Tíminn - 02.06.1988, Page 16
16 Tíminn
Fimmtudagur 2. júní 1988
DAGBÓK
Sumarnámskeið Kramhússins
Fjóröa sumarið í röö er Kramhúsiö í
fararbroddi meö úrval námskeiða í leik-
fimi, dansi og skapandi hreyfingu, ávallt
með afbragðs kennara innlenda sem er-
lenda.
1. júní hefst síðdegisnámskeið í jazzi og
nútímadansi. Kennari Adrianne
Hawkins, sem kennt hefur undanfarin
sumur í Kramhúsinu. Hún er fyrst í
röðinni af fjölmörgum gestakennurum
Kramhússins í júní og júlí.
Sama dag hefst einnig þriggja vikna
leikfiminámskeið, morgun-hádegis og
síðdegistímar. Kennari Elísabet Guð-
mundsdóttir fastakennari Kramhússins.
1 .-15. júlí verður námskeið í dansspuna
fyrir börn 4-8 ára, kennari Guðbjörg
Arnadóttir, sem nýkomin er frá námi og
starfi við Danshögskolan í Stokkhólmi.
Sérgrein hennar er spuni og dans fyrir
börn.
11.-16. júní fer fram heilsdags kennara-
námskeið ætlað íþróttakennurum, tón-
menntakennurum og öðrum þeim sem
vilja virkja hreyfingu og hljóðfall við
kennslu. Aðalkennari á því námskeiði
verður Anna Haynes dansari sem nú
kemur hingað í annað sinn. Hún vinnur
meðal annars út frá hugmyndum hins
þekkta Rudolfs Labans. Auk hennar
munu kenna, Adrienne Hawins, Hafdís
Árnadóttir, Sigríður Eyþórsdóttir, Anna
Richardsdóttir og Keith Taylor. Fyrirles-
arar á náskeiðinu verða Örn Jónsson
náttúruráðgjafi sem fjallar um efnið
„Hvaðan kemur orkan og hvernig nýtist
hún best?“, Stefán Sigurðsson líffræðing-
ur og fjallar hann um „Líffræðilegar
breytingar líkamans við þjálfun“, og
Helga Gunnarsdóttir tónlistarfræðingur,
sem fjallar um „Hreyfingu og form í
tónlist“.
13.-30. júní gefst fullorðnum tækifæri
til að taka þátt í dansspunanámskeiði sem
einkum höfðar til þeirra sem hafa áhuga
á skapandi hreyfingu. Kennari er Anna
Haynes.
20. júní til 2. júlí verður svo haldið
alþjóðlegt dansnámskeið, svokallað
„workshop“. Þá bætast í hópinn kennar-
arnir Christian Polos og Alexandra Prusa,
sem bæði eru nemendum Kramhússins að
góðu kunn. Par verður boðið upp á jazz,
blues, nútímadans, stepp, kóreógrafíu og
miðevrópska danstækni.
22.júní -2.júlí verður haldið námskeið
í argentínskum tangó. Kennari Alexand-
ra Prusa. Rúsínan í pylsuendanum verður
svo helgarferð í Borgarfjörðinn, þar sem
fléttað verður saman tangódansi og reið-
kennslu hjá hinum þekkta knapa og
kennara, Reyni Aðalsteinssyni á Sig-
mundarstöðum.
Pátttakenda er vænst víða að og það er
fjöldi verður takmarkaður er fólki bent á
að skrá sig sem fyrst.
Akureyri
30.maí-9.júni. Eins og undanfarin sum-
ur leggur Hafdís Árnadóttir frá Kramhús-
inu land undir fót og heldur námskeið í
leikfimi og dansleikfimi í Dansstúdíói
Alice á Akureyri. Með í förinni verður
Keith Talyor sem kenna mun jazz, blues
og nútímadans.
Félag eldri borgara
Opið hús í Goðheimum Sigtúni 3,
fimmtudag kl. 14.00 Frjáls spilamennska
t.d. bridge eða lombert og kl. 19.30
félagsvist (hálft kort). Kl. 21.00 verður
síðan dans.
Minningarkort Styrktarsjóðs
barnadeildar Landakotsspítala
Styrktarsjóður bamadeildar Landa-
kotsspítala hefur látið hanna minninga-
kort fyrir sjóðinn. Sigríður Björnsdóttir
myndlistarmaður og kennari teiknaði
fjögur mismunandi kort. Eftirtaldir staðir
selja minningakortin:
Apótek Seltjarnarness, Vesturbæjar-
apótek, Hafnarfjarðarapótek, Garðs-
apótek, Holtsapótek, Mosfellsapótek,
Árbæjarapótek, Lyfjabúð Breiðholts,
Reykjavíkurapótek, Háaleitisapótek,
Kópavogsapótek, Lyfjabúðin Iðunn.
Blómaverslanimar; Burkni, Borgarblóm,
Melanóra Seltjamamesi og Blómaval
Kringlunni. Einnig em þau seld á skrif-
stofu og bamadeild Landakotsspítala.
Tónleikar í Norræna húsinu
Sunnudag 5. júlí, verða þau Sigurður
Bragason og Þóra Fríða Sæmundsdóttir
með tónleika í Norræna húsinu. Á efnis-
skrá eru íslensk lög, þýsk ljóð og ítalskar
óperuaríur.
Sigurður Már hóf nám í píanóleik við
Tónlistarskólann í Reykjavík, hjá Rögn-
valdi Sigurjónssyni og lauk þaðan tón-
menntakennaraprófi 1978. Frá Söng-
skólanum í Reykjavík lauk hann 8. stigs
prófi 1981. Til Ítalíu hclt Sigurður 1983
og var við söngnám í Mílanó hjá Maestro
Pier Miranda Ferraro til ársins 1986.
Sigurður hefur sungið með Islensku
óperunni og í Þjóðleikhúsinu, einnig
söng hann á mikilli sönghátíð vorið 1986
á Ítalíu.
Þóra Fríða Sæmundsdóttir lauk píanó-
kennaraprófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík vorið 1978. Eftir það lá leið
hennar til Þýskalands þar sem hún stund-
aði nám í tónlistarháskólanum í Freiburg
am Breisgau, þar sem hún lauk Diplom-
prófi 1981. I Stuttgart var Þóra Fríða
síðan við nám þar sem hún valdi Ijóða-
flutning sem sérgrein og nam undir hand-
leiðslu prófessors Konrads Richter.
Þóra Fríða kom heim frá námi 1984 og
hefur aðallega starfað sem píanóleikari
og kennari í Reykjavík.
Vinningsnúmer
í Happdrætti Landssambands
Hjálparsveita skáta
Dregið hefur verið í stórhappdrætti
Landssambands Hjálparsveita skáta og
komu eftirtalin númer upp:
Mitsubishi Pajero 5D Super Wagon jepp-
ar nr. 115235-117878-131077-141223.
Volkswagen Golf C 3D 1600 bifreiðar nr.
21952-37726-53322-68676-81871-98377-
126990-148192-149397-162637-162766-
173244
Hringt verður í alla vinningshafa.
Sýningu Elvars
Guðna senn að Ijúka
Sýning Elvars Guðna í Gimli Stokks-
eyri, hefur staðið frá 21.maí. Nú fer hver
að verða síðastur að líta myndir Elvars
Guðna augum, því síðasti sýningardagur
er á sjómannadaginn 5. júní n.k.
Dagsferðir sunnudaginn 5.júní
KL. 10.00 Stapafell-Sandfellshæð-
Sýrfell.
Ekið suður Miðnesheiði og eftir slóð sem
liggur að Stapafelli, en þar hefst gangan.
Síðan verður gengið um Sandfellshæð að
Sýrfelli sem er skammt frá saltverksmiðj-
unni á Reykjanesi. Þetta er forvitnileg
gönguleið á sléttlendi, en í lengra lagi.
Verð kr.1000,-
Kl. 13.00 Háleyjarbunga-Reykjanes.
Háleyjarbunga er austan Skálafells á
Reykjanesi, hraunskjöldur með regluleg-
um gíg í kolli. Létt gönguferð, Verð kr.
800.- Brottför frá Umferðarmiðstöðinni
austanmegin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir
börn í fylgd með fullorðnum.
Laugardaginn 11. júní kl.09.00 verður
farin dagsferð um söguslóðir Njálu.
Gallerí Gangskör
Sýning í Gallerí Gangskör. sýningin
hcitir Gróska og það eru meðlimir í
gelleríinu sem sýna. Hún opnar lau. 4.
júní kl. 14:00 og er opin þri. til fös. frá 12
til 18 og lau. og sun. frá 14 til 18 og
stendur til 19 júní.
Sýndar eru vatnslita, olíumyndir,
þrykk og leir og allt mögulegt.
Hjördís Frímann framlengir
sýningu sína í Gallerí List
Sýningu Hjördísar Frímann Gallerí
List sem staðiö hefur frá 21 .maí og átti að
Ijúka nú um helgina, hefur verið fram-
lengt til 5. júní.
Sýning í Hafnargalleríi
Á morgun föstudag opna þeir Tryggvi
Þórhallsson og Magnús Guðmundsson
sýningu á grafík og málverkum í Hafnar-
galleríi, Hafnarstræti 4.
Sýningin er opin á verslunartíma og
stendur til ll.júní.
Opnunartími
Listasafns Einars Jónssonar.
Listasafn Einars Jónssonar er opið alla
daga nema mánudaga kl.13.30-16.00.
Höggmyndagarðurinn er opinn daglega
kl.11.00-17.00.
1111111 ÚTVARP/SJÓNVARP lllllllllllllllllllHlllll
Fimmtudagur
2. júní
6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Gísli Jónasson
flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið. með Ragnheiði Ástu Péturs-
dóttur. Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00
og veðurfregnir kl. 8.15. Lesið úrforustugreinum
dagblaðanna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30.
Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og
9.00. Sigurður Konráðsson talar um daglegt
mál laust fyrir kl. 8.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Morgunstund barnanna: „Stúart litli“ eftir
Elwin B. White. Anna Snorradóttir les þýðingu
sína (9).
9.20 Morgunleikfimi. Umsjón: Halldóra Björns-
dóttir.
9.30 Landpóstur - Frá Norðurlandi. Umsjón: Sig-
urður Tómas Björgvinsson.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð. Hermann Ragnar Stefáns-
son kynnir lög frá liðnum árum.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur. Umsjón: Anna Ingólfsdóttir.
12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar. Tónlist.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónlist.
13.05 í dagsins önn. Umsjón: Finnbogi Her-
mannsson (Frá ísafirði).
13.35 Miðdegissagan: „Lyklar himnaríkis" eftir
A.J. Cronin. Gissur Ó. Erlingsson þýddi. Finn-
borg örnólfsdóttir les (13).
14.00 Fréttir. Tilkynningar.
14.05 Heitar lummur. Umsjón: Inga Eydal (Frá
Akureyri) (Einnig útvarpað aðfaranótt þriðju-
dags að loknum fréttum kl. 2.00).
15.00 Fréttir.
15.03 Ertu að ganga af göflunum, '68? Fyrsti
þáttur af fimm um atburði, menn og málefni
þessa sögulega árs. Umsjón: Einar Kristjánsson
(Endurtekinn þáttur frá kvöldinu áður).
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi - Stravinsky og Bartók.
a. Oktett fyrir blásara eftir Igor Stravinsky.
Sebastian Bell leikur á flautu, Antony Pay á
klarinettu, John Price og Graham Sheen á
fagott, James Watson og Paul Archibald á
trompet, David Purser á tenórbásúnu og Geoffr-
ey Perkins á bassabásúnu. b. Divertimento fyrir
strengjasveit eftir Béla Bartók. Orfeus-kammer-
sveitin leikur. c. Tvær hljómsveitarsvítur eftir
Igor Stravinsky. Hljómsveitin London Sinfon-
ietta leikur; Riccardo Chailly stjórnar.
18.00 Fréttir.
18.03 Torgið. Umsjón: Jón Gunnar Grjetarsson.
Tónlist. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá morgni
sem Sigurður Konráðsson flytur.
19.40 Að utan. Fréttaþáttur um erlend málefni.
20.00 Kvöldstund bamanna: „Stúart litli“ eftir
Eiwln B. White. Anna Snorradóttir les þýðingu
sína (9) (Endurtekinn lestur frá morgni).
20.15 Tónlistarkvöld Ríkisútvarpsins. Tónlist
eftir Krzysztof Penderecki. a. „í minningu þeirra
sem létu lífið í Hírósíma'1, sorgaróður fyrir
fimmtíu og tvö strengjahljóðfæri. Fílharmoníu-
sveitin í Varsjá leikur; Eitold Rovicki stjórnar. b.
„Capriccio“ fyrir fiðlu og hljómsveit. Wanda
Wilkomirska leikur á fiðlu með pólskuútvarps-
hljómsveitinni; höfundur stjórnar. c. „Lúkasar-
passía" Flytjendur: Stefania Woytowicz, And-
rezej Hiolsky, Bernhard Ladysz, Leszek Her-
degen, Fílharmóníski kórinn og hljómsveitin í
Kraká. Henryk Czyz stjórnar.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 Eitthvað þar... Þáttaröð um samtímabók-
menntir. Sjöundi þáttur: Um finnska Ijóðskáldið
Edith Södergran og rithöfundinn Jamaica Kinc-
aid frá Vestur-lndíum. Umsjón: Freyr Þormóðs-
son og Kristín Ómarsdóttir (Einnig útvarpað
daginn eftir kl. 15.03).
23.10 Pólsk tónlist. a. „Tamburetta", „Chromat-
ica“ og „Canzon Quarta" eftir Adam Jarzebski.
Pólska kammersveitin leikur; Jerzy Maksymiuk
stjórnar. b. Sinfónía í D-dúr eftir Bazyli Bohdan-
owicz. Kammersveitin í Poznan leikur; Robert
Satanowski stjómar. c. Konsert fyrir strengja-
sveit eftir Grazynu Bacewicz. Pólska Kammer-
sveitin leikur; Jerzy Maksymiuk stjórnar. d. „Þrír
þættir í gömlum stíl“ fyrir strengjasveit eftir
Henryk Gorecki. Pólska kammersveitin leikur:
Jerzy Maksymiuk stjómar.
24.00 Fréttir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
01.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af
veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
7.03 Morgunútvarpið. Dægurmálaútvarp með
fréttayfirliti kl. 7.30 og 8.30 og fréttum kl. 8.00
og 9.00. Veðurfregnir kl. 8.15. Leiðarar dagblað-
anna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30.
9.03 Viðbit. Þrastar Emilssonar (Frá Akureyri)
10.05 Miðmorgunssyrpa Kristínar Bjargar Þor-
steinsdóttur.
Leikjanámskeið fyrir börn
Leikjanámskeið KFUM og KFUK í
Reykjavík fara senn að byrja, Fyrsta
námskeiðið hefst 6. júní, en hin tvö sem
starfrækt verða hefjast 20. júní og4. júlí.
Námskeiðin eru fyrir börn og eru með
líku sniði og undanfarin sumur. Hvert
námskeið stendur í tvær vikur. Bömin
koma á staðinn kl. 10.00 f.h. og fara heim
12.00 Fréttayfyrilit. Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála. - Pétur Grétarsson.
16.03 Dagskrá.
18.00 Kvöldskattur Gunnars Salvarssonar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Kvöldtónar. Tónlist af ýmsu tagi.
22.07 Af fingrum fram. - Valgeir Skagfjörð
24.10 Vökudraumar.
01.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns. Að loknum fréttum kl. 2.00
verður endurtekinn frá mánudegi þátturinn „Á
frívaktinni“ þar sem Þóra Marteinsdóttir kynnir
óskalög sjómanna. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og
sagðar fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum
kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl.
4.30.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00,
10.00, 11.00, 12.00, 12.20, 14.00, 15.00, 16.00,
17.00,18.00,19.00, 22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2
8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands
18.30-19.00 Svæðisútvarp Austurlands.
Umsjón: Inga Rósa Þórðardóttir.
SJÓNVARPIÐ
Fimmtudagur
2. júni
18.50 Fréttaágrip og táknmálsfréttir.
19.00 Anna og félagar ítalskur myndaflokkur fyrir
börn og unglinga. Þýðandi Óskar Ingimarsson.
19.25 íþróttasyrpa. Umsjónarmaður Jón Óskar
Sólnes.
19.50 Dagskrárkynning
20.00 Fréttir og veður
20.35 Stangaveiði. (Go fishing) Fyrsta mynd af
sex sem fjalla um stangaveiðar í Bretlandi á
ýmsum fisktegundum. í þessari mynd er fengist
við silungsveiði. Þýðandi Gylfi Pálsson.
21.05 Matlock. Bandarískur myndaflokkur um lög-
fræðingafeðgin í Atlanta. Aðalhlutverk Andy
Griffith. Þýðandi Kristmann Eiðsson.
22.00 Að loknum leiðtogafundi. Fréttaskýringa-
þáttur um leiðtogafundinn í Moskvu og í kjölfar
hans verða umræður í sjónvarpssal. Umsjónar-
menn Jón Valfells og Karl Blöndal.
22.45 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Fimmtudagur
2. júni
16.35 Howard. Howard, the Duck. Myndin er gerð
eftir samnefndri bók rithöfundarins Steve Ger-
ber um öndina Howard sem er önd af yfirstærð
og hefur mannlegar tilfinningar. Aðalhlutverk:
Lea Thompson og Jeffrey Jones. Leikstjóri:
Willard Huyck. Þýðandi: Gunnar Þorsteinsson.
Universal 1986. Sýningartími 105 mín.
18:20 Furðuverurnar. Die Tintenfische. Leikin
mynd um börn sem komast í kynni við tvær
furðuverur. Þýðandi: Dagmar Koepper. WDR.
18.45 Fífldirfska. Risking it All. Breskir þættir um
fólk sem iðkar fallhlífarstökk, klífur snarbratta
tinda, fer í leiðangra í djúpa hella og teflir oft á
tæpasta vað. Þýðandi FriðþórK. Eydal. Westem
World._____________________________________________
19:1919:19 Heil klukkustund af fréttaflutningi
ásamt fréttatengdu efi.
20:15 Svaraðu strax. Laufléttur spurningaleikur.
Starfsfólk ýmissa fyrirtækja kemur í heimsókn í
sjónvarpssal og veglegir ferðavinningar eru í
boði. Umsjón: Bryndís Schram og Bjarni Dagur
Jónsson. Samning spuminga og dómarastörf:
Ólafur B. Guðnason. Dagskrárgerð: Gunnlaug-
ur Jónasson. Stöð 2.
21:50 Morðgáta. Murder She Wrote. Sakamálarit-
höfundurinn Jessica Fletcher mætir til leiks að
nýju og að þessu sinni heimsækir hún vinkonu
sína Evu Taylor í París til þess að vera viðstödd
glæsilega tískusýningu á nýrri hönnun vinkon-
unnar. Meðan á sýningunni stendur er meðeig-
andi Evu myrtur bak við tjöldin. Þegar lögreglan
finnur hnapp á morðstaðnum sem passar á
kápu Evu er hún handtekin og ákærð fyrir morð.
Jessica á bágt með að trúa að vinkona hennar
hafi verið völd að morði og hellir sér út í
rannsókn málsins af sinni alkunnu snilld. Þýð-
andi: Örnólfur Árnason. MCA._______________________
21:40 Keiludraumar. Dreamer. Ungur maður að
nafni Draumur á sér draum, draum um að verða
atvinnumaður í keiluíþróttinni. Hann gerir sér
grein fyrir því að það eitt að vera góður í keilu
dugir ekki til að fá að keppa sem atvinnumaður.
En ekkert stöðvar þennan metnaðarfulla mann,
ekki einu sinni unnustan sem neitar að skipa
annað sætið í lífi hans. Keiludraumar er róman-
tísk mynd sem sýnir bæði sigra og vonbrigði í
lífi atvinnumanns í íþróttum. Keiluíþróttin hefur
verið stunduð í nokkur ár hér á landi og hefur
náð miklum vinsældum og fyrir áhangendur
hennar er Keiludraumar kærkomin mynd. Aðal-
hlutverk: Tim Matheson, Susan Blakely og Jack
Warden. Leikstjóri: Noel Nosseck. Framleið-
andi: Michael Lobell. Þýðandi: Ágústa Axels-
dóttir. 20th Century Fox 1980. Sýningartími 90
mín.
23:10 Manhattan Transfer. Dagskráfrá tónleikum
hljómsveitarinnar Manhattan Transfer. Lorimar
1984.
00:10 Sprunga í speglinum. Crack in the Mirror.
Samskonar glæpur er framinn tvívegis við
ólíkar þjóðfélagsaðstæður. Spurningin er hvort
allir þegnar þjóðfélagsins fái sömu meðhöndlun
í réttarkerfinu. Aðalhlutverk: Orson Welles,
Julietta Greco og Bradford Dillmann. Leikstjóri:
Richard Fleischer. Framleiðandi: Darryl F.
Zanuck. Þýðandi: Svavar Lárusson. 20th Cent-
ury Fox 1960. Sýningartími 90 mín. Myndin er
ekki við hæfi barna.
01:45 Dagskrárlok.
kl. 19.00 síödegis. Dagskrá námskeið-
anna er fjölbreytt og farið í leiki, íþróttir
og skóðunarferðir. Pá fá börnin að mála,
teikna, vefa og baka. Einnig verður
biblíufræðsla.
Námskeiðin eru haldin í félagsheimili
KFUK og KFUM við Holtaveg (gegnt
Langholtsskóla). Innritun er þegar hafin,
en nánari upplýsingar fást á skrifstofunni
Antmannsstíg 2b.