Tíminn - 01.06.1988, Blaðsíða 3

Tíminn - 01.06.1988, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 1. júní 1988 Tíminn 3 Ný skýrsla um framkvæmdbúvörusamninganna: Jafnvægi að nást í miólkurframleiðslu í gær kynntu landbúnaðarráð- herra og forsvarsmenn landbúnaðar- ráðuneytísins og Stéttarsambands bænda nýútkomna skýrslu Fram- kvæmdanefndar búvörusamninga um framkvæmd búvörusamning- anna og horfur árin 1985-1992. Þar er dreginn saman á einn stað ýmiss fróðleikur um framkvæmd búvöru- samningsins til þessa. Jón Helgason, landbúnaðarráð- herra, sagði við þetta tækifæri að áþreifanlegasti árangur af búvöru- samningnum væri m.a. sá að nú væri svo til komið á jafnvægi milli mjólk- urframleiðslu og sölu mjólkur- afurða. Landbúnaðarráðherra sagði m.a.að þrátt fyrir að loðdýraræktin ætti nú í erfiðleikum teldi hann mikilvægt að vinna áfram að bú- háttabreytingum. Hann benti m.a. á að á undanförnum árum hafi fjár- festing í landbúnaði dregist mjög saman jafnframt sem framlög til landbúnaðar sem hlutfall af þjóðar- framleiðslu hafi minnkað. Guðmundur Sigþórsson, settur ráðuneytisstjóri í landbúnaðarráðu- neytinu, sagði að búast mætti við meiri rýmun fjárfestinga í landbún- aði en sem næmi samdráttarþörfinni. Hann lét þess m.a. getið að í næsta mánuði myndi nefnd sú, sem unnið hefur úttekt á stöðu mjólkur- samlaganna í landinu, skila áliti. Guðmundur sagðist búast við fækk- un mjóikursamlaga sem næmi 20- 30% og fækkun sláturhúsa um 30-40. í máli Þórólfs Sveinssonar, stjórn- armanns í Stéttarsambandi bænda, kom fram að hagur mjólkurfram- leiðenda nú væri þolanlegur en hin- svegar væri staða kindakjötsfram- leiðenda mun lakari. „Það hefur Heimsbikarmót Stöðvar 2 í skák: Sterkast í sinni röð Nú hefur verið tekin ákvörðun um hvar Heimsbikarmót Stöðvar 2 verð- ur haldið. Teflt verður í Borgar- leikhúsinu dagana 2. - 26. október. Stöð 2 heldur mótið í samvinnu við Stórmeistarasambandið og er það eitt af sex mótum sem haldin verða á þessu og næsta ári. Rétt til keppni hafa 24 sterkustu skákmenn heims og tekur hver þeirra þátt í fjórum mótum. Þegar svo kemur að útnefningu Heimsbik- armeistara í skák, sigrar sá sem staðið hefur sig best í þremur mótum. Endanlegur þátttakendalisti ligg- ur nú fyrir, og er ljóst að skákmót þetta er hið sterkasta af þessari stærðargráðu sem haldið hefur verið í heiminum. Meðal þátttakenda má nefna sjálf- an heimsmeistarann, Garrí Kaspar- ov, fyrrum heimsmeistarana Boris Spasský og Mikhail Tal, Jan Timman, Speelman, Yusupov, Portisch, Viktor Kortsnoj, að ógleymdum íslendingunum Jóhanni Hjartarsyni og Margeiri Péturssyni. Meðalstigafjöldi keppenda er um 2.620 stig og sýnir það kannski best styrkleikann, að Jóhann er með 2.950 ELO stig og Margeir með 2.540. Verðlaunin á mótinu nema 100.000 bandaríkjadölum. Stöð 2 verður með beinar útsendingar frá mótinu og munu þekktir stórmeist- arar skýra skákimar. -SÓL gengið mjög vel að selja mjólkuraf- urðirnar að undanförnu. Segja má að við höfum haft rífandi meðbyr,“ sagði Þórólfur. Hann sagði að um margt hefði vel tekist til með fram- kvæmd búvörusamningsins, en þau grundvallarmistök að huga ekki bet- ur að uppbyggingu atvinnutækifæra í sveitum áður en farið var út í fækkun í hefðbundnum greinum, kæmi nú alltaf betur og betur í ljós. Þórólfur sagði það brýnt að styrkja markaðsstöðu búvara, efla vöru- þróun, hagræðingu og geta jafnframt treyst á trausta niðurgreiðslustefnu, eins og hann orðaði það. Vegna plássleysis er ekki unnt að gera frekar grein fyrir innihaldi þess- arar skýrslu nú. Tíminn mun gera henni skil síðar. óþh s*a ■2|ÍI JWrrtMLTSS gj| / ""'MusamreJ X i ^5.07 fnmrll GJALDDAGI . FYRIR SKIL . A STAÐGRBÐSLUFE Launagreiðendum ber að skila afdreginni staðgreiðslu af launum og reiknuðu endur- gjaldi mánaðarlega. Ekki skiptir máli í þessu sambandi hversu oft í mánuði laun eru greidd né hvort þau eru greidd fyrirfram eða eftir á. Gjalddagi skila er 1. hvers mánaðar en eindagi þann 15. Með greiðslu skal fylgja grein- argerð á sérstöku eyðublaði „skilagrein". Skilagrein ber að skila, þó svo að engin stað- greiðsla hafi verið dregin af í mánuðinum. Allar fjárhæðir skulu vera í heilum krónum. iilÍllilÍiiiÍiÍlil: Allir launagreiðendur og sjálf- stæðir rekstraraðilar eiga að hafa fengið eyðublöð fyrir skilagrein send. Þeir sem ein- hverra hluta vegna hafa ekki fengið þau snúi sér til skatt- stjóra, ríkisskattstjóra, gjald- heimtna eða innheimtumanna ríkissjóðs. -Gerið skil tímanlega og forðist örtröð síðustu dagana. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.