Tíminn - 20.04.1988, Qupperneq 10
10 Tíminn
ÍÞRÓTTIR
Miðvikudagur 20. apríl 1988
Evrópukeppnin í knattspyrnu:
íslandsbikarinn í fang Hauka í
fyrsta sinn. Það er Henning
Henningsson sem býður hann
vclkominn með kossi og
má vart sjá hvor er hávaxnari!
Tímamynd Pjetur
PSV-Real Madrid í
beinni útsendingu
Haukar meistarar
- Fyrsti íslandsmeistaratitill félagsins í höfn eftir sigur á Njarövíkingum í ótrúlegum úrslitaleik
Frá Margréti Sanders fréttarítara Tímans í
Njarðvík:
Haukar sigruðu Njarðvíkinga 92-
91 í æsispennandi tvíframlengdum
úrslitaleik um íslandsmeistaratitil-
inn í Njarðvík í gærkvöldi. Er þetta
fyrsti Islandsmeistaratitill Hauka í
úrvalsdeildinni.
Haukar voru mun ákveðnari í
byrjun, skorðu strax 8 stig gegn
engu. Um miðjan hálfleikinn voru
þeir komnir með 14 stiga forystu
22-8 og munaði þar mestu um stór-
leik Hennings Henningssonar.
Gegnum góðan leik Vals Ingimund-
arsonar og Teits Örlygssonar minnk-
uðu Njarðvíkingar muninn og var
staðan í hálfleik 39-37 Haukum í vil.
Strax í byrjun síðari hálfleiks
jöfnuðu Njarðvíkingar leikinn en
Haukar héldu síðan forystunni þar
til um miðjan síðari hálfleik þegar
Njarðvíkingar komust yfir í fyrsta
skipti í leiknum og sú skipan mála
hélst þar til á síðustu sekúndu leiks-
ins er Pálmar jafnaði með þriggja
stiga skoti, hans áttunda þriggja
stiga karfa fram að því í leiknum og
framlenging staðreynd, staðan 66-
66.
Pálmar hafði þá skorað 33 stig eða
helming stiga Haukanna. Haukar
tóku forystu í upphafi framlengingar
og náðu 5 stiga forskoti 71-66 en
Njarðvíkingar náðu að vinna mun-
inn upp og komast yfir 77-74 og enn
jafnaði Pálmar með þriggja stiga
körfu 77-77. Valur skoraði 79-77 og
ívar Ásgrímsson skoraði úr tveimur
bónusskotum 12 sek. fyrir lok.
Njarðvíkingar náðu hraðaupphlaupi
en ívar Webster tók á sprett og varði
skot þeirra og Kristinn dómari
dæmdi upp úr því villu á Hreiðar
Hreiðarsson Njarðvíking. Eftirlits-
dómari leiksins Sigurður Valgeirs-
son sagði að leiktíminn væri liðinn
og enn var framlengt.
í annarri framlengingu höfðu
Haukar yfirhöndina en Njarðvíking-
ar voru aldrei langt undan og komust
loks yfir 88-87. Pálmar enn með
þriggja stiga körfu 90-88 en Valur
kom Njarðvíkingum yfir á ný 91-90
og aðeins 11 sekúndur eftir af leikn-
um en Reynir Kristjánsson var á
auðum sjó í lokin og skoraði sigur-
körfu Hauka og tryggði þeim þar
með íslandsmeistaratitilinn.
Bestur í liði Hauka var Pálmar
Sigurðsson sem hitti ótrúlega vel og
var hreint óstöðvandi. Einnig stóð
Henning Henningsson sig vel og
sömuleiðis ívar Ásgrímsson og Ingi-
Zola Budd
fær samúð
en ekki
stuðning
Breska hlaupakonan Zola
Budd á yfir höfði sér keppnisbann
vegna þess að hún keppti í víða-
vangshlaupi í Suður- Afriku á síð-
asta ári. Ákvörðun um bannið
verður tekin á fundi breska frjáls-
íþróttasambandsins á sunnudag-
inn. Alþjóðasambandið (IAÁF)
fann Budd seka um að brjóta
reglur mcð því að kcppa í víða-
vangshlaupinu og var breska sam-
bandinu uppálagt að setja Budd í
bann í ár eða eiga ella á hættu að
fá ekki að keppa á mótum á
vegum IAAF.
Breskir frjálsíþróttamcnn hafa
margir hverjir lýst yfir samúð
með Zolu Budd en eru þó ekki
tilbúnir til að beita áhrifum sinum
til þess að hún sleppi við keppnis-
bann. I*að gæti þýtt að hreskir
frjálsíþróttamenn fái ekki að
keppa á Ólympíuleikununi og á
það vilja þeir ekki hætta.
- HÁ/Rcuter
Stenmark í
eldlínunni
ár í viðbót
Sænski skíðagarpurinn Inge-
mar Stenmark sem hefur sigraði
í 85 mótum í hcimsbikarkeppn-
inni hefur ákveðið að halda áfram
keppni í ár til viðbótar. Stcnmark
scni er 32 ára gamall hafði áður
íhugað að hætta keppni.
Stenmark sýndi á vetrar-
ólympíuleikunum í Calgary að
hann cr enn í fremstu röð. Ilann
varð þá í 5. sæti í sviginu sem er
hans sérgrein og náði næst bcsta
tímanum í annarri umferðinni.
- HÁ/Rcuter
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Stigahæsti leikmaðurinn, þjálfarinn og hetja Haukanna í gærkvöldi Pálmar Sigurðsson tolleraður eftir að sigurinn
var í höfn. Tímamynd Pjetur
Ríkisstjórn fyrirhugar byggingu
íþróttahúss sem rúmar 8000 manns:
Þak yf ir handbolta
Leikur PSV Eindhovcn og Real
Madrid verður sýndur i bcinni
útsendingu Sjónvarpslns I kvöld og
hcfst útscndingin kl. 17.25. Leikur-
inn cr í undanúrslitum í Evrópu-
keppni mclstaraliða og er hér um
að ræða síðari viðurcign liðanna.
Fyrri leiknum í Madrid lauk með
jafntcfli, 1-1. Real Madrid vcrður
því að skora í leiknum, PSV fer
úfram á útimarkinu verði marka-
laust jafntefli.
Engu spænsku liði hefur nokkru
sinni tekist að komast áfram í
Evrópukeppninni eftir að gera
jufntefli á heimavelli en leikmenn
Real munu ákveðnir í að gera þar
bragarbót á.
t hinum undanúrslitaleiknum
mætast Benfica og Steaua Búka-
rcst í Lissabon. Fyrri lciknum lauk
með markalausu jafntefli. - HÁ
Að höfðu samráði við Handknatt-
leikssamband íslands ákvað ríkis-
stjórain í gær að hefja viðræður við
Reykjavíkurborg um að reisa
íþróttahús fyrir árið 1993, sem rúmar
8000 áhorfendur. Til samanburðar
má geta þess, að LaugardalshöU
rúmar 3000 áhorfendur. Hefur kom-
ið til tals að húsið verði reist austan
Laugardalshallarinnar.
Þessi ákvörðun er bundin því, að
heimsmeistaramót karla í hand-
knattleik verði haldið hér á landi
árið 1993 eða 1994 en til þess þarf
hús, sem rúmar hið minnsta 7000
áhorfendur. Hvort árið mótið verður
hefur enn ekki verið ákveðið.
Lauslega áætlað er talið að bygg-
ing hússins kosti 300 milljónir króna.
Talið er að heimsmeistaramótið eitt
skili tekjum, sem borgi byggingu
íþróttahússins að fullu. Þegar ekki
eru leiknir þar kappleikir, nýtist það
vel undir ráðstefnur og vörusýning-
ar.
Hvort af þessu verður kemur í ljós
í september, en þá kemur stjórn
Alþjóða handknattleikssambands-
ins saman til fundar. Svíar hafa
einnig sóst eftir því, að fá að halda
þetta mót. þj
mar Jónsson í seinni framlenging-
unni. ívar Webster var góður í
vörninni. Valur Ingimundarson og
Teitur Örlygsson áttu góðan leik í
liði UMFN. Einnig stóðu Hreiðar
Hreiðarsson og Friðrik Ragnarsson
sig vel.
Njarðvíkingar unnu deildina með
yfirburðum og töpuðu ekki heima-
leik en urðu að sjá á eftir íslandsbik-
arnum eftir úrslitakeppni sem mál
heimamanna í Njarðvík er að sé úr
takt við íslandsmótið sjálft.
Áhorfendur troðfylltu íþróttahús
Njarðvíkur og voru um 700. Dómar-
ar voru Ómar Scheving og Kristinn
Albertsson en eftirlitsdómari var
Sigurður Valgeirsson.
Helstu tölur: 0-8, 2-14, 8-22, 20-25, 22-31,
27-31, 33-34, 37-39 - 39-39, 41-48, 51-50,
58-54, 62-58, 66-66 - 66-71, 74-73, 77-77,
79-79 - 79-83, 88-87, 90-90, 91-92.
Stigin, UMFN: Valur Ingimundarson 33,
Teitur örlygsson 22, Hreiðar Hreiðarsson 12,
Sturla örlygsson 7, lsak Tómasson 7, Helgi
Rafnsson 6, Friðrik Ragnarsson 4. Haukar:
Pálmar Sigurðsson 43 (11 þriggia stiga)
Henning Henningsson 16, Ivar Ásgrímsson
14, Ingimar Jónsson 6, ívar Webster 6, Reynir
Kristjánsson 4, ólafur Rafnsson 3.
KAUPMANNAHÖFN
FLUGLEIÐIR
-fyrír þíg-