Tíminn - 02.06.1988, Qupperneq 15
Fimmtudagur 2. júní 1988
Tíminn 15
LESENDUR SKRIFA __
Hrafninn fýkur
Eftir að hafa horft á kvikmyndina
Óðal feðranna í Sjónvarpinu 21/5,
varð það mér umhugsunarefni í
hvaða tilgangi Hrafn Gunnlaugsson
fylgdi henni úr hlaði með svo um-
fangsmiklum formála og útskýring-
um, sem raun varð á. Það hvarflaði
að mér að um tvær megin ástæður
gæti verið að ræða. Það er í fyrsta
lagi áleitin þörf H.G. fyrir að láta sig
sjást og heyrast og í öðru lagi að
koma frekara höggi á sveitirnar og
það sem þeim tengist, en honum
hafði tekist að túlka í myndinni
sjálfri. Hvað fyrra atriðið snertir, fer
þaðekki dult, aðH.G. notarólíkleg-
ustu tækifæri til að auglýsa sig í
Sjónvarpinu. Nærtækt er dæmið um
viðtal hans við kvikmyndaleikstjór-
ann Ingmar Bergman, sem snerist
upp í langdregna kynningu á ágætum
Hrafns sjálfs.
{ hinu alltof langdregna viðtali
Illuga Jökulssonar við H.G. í upp-
hafi myndarinnar, fann ég ekki að
fælist raunsönn lýsing á því, sem
myndin sýndi, heldur öllu heldur
viðleitni hans til að gefa aukinn
þunga því sem hann vildi láta koma
fram, en þar virtist einkum um að
ræða fjandskap við sveitirnar og allt
sem þeim tengdist. Jafnvel seilist
H.G. svo langt í viðtalinu að níða
þann stjórnmálaflokk, sem nánast
tengist landsbyggðinni, með orðum,
sem ég dreg í efa að séu sæmandi
starfsmanni ríkissjónvarpsins, þar
sem hlutleysi á að vera ráðandi.
Eins og ég hefi lauslega drepið á,
fannst mér túlkun höfundar í viðtal-
inu á ýmsan hátt fara á svig við það
sem myndin sýndi. Þar sá ég ekki
koma frant þann ómennska ljótleika
sveitalífsins sem H.G. boðaði í við-
talinu, enda þótt langt væri seilst til
að sýna slíkt. Þar á ég ekki hvað síst
við, þar sem sýnd er vönun
graðhests, sem mér fannst detta inn
í myndina að tilefnislausu.
Myndin kom mér svo fyrir sjónir,
að mæðginin þrjú, sem enn hokruðu
á kotinu sínu, væru einu heiðarlegu
manneskjurnar, sem komu fram í
myndinni, enda ósnortin af „há-
menningunni". Eldri sonurinn, sem
af litlum efnum hafði verið kostaður
til mennta í borginni, hefur trúlega
að upplagi líkst sínum nánustu, en
borgarvistin hefur gert hann að
kærulausum auðnuleysingja, sem
útúr svalli með kunningjakonum
sínum úr borginni fer sér í ölæði að
voða, svo þaðan í frá má tæpast
greina hvort hann er lífs eða liðinn.
Úr borginni kemur dópistinn, dus-
ilmennið og varmennið, sem nauðg-
ar vangefnu stúlkubarni sem liggur á
sóttarsæng. I borginni er drykkju-
sjúka einstæða móðirin, sem léði
húsaskjólið, en rændi sveitadrenginn
aleigunni, þegar hann kom til borg-
arinnar, en vildi greiða með blíðu
sinni, sem þó var afbeðin. Og úr
borginni voru hjónin, sem verið
höfðu gestir á heimili Stefáns og
reynt að véla jörðina af þeim. Eftir
margítrekuð heimboð mátti svo frú-
in aldrei vera að því að taka á móti
Stefáni, eftir að hann var kominn til
borgarinnar.
Gagnstætt því sem kom fram í
túlkun höfundarins, fæ ég ekki betur
séð en að þessi mynd sýni, umfram
allt, tómleika, óheillyndi og fláræði
borgarlífsins.
Hrafnar hafa löngum þótt viðsjáls-
gripir. Þeir sameina lymsku hræ-'
fuglsins og grimmd ránfuglsins. Því
hefur nokkur áhersla verið lögð á að
fækka þeim. Nú hefur Sjónvarpið
hafið fækkun Hrafna. Betur að
áframhald yrði á því.
22/5 1988
Óskar Sigtryggsson
Að bregðast sjálfum sér
í „Tímanum“ birtist fyrir nokkru
grein eftir gamlan félaga, Helga
Ólafsson, frá Álfsstöðum á Skeið-
um. Grein þessi var hugvekja tii
Sunnlendinga, sem áður hafði birst í
blaði á Selfossi er nefnist „Dagskrá“.
Helgi nefnir grein sína „Að vinna
gegn eigin hagsmunum" og má segja
að heiti greinarinnar sé að sönnu.
Dæmi Helga um konurnar í
Bakkafiski á Eyrarbakka, sem fái
fríar ferðir af og til, svo að þær geti
notið stórmarkaðanna á Reykjavík-
ursvæðinu, á víðar við, en greinar-
höfundur gerir sér grein fyrir. Þegar
vel grær í haga hjá mörgum lands-
byggðarfyrirtækjum eru greiddar
niður ferðir fyrir starfsfólkið, svo að
það njóti helgarferða og annarrar
fyrirgreiðslu, til að sjá sig um í
almenningum stórmarkaðanna í
Reykjavík.
Steininn tók nú úr í fyrravetur,
þegar greiðasala bænda við Haga-
torg skipulagði ferðir í verslunarhof-
in. Þetta var á þeim árstíma, þegar
bændurnir njóta vildarkjara þar um
slóðir.
í máli sveitarstjórans á Stokkseyri
og oddvitans á Eyrarbakka við
starfsmann Rásar 2, þegar hann
innti þá tali um ágæti nýrrar brúar
yfir Ölfusá, kom fram að þeir óttuð-
ust afleiðingar, þegar leiðin styttist
til innkaupaferða í Hagkaup. Ljóst
var af viðbrögðum þeirra, að grein
Helga Ólafssonar voru orð í tíma
töluð, því þeir sögðu að þessi mál
væru mikið rædd þar um slóðir.
Bentu þeir á að margir sæktu vatnið
yfir lækinn í verslunarefnum. Heima
fyrir væri mikil og góð verslunar-
þjónusta. Fólkið er nánast að bregð-
ast sjálfu sér, þegar það flytur versl-
un sína og önnur þjónustukaup út
fyrir heimabyggð sína. Eftir sitja
heimaverslanir, einkum kaupfélög-
in, með vaxandi rekstrarhalla í þeirri
viðleitni að bjóða fram þjónustu,
sem hæfir markaðnum, þótt æ fleiri
sæki heldur til verslunarhallanna í
Reykjavík.
Þegar við norðanmenn lítum í
eigin barm er ljóst að hið sunnlenska
ástand sækir norður yfir heiðar, með
bættum vegasamgöngum.
Eitt sinn sóttu Skagfirðingar og
Húnvetningar í innkaupaleiðöngr-
um til Akureyrar, einkum þegar þeir
þurftu að eiga viðskipti í áfengisbúð-
inni. Nú er komin á Sauðárkróki
áfengisverslun og ein myndarlegasta
kjörverslun utan Reykjavíkur. Hver
er niðurstaðan? Kaupfélagi Skag-
firðinga er nánast hegnt fyrir sitt
ágæta framtak, með vaxandi rekstr-
arhalla, vegna bættrar þjónustu.
Á fundi Verkfræðingafélagsins
um hálendisvegi var þeirri hugmynd
slegið fram, að hagkvæmast væri að
stytta leiðina frá Akureyri til
Reykjavíkur, því að algengt væri að
a.m.k. Húnvetningar og Skagfirð-
ingar færu suður í Hagkaup til
innkaupa á dagvörum. Spurningin
er sú, hvað mundi gerast ef vegurinn
um Öxnadalsheiði væri færður í
nútímahorf. Mundi verslun færast til
Akureyrar eða verslun Eyfirðinga
færast suður?
Það er Ijóst að með þessum hætti
eru landsbyggðarmenn að grafa sér
eigin gröf á því sviði, sem mestu
varðar fyrir landsbyggðina. Lands-
byggðarfólkið verður að skilja það,
að landsbyggðarstefnan er einnig sá
lífsstíll, sem fólkið tileinkar sér. Ef
landsbyggðarfólkið, hvort sem það
er norðan heiða eða austan fjalls,
skynjar ekki hættuna, þarf ekki að
eyða orðum að raunhæfri byggða-
Ég stiklaði að Ferstiklu og naut
þar góðra veitinga í notalegum veit-
inga- og sýningarsal innan um dá-
samleg málverk eftir sómalista-
manninn Magnús Guðnason frá
Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð, er nú
er hættur búskap, fluttur á Akranes
og helgar sig eingöngu list sinni og
er í stöðugri framför. Hann sýnir
stefnu. Byggðastefnan er ekkert í
raun annað, en sjálfsbjargarviðleitni
fólksins sjálfs í byggðunum.
Á þessu sviði á fólkið afl og tæki
til að vinna þetta verk, sem eru
kaupfélögin víðs vegar um landið.
Hverfi samheldnin og byggðavitund-
in, býr ekki lengur það afl í fólkinu
sjálfu, sem þarf til að móta hinn
rétta lífsstíl landsbyggðarmanna og
þar með byggðastefnu hins daglega
lífs úti í byggðunum.
Hin nýja stétt auðmagnsins á ís-
landi mun aldrei sá silfri sínu í akur
hinna dreifðu byggða. Það er of
langt að sækja til gróðans á þeim
vettvangi.
Landsbyggðarmenn standa í
þakkarskuld við Helga Ólafsson frá
Álfsstöðum og við væntum fleiri
skrifa frá hans hendi. Hollur er sá
vinur er til vamms segir.
Samherji norðan heiða
þarna fjölda málverka, bæði fant-
asíur og landslagsmyndir og blöndu
af hvorutveggja. Ég ráðlegg öllum
að feta í mín fótspor og stikla að
Ferstiklu og njóta þess er ég hef lýst.
Sýningin mun standa til júnílok’a.
Ellert Guðmundsson,
Hveragerði.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Staða BÓKASAFNSFRÆÐINGS við bókasafn
sjúkrahússins í tengslum við Háskóla á Akureyri
er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 30. júní n.k.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri
störf sendist framkvæmdastjóra sjúkrahússins
Halldóri Jónssyni, en nánari upplýsingar veitir
bókavörður safnsins, Björg Þórðardóttir í síma
96-22100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Ferstikla - Ferstikla
Hvergi betra verð
Flatahrauni 29,
220 Hafnarfjörður
sími 91-651800
BOÐI
BOÐA
RAFGIRÐINGAR
Til afgreiðslu strax
Frá menntamálaráðuneytinu
Lausar stöður við framhaldsskóla
Við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki er laus til umsóknar kennara-
staða í þýsku og einnig kennarastaða í stærðfræði og eðlisfræði.
Við Fjölbrautaskólann við Ármúla er laus V2 kennarastaða í vélritun.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir 20. júní
næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið
HH REYKJKMÍKURBORG III
K M M________________ ** AA H
MF
Arkitekt
Laus er til umsóknar staða arkitekts við borgar-
skipulag Reykjavíkur. Upplýsingar hjá forstöðu-
manni eða Bjarna Reynarssyni, símar: 26102 og
27355.
Konur í Kópavogi
Hin árlega skógræktarferð Kvenfélagasambands Kópavogs að
Fossá í Kjós, Landi Skógræktarfélags Kópavogs, verður farin
laugardaginn 4. júní kl. 10.00 með rútu frá Félagsheimili Kópavogs.
Nánari upplýsingar gefa Ingibjörg í síma 41224 og Sigurbjörg í síma
41545. Mætum vel.
Stjórnin
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
Kristján Magnússon
bóndi, Seljalandi Höröudal
sem lést mánudaginn 30. maí á Sjúkrahúsinu Akranesi verður
jarðsunginn frá Snóksdalskirkju laugardaginn 4. júní kl. 14.00.
Svanhildur Kristjánsdóttir Gísli Jónsson
Magnús Kristjánsson
Hólmfríður Kristjánsdóttir
Guðlaug Kristjánsdóttir Kristján Finnsson
barnabörn og barnabarnabörn.