Tíminn - 02.06.1988, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Fimmtudagur 2. júní 1988
Langstærsta verkefm Landsvirkjunar a þessu ari:
Unnið fyrir 390 millj.
í ár í Blönduvirkjun
Úr stöðvarhússhelli Blönduvirkjunar.
Framkvæmdahjólin eru nú tekin
að snúast af fullum krafti á virkjun-
arsvæði Blöndu. Pað er heldur ekki
til setunnar boðið því miðað er við
gangsetningu fyrstu aflvélar Blöndu-
virkjunar t október 1991. í lok
síðasta árs var lokið við 29% bygg-
ingarframkvæmdanna við Blöndu-
virkjun en 34% af heildarfjárfest-
'ng KRAFTTAK í
nedanjarðarframkvæmdum
Miðað við byggingarvísitölu 371
stig hljóðar kostnaðaráætlun fram-
kvæmda yfirstandandi árs upp á 390
milljónir króna.
Helstu framkvæmdir eru neðan-
jarðarvirki, sem verktakafyrirtækið
KRAFTTAK sf. vinnur, niðursetn-
ing á sográsum og þrýstivatnspípu,
þétting stíflugrunns og uppsetning
hluta loftræstibúnaðar virkjunar-
stöðvarinnar.
Sundurliðun kostnaðar er sem hér
segir: Neöanjarðarvirki . 122,3 milljónir
Stíflugrunnur 74,8 “
Hverflar, rafalar 24,2 “
Þrýstivatnspípa 6,1 “
Loftræstibúnaður 4,8 “
Steypustöð 3,7 ”
Vinnubúðir, raflagnir, vegir . 10,1 “
Ófyrirséð 23,6 “
Rannsóknir,hönnun, umsjón 82,6 «
Annar kostnaður 0,6 “
Skaðabótakostnaður 23,7 “
Alls 386,5 milljónir
Neðanjarðarvirki
og stíflugrunnur
Framkvæmdum við neðanjarðar-
virki er áætlað að ljúka á þessu ári.
Af þeim 122,3 milljónum sem áætl-
aðar eru til þeirra mun 35 milljónum
verða varið til steypuvinnu í stöðvar-
húsi, um 20 milljónum í vinnu við
þrýstivatnsgöng, nálægt 40 milljón-
um í kapla- og stigagöng og 27,3
milljónum til ýmissa annarra verka.
Miðað er við að stöðvarhúsið
verði steypt upp á yfirstandandi ári
að því marki sem unnt er áður en
svokallaðir stálsniglar vatnsvélanna
koma til landsins, en þeirra er von í
ársbyrjun árið 1990.
í sumar byrja fyrstu undirbúnings-
framkvæmdir að sjálfri stíflugerð
virkjunarinnar. Liður í því er að
ryðja jarðvegi ofan af stíflugrunnin-
um og að þétta bergið undir með
ídælingu sementsefju.
Þrýstivatnspípa og
loftræstibúnaður
Áætlað er að uppsetningu á lóð-
réttum hluta þrýstivatnspípunnar
fari senn að ljúka. Þar á eftir tekur
síðan við uppsetning á efri beygj-
unni. Að aflokinni steypu um beygj-
una og þéttingu umhverfis pípuna
með ídælingu verður gengið frá
hreinsun og ryðvörn pípunnar að
innanverðu. Þessu verki er áætlað
að ljúka síðsumars.
Á þessu ári verður komið fyrir um
helmingi af loftræstibúnaði, sem
endanlega þarf að setja upp í stöðv-
arhúsinu. Hér er um að ræða upp-
setningu loftstokka, sem koma á bak
við upphengt loft í stöðvarhúsi, svo
og þann búnað í forskála aðkomu-
ganganna, sem nauðsynlegastur er
til loftdælingar í stöðina í stað þeirra
tækja, sem byggingarverktakinn hef-
ur hingað til notað.
Samið við sex hreppa
um skaðabætur
Árið 1982 var undirritaður samn-
ingur milli þáverandi virkjunaraðila
og 6 hreppa, sem hagsmuna áttu að
gæta á virkjunarsvæði Blöndu,
Svínavatns-, Torfalækjar-, Blöndu-
ós-, Bólstaðarhlíðar-, Lýtingsstaða-
og Seyluhreppa, um bætur fyrir
gróðurspjöll, sem miðlunarvegir og
vatnsvegir Blönduvirkjunar yllu á
afréttarlöndum.
Ákveðið var að bætur yrðu í formi
uppgræðslu, byggingu heiðavega og
brúa svo og girðinga og byggingu
gangnamannaskála. Áætlaður
kostnaður á yfirstandandi ári við
þennan framkvæmdalið er 23,7
milljónir króna. Til uppgræðslu eru
ætlaðar 14,2 milljónir, 3,8 millj. til
byggingu heiðavega, 1,3 milljón í
girðingavinnu, 0,6 milljón í svokall-
aða samráðsnefnd og 3,8 milljónir til
veiðimála.
Miðlunarlónið 20 ferkíló-
metrum stærra en Mývatn
Dýrasti hluti skaðabóta er upp-
græðsla lands í stað þess sem tapast
undir vatn. Miðlunarlónið eitt mun
verða 56 ferkílómetrar, þetta þýðir
að um 5000 ha lands, sem nú eru
algrónir, hverfa undir vatn að meira
eða minna leyti.
Til samanburðar má geta þess að
stærsta stöðuvatn landsins, Þing-
vallavatn, er 83,7 ferkílómetrar og
Mývatn er 36,5 ferkílómetrar að
stærð.
Landgræðsla ríkisins annast fram-
kvæmd uppgræðslunnar. Starf henn-
ar hófst árið 1981 og hefur síðan
verið aukið stig af stigi í 1250 ha alls.
Landgræðslan sér að mestu um
sáningu og áburðardreifingu úr
flugvél, en heimamenn hafa einnig
komið þarna við sögu með dreifingu
af landi.
Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins hefur fylgst náið með uppgræðsl-
unni á Auðkúlu- og Eyvindarstaða-
heiðum og mælt árangur hennar á
ári hverju. Þá hefur RALA einnig
gert samanburðartilraunir með mis-
munandi grasstofna, áburðargjöf og
friðun uppgræðslunnar.
Framkvæmdum við heiðavegi er
nú að mestu lokið. Nú þegar hafa
verið endurbyggðir eða lagfærðir
um 167 km langir vegir. Brýr hafa
verið byggðar á Mælifellsá, Ströngu-
kvísl og Hrafnabjargarkvísl.
Samtals 63 km langar girðingar
hafa verið reistar eða lagfærðar.
Gera verður ráð fyrir að annað eins
sé óunnið. Þá er ónefnd bygging eins
gangnamannaskála og tveggja hest-
húsa.
Fiskurinn undir smásjánni
Veiðimenn nyrðra hafa haft
áhyggjur af áhrifum virkjunarfram-
kvæmdanna á veiði í Blöndu og
Svartá. Landsvirkjun gerði á sínum
tíma samning við Veiðifélag Blöndu
og Svartár sem kveður á um að
veiðiréttareigendum verði tryggt að
þeir verði ekki fyrir tjóni á mcðan á
virkjunarframkvæmdunum stendur.
Einnig er Veiðimálastofnun gert,
samkvæmt þessum samningi, að sjá
um ýmsar rannsóknir á vatnasvæð-
inu til þess að meta hvort eða hversu
mikið varanlegt tjón verði á veiði
vegna virkjunarinnar.
Það sem menn hafa m.a. beint
sjónum að í þessu, er stofnstærð
göngufiska, aldurssamsetning, dreif-
ing veiðinnar og styrkleiki einstakra
árganga seiða. Þá hefur stór hluti
vatnakerfisins verið skoðaður með
tilliti til uppvaxtarskilyrða fyrir seiði.
Einnig skal þess getið að fiskiræktar-
tilraunir hafa verið í samvinnu við
Veiðifélag Blöndu og Svartár. óþh
Klæðning gegn alkalí
„Aðalkosturinn við þessa klæðn-
ingu, umfram plötuklæðningu er að
hún er samskeytalaus og hægt er að
klæða nær hvaða byggingu sem er án
tillits til aldurs eða lögunar og án
þess að breyta upphaflegu útliti
hússins," sagði Þorkell Guðmunds-
son hjá Veggprýði í samtali við
Tímann, en Veggprýði hf. er um-
boðs- og þjónustuaðili fyrir vestur-
þýska fyrirtækið Sto AG, sem fram-
leiðir margvísleg efni til viðgerða,
verndunar og fegrunar á húsum,
gamalla og nýrra, inni sem úti undir
vörumerkinu Sto.
Efnið sem er fljótandi, er dregið á
með hefðbundnum múráhöldum og
má fá það í um 300 mismunandi
litum, en að auki erhægt að veljaum
marga grófleika og einnig mismun-
andi mynstur. Þetta leiðir til þess að
hægt er að halda upprunalegu útliti
hússins, þannig að ekki þarf að leita
til byggingarfulltrúa eða annarra til
að fá samþykki fyrir að klæða hús að
utan með efninu.
Klæðningarefnið samanstendur af
polymer- og akrílcfnum, en þau eru
sérstaklega hentug í baráttunni við
frost- og alkalískemmdir, sem finna
má í mjög mörgum húsum á íslandi.
Klæðningin er í mörgum lögum. Ef
veggur er einangraður þá er yfirleitt
tregbrennandi einangrunarplast eða
steinull límd á múrhúð eða tréklæðn-
inguna, en annars er klæðningin sett
beint á vel háþrýstiþveginn vegginn.
Fyrsta lag klæðningarinnar er úr
sérstöku styrktarlagi sem saman-
stendur af sérstöku fylliefni og þétt-
riðnu glertrefjaneti. Fylliefnið er
borið á flötinn, netið lagt í ogsléttað
yfir. Um tvenns konar styrktarnet er
að ræða allt eftir því hvaða kröfur
eru gerðar um styrk. Þar utaná
kemur sérstakur grunnur og að lok-
um hlífðarkápan, veðurþolin og lit-
ekta og gefur klæðningunni endan-
legt útlit. Efnið í kápuna kemur sem
þykkfljótandi hræra og er annað
hvort sprautað á vegginn eða borin
á með hefðbundnum múráhöldum.
Aðspurður sagði Þorkell að ekki
væri nauðsynlegt í öllum tilfellum að.
einangra áður en styrktarklæðningin
væri sett á húsin. Hins vegar hefur
það marga kosti. Fyrir utan betra
einangrunargildi sem þýddi lægri
hitunarkostnað, þá mynduðust eng-
ar kuldabrýr, svo minni líkur yrðu á
spennusprungum. Þá héldist veggur-
inn heitur og þurr, þannig að alkalí
og frostskemmdir yrðu úr sögunni
auk þess sem styrkur steypunnar
nýtist að fullu. Því mætti spara
steypu og járn ef gert væri ráð fyrir
utanáliggjandi einangrun og Sto
klæðningu strax í hönnun húsa.
Þorkell sagði að nú þegar hefðu
tíu múrarar farið utan til Þýskalands
til að læra meðferð Sto efnanna og
að einnig hefðu menn frá verksmiðj-
unum komið hingað til lands til að
kenna múrurum að klæða hús með
klæðningunni. Sagði hann að Vegg-
prýði hefði mikinn áhuga á að kom-
ast í samband við múrara viðs vegar
um landið sem hefðu áhuga á að
kynna sér meðferð efnanna.
Fjölmörg hús hafa verið klædd
Innfellda myndin sýnir hvernig húsið
að Skólagerði 53 til 55 leit út áður en
Sto veggklæðning var sett á húsið.
Veggir voru mjög illa farnir af al-
kalískemmdum.
Stóra myndin sýnir húsið eftir að
það hafði verið klætt.
(Tímamynd Gunnar)
með Sto klæðningu og hefur reynsl-
an lofað góðu. -ABÓ