Tíminn - 20.04.1988, Síða 4
4 Tíminn
Miövikudagur 20. apríl 1988
Tvær vélar lentu í smávægilegum vandræðum með stuttu millibili á
Reykjavíkurflugvelli á sunnudag. Engin slys urðu. Efri vélin, TF-TEE, er sú
íslenska, neðri SÚ þýska. (Tímamyndir: Pjetur)
Flugmenn í
vandræðum
Reyndur llugmaður lítillar, cins
hrcyfils Cessna llugvclar, TF-TEE,
varð smcykur á flugi yfir Sandskciði
unr sexleytið á sunnudag. Var þá
gangur hreyfilsins orðinn grófur og
hann fór að litast um eftir lendingar-
svæði, ef hann þyrfti að nauðlcnda.
Flugbrautin á Sandskeiði var
snævi þakin og honum lcist ekki á að
lcnda þar af ótta við að flugvélin
snerist við í lendingu. Þá var mikil
umferð um Suðurlandsvcg og ekki á
það hættandi að lenda þar.
Vandræðalaust gekk þó að fljúga
vélinni til Reykjavíkurogekki þurfti
að nauðlenda. Ólíklegt þykir að
ísing hafi valdið gangtruflunum. Það
hefur ekki enn verið rannsakað sök-
um anna, en talið cr að um bilun í
hreyfli sé að ræða.
Skömmu eftir að TF-TEE lenti
klukkan 18:23 tilkynnti þýskur flug-
maður á eins hreyfils Bcechcraft
flugvél að hann væri að koma inn til
lendingar í Reykjavík og væri rúða
hjá honum brotin. Til öryggis voru
slökkvibíll og sjúkrabíll rciðubúnir
til aðstoðar við flugbrautina, þegar
vélin lenti, en þcirra gcrðist ekki
þörf. þj
Frá menntamálaráðuneytinu
Staða bókavarðar við Stýrimannaskólann í
Reykjavík og Vélskóla íslands er laus til um-
sóknar.
Starfið felst í skipulagningu og umsjón með safni
sem verið er að koma upp sameiginlega fyrir
skólana.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu
6, 150 Reykjavík fyrir 17. maí n.k.
Menntamálaráðuneytið
Frá Menntamálaráðuneytinu
Lausar stöður við framhaldsskóla
Við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu eru lausar
kennarastöður í eftirfarandi greinum: ensku, stærðfræði og viðskipta-
greinum ásamt tölvufræði, heilar stöður og hlutastöður í dönsku,
þýsku, lífrræði, eðlisfræði og efnafræði. Æskilegt erað umsækjendur
geti kennt meira en eina grein.
Við Fjölbrautaskóla Suðurnesja eru lausar kennarastöður í ensku,
íslensku, listgreinum, rafmagnsgreinum, sögu, sérgreinum háriðna,
stærðfræði, tölvufræði og vélstjórnargreinum.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist til
Menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík, fyrir 16. mai
n.k.
Menntamálaráðuneytið
Sjúkraliðar
Aðalfundi Sjúkraliðafélagsins, sem halda átti 23.
apríl, verður frestað um óákveðinn tíma.
Stjórnin.
Byggðastofnun
klárar bráðum
útlán þessa árs
Byggðastofnun hefur nú þegar
lánað út og gefið lánsloforð fyrir 838
milljónum króna. Ekki á hún eftir
nema um 200 milljónir til útlána það
sem eftir er af árinu. Guðmundur
Malmquist, forstöðumaður Byggða-
stofnunar, sagöi í viðtali viðTímann
að nú yrði hægt mjög á öllum
lánveitingum fyrir þetta ár. Enginn
fundur er fyrirhugaður á næstunni í
stofnuninni vegna lánveitinga.
Stærsti hluti þeirra lánveitinga
sem búið er að afgreiða hefur verið
veittur til fyrirtækja í sjávarútvegi.
Fyrirtæki í sjávarútvegi hafa fengið
á þessu ári um 508 milljónir króna í
lán frá Byggðastofnun. Auk þess
hefur verið varið um 150 milljónum
til viðgerða á fiskiskipum samkvæmt
áætlun um sérstök skipasmíðaverk-
efni. Samtals hafa þá 658 milljónir
verið veittar að láni til fyrirtækja í
sjávarútvegi.
Guðmundur sagði að venjuleg
staða væri sú að farið væri að veita
lánsloforð strax á haustin fyrir útlán
næsta árs. í ár hefðu verið afgreiddar
um 290 milljónir strax í upphafi
ársins, vegna lánsloforða frá síðasta
hausti.
Upphaflega var gert ráð fyrir því
að veitt yrðu lán fyrir um einn
milljarð króna á þessu ári. Sagði
Guðmundur að vegna verðbólgu-
þróunar og þess háttar breytinga, liti
út fyrir að sú upphæð yrði um 1.350
milljónir í ár. Þessi upphæð er þó
ekki endanleg þar sem hún er háð
því hvernig stofnuninni gengur að
innheimta eldri lán. KB
Borgarnes:
Kaupfélagsstjóraskipti
Ólafur Sverrisson hefur sagt
lausu starfi sínu sem kaupfélags-
stjóri Kaupfélags Borgfirðinga og
lætur af starfi í júní. Hann verður
65 ára í næsta mánuði. f stað hans
hefur stjórn kaupfélagsins ráðið
Þóri Pál Guðjónsson sem kaupfé-
lagsstjóra.
Ólafur Sverrisson á langan og
farsælan feril að baki, því að hann
hefur verið kaupfélagsstjóri í Borg-
arnesi í rétt tuttugu ár, eða frá
1968. Þar áður var hann kaupfé-
lagsstjóri á Blönduósi árin 1958-
68. Ólafur hefur gegnt mörgum
öðrum trúnaðarstörfum fyrir sam-
vinnuhreyfinguna, og í stjórn Sam-
bands ísl. samvinnufélaga hefur
hann setið frá 1975, síðustu árin
sem varaformaður.
Þórir Páll Guðjónsson er fæddur
1945, útskrifaðist scm búfræðingur
frá Hvanneyri 1965 og lauk prófi
frá Samvinnuskólanum 1968.
Næstu árin var hann í starfsnámi
Sambandsins og Samvinnuskólans,
Ólafur Sverrisson.
cn var útibússtjóri hjá Kaupfélagi
Árnesinga á Laugarvatni 1970-73,
Kennari við Samvinnuskólann í
Bifröst varð hann svo árið 1973 og
starfaði þar samfellt fram á s.i.
sumar. Þá réðist hann frarn-
kvæmdastjóri fyrir Eðalfisk hf. í
Borgarnesi, en hefur nú látið af því
Þórir Páll Guðjónsson.
starfi og hafið störf hjá Kf. Borg-
firðinga. Hann var formaður
Landssambands ísl. samvinnu-
starfsmanna árin 1981-83. Þórir
Páll er kvæntur Helgu Karlsdóttur
frá Narfastöðum í Reykjadal og
eiga þau þrjú börn. -esig
Björgunarsveitir, öryrkjar og fornbílamenn:
Rýmri undanþágur
á bifreiðagjaldi
Eins og mönnum ætti að vera í
fersku minni var lagt sérstakt bif-
reiðagjald á bílaeigendur á s.l.
hausti, er gekk almennt undir heit-
inu kílógjald. Nú hefur verið lagt
fram á Alþingi stjórnarfrumvarp til
að staðfesta þetta gjald og er einnig
að finna nýtt ákvæði, sem gleðja ætti
björgunarsveitarmenn, öryrkja og
fornbílaeigendur.
-Verði þetta stjórnarfrumvarp að
lögum, er gert ráð fyrir að fjármála-
ráðherra séu veittar rýmri heimildir
til að undanþiggja bifreiðar, í eigu
öryrkja og björgunarsveita, bifreiða-
gjaldinu.
Um þetta stendur í frumvarpinu:
„Fjármálaráðherra er heimilt að
endurgreiða, lækka eða fella niður
bifreiðagjald af bifreiðum í eigu
öryrkja og björgunarsveita svo og
bifreiðum sem eru eldri en 25 ára í
upphafi gjaldárs. Getur hann í reglu-
gerð kveðið nánar á um hverjir falli
undir undanþáguheimild þessa og
önnur skilyrði sem hann telur nauð-
synleg.“ KB
Áskorun til ríkisstjórnar:
Morðið á Abu Nihad
fordæmt á Austurveili
Stjórn og félagar Ísland-Palest-
ínu komu saman á Austurvelli í
gær til að afhenda Steingrími
Hermannssyni, utanríkisráðherra,
áskorun til ríkisstjórnarinnar
vegna atburðanna fyrir botni Mið-
jarðarhafsum helgina. Varmorðið
á Abu Nihad, scm næstur gekk
Arafat innan Al Fata, fordæmt, en
nú er talið að ísraelsmenn eigi sök
á því. Þá var farið fram á, að þeir
Palestínumcnn, sem hraktir hafa
verið frá heimilunt sínum í hernámi
lsraels, fái aö snúa aftur. Skorað
var á ríkisstjórnina. að hún beitti
sér fyrir því á vcttvangi Norður-
ianda, að setja skilyrði fyrir stjórn-
málasambandi við ísrael.
Steingrímur Hermannsson veitti
áskoruninni viðtöku og sagðist
mundu aflicnda hana ríkisstjórn-
inni. Hann tók undir fordæmingu
á morðinu á Abu Nihad, cins og
raunar öll önnur morð. en lagði
álierslu á að ríkisstjórnin styddi
sjálfsákvöröunarrétt ísraelsþjóðar
og vildi stuðla aðstofnun sjálfstæðs
ríkis Palestínumanna.
Félagar úr Ísiand-Palestínu
héldu að þessu loknu til bandaríska
sendiráðsins og aflientu áskorun
einnig þar. þj