Tíminn - 20.04.1988, Side 19
Miðvikudagur 20. apríl 1988
Tíminn 19
BRÆÐUR
GIFTAST
MÆDGUM
N
lýlega var haldið tvöfalt brúð-
kaup í Paignton í Englandi, sem er
út af fyrir sig ekki í frásögur
færandi. En við þetta brúðkaup
urðu tengsl brúðhjónanna innbyrð-
is ákaflega ruglingsleg, - því að
þarna gengu bræður í hjónaband
með mæðgum.
Það voru bræðurnir David Fone
(23 ára) og Jonathan (18 ára), sem
gengu að eiga Janette (37 ára) og
dóttur hennar Rachel (18 ára). Þau
Rachel og Jonathan voru jafngöm-
ul, en 14 ára aldursmunur var á
hinum brúðhjónunum.
Það var yngra parið sem fyrst fór
að vera saman, en svo bauð Jona-
than eldri bróður sínum, David, í
partí heim til kærustunnar og þá
varð David skotinn í mömmunni
Janette, sem er fráskilin 6 barna
móðir.
- Móðirin
verður mág-
kona dóttur
sinnar!
- og annar
bróðirinn
verður
tengdapabbi
bróður síns!!
David segir að vinir sínir hafi
strítt sér með stjúpföður-nafnbót-
inni, en það hafði engin áhrif á
hann, enda segir hann að þetta séu
bestu börn og orðin stálpuð og
stór, - eins og t.d. mágkona hans
sýni.
Pað var svo 28. febrúar að bæði
pörin fóru og létu gefa sig saman
hjá borgardómara á staðnum.
Brúðhjónunum kom saman um að
hagkvæmast væri að hafa tvöfalt
brúðkaup, því að báðir bræðurnir
eru atvinnulausir og lifa á
styrkjum.
Það má segja að sé „fullt hús“
hjá David, en hann á íbúð með
fjórum svefnherbergjum. Þar býr
hann nú ásamt konu sinni og
börnum hennar og sömuleiðis ungu
hjónin Jonathan og Rachel og eins
árs dóttir þeirra, alls 10 manns.
Giftingarmyndin af brúðhjón-
unum
Draumahlutverkið
varð að
martröð
Ne
lei, ég vil ekki leika Christinu Onassis í kvikmynd, sagði Victoria
Principal, þegar henni var boðið að leika aðalhlutverkið í mynd um líf
hinnar auðugu, en óhamingjusömu Christinu Onassis.
Hlutverkið krafðist þess sem sagt að Victoria bætti á sig allnokkrum
kílóum, en aukakíló eru sem kunnugt er, eitur bæði á og í beinum hinnar
tággrönnu og vel þjálfuðu Victoriu. Hún vill ekki sjá þau.
í fyrstu varð hún bálreið, er minnst var á að hún fengi hlutverkið og
tók boðið hreinlega sem móðgun. -Christina Onassis? spurði hún. - Varla
er neitt líkt með okkur. Nema kannske.að við erum báðar dökkhærðar.
Smám saman rann henni reiðin, þegar hún hugsaði sig betur um og svo
sá hún, að þetta var stórkostlegt hlutverk. Ef bara...
- Ég játa, að það er draumahlut- hefur næstum verið hægt að lesa
verk, að leika Christinu Onassis,
en ég vil ekki gera það á kostnað
líkama míns. Það er sjálfsagt að ég
geri þetta, ef ég fæ að halda
núverandi þunga mínum. Hins
vegar harðneita ég, ef ég á að bæta
á mig svo miklu sem 100
grömmum.
Hamingja Christinu hefur iðu-
lega fólgist í tertum og sælgæti. 1
hvert skipti, sem eiginmaðurinn
hefur pakkað niður, hefur Christ-
ina pakkað í sig sætindum. Þannig
ástand ástarlífs hennar af vextin-
um. I byrjun hvers hjónabands
hefúr hún verið sæmileg um sig, en
þegar vandræðin byrja, fjölgar
kílóunum hratt. Eftir skilnaðina.
hefur Christina alltaf farið upp í
100 kílóa flokkinn.
Það er því skiljanlegt, að Vict-
oriu langi lítt til að líkjast Christinu
í útliti, því ekkert er mikilvægara í
augum Victoriu en útlitið og vaxt-
arlagið. Hún efnagreinir næstum
hvern einasta bita, sem hún lætur
ofan f sig og bragðar aldrei súkku-
laði, nema einn og einn konfekt-
mola, þegar hún slakar verulega
vel á.
Hvað Christinu sjálfa varðar, er
hún reiðubúin að vaða eld og
brennistein til að Victoria taki að
sér hlutverkið og henni er nákvæm-
lega sama, hvort það verður með
eða án aukakílóanna.
Það er varla von,
að Victoria
Principal hafi í
fljótu bragði séð
neitt líkt með
þeim Christinu
Onassis... annað
en háralitinn.
“ hans Roberts Mitchum
Þessi glæsilega unga stúlka í glitrandi gullkjól með dýra skartgripi
heitir Carrie. Hún leikur í amerískum sjónvarpsþáttum sem nefnast
„The Bold And The Beautiful“.
Afi hennar Carrie er enginn annar en hinn gamalkunni leikari
Robert Mitchum, svo hún á ekki langt að sækja hæfileikana. Annars
er hún hróðug af því, að hún hafi sjálf komið sér áfram
og gengið ágætlega. Hún hafi ekki þurft að nota
nafn afa síns, - þó ég sé mikil “afastelpa“,
eins og hún segir.