Tíminn - 01.06.1988, Síða 13

Tíminn - 01.06.1988, Síða 13
Miðvikudagur 1. júní 1988 Tíminn 13- AÐ UTAN Tyrknesk fjölskylda nýtur máltíðar á strönd vatns í Kreuzberg-hverfinu í Vestur-Berlín, Vestur-þýskt vinnusiðferði og erlendir verkamenn: Þýskir verkamenn vilja styttri vinnu- tíma og hærri laun í Vestur-Þýskalandi fer nú, sem oftar fram mikil umræða um erlenda verkamenn sem starfa þar í landi og frá ýmsum sjónarhornum. Fjórar og hálf milljón erlendra verka- manna, og fjölskyldur þeirra, eru nú búsettar í Vestur- Þýskalandi. Þeir vinna lægst launuðu og erfiðustu störfín og myndi margvísleg þjónusta víða um landið falla niður ef þeir sinntu henni ekki. f Vestur-Þýskalandi er 10% at- vinnuleysi, en það er með því mesta sem þekkist í Evrópu. Þýskt vinnuafl fæst þó ekki til að taka að sér þau störf sem útlendingarnir sinna nú. í stað þess gera vestur- þýsku verkalýðsfélögin nú kröfu um að fá styttan vinnutíma og hærra kaup. Og stjórnmála- mennirnir gera sitt besta til að setja hömlur á innflutning erlends vinnuafls. En getur vestur-þýskt þjóðfélag komist af án vinnuframlags erlendu verkamannanna? Um það fjallar eftirfarandi grein eftir bandaríska blaðamanninn Ferdinand Protz- man sem birtist í Welt am Sonntag nýlega. Yfirmennimir þýskir, verkafólkið útlent Komið er að vaktaskiptum í verksmiðjum BMW í Múnchen og verkamennirnir sem hafa unnið við færiböndin á fyrstu vaktinni streyma út. Þeir spjalla saman á ýmsum tungumálum og má heyra tyrknesku, serbó-króatísku og ít- ölsku. En í aðalstöðvum fyrirtækis- ins, í háhýsi handan við hornið er eingöngu töluð þýska. Á götuhorni í Frankfurt lítur þýskur verkstjóri eftir vinnubrögð- um tyrknesku verkamannanna, sem vinna að gangstéttarlögn. Hann gerir sig skiljanlegan með handahreyfingum og einföldum þýskum orðum. í geysistórri kaffistofu höfuð- stöðva Porsche-verksmiðjanna í Stuttgart-Zuffenhausen, fylgist eftirlitsmaður - með kaffibolla í hendi - með því hvernig 50 kvenna hópi tekst til við að ganga frá eftir kvöldmatinn og þvo gólfin. Hann er Þjóðverji, því nær allar konurn- ar útlendingar. Svona sjónarspil endurtekur sig dag eftir dag um allt Vestur-Þýska- land. Fjórar og hálf milljón útlend- inga og fjölskyldur þeirra, hinir svonefndu „Gastarbeiter" mynda „lágstétt sem alltaf er til reiðu og tekur að sér að vinna flest óþægi- legustu líkamlegu störfin," eins og einn vinnusérfræðingur orðar það. Þjóðverjum fækkar - útlendingunum fjölgar Fjöldi þessara útlendu verka- manna vex stöðugt, á sama tíma og þýsku þjóðinni fækkar. En þrátt fyrir þá lýðfræðilegu staðreynd fylgja stjórnir ríkjanna og sam- bandslýðveldisins pólitískri stefnu sem ætlað er að draga úr fjölda erlendra verkamanna í landinu. Nokkrir sérfræðingar halda því fram að þessi stefna sé mótsagna- kennd og til þess fallin að mynda aðstæður sem yrðu góð gróðrarstía fyrir félagsleg átök. Æstar umræður um atvinnumál fara nú fram vítt og breitt um allt Þýska sambandslýðveldið og koma mál erlendu verkamannanna þar mikið við sögu. Atvinnuleysi í Vestur-Þýskalandi er u.þ.b. 10% en það er með því hæsta sem þekkist í Evrópu. Vestur-þýsku stéttarfélögin, sem eru voldug, vilja draga úr atvinnuleysi með því að stytta vinnuvikuna. í sömu andrá fara þau fram á hærri laun, þó að launakostnaður í landinu sé u.þ.b. sá mesti í heimi. Ríkisstjórn Kohls og atvinnurek- endur eru andvíg þessum hug- myndum. Hefðbundið þýskt vinnu- siðferði á hrððu undanhaldi Samtímis er hið hefðbundna þýska vinnusiðferði á æ meira undanhaldi vegna síaukinna krafna almennings um fleiri tómstundir. Þjóðverjar sniðganga störf sem eru illa launuð eða lítils metin. Vestur-Þýskaland vill hafa færri erlenda verkamenn innan landa- mæranna, en hefur æ meiri þörf fyrir vinnukraft þeirra. Það er þörf fyrir meira ódýrt vinnuafl til að geta staðið vel að vígi í samkeppn- inni á alþjóðlegum mörkuðum. Nordrhein-Westfalen er fjöl- mennasta ríki sambandslýðveldis- ins með 16,7 milljónir íbúa. Sam- kvæmt rannsóknum sem stjórn ríkisins hefur nýlega látið gera er því spáð að fjöldi útlendinga í landinu eigi eftir að vaxa talsvert til ársins 2015. Afstaða almennings í Vestur- Þýskalandi til vinnu hefur breyst gífurlega síðan á áratugunum eftir síðari heimsstyrjöld, þegar upp- byggingin eftir eyðileggingu stríðs- ins var í fullum gangi. Nú, á velgengnistímum, er frítíminn mun mikilvægari en vinnan í aug- um Vestur-Þjóðverja. Enn er þó samviskusemi í vinnu mikils metin í augum Þjóðverja eins og fyrr. En það er samt ástæða til að óttast að ekki líði á löngu þar til vinnusamviskusemi heyri til þjóðsögum en ekki raunveru- leikanum. Vinna ekki yfirvinnu þó að mikið liggi við „Þýskir iðnaðarmenn og tækni- menn eru afskaplega vel menntaðir og klárir í kollinum," segir for- stöðumaður þýskrar verksmiðju sem framleiðir bandarískar tölvu- vörur. „En þeir vinna nákvæmlega eftir samningum. Þegar klukkan segir að vinnudegi sé lokið eru þeir farnir. Það er aðeins með eftir- gangsmunum hægt að fá þá til að vinna eftirvinnu eða um helgar, jafnvel þó að stórverkefni, sem verið er að vinna að, sé á viðkvæmu stigi.“ Og yfirmennimir vilja ekki taka ákvarðanir Hann heldur síðan áfram: „Það er auk þess sérstaklega erfitt að fá þýsku yfirmennina okkar til að taka ákvarðanir. Þeir virðast halda að ef þeir taka engar ákvarðanir þurfi þeir ekki heldur að hafa áhyggjur af því að hafa kannski komist að rangri niðurstöðu." Þýskur hagfræðingur við háskól- ann í Basel talar nú um „steinruna efnahagskerfisins". Deilan milli stjórnmálamanna, háskólalærðra manna, stéttarfé- laga og atvinnuveitenda um hvenær, hvar og hvernig eigi að vinna sniðgengur samt sem áður því sem næst erlendu verkamenn- ina. Og það þrátt fyrir þá staðreynd að þeir séu í þýðingarmiklum störf- um í sumum mikilvægustu útflutn- ingsgreinum Þýskalands. Erlendu verkamennimir halda lífinu gangandi í mðrgum borgum Erlendu verkamennirnir gegna þó enn mikilvægara hlutverki í þjónustugreinum, umfram allt í þeim borgum sem þeir vinna sem klæðskerar, götusóparar, mat- sveinar, uppþvottamenn og leigu- bílstjórar og reka lítil þjónustufyr- irtæki. Án þeirra lamaðist lífið í þessum borgum að miklu leyti. Stjórn Kohls hefurekki tekist að vinna bug á hinni djúpstæðu andúð Þjóðverja á að vinna í þjónustu- greinum. „Við höfum ekkert á móti því að viðurkenna það ef við vinnum við að þjóna einhverri maskínu," segir Norbert Blúm atvinnuráðherra. „En að þjóna annarri manneskju, það virðist vera skammarlegt." Stjómvðld setja sífellt meiri hómlur á eriendu verkamennina En þrátt fyrir andúð flestra at- vinnulausra Þjóðverja á því að vinna þjónustustörf þar sem þau eru yfirleitt ekki mjög hátt launuð og handhafar þeirra ekki sérlega hátt skrifaðir í þjóðfélagsstiganum, setur ríkisstjórnin sífellt meiri hömlur á erlendu verkamennina. Þjóðfélag framtíðarinnar? „Við erum ekkert aðskotafólk lengur. Það er langt síðan okkur fór að finnast við tilheyra þýsku þjóðinni," segirTsambikos Kolios, Grikki sem fyrir skemmstu gekk í fararbroddi mótmælagöngu í Wies- baden, höfuðborg Hessen. Og hann bætir við: „Við erum þjóðfé- lag framtíðarinnar".

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.