Tíminn - 01.06.1988, Page 6

Tíminn - 01.06.1988, Page 6
6 Tíminn Miðvikudagur 1. júní 1988 AUGLÝSING um lausar stöður hjá Hollustuvernd ríkisins Með vísun til laga um breyting á lögum nr. 109/1984, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, með síðari breytingum, sem samþykkt voru á Alþingi 2. maí 1988, auglýsir heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið lausar til umsóknar eftir- taldar stöður hjá Hollustuvernd ríkisins: 1. Staða framkvæmdastjóra stofnunarinnar Staðan veitist frá og með 1. ágúst n.k., til fjögurra ára. Einungis má skipa mann, sem hefur menntun og reynslu á stjórnunar- og rekstrarsviði. Framkvæmdastjóri annast fjár- málalega stjórnun og stjórn almennrar skrif- stofu. 2. Forstöðumaður heilbrigðiseftirlits Staðan veitist frá 1. ágúst n.k. til 6 ára. Forstöðumaður heilbrigðiseftirlits skal hafa há- skólamenntun og viðhlítandi sérþekkingu í heilbrigðisvernd og starfsreynslu í heilbrigðis- eftirliti. Heilbrigðiseftirlit hefur yfirsjón með því, að framfylgt sé ákvæðum heilbrigðisreglugerð- ar og annarra reglugerða, er lúta að heilbrigðis- eftirliti. Það annast vöruskráningu og eftirlit með innflutningi matvæla og annarra neyslu- og nauðsynjavara. 3. Forstöðumaður rannsóknarstofu Staðan veitist frá 1. ágúst n.k. til 6 ára. Forstöðumaður rannsóknarstofu skal hafa há- skólamenntun á sviði örveru- og/eða efnafræði og sérþekkingu og starfsreynslu á sviði rann- sókna á matvælum og neyslu- og nauðsynja- vörum. Hlutverk rannsóknarstofu er að annast efna- og gerlafræðilegar rannsóknir, sem lög um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit gera ráð fyrir á sviði matvæla, neyslu- og nauðsynjavara og mengunar. Ennfremur að annast sérstök rannsóknarverkefni eftir því sem stjórn stofnun- arinnar ákveður hverju sinni. 4. Forstöðumaður mengunarvarna Staðan veitist frá 1. ágúst n.k. til 6 ára. Forstöðumaður mengunarvarna skal hafa há- skólamenntun á sviði verk- eða efnafræði og sérþekkingu og starfsreynslu á sviði mengunar- varna. Hlutverk mengunarvarna er að hafa yfirumsjón með því að framfylgt sé ákvæðum mengunarvarnareglugerðar og annarra hlið- stæðra reglugerða. Ennfremur að annast mengunarvarnir: 1. Tillögur að starfsleyfum og úrvinnslu gagna hvað snertir mengunarvarnir. 2. Skipulagningu og umsjón með framkvæmd mengunarrannsókna í samræmi við lög um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit. 5. Forstöðumaður eiturefnaeftirlits Staðan veitist frá og með 1. janúar 1989 til 6 ára. Forstöðumaður eiturefnaeftirlits skal hafa háskólamenntun og viðhlítandi sérþekkingu á eiturefnafræði og starfsreynslu á því sviði. Hlutverk eiturefnaeftirlits er að annast yfirum- sjón með vöruskráningu og innflutningi eitur- efna og hættulegra efna í nauðsynjavörum. Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og störf sendist heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykjavík, fyrir 1. júlí 1988. Heiibrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 30. maí 1988 y Félag íslenskra fiskmjölsframleiðenda: Utflutnings- verðmæti upp á 3 milljarða Félag íslenskra fiskmjölsframleið- enda hélt aðalfund sinn síðast liðinn föstudag. Aðild að félaginu eiga allar loðnu- og fiskmjölsverksmiðjur á landinu. Kom fram á fundinum að útflutningsverðmæti verksmiðjanna á síðasta ári nam rétt tæpum þrem milljörðum króna, sem er rúm 7% af heildarútflutningsverðmætum sjávarafurða frá íslandi. Varð nokk- ur samdráttur í framleiðslu mjöls og lýsis miðað við fyrri ár. Kosið var til stjórnar, og gaf Jón Reynir Magnússon, framkvæmda- stjóri Síldarverksmiðja ríkisins og formaður félagsins í 11 ár, ekki kost á sér til endurkjörs. Pétur Antons- son, forstjóri Fiskmjöls og lýsis hf. í Grindavík, var kjörinn í hans stað. Framkvæmdastjóri er Jón Ólafsson. Fundurinn lýsti yfir vonbrigðum með afgreiðslu samgönguráðuneyt- isins á kröfum félagsins um réttláta gjaldtöku af útflutningi félagsmanna og óskaði liðsinnis sjávarútvegsráðu- neytis við leiðréttingu málsins. Pá taldi fundurinn mjög mikilvægt að leita allra leiða til að lækka olíu- og rafmagnsverð verksmiðjanna. Vekja framleiðendurnir athygli á að hér er greitt helmingi hærra raforku- verð en í Noregi og Danmörku, svo dæmi séu tekin. Þá harmaði fundur- inn að ekki skuli hafa tekist að semja við Grænlendinga um veiðihlutdeild þeirra í loðnukvótanum hverju sinni. -SÓL Barnahópur Kvennaathvarfs: „Láttu mig vera, ég vil þetta ekki“ Smábókin „Þetta er líkami minn“ er nú komin út á vegum Barnahóps Kvennaathvarfsins. Bókin, sem ætl- uð er forskólabörnum, fjallar um það hvernig kenna megi börnum á nærfærinn hátt öryggi í samskiptum við fullorðna. Barnahópurinn hefur starfað frá árinu 1983. Verkefni hans hafa með árunum í æ ríkara mæli beinst að því hvernig beita megi fyrirbyggjandi aðgerðum til þess að draga úr of- beldi, kúgun, kynferðislegri áreitni og vanrækslu barna í þjóðfélginu. Starfið byggist allt á sjálfboðavinnu og er hópurinn opinn öllum sem hafa áhuga á að beita sér gegn illri meðferð barna. Af helstu verkefnum hópsins má nefna rekstur barnasímans (622260) í samvinnu við starfsfólk Rauða kross hússins, fræðslubæklingana í texta með þessari mynd í bókinni segir: „En þótt aðrir fái stundum að snerta mig, er líkami minn alveg sérstakur, því ég á hann og enginn annar.“ „Kynferðisleg áreitni" og „111 með- ferð á börnum - hvað er það?“, sem væntanlegur er fljótlega og ýmiss konar kynningarstörf. Smábókin „Þetta er líkami minn“ er seld á skrifstofu samtakanna í Hlaðvarpanum, Bókabúð Máls og menningar og Námsgagnastofnun. Sjónvarpið til jákvæðra áhrifa Félag kvenna í fræðslustörfum, Delta Kappa Gamma, hefur á fund- um sínum í vetur fjallað um áhrif fjölmiðla á börn og ungmenni. Á síðasta vetri var menntamálaráð- herra send ályktun þar sem bent var á að einhver mesti áhrifavaldur í mótun uppeldis æskufólks, utan heimila og skóla, væri sjónvarp. Var hvatt til að koma á skólasjón- varpi og bent á, að nýta mætti betur sjónvarpið til fræðslu- og jákvæðra uppeldisáhrifa. Bent var á að auk þess sem skólasjónvarp gæti stuðlað að betri og ljósari fræðslu og höfðað betur til áhuga nemenda, gæti það örvað almenna umræðu og áhuga á skólamálum, en jafnframt orðið grundvöllur til skoðanaskipta um málið innan veggja heimilanna. Samhliða vann sérstök nefnd að öflun upplýsinga frá ýmsum löndum um áhrif myndefnis á böm. Hópur- inn komst að þeirri niðurstöðu að taka saman nokkur atriði í lítið rit og er það einkum ætlað foreldrum og uppalendum. -SÓL BYKO opnar verslun BYKO opnaði stærstu bygginga- vöruverslun landsins í austurbæ Kópavogs fyrir skömmu. Þetta er fimmta verslun fyrirtækisins á höfuð- borgarsvæðinu, en með tilkomu nýju verslunarinnar eykst verslunar- og þjónustuflatarmál verslunarinnar um 2200 fermetra. Nýja verslunin er að Skemmuvegi 4a. í nýju versluninni er bryddað upp á ýmsum nýjungum til að auka þjónustuna, bæði við iðnaðarmenn og húsbyggendur. Má þar meðal annars nefna að komið hefur verið á fót áhaldaleigu, þar sem hægt er að leigja fjölbreytt úrval af tækjum og vélum. Verslunarstjóri nýju verslunarinn- ar er Agnar Kárason. -ABÓ Hin nýja verslun BYKO að Skemmuvegi 4a.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.