Tíminn - 20.04.1988, Side 6
6 Tíminn:
Miðvikudagur 20. apríl 1988
Bræðslur undir pressu frá bæjarbúum:
Ekki brætt við ferm-
ingar og í norðanátt
Að minnsta kosti tveir undirskriftalistar hafa verið í gangi á
landinu til að mótmæla reyk- og lyktarmengun frá fiskimjölsverk-
smiðjum, en verksmiðjurnar eru undir mikilli pressu frá bæjarbúum
vegna „peningalyktarinnar.
Oformlegt samkomulag hefur verið á milli verksmiðjanna tveggja
í Eyjum og bæjaryfirvalda um að helst verði ekki brætt nema í
sunnanátt, þannig að lyktina leggi á haf út, og um síðustu lielgi fór
sveitarstjórinn í Sandgerði fram á það við verksmiðjuna þar að
slökkt yrði á bræðslunni á sunnudag vegna ferminga. Til þess kom
þó ekki þar sem vindáttinn var hagstæð fyrir fermingarnar.
Arnaldur Bjarnason, bæjarstjóri í
Vestmannacyjum, sagði í samtali
við Tímann í gær, að vaxandi þrýst-
ingur væri á verksmiðjurnar að þær
tækju upp reyk- og lyktarvarnarkerfi
til að koma í veg fyrir ódauninn sem
væri óþolandi í vissum vindáttum.
Bæjarráð hefði verið afhentur undir-
skriftalisti með nöfnum 1.572 ein-
staklinga, þarsem óskað var úrbóta.
„Að vísu hefur verið regla hjá
annarri verksmiðjunni að hún reyndi
að haga sinni starfsemi þannig að
hún bræði frekar í sunnanátt, en þaö
brcytast nú veður. Verksmiðjurnar
hafa starfsleyfi útgefið í lok '85 og
fyrir september '89 eiga þær að vera
búnar að uppfylla ákveðin skilyrði
varðandi mengun. Þau skilyrði eru
öll uppfyllt nema varðandi reyk- og
lyktarmengun," sagði Arnaldur.
Hann sagði að bæjarbúar hefðu
einungis verið að brýna fyrir bæjar-
yfirvöldum að við skilyrðin yrði
staðið.
I Sandgerði var ástandið óvenju
slæmt á laugardag, og hafði lögregl-
an nóg að gera við að taka á móti
símtölum frá fólki sem kvartaði yfir
lyktinni, en mjög sjaldgæft er að
vindáttin standi cinmitt yfir bæinn.
200 manns skrifuðu undir undir-
skriftalista til að krefjast úrbóta í
formi hreinsibúnaðar.
Ólafur Pétursson hjá Hollustu-
vernd ríkisins, sagði í samtali við
Tímann að vissulega væru sumar
verksmiðjur í miður góðu ástandi,
en sem betur fer væri það ekki alls
staðar. Þá sagði hann að á flestum
stöðum stæði til að hefja endurbæt-
ur.
Hann sagði að það væri aðallega
tvennt sem kæmi í veg fyrir að
verksmiðjurnar uppfylltu mengun-
arskilyrðin á næstunni. Annars vegar
væri Hollustuverndin ekki í nógu
góðri aðstöðu til að aðstoða þær við
að setja upp hreinsibúnað, og hins
vegar væru svo margar verksmiðj-
anna úreltar.
Bræðslur á landinu eru milli 40 og
50, og sagði Ólafur að um 20 þcirra
væru á fresti. Þess má að lokum geta
að hreinsibúnaöur á meðalstóra
verksmiðju kostar nokkrar milljónir
króna. -SÓL
Þing Landssambands iðnverkafólks ályktar:
hitunar-
kostnaðar
Bæjarstjórn Ólafsvíkur
sendi nýlega frá sér áiyktun um
húshitunar- og byggðamál, þar
sem hún átelur harðlega það
misrétti í lífskjörum scm ríkis-
stjórn fslands og Alþingi lætur
viðgangast á niilli landsbyggð-
arinnar og Stór-Reykjavíkur-
svæðisins.
Par cr einkum bent á hinn
mikla mismun orkukostnaðar í
landinu og þá sífclldu tilfærslu
á fjármunum sem á sér stað af
landsbyggðinni, til að halda
uppi betri lífskjörum á höfuð-
borgarsvæðinu, sem lýsir sér í
íramkvæmdaþenslu og launa-
skriði, m.a. vcgna rangrar
gengisskráningar þess fjár-
magns sem sjávarútvegurinn
aflar til þjóöarbúsins.
Pó svo að leiðrétting til lækk-
unar hafi verið gerð á húshitun-
artöxtum Landsvirkjunar, þá
segir bæjarstjórnin að þar sé
hvergi nærri nógu langt gengiö
og telur að algjör jöfnun hús-
hitunarkostnaðar um landið
allt sé skýlaus krafa.
Bæjarstjórnin tckur undir þá
kröfu fulitrúaráðs Sambands
íslenskar sveitarfélaga, að
framlag til Jöfnunarsjóðs verði
hækkað til leiðréttingar á þessu
ári. f lok ályktunarinnarhvetur
bæjarstjórnin stjórnvöld til að
hcfja nú þegar markvissar úr-
bætur vegna hins ótrygga
ástands í byggða og atvinnu-
málum þjóðarinnar og skorar á
sveitarstjórnir í dreifbýlinu að
taka höndum saman til varnar
hagsmunum byggöanna. -ABÓ
Sumardagurinn fyrsti:
Stór sumarhátíð
við Þróttheima
„Manni skildist af ræðu iðnaðar-
ráðherra að það mcgi búast við
aðgerðum stjórnvalda sem yrðu til
þess að skerða launin. Ef ríkisstjórn-
in er að huga að einhverjum efna-
hagsaðgerðum, gengislækkun cða
einhverju ámóta, scm ekki veröur
bætt í kaupi, þá verðum viö að rísa
upp og verja okkar kjör. Ef kemur
til gengisfcllingar þá verður hart
látið mæta hörðu," sagði Guðmund-
ur Þ. Jónsson, formaður Lands-
sambands iðnverkafólks, í samtali
við Tímann.
Áttunda þing Landssambands
iðnverkafólks var haldið á Sclfossi í
lok síðustu viku. Par var ályktað um
ýmis hagsmunamál sambandsins og
fluttu Friðrik Sophusson, iðnaðar-
ráhcrra og Ásmundur Stefánsson,
forseti ASÍ, ræður.
f ályktun þingsins segir að fólk
verði að búa sig undir harða baráttu
fyrir auknunt kaupmætti og félags-
legu öryggi. „Ég skal ekki segja til
um það hvort keniur til meiri hörku
í næstu lotum cn fólk verður að vcra
undir það búið. Við höfum verið að
tapa niður kaupmætti og vcrðum að
Guömundur Þ. Jónsson, formaður
Landssambands iönverkafólks.
sækja hann aftur,“ sagði Guömund-
ur.
í ályktun um atvmnumál er þeim
tilmælum bcint til stjórnvalda að
þau taki til hendinni við efnahags-
stjórn landsins, m.a. með tak-
mörkunum á vaxtafrclsi og starfsemi
fjármagnsmarkaðarins. „Okkur er
sagt hiklaust af mönnum sem eru í
atvinnurekstri, að fjármagnskostn-
aður fyrirtækja sé orðinn oft meiri
en hlutur launa, og cf hann lækki þá
mundi skapast svigrúm til að bæta
kjörin," sagði Guðmundur.
Á þinginu komu einnig fram hug-
myndir um verndaraðgerðir til
verndar íslenskum fataiðnaði.
„Meðan flutt er inn óheft frá lág-
launalöndum. þá er erfitt að keppa
viö það innanlands. Við erum ekki
að tala um innflutningsbann,
kannski kvóta eða eitthvað slíkt,
þannig að það verði einhver tak-
mörkun. Við höfum líka höfðað til
landsmanna að kaupa íslenska vöru.
Pað vantar mikið uppá það að fólk
geri það. Málið er það að menn eru
pikkfastir í cinhverjum krcddum um
t'relsi og svoleiðis. Nágrannalöndin
eru með verndaraðgerðir cn hér má
aldrei gera neitt. Pað eru þó fyrst og
fremst við sem þyrftum á slíku að
halda." sagði Guðmundur. -jih
Á morgun. sumardaginn fyrsta,
verður haldin stór og skemmtileg
sumarhátíð við félagsmiðstöðina
Þróttheima við Holtaveg. Á hátíðina
er boðið öllum nemendum Voga-,
Langholts-, Laugalækjar- og Laug-
arnesskóla, svo og foreldrum, ætt-
ingjum, vinum og öðrum scm tengj-
ast þeim á annan hátt. Má segja að
stefnt sé aö hverfishátíð.
Hátíðin sjálf hefst klukkan 13 og
stendur yfir til klukkan 17. Veður og
vindar fá engu breytt. þar sem hluti
hátíðarinnar verður innan húss, en
forráðamenn hennar hafa hins vegar
lýst því yfir að veður verði örugglega
gott.
Meðal þess sem fram fer utan
dyra, má nefna ferðir í þrautabraut,
þátttaka í útigrilli, BMX-rall, knatt-
spyrnuleikur og fótboltasprell, snú-
snú, brennó, teygjutvist og svampa-
kast, en innan dyra má nefna biljarð,
pílukast, borðtennis, fótboltaspil,
leiki, leikþætti, bingó, skutlukeppni.
veitingasölu og kökubasar.
Að hátíðinni standa félagsmið-
stöðin Þróttheimar, knattspyrnufé-
lagið Þróttur og skátafélagið Dalbú-
ar, og búast þessir aðilar fastlega við
fjölmenni við Þróttheima á sumar-
daginn fyrsta. -SÓL
Akranes:
Hvetja til aðgerða
sem stuðlað gætu
að vaxtalækkunum
Sameiginlegur fundur fiskvinnsludeildar, verkamanna- og verka-
kvennadeildar hjá Verkalýösfélagi Akraness hefur sent frá sér
ályktun. þar sem fram kemur að uppgjöf sú sem átti sér stað við
undirritun Akureyrarsamninganna og samþykkt þeirra í flestum
verkalýðsfélögum, lýsi vel þeirri múgsefjun sem félagið telur að hafi
átt sér stað í þjóðfélaginu á undanförnum árum, og verkafólk kallað
til ábyrgðar á veröbólguþróun.
Félagið beinir þeirn tilmælum til stjórnvalda, að þau upplýsi
þcgnana um raunverulegan verðbólguvald og hefji þegar í staö
aðgerðir sem lciði til vaktalækkunar. -ABÓ
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í Reykjavík:
Skemmtun í Þórscafé
á sumardaginn fyrsta
Á morgun er sumardagurinn fyrsti, dagur sem skipar bjartan og
skemmtilegan sess í hugum fólks. A síöasta ári hélt Fulltrúaráö
Framsóknarfélaganna í Reykjavík veglega fjölskylduskemmtun í
Þórscafé og bílaportunum þar í kring. I ár er ætlunin að endurtaka
þessa skemmtan.
Fjölskylduhátíðin í árhefst í Þórs-
café klukkan 14.00. Þar verður
söngur.glensoggaman allari daginn.
Má þar nefna að eftirherma kemur í
heimsókn, Jón Páll Sigmarsson mun
heilsa upp á yngstu gestina og margt
fleira verður til gamans gert.
Ef veður verður gott mun verða
opið útivistarsvæði á plani Mjólkur-
samsölunnar þar sem komið verður
upp lciktækjum fyrir börnin auk
þess sem þar verður farið í skemmti-
lega leiki.
Vímulaus æska og fleiri félaga-
samtök munu kynna starfsemi sína á
svæðinu.
Boðið verður upp á kaffi og með-
læti fyrir fullorðna fólkið, en þcir
yngri fá sælgætispoka. Þá verður
kynning á Emmess ís og kóka kóla.
Miðaverð er 400 krónur fyrir full-
orðna og 250 fyrir börn.