Tíminn - 07.05.1988, Síða 9
Laugardagur 7. maí 1988
HELGIN
9
- þá mundi það minnka fram-
hjáhald um helming.
Fíkn í konur
líkt og eiturefni?
Ótrúa eiginmenn fékk grein-
arhöfundur einnig til að leysa
frá skjóðunni:
„Það er löngun í tilbreytingu.
Spenningurinn við að tæla og
sigra. Fjöldi manna hefur stöð-
uga þörf fyrir að reyna við
konur. Hjá mér mætti á vissan
hátt líkja þessu við fíkn ofneyt-
anda í eiturefni‘% sagði 37 ára
sjónvarpsmaður. Sá kvað ekki
einu sinni hafa liðið viku frá
brúðkaupinu þar til hann var
kominn uppí hjá annarri. Ekki
fann hann til nokkurrar sektar-
kenndar nema síður væri, né
ótta um að þetta stofnaði hjóna-
bandinu í hættu - mundi kannski
fremur styrkja það. „Mönnum
tekst mjög vel að leyna ævintýr-
um sínum fyrir eiginkonunni
- það er raunar mun erfiðara að
halda fram hjá hjákonunni.
Kvennafar mitt er ekki á neinn
hátt til að sanna fyrir mér karl-
mennsku mína. Þú gætir alveg
eins spurt hvort ég fái mér
girnilegan málsverð vegna þess
að ég efist um matarlystina".
Enginn veit hvað
átt hefur fyrr en
misst hefur
„Maður er á höttunum eftir
spenningi og þeirri holdlegu
eftirvæntingu sem fylgir því að
verða ástfanginn. Önnur ástæða
er „veiðigleðin,“ unaðurinn sem
fylgir því að fanga bráðina. Hún
hverfur ekki þótt maður gifti
sig“, sagði 36 ára bankamaður.
„Frá 19 til 29 ára hugsar maður
fyrst og fremst um konur, „sex“
og hverful ástarævintýri. Það
þarf því geysilega aðlögunar-
hæfni til að geta allt í einu orðið
einni konu trúr. Kynlíf í hjóna-
bandi er ósköp indælt, en hins
vegar ekki spennandi til lengdar,
m.a. vegna þess að mönnum
þykir erfitt að ræða um kynlíf
við konur sínar. Eftir nokkur
ástarævintýri fór þó svo fyrir
bankamanninum að spennan og
stressið vegna hans tvöfalda lífs
varð honum ofviða svo hann
flutti að heiman. Þegar hann
þurfti ekki lengur að stelast á
fundi ástkonunnar var hrifningin
af henni fljót að fölna. Og allt í
einu fann aumingja maðurinn
hversu dásamlega konu hann
átti og að ekkert gat jafnast á við
hjónabandshamingjuna. „Égfór
því heim aftur og þori nú ekki
lengur að standa í neinu kvenna-
fari af ótta við að missa það, sem
ég uppgötvaði að er mér öllu
öðru verðmætara“.
Greinarhöfundur kvaðst Iengi
hafa verið þeirrar skoðunar að
kynhegðun karla réðist öðru
fremur af því hvað þeir kæmust
upp með. Framangreind svör
sérfræðinga og sökudólga hafi í
raun litlu breytt þar um, þótt
vissulega hafi þau verið fróðieg
og nokkuð megi af þeim læra.
En einhlít svör um flóknar
ástæður framhjáhalds verða lík-
lega seint fundin.
(Þýtt og endursagt HEI)
Salernin í Peking
í sjónvarpsúttekt
Röskur ellilífeyrisþegi í smáþorpi í Svíþjóð:
Aldargamall maður
sló þjófinn flatan
Á dögunum tók kínversk sjón-
varpsstöð auk nokkurra blaða-
manna í Peking, með yfirmann
ferðamála í borginni, Bo Xicheng
í broddi fylkingar upp á því að gera
úttekt á almenningssalernum borg-
arinnar og var útkoman ekki glæsi-
leg. f helmingi allra almenningssal-
erna var annað hvort um lekar
pípur, brotnar skálar, eða um því-
líka lykt að ræða að ekki var
mönnum bjóðandi, þó svo að þess-
ir sömu staðir hefðu skömmu áður
fengið vottorð um að allt væri í
stakasta lagi.
Ferðamálayfirvöld í borginni eru
að hugsa um að leggja fram kvört-
un til borgaryfirvalda í kjölfar
þessarar athugunar, enda hafa
ntargirerlendir ferðamenn kvartað
sáran yfir lélegri salernisaðstöðu,
að sögn Bo. „Margir hafa tjáð
okkur að þeir hafi farið á viður-
kennda matsölustaði, þar sem
maturinn var hreint frábær, en
þegar kom að salernunum var
rómurinn orðinn annar,“ sagði Bo
ennfremur.
Salernin sem skoðuð voru á
veitingastöðum í þessari ferð Bo
og fréttamannanna fengu þó flest
góða einkunn fyrir hreinlæti og
snyrtimennsku og voru til hreinnar
fyrirmyndar að sögn Bo.
Níutíu og sjö ára gamall ellilíf-
eyrisþegi er hetja í augum þorps-
búa í Moheda í Svíþjóð fyrir
hreysti sína, en á þriðjudag stökkti
hann innbrotsþjóf á flótta, með
snöggu hægri handar höggi og
vinstri krók. Á yngri árum var
hann ævintýramaður og ferðaðist
víða. Lengst af stundaði hann loð-
dýraveiðar í Alaska.
„Ég sá þorparann, þar sem hann
var á leið inn um baðherbergis-
gluggann minn, og lét höggin dynja
á hálsinn á honurn," sagði Nilsson
í viðtali við sænska Kvöldblaðið.
„Innbrotsþjófurinn greip um
hálsinn, missti takið á glugganum
og féll flatur í blómabeðið fyrir
utan,“ sagði Nilsson hróðugur og
vel minnugur átakanna í Alaska
forðum. „Roskið fólk verður að
kunna að verja sig. Það fær enginn
að ræna mig.“
Nilsson er firnahraustur, þrátt
fyrir háan aldur. Hann þakkarþað
einföldum vodka, sem hann rennir
niður á hverjum morgni að læknis-
ráði. “Læknirinn segir, að það sé
gott fyrir blóðrásina."
SWúa9f'
fe\6s'a ° „a té'^oaöS
e\r> ^
lhpn4\Wá®'5
ffaðgre/ös/aon;,
Skilagrein veg^una 9)a,da
-----a a wnagreiðslna
\ í
®SK 5.07
hvers mánaðar
5 Jíl
. ... 0.|OM,,ni„()
bsks.'*-
Frumrit
0f*l6tluukjil
GJAIDDAGI
.FYRIRSKIL .
A STAÐGRBÐSLUFE
Launagreiðendum ber að
skila afdreginni staðgreiðslu
af launum og reiknuðu endur-
gjaldi mánaðarlega. Ekki
skiptir máli í þessu sambandi
hversu oft í mánuði laun eru
greidd né hvort þau eru greidd
fyrirfram eða eftir á.
Gjalddagi skila er 1.
hvers mánaðar en eindagi
þann 15.
Með greiðslu skal fylgja grein-
argerð á sérstöku eyðublaði
„skilagrein". Skilagrein ber að
skila, þó svo að engin stað-
greiðsla hafi verið dregin af í
mánuðinum.
Allar fjárhæðir skulu
vera í heilum krónum.
Allir launagreiðendur og sjálf-
stæðir rekstraraðilar eiga að
hafa fengið eyðublöð fyrir
skilagrein send. Þeir sem ein-
hverra hluta vegna hafa ekki
fengið þau snúi sér tjl skatt-
stjóra, ríkisskattstjóra, gjald-
heimtna eða innheimtumanna
ríkissjóðs.
-Gerið skil tímanlega
og forðist örtröð síðustu dagana.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI