Tíminn - 20.04.1988, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 20. apríl 1988
Tíminn 7
Kaffibaunamálið tekur nýja stefnu eftir ferilgreiningu Guðmundar Einarssonar verkfræðings:
Ekki umboðsviðskipti
Hér á eftir fer samantekt á helstu nidurstöðum Guðmundar
Einarssonar verkfræðings úr ferilgreiningu viðskipta SÍS og Kaffi-
brennslu Akureyrar. Guðmundur var fenginn til að vinna þetta verk
að frumkvæði Guðjóns B. Ólafssonar og Vals Arnþórssonar í kjölfar
dómsniðurstöðu Sakadóms Reykjavíkur fyrir rúmu ári. Markmiðið
var að fá fram svar við grundvallarspurningunni: Ef viðskiptin voru
ólögleg, hvernig átti þá að standa að þeim? Flest virðist nú benda
til að viðskiptin hafi ekki veriö ólögleg og RLR, ákæruvaldið og
Sakadómur ekki skilið eðli þessara viðskipta.
Til að vinna þetta verk varð fyrir
valinu Guðmundur Einarsson,
verkfræðingur, sem hefur yfir 35 ára
starfsreynslu í milliríkjaviðskiptum,
samningagerð og framkvæmdum.
Hann tók sér stöðu framkvæmda-
stjóra við hrákaffikaup, án þess að
að kynna sér ákæru og dómsniður-
stöður umfram upplýsingar fjöl-
miðla. Rannsóknaraðferðin sem
beitt var, er ferilgreining (Operation
Research) allra athafna og skjala
tengdum hrákaffikaupum á árunum
1979-1981 og einnig innkaupum fyr-
ir og eftir þetta tímabil.
Þar sem viðskipti af þessu tagi fara
fyrst og fremst fram á enskri tungu
var leitast við að túlka og skýra öll
þau orð og hugtök sem skipta máli.
Þá voru höfð viðtöl við um 40 aðila
sem hafa þekkingu og skoðanir á
þessum málum, umsagnar leitað hjá
Ríkisendurskoðun, Gjaldeyriseftir-
liti Seðlabankans, Tollstjóra, Laga-
deild Háskóla Islands, Viðskipta-
deild Háskóla íslands og Verslunar-
ráði íslands.
Ákæran
Ákært var fyrir fjársvik, skjalafals
og gjaldeyrislagabrot og Sakadómur
Reykjavíkur dæmir að um fjársvik
hafi verið að ræða og gjaldeyrislaga-
brot, sýknar af ákæru um skjalafals
en dæmir á þeim grundvelli að beitt
hafi verið blekkingum með ranglega
tilgreindum upplýsingum í reikning-
um.
Dómurinn er byggður á þeim
grundvelli, að Sambandið hafi ann-
ast umboðsviðskipti fyrir Kaffi-
brennslu Akureyrar. Dómurinn
taldi að KA hafi borið allur sá
afsláttur sem veittur var.
SÍSátti kaffið
Niðurstaða ferilgreiningarinnar er
hins vegar sú að eðli þessara við-
skipta hafi verið verslunarkaup, en
ekki umboðsviðskipti, en á þessu er
grundvallarmunur. SÍS er ótvírætt
eigandi hrákaffisins, frá 27 upp í 140
daga áður en KA kaupir það af SÍS,
sem hafði greitt það með eigin fé,
teknu að láni af SÍS skrifstofunni í
London. Samkvæmt því getur ekki
hafa verið um fjársvik að ræða.
Fjölmargt styður þessa niðurstöðu
og má m.a. nefna eftirfarandi:
1. Sambandið er eitt af eigendum
NAF - Norræna samvinnusam-
bandsins - og annar aðili, t.d.
KA, getur ekki keypt kaffi beint
af NAF vegna reglna þess. SÍS er
því aðili að samningum NAF við
hina erlendu hrákaffiseljendur og
kaupandi kaffisins og er það stað-
fest af öllum viðkomandi aðilum.
SÍS verður eigandi vörunnar við
gerð samnings og tekur við
ábyrgð á hrákaffinu við útskipun.
Það er merkt SÍS á farmskírtein-
um og SÍS greiðir seljanda vöruna
frá skrifstofu sinni í London.
2. Kaffibrennsla Akureyrar verður
fyrst eigandi vörunnar við sam-
þykkt á víxli og afhendingu hans
í Landsbanka fslands á Akureyri,
þ.e. við við tollskil. KA staðfestir
óbeint að ekki sé um umboðsvið-
skipti að ræða með því að neita
að greiða fyrir sendingu sem varð
fyrir tjóni í flutningum. SÍS hefur
því kaupandaábyrgð. KA er auk
þess óbundið af hrákaffikaupum
frá SÍS og leitaði tilboðs frá
öðrum innflytjanda? sem ekki
reyndist hagstæðara.
3. Umsögn Verslunarráðs íslands
varðandi þessi viðskipti er sú, að
ekki verði annað séð en að um
hrein verslunarkaup sé að ræða.
4. Umsögn Lagadeildar H.Í., Þor-
geirs Örlygssonar, prófessors, og
Jóns L. Arnalds, dósents, segir
m.a. að umsýslusamningur (ekki
umboðssamningur) sé í gildi milli
NAF og SÍS, þ.e. að NAF annist
kaupin fyrir reikning SÍS, sem
samkvæmt fyrirliggjandi gögnum
greiði erlendum seljendum. Virð-
ist SfS því vera eigandi farmsins
fyrir milligöngu NAF þegar við
útskipun í framleiðslulandinu.
Þegar farmurinn komi til landsins
virðist kaup gerast öðru sinni,
þ.e. millum SÍS og KA, og þegar
KA leysi farminn út úr tolli verði
það eigandi hans.
Sakadómur tekur það til staðfest-
ingar þess að um umboðsviðskipti
hafi verið að ræða, að KA greiðir
SÍS 1,5% umboðslaun. Skýringin á
því er einföld, nefnilega sú að þessi
umboðslaun komu til á árum áður,
þegar KA greiddi sjálf fyrir hrákaff-
ið. en því var breytt að beiðni KA.
Telja verður mistök að áfram skyldi
haldið að greiða þessi umboðslaun
eftir að eðli viðskiptanna breyttist í
það form að SÍS keypti hrákaffið og
endurseldi KA.
Tveir vörureikningar
í dómi Sakadóms Reykjavíkur er
mikil áhersla lögð á það að tveir
vörureikningar hafi verið gerðir
vegna hverrar sendingar hrákaffis.
Skyldi SÍS í London taka lán til
greiðslu lægri upphæðarinnar, en
vörureikningur með hærri upphæð
sendur KA til innheimtu. Þetta atriði
snertir það sem dómurinn kallar
„afslátt" vegna viðskiptanna, sem
SÍS hafi alfarið tekið sér.
Þessi svokallaði „afsláttur" er í
raun skilyrtar endurgreiðslur, eða
það sem kallað er á máli seljenda
hrákaffis „Avisos de Garantia". Til-
gangur þessara skilyrtu endur-
greiðslna er fyrst og fremst að binda
kaupandann til áframhaldandi
kaupa á hrákaffi, en þessar endur-
greiðslur fást því aðeins að um
áframhaldandi viðskipti sé að ræða,
þ.e. þær fást aðeins eftir á.
Vcrulega vantar á að skilningur
hafi verið nægur á þessu atriði sam-
kvæmt því sem fram kemur í dóms-
skjölum. Þar er t.d. ekki að finna
neina skýringu á 13 stafa lykli á
viðskiptaskjölum, sent skýrir upp-
runa endurgreiðslunnar hverju
sinni, og virtist raunar enginn hér-
lendur aðili hafa þær upplýsingar.
Að sumu lcyti eru skýringar á
þessu, þar sem bæði helstu viðskipta-
lönd SÍS um hrákaffikaup (Brasilía
og Columbía) viðhafa ákveðna
leynd í sambandi við framkvæmd
endurgreiðslna. Ástæður eru þær að
kaupendur njóta mismunandi við-
skiptakjara og þau eru breytileg eftir
uppskeru og öðru sem snertir sam-
keppnishæfni á mörkuðunum. Þá
eru orð og hugtök notuð í óvcnju-
legri mcrkingu, eins og sýnt er fram
á í ferilgreiningunni.
Skeytunum víxlað
Villandi áhrif þessa eru m.a. þau,
að Rannsóknarlögregla ríkisins víxl-
ar í tímaröð skeytum, annars vegar
tilboði NAF til SÍS og hins vegar
svari SfS við því tilboði, þannig að
svarskeyti SÍS lítur út sem fyrirmæli
til NAF um að hækka verð á ákveð-
inni hrákaffisendingu. NAF hefur
staðfest leiðréttingu varðandi tíma-
röð skeytanna, en vegna þessa fær
þessi ákveðna pöntun sérstaka mis-
skilda meðferð í málinu og skeytið
notað sem sönnun þess að „þetta
virðist gert í þeim tilgangi að dylja
KA hvert hið raunverulega verð
var" og að reikningar hafi verið
„hækkaðirsannanlega að beiðni SÍS,
að mati dómsins í blekkingarskyni
við KA" sem talið er brjóta gegn
158. gr. alm. hegningarlaga. Raunar
snertir þetta atriði málsins aðeins
eina pöntun af 30 í málinu. Síðan
eru dregnar ályktanir af þessari ntis-
túlkun rannsóknaraðila. Þá má geta
þess, að í samræmi við víxlun skeyt-
anna lætur Rannsóknarlögregla
ríkisins löggiltan skjalaþýðanda
þýða allt skeyti SfS, en aðeins eina
setningu í skeyti NAF.
Lokaorðin
Fengnar hafa verið umsagnir opin-
berra aðila varðandi tvenns konar
„vörureikninga" og niðurstaða þess
máls sú að annað er vörureikningur
en hitt er reikningsskilaskjal, til
komið eftir að skilyrt endurgreiðsla
hefur átt sér stað. Af fjórum sjálf-
stæðum umsögnum - tveimur frá
Ríkisendurskoðun, einni frá Gjald-
eyriseftirliti Seðlabankans og einni
frá tollstjóra - sem snerta þetta
atriði má draga þá ályktun að ekki
hafi verið unnt né heimilt að viðhafa
aðra aðferð en gert var.
JR
Botnveiðikerfi sem hentar við
ýmsar veiðiaðferðir.
Tröppuveiðikerfi.
Línan dregin inn í þrepum.
Smokkfiskikerfi.
Allur aukabúnaður fáanlegur.
Vindan getur talið í fetum,
metrum eða föðmum.
Skjárinn sýnir hvaða kerfi er
notkun.
FADMAR UTI 132
Bv Tr AUTO
FfiÐHAR UTI UEIÐI DVPI SKAK HflD START HLE
BU-KERFI BOTN HLE HfEÐ FR BOTN SKAK FJÖLDI
TR-KERFI TRÖPPU HfEÐ TRÖPPU HLE
SHOKK-KERFI DVPISMINKUN M0T0R TIMI M0T0R HLE
SF-KERFI SKAK FJÖLDI MINSTA DVPI
M0T0R-KERFI SKfiK HRfiÐI UEIDI HRAÐI SMOKK HRfiÐI
EXTRA NR. A HJ6LI LINU IVKKT TIMI A SKJA
HLE DVPTfiR HLE UEIÐI HLE UEIÐI HLE N
Skjár og kerfistafla
á íslensku
Mótorkerfi.
Stillanlegur skakhraði,
stillanlegur hraði upp.
Stillanlegt veiðidýpi.
Stillt inn ákveðið dýpi og
vindan fer og veiðir þar.
Juksa-Robot Unique tölvuvinda
sameinar marga góöa kosti
sem auövelda veiöarnar
M uksa-Robot Unique er ein fullkomnasta
B tölvuvinda sem fáanleg er I dag.
Afkastamikil og fjölhæf, búin
grunnkerfum s.s. botnveiðikerfi, tröppuveiðikerfi,
sjálfvirkt fiskileitunarkerfi og smokkfiskkerfi.
Stillanleg veiöiþyngd, stillanlegt átak. Af lóðréttu
stjórnborði vindunnar er auðvelt að stjórna
veiöikerfunum. Tölvuskjár sýnir upplýsingar um
hvað er mikiö úti af llnu og gefur til kynna þegar
fiskur er á og hvar hann tók. Vindan gefur
hljóðmerki I hálfa mln. þegar veiðiþyngd er náö
og aftur þegar hún er komin upp. Þótt slökkt sé á
Juksa-Robot vindunni, geymir hún allar innsettar
skipanir og er tilbúin að vinna eftir þeim þegar
kveikt er á henni. En ofan á alla þessa kosti er
Juksa-Robot Unique tölvuvindan létt I meöförum,
ódýr í viðhaldi og sparneytin.
Með vindunum fylgja allar festingar, rofi með
öryggi, hlífðarpoki og notendahandbók á
íslensku.
Greiðslukjör eða kaupleiga til 3ja ára.
Þjónustuaðilar um land allt.
JUKSA-ROBOT UNIQUE
tryggir góöan hlut
Öll rafmagnsþjónusta fyrirsmábátaeigendur:
Viðgerðir - Raflagnaefni
Raflagnir-Töflur
Alternatorar - Rafgeymar o.fl.
RAFVÉLAVERKS
SÚÐARVOGI 4 £