Tíminn - 20.04.1988, Blaðsíða 13

Tíminn - 20.04.1988, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 20. apríl 1988 Tíminn 13 Fimmtán dagar liðnir frá því kúvætsku farþega- þotunni var rænt: Ógn gíslanna heldur áfram Lyf til hægðateppu var krafa flugræningja kúvætsku farþega- þotunnar sem enn var á flugvell- inum í Alsír í gærmorgun, en þá rann upp fimmtándi dagurinn sem gíslarnir þrjátíu og einn sitja fastir í prísundinni. Hefur þetta ftugrán því staðið lengur en nokk- urt annað flugrán í sögunni. Eins og gefur að skilja er ástandið í þotunni orðið ógnvæn- legt eftir þetta langan tíma og eru menn mjög uggandi um sálarlíf farþeganna, auk þess sem líkam- legt ástand er eflaust orðið mjög alvarlegt. Engin merki voru um að úr fari að rætast og að gíslunum verði sleppt. Flugræningjarnir jafnt sem stjórnvöld í Kuwait standa hart á sínum hlut. Flugræningj- arnir segjast ekki sleppa gíslun- um fyrr en sautján föngum í Kuwait verður sleppt, en kúv- ætska stjórnin neitar því staðfast- lega. Knattspyrnulandslið Kúwait með bróður emírsins í Kuwait í fararbroddi hefur boðist til að ganga flugræningjunum á hönd í stað gíslanna sem í haldi eru. Ekki eru miklar líkur á að það verði samþykkt. Weizman for- dæmir morð- ið á Al-Wazir Ezer Weizmann sem sæti á í írsaelsku ríkisstjórninni for- dæmdi í gær morðárásina á æðsta herforingja PLO Al-Wazir. Weizmann sagði morðið heim- skulegt og myndi án efa kalla nýja öldu hryðjuverka yfir ísrael. Weizmann er hér á öndverðum meiði við Shamir forsætisráð- herra fsrael, en hann fagnaði mjög morðárásinni, eins og reyndar stór hluti ísraelsku þjóð- arinnar sem velkist ekki í vafa um að sérsveitir ísraelska hersins og ísraelsku leyniþjónustunnar hafi staðið að baki morðárásinni. Viðbrögð Frelsissamtaka Pale- stínu PLO undirstrika að ótti Weizmanns um aukin hryðjuverk er réttur. Þau segja að baráttunni verði haldið áfram af auknum krafti eftir morðið á Al-Wazir, sem jarðsettur verður í Damascus í Sýrlandi í dag. Þó Yassir Arafat verði ekki viðstaddur útför Al- Wazir í Sýrlandi, þá verður mjög háttsett sendinefnd PLO send til að taka þátt í athöfninni. Er það talinn nokkur tímamótaatburður þar sem PLO var úthýst úr Sýrl- andi árið 1983 eftir að leiðtogar hreyfingarinnar lentu upp á kant við sýrlensk yfirvöld. Morðtilræðið hefur verið ford- æmt víða um heim, þar á meðal fordæmdi Bandaríkjastjórn árás- ina, en Bandaríkjastjórn hafði verið ásökuð um að vera í vitorði með ísraelsmönnum í tilræðinu. Sten Andersson utanríkisráð- herra Svía sagði í gær að Svíar kynnu að sniðganga hátíðarhöld sem haldin eru í tilefni af því að fjörutíu ár eru liðin frá stofnun Israelsríkis vegna framkomu ísraela. UMSJÓN: Hallur Magnússon BLAÐAMAÐU TILKYNNING FRÁ VERZLUNARMANNA- FÉLAGI REYKJAVÍKUR Verslunar- og skrifstofufólk, sýnum samstöðu í komandi verkfalli, sem hefst á miðnætti aðfaranótt föstudagsins 22. apríl. Mætið því til verkfallsvörslu á föstudags- morguninn, í Húsi verslunarinnar, 9. hæð. Hringið í síma 687100 og látið skrá ykkur til verkfallsvörslu. Mikilvægt er að algjör samstaða ríki í þessum aðgerðum. Stöndum saman í kjarabaráttunni. Síminn er 687100. VERZLUNARMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR VERKFALLSSTJÓRN. VÖRUMERKI VANDLÁTRA NÆRFATNAÐUR NÁTTFATN AÐU R CALIDA Heildsölubirgðir: Þórsgata 14 - sími 24477 Frá menntamálaráðuneytinu Lausar stöður við framhaldsskóla Við Menntaskólann að Laugarvatni eru lausar kennarastöður í eftirtöldum greinum: í stærðfræði og tölvufræði ein staða, eðlisfræði og stjörnufræði ein staða, í frönsku og dönsku um það 1/2 staða í hvorri grein. Einnig vantar þýskukennara og er þar um að ræða ráðningu til eins árs frá 1. ágúst 1988 að telja. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir 15. maí næstkomandi. Menntamálaráðuneytið. _______ LANDI, ATHUGIÐ SÝNUM EFTIRTALIN TÆKI HJÁ BÍLASÖLU VESTURLANDS, BORGARNESI, föstudaginn 22/4 frá kl. 13-18 og laugardaginn 23/4 frá kl. 10-16: BÆNDUR VESTUR- FIAT 80-90 DT 80 HÖ 4WD ZETOR 7745 70 HÖ MEÐ ÞRÍTENGIBEISLI OG AFLÚR- TAKI AÐ FRAMAN NÝTT FRÁ ZETOR ZETOR 7745 70 HÖ MEÐ ALÖ OUICKE 3301 ÁMOKST- URSTÆKI TVÍVIRK M/185 CM SKÓFLU ZETOR 6211 59 HÖ NÝ STÆRÐ STRAUTMANN VITESSE 1 DO FJÖLHNÍFAVAGN 38 M3 MEÐ BESTA BÚNAÐI NEW HOLLAND 940 HEYBINDIVÉL NÝ STÆRÐ FELLA 310 STJÖRNUMÚGAVÉL FELLA KM 192 KC SLÁTTUÞYRLA KVERNELAND MZ PLÓGUR 3x14" MEÐ LANDHJÓLI UMBOÐSMENN: VÉLABÆR H.F. BÆ, ANDAKÍLSHREPPISÍMI: 93-51252 ÓLAFUR GUÐMUNDSSON HROSSHOLTI SÍMI: 93-56622 G/obuse Lágmúla 5 Reykjavík Sími 681555

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.