„Fyrirtæki, sem skulda of mikið
miðað við veltu og söluverðmæti
eigna, lenda oftast í óyfirstíganleg-
um erfiðleikum. Spurning er, hvort
nokkrar líkur séu til þess, að Grandi
hf. komist út úrþessari skuldasúpu."
Þar segir einnig að reikningar
fyrirtækisins sýni hagnað upp á 1,7
milljónir króna en í raun hafi tap
verið upp á 172 milljónir króna
þegar reiknaðar tekjur hafi verið
dregnar frá hagnaði. En reiknaðar
tekjur er ekki hægt að nota til að
greiða skuldir. JIH
Þorsteinn og
Reagan funda
Þorsteinn Pálsson, forsætisráð-
herra, hefur ákveðið að þiggja boð
Ronalds Reagan, Bandaríkjafor-
seta, um að koma í opinbera heim-
sókn til Bandaríkjanna.
Ákveðið hefur verið að fundur
þeirra verði 16. maí næst komandi.
Tilkynningin um fundinn var gefin
út samtímis hér og í Washington, en
Marlin Fitzwater, sagði að ekki væri
um hefðbundna opinbera heimsókn
að ræða, heldur væri um að ræða
opinberan vinnufund. -SÓL
Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra.